Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tölvunotkun mest á Íslandi Tölvunotkun og aðgangur að interneti er mest á Íslandi miðað við aðildarlönd Evrópusambandsins og nýta Íslendingar sér tæknina í mun meira mæli en þeir. Níutíu prósent Íslendinga á aldrinum 16-74 ára notuðu tölvu árið 2006, og 88 prósent þeirra notuðu internetið. Á sama tíma notuðu 61 prósent íbúa Evrópusambandsins tölvu og rúmur helmingur þarlendra heimila hafði aðgang að interneti. 8.3.2007 09:33
Tyrkir loka YouTube Tyrkneskir dómstólar hafa úrskurðað að lokað skuli á aðgang að vefmyndbandaveitunni YouTube vegna þess að þar er að finna móðgandi myndbrot við landsföðurinn Kemal Ataturk. Nú þegar tyrkneskir netnotendur reyna að fara inn á síðuna mætir þeim ekkert annað en skilaboð frá yfirvaldinu um að síðan sé lokuð. 8.3.2007 07:08
Einfölduð sýn fyrir stjórnendur Tölvubankinn hefur kynnt til sögunnar nýja hugbúnaðarlausn fyrir stjórnendur fyrirtækja og sveitarfélaga sem kallast BizVision. Hugbúnaðurinn verður kynntur á sýningunni Tækni og vit sem hefst á morgun. 8.3.2007 06:15
Rafhlöður úr fartölvum innkallaðar á ný Viðamikil innköllun á rafhlöðum fyrir fartölvur frá Sanyo er enn eitt áfallið fyrir japanska tæknifyrirtækið. 8.3.2007 06:00
Glitnir hækkar verðmiðann á Kaupþingi Greining Glitnis hefur hækkað verðmat sitt á Kaupþingi í 1.171 krónu á hlut úr 968 samkvæmt verðmatsgengi sem sent var út til viðskiptavina Glitnis í gær. Glitnir metur markaðsvirði Kaupþings á 860 milljarða króna og mælir með kaupum í bankanum. Markgengi Kaupþings til sex mánaða stendur í 1.200 krónum og hækkar úr eitt þúsund krónum. 8.3.2007 06:00
Securitas kaupir 30 prósenta hlut í ND á Íslandi Öryggisfyrirtækið Securitas hf. hefur keypt 30 prósenta hlut í þekkingar- og tæknifyrirtækinu ND á Íslandi, sem hefur fundið upp, þróað og selt tæki til sjálfvirkrar skráningar á aksturslagi bíla með sérstökum ökurita. Kaupverð er trúnaðarmál en með kaupunum er Securitas orðinn stærsti hluthafinn í ND á Íslandi. 7.3.2007 22:15
Paulson ræðir við kínversk stjórnvöld Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, kom til Pekingborgar í Kína í dag en hann mun funda með ráðamönnum í Kína um gjaldeyrisstefnu stjórnvalda. Kínverska júanið hefur verið mjög lágt um langan tíma og hefur vegna þessa aukið mjög á vöruskiptahalla á milli Bandaríkjanna og Kína. 7.3.2007 13:38
Glitnir uppfærir verðmat á Kaupþingi Glitnir hefur gefið út nýtt og uppfært verðmat á Kaupþingi. Fyrra verðmat Glitnis hljóðaði upp á 968 krónur á hlut. Nýja matið hljóðar hins vegar upp á 1.171 krónu á hlut. Í mati Glitnis segir að uppgjör Kaupþings á fjórða ársfjórðungi í fyrra hafi verið verulega yfir væntingum. 7.3.2007 11:44
Olíuverð hækkar vegna ótta um samdrátt Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á markaði í dag og fór í tæpan 61 dal á tunnu. Helsta ástæðan fyrir hækkuninni er sú að búist er við að olíubirgðir hafa minnkað nokkuð á milli vikna í Bandaríkjunum. Orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna birtir vikulega skýrslu sína um olíubirgðir landsins síðar í dag. 7.3.2007 10:31
Atorka og Straumborg í 3X Fjárfestingafélögin Atorka Group hf., móðurfélag fyrirtækja á borð við Promens og Jarðboranir, og Staumborg ehf., sem er í eigu Jóns Helga Guðmundssonar, og fjölskyldu, hefur keypt meirihluta hlutafjár, 50,1 prósent, í fyrirtækinu 3X Stál á Ísafirði. Samfara kaupunum hefur nafni félagsins verið breytt í 3X Technology ehf. 7.3.2007 09:36
