Viðskipti innlent

„FL Group átti að fara af markaði fyrir ári“

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Vilhjálmur Bjarnason.
Vilhjálmur Bjarnason. MYND/Stefán Karlsson

„Um þetta er ekkert að segja, þetta átti að gerast fyrir ári síðan. Þá krafðist ég þess að þeir yrðu metnir sem ein heild og því var hafnað," sagði Vilhjálmur Bjarnason, hluthafi í FL Group, um skráningu félagsins af markaði. „Ég veit ekki hvað ég fæ fyrir þetta, ég hefði viljað fá þetta á genginu í fyrra," bætti hann við.

Spurður út í þær tafir sem orðið hefðu á málinu kvað hann Fjármálaeftirlitið hafa hafnað því að meta FL Group sem einn aðila. „En það var löngu búið að eyðileggja þetta félag. Hvaða félag heldurðu að þoli það að tapa 80 milljörðum? Það er ekkert félag sem þolir það," sagði Vilhjálmur.

„Ég veit ekki hvert framhaldið verður, það eru ábyggilega margir sem vilja losna og fá bréf í Glitni í staðinn," voru lokaorð Vilhjálms en hann var staddur á Spáni og við það að festa svefn þegar blaðamaður náði tali af honum.

Heyrði nýverið af atburðum

Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri fjárfestingafélagsins Veigs, vildi ekki tjá sig um málið, hann hefði verið að koma úr flugi og hefði nýverið heyrt af atburðunum.

Vitna má þó til orða hans í viðtali við Vísi 17. mars sl. þar sem hann var inntur álits á því hvaða þýðingu það hefði fyrir FL Group að vera tekið af markaði: „Það breytist í sjálfu sér ekki neitt, þetta þýðir bara að opinber verðskráning á hlutum hverfur og ekki er hægt að sjá verð bréfanna frá degi til dags. Aðgangur að lánsfé er yfirleitt betri fyrir skráð fyrirtæki af því að það er svo stíf upplýsingaskylda á þeim," sagði Jafet í því viðtali og enn fremur: „Ég held að þetta breyti engu fyrir FL Group, þarna er mjög þröngt eignarhald, ef þú tekur tíu stærstu hlutana ertu kominn í 85% eignarhlut."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×