Um 20 milljarða króna viðsnúningur hjá sveitarfélögum vegna lóðaskila 21. október 2008 16:16
Sveitarfélögin á landinu berjast nú við mikinn vanda í kjölfar efnahagsástandsins í landinu. Sem dæmi má nefna að talið er að endurgreiðsla á lóðum og byggingarrétti muni valda 20 milljarða kr. viðsnúningi í bókhaldi sveitarfélaganna þar sem félögin höfðu áður reiknað með þessu sem tekjum. Sveitarfélögin verða að endurgreiða um 10 milljarða kr. af úthlutuðum lóðum og byggingarrétti en höfðu áður gert ráð fyrir sambærilegri upphæð sem tekjum. Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga segir að þar við bætist að sökum minnkandi tekna hjá almenningi og auknu atvinnuleysi sem búist er við muni útsvarstekjur sveitarfélaganna dragast verulega saman. Þá er ótalið að greiðslubyrði af lánum sveitarfélaganna, einkum þeirra sem eru í erlendri mynt, mun þyngjast verulega. „Og svo má nefna Jöfnunarsjóðinn sem skiptir miklu máli hjá minni sveitarfélögunum," segir Karl. „Fjárstreymi til Jöfnunarsjóðsins er hlutfall af tekjum ríkissjóðs og því verður úr minna fé að spila þar." Karl segir að sambandið leggi nú mikla áherslu á að sveitarfélögin setji fram aðgerðaráætlanir til að mæta vandanum. „Þar er mikilvægast að grunnþættirnir í velferðarþjónustu sveitarfélaga verði ekki skertir og að þau í staðinn endurskoði forgangsröðun framkvæmda," segir Karl. Hvað varðar viðsnúninginn vegna endurgreiðslna á lóðum og byggingarrétti má nefna að hann einn er meira en 10 prósent af heildarrekstrartekjum sveitarfélaganna á síðasta ári. Viðsnúningurinn kemur harðast niður á sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu. Má nefna að eingöngu hjá Kópavosbæ eru um 3,5 milljarða króna að ræða.
Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Samstarf Fleiri fréttir Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Sjá meira