Litbrigði arðsins Breska blaðið Sunday Times hefur um langt skeið efnt til virtrar keppni í vatnslitamálun. Slíkum keppnum hefur farið fækkandi og vígi hinnar hárnákvæmu og hófstilltu listar vatnslitamálunar falla hvert af öðru. Það eru fleiri vígi sem falla, því kepppnin heitir ekki lengur The Sunday Times Watercolour Competition, heldur The Kaupthing Singer and Friedlander/Sunday Times Watercolour Competition. 7.3.2007 09:36
Mjúk eða hörð stjórnun Fyrirtæki eru í auknum mæli að ganga í gegnum breytingar, s.s. alþjóðavæðingu, tækninýjungar og aukna samkeppni. Margir líta í því sambandi á mannauð sem lykilþátt í samkeppnishæfni fyrirtækja og stofnana og leggja áherslu á að breyta hefðbundnum starfsmannadeildum úr deildum sem sjá um skipulag og eftirlit í mannauðsdeildir sem skapa augljóst virði innan fyrirtækja. 7.3.2007 09:36
Jarðvegur Indlands nærir forystu Actavis Kaup á lyfjaverksmiðju Sanmar í Suður-Indlandi í síðasta mánuði mörkuðu þáttaskil í starfsemi Actavis á Indlandi. Með þeim hafði Actavis náð tökum á allri virðiskeðju sinni, allt frá þróun á lyfjaefnum, framleiðslu þeirra og fullbúinna lyfja og aðstöðu til þróunar og klínískra prófana. Actavis getur því í raun sinnt öllum stigum þróunar og framleiðslu lyfja í Indlandi án þess að aðrir komi þar að máli. 7.3.2007 09:36
Byggjum réttlátt samfélag Hrun á alþjóðlegum fjármálamörkuðum undanfarnar vikur kemur Aurasálinni ekki á óvart. Um árabil hefur hún haft áhyggjur af gegndarlausum hækkunum verðbréfapappír um víða veröld. Sérstaklega hefur Aurasálin áhyggjur af þeim búsifjum sem ofsagróðinn veldur almennum borgurum. 7.3.2007 09:36
BYRjunar-örðugleikar Eitthvað virðist nafnbreyting sameinaðra sparisjóða Hafnfirðinga og vélstjóra hafa farið fram hjá sumum viðskiptavinum. Á laugardaginn var nýtt nafn, Byr - sparisjóður, og merki kynnt. Á mánudegi heyrðist hins vegar af viðskiptavini sem kom inn í sinn gamla sparisjóð og stoppaði hissa við. „E... er þetta ekki ennþá banki?“ spurði sá og fékk frekar þreytulegt tilsvar um að víst væri það svo. 7.3.2007 09:36
Kínverskar púðurkerlingar Kunningi minn hringdi í mig í vikunni alveg að fara á límingunum. „Er þetta allt að hrynja?“ spurði hann æstur. Ég geispaði letilega í símann og spurði hvað væri eiginlega í gangi. Það kom náttúrulega í ljós að vinurinn sem er snarmanískur andskoti, hleypur maraþon og þarf alltaf að vera að gera eitthvað, hafði náttúrulega rifið sig upp fyrir allar aldir og séð ástandið á kínverska markaðnum. 7.3.2007 09:36
Sjálfkjörið í stjórn Straums Sjálfkjörið verður í stjórn Straums-Burðaráss fjárfestingar-banka. Þeir sem hafa boðið sig fram sem aðalmenn eru eftirtaldir: Björgólfur Thor Björgólfsson, Birgir Már Ragnarsson, Guðmundur Kristjánsson, Friðrik Hallbjörn Karlsson og James Leitner. Leitner er forstjóri bandaríska fjárfestingarsjóðsins Falcon Management Corporation í New Jersey. 7.3.2007 09:36
Svo fæ ég vexti og vaxtavexti og vexti líka af þeim Fyrirsögnin er fengin úr söng Trölla fyrir hönd Útvegsbankans á árum áður. Þetta var auðvitað rétt hjá Trölla en bara hálf sagan og varla það. Á dögum Trölla máttu allir þessir vextir sín oftast lítils fyrir verðbólgunni og innstæður í bönkum rýrnuðu að raunvirði. 7.3.2007 09:36
MA-nám í alþjóðaviðskiptum Háskólinn í Reykjavík ætlar á næsta haustmisseri að bjóða nemendum upp á nýtt nám á meistarastigi í alþjóðaviðskiptum. Námið er sérsniðið fyrir metnaðarfulla nemendur sem vilja ná starfsframa á alþjóðavettvangi, að sögn forstöðumanna námsins. Sjónum er sérstaklega beint að sérstökum markaðssvæðum auk þess sem nemendur munu dvelja í eina önn á þriðja misseri námsins á erlendri grund í því skyni að víkka sjóndeildarhring þeirra enn frekar. 7.3.2007 09:36
Háskólapróf í nísku Á Deiglunni.com er oft að finna skemmtilegar greinar. Þar er samankominn hópur frjálslyndra og velmenntaðra ungmenna sem tekst oft á tíðum að bregða frjóu sjónarhorni á hin ýmsu málefni líðandi stundar í bland við hin sem glíma þarf við á skala eilífðarinnar. Á Deiglunni er að finna núna grein eftir Magnús Þór Torfason, doktorsnema við Columbia Business School. 7.3.2007 09:20
Markaðirnir að jafna sig Hlutabréfamarkaðir í Asíu jöfnuðu sig að nokkru leyti í gær en flestar vísitölur kauphalla hækkuðu lítillega eftir talsverðar lækkanir frá upphafi síðustu viku þegar markaðirnir tóku snarpa dýfu. Fjárfestar munu þó enn vera áhyggjufullir. 7.3.2007 09:05
FL Group selur Kynnisferðir FL-Group seldi í gær allan hlut sinn í rútubílafyrirtækinu Kynnisferðum og hagnaðist um 450 milljónir á sölunni, samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Kaupandi er hópur fjárfesta undir forystu Norðurleiðar og Hópbíla-Hagvagna og er þar með orðinn til nýr rísi á hópferðabílamarkaðnum. Með þessu hefur FL Group lokið sölu á öllum dótturfyrirtækjum sínum, sem tengdust gamla ferðaþjónustuhluta Flugleiða, eins og hann var áður en félagið fékk nafnið FL Group. 7.3.2007 07:34
Enn tapar DeCode Tap af rekstri DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar nam fimm komma átta milljörðum króna í fyrra, sem er talsvert verri afkoma en í hitteðfyrra, en þá var afkoman verri en árið þar áður. Í tilkynningu frá félaginu segir að aukið tap í fyrra megi rekja til fjárfestingar í lyfjarannsóknum og vaxandi þróunarkostnaðar. 7.3.2007 07:25
Margföldun stofnfjár lögð til Fyrir aðalfund Byrs verður lögð tillaga um heimild til stofnfjáraukningar úr 231 milljón í þrjátíu milljarða króna. Hagnaður Byrs í fyrra nam um 2,7 milljörðum króna. 7.3.2007 06:30
Stefnt að hækkandi arði Finnska fjármálafyrirtækið Sampo Group kynnti nýja arðgreiðslustefnu á dögunum. Markmiðið er að arðgreiðslur aukist á milli ára sem samsvari 4-6 prósenta árlegri ávöxtun á nafnverð hlutafjár. 7.3.2007 06:15
Moody‘s metur Norvik Banka Sérfræðingar matsfyrirtækisins Moody‘s eru nú staddir úti í Lettlandi þar sem þeir kynna sér rekstur Norvik Banka áður en hann verður metinn í fyrsta sinn. Bankinn hét áður Lateko og er í meirihlutaeigu Straumborgar, félags Jóns Helga Guðmundssonar. 7.3.2007 06:15
Íslandsprent bætir við sig Annabella Jósefsdóttir hefur verið ráðin til Íslandsprents sem nýr starfsmaður í söludeild til að sinna auknum verkefnum fyrirtækisins. Hún sér um samskipti við viðskiptavini, tilboðsgerð og öflun nýrra viðskiptavina. 7.3.2007 06:00
Actavis sjálft skotmark Svo gæti farið að Actavis verði sjálft yfirtökuskotmark takist félaginu ekki að yfirtaka samheitalyfjahluta þýska lyfjarisans Merck eins og það hefur lýst áhuga á. 7.3.2007 06:00
