Buðu 120 milljarða í slóvenska símann 3. mars 2008 12:45 MYND/Róbert
Tilboð Skipta í slóvenska símann hljóðaði upp á 400 evrur á hlut eða 120 milljarða íslenska króna. Þetta sagði Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta, í samtali við Markaðinn skömmu fyrir hádegi. Fram kom fyrr í dag að ríkisstjórn Slóveníu hefði hætt við sölu á símafyrirtækinu Telekom Slovenije vegna þess að að hvorugt þeirra tilboða sem bárust þótti nógu hagstætt. Til stóð að selja tæplega helmingshlut í Telekom Slovenije og var Skipti, móðurfélag Símans, annar tveggja bjóðenda sem kepptu á lokasprettinum um félagið. Keppinautur Skipta var Bain Capital, Axos Capital og BT, og áttu bjóðendurnir tveir að senda endurskoðuð tilboð á föstudag. Eftir því sem næst verður komist endurskoðuðu báðir tilboð sín. Slóvenska einkavæðingarnefndin segir hins vegar að tilboðin séu ekki fullnægjandi, og því sé einkavæðingunni frestað. Brynjólfur sagðist í samtali við Markaðinn hafa orðið fyrir vonbrigðum að tilboði fyrirtækisins hefði ekki verið tekið. Í tilkynningu frá Skiptum er enn fremur haft eftir Brynjólfi að forráðamenn fyrirtækisins hafi verið búnir að fara ítarlega yfir alla þætti þessa máls undanfarnar vikur með einkavæðingarnefnd slóvenska ríkisins og ráðgjöfum þess og fyrir nefndinni hafi legið tilboð frá Skiptum. Skipti skráð á markað í mars „Það er ákvörðun nefndarinnar að selja ekki og við virðum þá ákvörðun. Það var okkar skoðun að kaupin á Telekom Slovenije og samstarf þess við Skipti hefðu getað orðið báðum félögum til hagsbóta og skapað verðmæti fyrir hluthafa beggja félaga. Þrátt fyrir að viðræðum um kaup á Telekom Slovenije sé lokið er ljóst að Skipti eru vel í stakk búin fyrir vöxt utan Íslands. Við höfum á undanförnum misserum keypt félög með starfsemi í Bretlandi, Danmörku, Noregi og Svíþjóð og innan fyrirtækisins býr mikil þekking sem við munum nýta til frekari vaxtar á komandi misserum. Framundan eru spennandi tímar, skráning Skipta í Kauphöll er vel á veg komin og stefnt er að skráningu nú í mars," segir Brynjólfur.Til stóð að skrá Skipti á hlutabréfamarkað hér á landi fyrir áramót en því var frestað fram í mars vegna viðræðna um kaup á slóvenska símanum.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira