Fleiri fréttir

Ragnar H. Guðmundsson í lok dags

Ragnar H. Guðmundsson frá Askar Capital var gestur Björgvins í þættinum Í lok dags í dag. Smelltu á hlekkinn hér að ofan til að sjá viðtalið.

SPRON tapaði 8,4 milljörðum

SPRON skilaði 8,4 milljarða króna tapi á fyrsta ársfjórðungi, en uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung var birt á miðvikudaginn. Þetta er einum milljarði króna meira tap en Greiningadeild Kaupþings hafði gert ráð fyrir. Til samanburðar var 4,7 milljarða króna hagnaður á sama tíma í fyrra, eftir því sem fram kemur í Hálf-fimm fréttum Kaupþings.

365 leiðir lækkun dagsins

Íslenska úrvalsvísitalan lækkaði um 0,77% í dag. Það er 365 hf sem leiðir lækkunina, en hlutabréf í félaginu lækkuðu um 3,68%. Eik Banki lækkaði um 3,12% og Eimskipafélagið um 1,85%.

Dregur úr atvinnuleysi í Bandaríkjunum

Atvinnuleysi í Bandaríkjunum var minna í apríl en spáð hafði verið. Þykir það benda til þess að niðursveiflan í efnahagslífinu verði minni en áður var talið, segir Bloomberg fréttastofan. Atvinnuleysið í apríl var 5,0% en 5,1% í mars.

Hefði viljað hafa FL áfram á markaði

„Ég hefði frekar viljað hafa FL Group áfram á markaði,“ segir Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. LSR á um 1,17% hlut í FL Group.

Kaupþing hyggst fækka störfum enn frekar

Kaupþing býst við því að ljúka fjármögnun fyrir áriið 2009 í ágúst og búist er við að fyrirtækið segi upp starfsfólki til að ná markmiðum sínum. Þetta hefur breska blaðið Gurdian eftir Hreiðari Má Sigurðssyni, forstjóra Kaupþings.

FL hlutir keyptir með bréfum í Glitni

FL Group hefur gert samninga um kauprétt á 862.017.533 hlutum í Glitni banka. Gerð kaupréttarsamningsins tengist tillögu stjórnar FL Group hf. um afskráningu félagsins úr Kauphöll Íslands.

Fjórða afskráningin í Kauphöll Íslands

Afskráning FL Group er sú fjórða sem vænta má að eigi sér stað á árinu. Afskráning Vinnslustöðvarinnar mun eiga sér stað áður en árið rennur á enda og þá hafa hluthafar Icelandic Group samþykkt afskráningu félagsins.

Börsen ræður íslenskan blaðamann

Danska viðskiptablaðið Börsen hefur ráðið íslenskan blaðamann til starfa. Sá heitir Þórður Gunnarson og er blaðamaður hjá Viðskiptablaðinu.

Viðskiptaráðherra vonar að ekki komi til uppsagna

„Ef sameining Kaupþings og SPRON gengur eftir vona ég að ekki komi til uppsagna á starfsfólki," segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra. Kaupþing og SPRON upplýstu um það á miðvikudag að forsvarsmenn félaganna hefðu ákveðið að kanna grundvöll fyrir sameiningu.

Stærsta spilavíti í heimi tapaði 11 milljónum Bandaríkjadala

Las Vegas Sands velti um milljarði Bandaríkjadala á fyrsta fjórðungi ársins 2008, eða um 75 milljörðum íslenskra króna. Þetta er minni velta en spáð hafði verið og er ástæðan helst rakin til efnahagslægðar í Bandaríkjunum og nýrra stórfjárfesta.

Actavis innkallar hjartalyf

Lyfjafyrirtækið Actavis hefur innkallað hjartalyf, sem framleitt er í verksmiðju fyrirtækisins í Bandaríkjunum og selt þar undir merkjum Bertek.

Jötunn gæti tapað 8 milljörðum á Glitnisbréfum

Jötunn Holding, eignarhaldsfélag í eigu Baugs, Fons og Sir Tom Hunters, þarf að öllum líkindum að horfast í augu við átta milljarða tap af bréfum sínum í Glitni við skipti á bréfum þeirra í FL Group sem ekki vilja eiga í félaginu þegar það verður tekið af markaði.

Flestir vilja eiga FL bréf áfram

Stjórn FL Group hefur samþykkt að boða til hluthafafundar þann 9. maí næstkomandi og leggja fyrir hluthafa félagsins tillögu um skráningu félagsins úr kauphöll OMX Nordic Exchange á Íslandi.

Baugur selur MK One

Baugur Group gekk í dag frá sölu á verslunarkeðjunni MK One. Þetta staðfesti Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, samtali við Vísi. Kaupverðið er trúnaðarmál en kaupandi er Hilco Retail Investment.

Segir töku FL Group af markaði ágæta lausn

„Þetta er náttúrulega bara hluti af því sem er að gerast og er ágæt lausn fyrst samkomulag náðist milli stærstu hluthafa,“ sagði Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, um þá ákvörðun að taka FL Group af markaði.

