SPB horfir fram á gjaldþrot ef SÍ stendur við kröfu sína 21. október 2008 10:31
Agnar Hansson forstjóri Sparisjóðabanka Íslands (SPB) segir að það sé augljóst að bankinn stefni í gjaldþrot ef Seðlabanki Íslands stendur við kröfu sína um auknar tryggingar upp á 60 milljarða kr. frá SPB. Seðlabankinn tilkynnti SPB að verðmæti óvarinna verðbréfa sem Sparisjóðabankinn hefur í veðlánunum hjá Seðlabankanum og útgefin voru af Glitni, Kaupþingi og Landsbanka, hafi verið endurmetin. Af þeim sökum er krafist aukinna trygginga frá SPB. Frestur til þessa er fram á morgundaginn. Agnar segir að þeir séu nú í viðræðum við Seðlabankann og ríkisstjórnina um lausn á þessu máli. „Það getur varla verið ætlunin hjá þessum aðilum að setja restina af bankakerfi landsins í þrot," segir Agnar. Aðspurður um hvað SPB geti gert í stöðunni eða hvaða möguleika bankinn sjái segir Agnar að þeir vildu helst að beðið væri með kröfuna þar til útséð verður hvert verðmæti þessara verðbréfa verður þegar upp er staðið og búið verður að gera bankana þrjá upp. Slíkt um þó taka töluverðan tíma. „Það er hinsvegar ljóst að Sparisjóðabankinn hefur alls ekki bolmagn til að leggja fram tryggingar upp á þessa upphæð eins og staðan er í dag," segir Agnar. Þess má geta að svo virðist sem Seðlabankinn hafi lækkað verðmæti fyrrgreindra bréfa um helming. Fregnir berast hinsvegar erlendis frá að bréfin séu seld á sem svarar 3 aurum fyrir hverja krónu að nafnverði. Þannig megi álíta að bréfin séu í raun verðlaus.
Mest lesið Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira