Viðskipti innlent

Sterling ræður nýjan framkvæmdarstjóra

Christian Gormsen
Christian Gormsen

Sterling Airlines dótturfélag Northern Travel Holding hf hefur ráðið Christian Gormsen sem framkvæmdastjóra rekstrarsviðs (COO) og tekur hann við starfinu af John Robertson. Christian mun leiða flugvéla-, áhafna- og viðhaldsdeildir félagsins og taka stöðu í framkvæmdastjórn félagsins.

Christian hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra hjá GN ReSound A/S undanfarin fimm ár og hefur meðal annars haft umsjón með rekstrarsviði, markaðssviði og þróunarsviði félagsins. Hann starfaði hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company í þrjú ár sem stjórnunarráðgjafi og þar áður vann hann hjá Carnegie Bank.

"Christian kemur til Sterling með mikla þekkingu og yfirsýn á innviðum fyrirtækja og fyrirtækjarekstri. Hann hefur sýnt að hann býr yfir góðu innsæi varðandi stefnumörkun og rekstur fyrirtækja. Þessir þættir eru mikilvægir framtíðarsýn félagsins um að færa félagið á næsta vaxtarstig og festa það enn frekar í sessi sem gæða flugfélag. Ég þekki Christian persónulega frá fyrrum samstarfi okkar hjá McKinsey & Company en reynsla hans þaðan styrkir trú mína enn frekar á getu hans til að hraða þróun Sterling enn frekar" sagði stjórnarformaður Sterling Airlines, Þorsteinn Örn Guðmundsson.

"Sterling er öruggt og sveigjanlegt félag sem hefur, á velheppnaðan hátt, breytt ferðaiðnaðinum í Scandinavíu . Ég hlakka til að vinna með yfirstjórn og starfsmönnum Sterling að því að auka veg félagsins enn frekar og aðstoða við að leiða það á næsta stig vaxtar og velgengni á einum mest spennandi markaði í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi" Sagði Christian.

Christian Gormsen útskrifaðist með M.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Copenhagen Business School í Danmörku.

Floti Sterling Airlines samanstendur af 29 Boeing 737 flugvélum sem fljúga á yfir 100 leiðum. Hjá félaginu eru um 1200 starfsmenn sem allir leggja áherslu á að veita viðskiptavinum áreiðanlega og sveigjanlega þjónustu á sanngjörnu verði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×