Englandsbanki segir fjárfesta fullsvartsýna

Englandsbanki lætur í veðri vaka að kreppan á lánsfjármarkaði þar í landi hafi gert fjárfesta of svartsýna í garð verðlags eignasafna. Þetta geti þó haft í för með sér gálgafrest fjármálahagkerfisins á næstu mánuðum.

SPRON og Kaupþing í viðræður

Kaupþing hefur óskað eftir viðræðum um yfirtöku á SPRON. Beiðnin er án fyrirvara og að frumkvæði Kaupþings. Niðurstöðu er vænst innan mánaðar.

FL Group af markaði - 12 milljarða hlutur í Glitni sem beita

FL Group verður tekið af markaði. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi félagsins í dag eftir því sem heimildir Vísis herma. Vísir greindi fyrst frá því 17. mars að stjórn félagsins hygðist leggja til að félagið yrði tekið af markaði.

Sameining Byrs og Glitnis ekki inni í myndinni

„Það hefur ekkert verið skoðað, fyrirtækið stendur vel eins og er,“ sagði Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður Byrs, þegar blaðamaður innti hann eftir því hvort til tals hefði komið að sameina Byr og Glitni

20 sagt upp hjá Símanum

Um tuttugu starfsmönnum Símans var sagt upp störfum í gær. Nokkrum var þó boðin önnur störf innan fyrirtækisins.

Atvinnuleysið 7,1% á evrusvæðinu

Atvinnuleysi á evrusvæðinu í mars nam 7,1% og var óbreytt á milli mánaða samkvæmt því sem Vegvísir Landsbankans hefur eftir Eurostat, Hagstofu Evrópusambandsins.

Bakkavör lækkaði um 15% á tveimur dögum

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,53% í dag. Bakkavör lækkaði um 6,68%, Eimskipafélagið lækkaði um 2,26%, Foroyja Banki um 2,00%, Exista um 1,80% og SPRON um 1,78%.

Frumkvæðið kom frá Kaupþingi

Frumkvæði að sameiningaviðræðum Kaupþings og SPRON er algjörlega Kaupþings, segir Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON.

Viðræður um sameiningu Kaupþings og SPRON

Kaupþing banki og SPRON hafa ákveðið að taka upp viðræður um mögulega sameiningu félaganna. Gert er ráð fyrir að viðræðunum verði lokið áum 4 vikum.

Kaupþing hagnaðist um 19 milljarða

Hagnaður Kaupþings eftir skatta nam 18,7 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins 2008. Hagnaðurinn var 20,3 milljarðar á sama tímabili í fyrra. Hagnaður á hlut var 26,1 krónur, samanborið við 27,4 krónur á sama tímabili í fyrra.

Hekla lækkar verð á bílum um allt að 17 prósent

Bifreiðaumboðið HEKLA lækkar verð á nýjum bílum um allt að 17 prósent í kjölfar betri samninga við framleiðendur. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að lækkunin taki strax gildi og þar með sé að talsverðu leyti gengin til baka sú hækkun sem orðið hefur á nýjum bílum hjá fyrirtækinu frá áramótum. Forsvarsmenn atvinnulífsins og launþega voru viðstaddir í dag þegar tilkynnt var um lækkunina.

Icelandair stofnar nýja ferðaskrifstofu

Icelandair Group hefur ákveðið að stofna nýja ferðaskrifstofu fyrir íslenska markaðinn sem leggja mun áherslu á á sumar- og vetrarleyfisferðir Íslendinga og móttöku erlendra ferðamanna. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair til Kauphallar Íslands.

Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,42%

Íslenska úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,42% frá því í morgun. Bakkavör Group hf. hefur lækkað um 4,42%, Exista hf. hefur lækkað um 2,78 og hið færeyska Atlantic Petroleum hefur lækkað um 1,75%.

Tilgangslausustu græjurnar

Íslendingar kaupa gjarnan tilgangslausar græjur, ef marka má nýja könnun sem gerð var í Bretlandi.

FL fækkar starfsfólki

Fimm var sagt upp hjá FL Group í gær og hefur starfsmönnum félagsins því verið fækkað úr 37 í 26 frá áramótum.

Dagatalið sparar atvinnurekendum 2,4 milljarða kr.

Á morgun er tvöfaldur frídagur hjá vinnandí fólki, það er uppstigningardagur og 1. maí falla á sama dag. Auðveldlega má reikna út að dagatalið spari atvinnurekendum með þessu um 2,4 milljarða kr.

Sjælsö Gruppen reiknar með 12 milljarða kr, hagnaði

Fasteignafélagið Sjælsö Gruppen í Danmörku reiknar með að hagnaður félagsins í ár muni nema um 12 milljörðum kr. Eignarhaldsfélagið Samson er stór hluthafi í Sjælsø Gruppen gegnum félagið SG Nord Holding A/S.

Grænn morgun í kauphöllinni

Markaðurinn í kauphöllinni hófst á jákvæðum nótum í morgun. Úrvalsvísitalan hækkaði um rétt rúmlega prósent í fyrstu viðskiptum dagsins og stendur í 5.269 stigum.

Sjá næstu 50 fréttir