Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslendingar hefðu þurft að kynna sig betur í Danmörku Fjárfestar hefðu átt að kynna sig betur áður en þeir ruddust inn í danmörku, að mati Almars Arnar Hilmarssonar, sem mun á næstunni láta af starfi forstjóra flugfélagsins Sterling. 4.3.2008 10:02
Sjælsö Gruppen skilar 14 milljarða króna hagnaði Þrátt fyrir mikið umrót á fasteignamarkaðinum í Danmörku tókst fasteignafélaginu Sjælsö Gruppen að skila hagnaði, fyrir skatt, upp á um 14 milljarða króna á síðasta ári. Eignarhaldsfélagið Samson er stór hluthafi í Sjælsø Gruppen gegnum félagið SG Nord Holding A/S. 4.3.2008 09:18
Velta með skuldabréf sjaldan verið meiri Velta með skuldabréf hélt áfram að vera mikil í febrúar og nam hún 372 milljörðum króna í mánuðinum og er mánuðurinn sá annar veltumesti frá upphafi. 4.3.2008 07:47
Sigurður Kári vill verða ráðherra Það gæti verið góður kostur fyrir Íslendinga að taka upp svissneskan franka, að mati Sigurðar Kára Kristjánssonar alþingismanns. 3.3.2008 17:24
Nítján félög niður í Kauphöllinni Atlantic Petroleum lækkaði mest allra félaga í Kauphöllinni í dag eða um 4,63%. Straumur-Burðarás lækkaði um 2,72% og Spron um 4,40%. 3.3.2008 16:41
Buffet segir Bandaríkin í kreppu Warren Buffet, þriðji ríkasti maður jarðarinnar, segir að kreppuástand sé í Bandaríkjunum um þessar mundir. Hann segir að hver heilvita maður hljóti að sjá að krepputímar séu uppi þó að venjulega sé miðað við að verg landsframleiðsla minnki tvo ársfjórðunga í röð, en það hefur ekki gerst enn. 3.3.2008 15:13
Rólegur mánudagur í Kauphöllinni Það hefur verið frekar rólegt í Kauphöllinni það sem af er degi. Eftir klukkutíma seinkun á opnun markaðar í morgun hafa 19 félög lækkað. 3.3.2008 14:41
Umboðsfyrirtæki keypt fyrir 30 milljónir punda Umboðsskrifstofan James Grant hefur keypt umboðsfyrirtækið sem stendur að baki Simon Cowell fyrir um 30 milljónir punda. James Grant er meðal annars með Wayne Rooney á sínum snærum. 3.3.2008 14:13
Íslandspóstur hagnast um 230 milljónir Íslandspóstur hagnaðist um 230 milljónir króna á síðasta ári sem var um tíu milljónum króna minni hagnaður en árið 2006. 3.3.2008 14:03
Barclays í útrás í Rússlandi Breski bankinn Barclays hefur keypt rússneska bankann Expobank fyrir tæpa fimmtíu milljarða íslenskra króna. Barclays ætla sér með þessum viðskiptum að gera sig gildandi á rússneska markaðinum en Expobank hefur aðallega einbeitt sér að því að koma sér fyrir í vesturhluta Rússlands í Pétursborg og Moskvu 3.3.2008 13:44
Buðu 120 milljarða í slóvenska símann Tilboð Skipta í slóvenska símann hljóðaði upp á 400 evrur á hlut eða 120 milljarða íslenska króna. Þetta sagði Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta, í samtali við Markaðinn skömmu fyrir hádegi. 3.3.2008 12:45
Nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs 365 Lára N. Eggertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs 365. Hún tekur við starfinu af Viðari Þorkelssyni sem hverfur til starfa hjá FL Group. 3.3.2008 12:35
Hætt við sölu slóvenska landssímans Slóvenska einkavæðingarnefndin tilkynnti fyrir stundu, að hætt hefði verið við einkavæðingu slóvenska símans, Telekom Slovenije. Skipti, móðurfélag Símans, voru annar tveggja bjóðenda. 3.3.2008 11:40
FL Group lýkur endurfjármögnun Refresco FL Group hefur lokið endurfjármögnun Refresco, leiðandi félagi í framleiðslu drykkjavara undir eigin vörumerkjum viðskiptavina í Evrópu. 3.3.2008 11:31
Róleg byrjun í kauphöllinni Viðskipti hafa farið rólega af stað í kauphöllinni í morgun eftir að opnað var fyrir viðskiptin nú kl 11. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,2% og stendur í 4.887 stigum. 3.3.2008 11:19
Sterling ræður nýjan framkvæmdarstjóra Sterling Airlines dótturfélag Northern Travel Holding hf hefur ráðið Christian Gormsen sem framkvæmdastjóra rekstrarsviðs (COO) og tekur hann við starfinu af John Robertson. Christian mun leiða flugvéla-, áhafna- og viðhaldsdeildir félagsins og taka stöðu í framkvæmdastjórn félagsins. 3.3.2008 11:11
Fjórir rauðir mánuðir í röð í Kauphöllinni Úrvalsvísitalan lækkaði í febrúar, fjórða mánuðinn í röð. Fram kemur í Morgunkorni Glitnis að lækkunin í febrúar hafi numið nærri ellefu prósentum og hafa hlutabréf í Kauphöllinni lækkað um 22 prósent frá áramótum. 3.3.2008 10:55
Klukkutíma frestun á opnun kauphallarinnar Vegna tæknilegra örðugleika hefur ekki reynst unnt að opna markaðinn í kauphöllinni á réttum tíma í morgun. Mun opnun frestast um klukkutíma eða til kl. 11 af þessum sökum. 3.3.2008 10:48
Spá að ávöxtunarkrafa íbúðabréfa lækki áfram Samkvæmt nýrri spá greiningar Glitnis um þróun ávöxtunarkröfu íbúðabréfa er gert ráð fyrir því að krafan muni halda áfram að lækka í mars. 3.3.2008 10:11
HSBC afskrifar 1.100 milljarða króna Breski bankinn HSBC, einn af stærstu bönkum Evrópu, hagnaðist um 12,2 milljarða punda, jafnvirði 1.600 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Þetta er tíu prósenta aukning frá í hitteðfyrra. 3.3.2008 09:33
Markaðir í Asíu tóku dýfu í morgun Markaðir í Asíu hafa tekið mikla dýfu í morgun. Nikkei-vísitalan í Japan hefur lækkað um 4% og úrvalsvísitalan í Ástralíu um 3%. 3.3.2008 07:49
Geir vill að bankarnir hægi á vexti sínum Geir H. Haarde forsætisráðherra segir í viðtali við Financial Times að hann telji að íslensku bankarnir þurfi að hægja á vexti sínum til þess að auka tiltrú alþjóðafjárfesta á íslenska hagkerfinu. Í grein Financial Times er greint frá því að tiltrú á íslensku bönkunum hafi minnkað að undanförnu vegna of mikils skuldatryggingaálags. 2.3.2008 23:21
Innkalla næstum allar tegundir Heparin Einungis einum degi eftir að bandaríska lyfjafyrirtækið Baxter innkallaði blóðþynningalyfið Heparin kom í ljós að einn sjúklingur til viðbótar hafði látið lífið af völdum þess. 2.3.2008 21:06
Airbus fagnar samningi við Bandaríkin EADS sem framleiðir Airbus farþegaþoturnar í Evrópu fagnar því að hafa gert samning við Bandaríkjastjórn um smíði eldsneytisflugvéla fyrir bandaríska herinn. Samningurinn er áfall fyrir Boeing verksmiðjurnar í Bandaríkjunum. 2.3.2008 14:31
Er Heathrow tilbúinn fyrir flugtak? Flugstöðvarbygging 5 á Heathrow flugvelli í London hefur kostað 285 milljarða króna og tekið 60 þúsund iðnaðarmenn sex ár í byggingu. Nú er innan við mánuður þar til fyrirhugað er að Elísabet Bretadrottning opni bygginguna. Bresku flugmálayfirvöldin BAA vonast til að flugstöðvarbyggingin muni sanna fyrir umheiminum að þau séu fær um að koma flugvellinum aftur á kortið sem góðum flugvelli. 2.3.2008 12:14
Bílaverksmiðjum lokað vegna verkfalls í Bandaríkjunum Skortur á varahlutum vegna verkfalls tveggja birgðasala er farið að bitna á bílaframleiðslu General Motors og Chrysler bílaframleiðendanna. GM sagði í gær að þeir myndu leggja niður starfsemi þriggja pallbílaverksmiðja í Fort Wayne í Indiana, Flint í Michican og Oshawa í Ontario, vegna skorts á varahlutum frá American Axle & Manufacturing holdings Inc. 1.3.2008 17:36
Mannleg mistök orsökuðu rafmagnsleysi 2,5 milljón manns Bandaríska orkufyrirtækið Florida Power and Light segir mannleg mistök hafa átt sér stað þegar meira en tvær og hálf milljón viðskiptavina þeirra urðu rafmagnslausir vegna bilunar. Tveggja síðna bráðabirgðaskýrsla var gefin út um málið þar sem sökinni er skellt á viðgerðarmann sem var að rannsaka bilaðan rofa í rafstöð vestur af Miami. 1.3.2008 15:47
Deilur vegna samnings um eldsneytisflugvélar Deilur hafa sprottið upp í bandaríska þinginu vegna samnings sem gerður hefur verið við evrópska flugvélaframleiðandann Airbus og Northrop Grumman um framleiðslu eldsneytisflugvéla fyrir bandaríska herinn. Þingmenn frá Washington og Kansas eru æfareiðir vegna samningsins en í ríkjum þeirra eru einmitt verksmiðjur Boeing flugvélaframleiðandans. 1.3.2008 13:49
Olíuverð nálgast met Verð á olíutunnu lækkaði við lok kauphallarinnar í New York í gær eftir að hafa náð hæstu hæðum fyrr um daginn. Mikil eftirspurn eftir olíu og áframhaldandi veikleiki dollarans halda verðinu háu. Tunna af léttri bandarískri hráolíu nálgaðist 103,05 dollara yfir daginn, en við lok dags var verðið komið niður í 101,72 dollara. Olíutunna frá bresku Brent olíulindunum lækkaði um 69 sent og var 100,21 dollar á tunnu. 1.3.2008 12:19