Vanskil einstaklinga og fyrirtækja ekki minni í sex ár Hlutfall vanskila af útlánum innlánsstofnanna lækkaði úr tæplega 0,7 prósentum í lok þriðja ársfjórðungs í fyrra í rúmlega 0,5 prósent í lok síðasta árs og hafa vanskil ekki verið jafn lítil í sex ár, samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu. 6.3.2007 14:00
NASA vantar fjármagn Fulltrúar Geimsferðarstofnunar Bandaríkjanna, Nasa, segja stofnunina vanta fjármagn til að rannsaka alla þá loftsteina og halastjörnur sem Jörðinni kann að stafa ógn af. Talið er að um 20,000 hluti sé að finna í sólkerfi okkar sem kunna að nálgast Jörðina í framtíðinni. Ætlun Nasa er að finna og rannsaka 90 prósent þeirra fyrir árið 2020. Í skýrslu sem Nasa lét vinna kemur fram að kostnaðurinn við þá vinnu yrði um einn milljarður bandaríkjadala. 6.3.2007 12:23
Allt á uppleið í Kauphöllinni Hlutabréf í Kauphöll Íslands hafa hækkað í morgun en í gær lækkaði verð á nær öllum skráðum félögum. Straumur-Burðarás hefur hækkað mest, um 2,5% og hefur náð aftur því gengi sem var á bréfum félagsins fyrir helgi. Þá hefur Landsbankinn hækkað um 1,9%, Exista um 1,8% og Kaupþing um 1,75%. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,19%. Engin félög hafa lækkað í Kauphöllinni í dag. Töluverð viðskipti hafa verið í kauphöllinni í morgun, eða fyrir 1,3 milljarða. 6.3.2007 10:43
Markaðir aftur á uppleið Hlutabréfamarkaðir bæði í Asíu og Evrópu hafa tekið kipp upp á við í dag eftir talsverðar lækkanir síðustu vikuna. FTSE-vísitala kauphallarinnar í London hækkaði eilítið fljótlega eftir opnun í morgun og aðrar evrópskar vísitölur hækkuðu einnig. Nikkei-vísitalan í Japan hækkaði um rúmt prósent í dag en gærdagurinn var sá versti í Tokyokauphöllinni í níu mánuði. Þá hækkaði Hang Seng vísitalan í Hong Kong um 1.6% og SSE vísitalan í Shanghai um tæplega 2%. 6.3.2007 10:11
Ríkisstofnanir fá endurgreiðslu Til stendur að endurgreiða ríkisstofnunum virðisaukaskatt af allri þjónustu sem þær kaupa af tölvu-og hugbúnaðarfyrirtækjum. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra upplýsti um þetta á ráðstefnunni „Útvistun - allra hagur“ sem haldin var fyrir helgi af Samtökum UT-fyrirtækja, Samtökum iðnaðarins, Ríkiskaupum og ráðuneytum fjármála, iðnaðar og viðskipta. 6.3.2007 10:00
Minna tap í olíuleitinni Færeyska olíuleitarfélagið Atlantic Petroleum skilaði tapi upp á rúma 8,1 milljón danskra króna, jafnvirði rétt rúmra 96 milljóna íslenskra króna, á síðasta ári. Þetta er nokkru minna tap en árið áður en þá tapaði félagið tæplega 10,4 milljónum danskra króna, sem jafngildir 123,3 milljónum íslenskra króna. 6.3.2007 00:01
EMI hafnaði Warner Music Stjórn bresku hljómplötuútgáfunnar EMI hafnaði í gær yfirtökutilboði bandarísku risasamstæðunnar Warner Music Group. Tilboðið hljóðaði upp á 260 pens á hlut, sem þýðir að EMI er metið á 2,1 milljarð punda, jafnvirði um 275 milljarða íslenskra króna. 6.3.2007 00:01
Ofurleiðni er næsta skrefið Hraðlestir sem snerta ekki jörðina, ofurrafgeymar og enn öflugri og kröftugri tölvur eru skammt undan. Efni sem nefnast háhita ofurleiðarar munu gera allt þetta að veruleika í framtíðinni. 5.3.2007 22:02
Minna tap hjá Atlantic Petroleum Færeyska olíuleitarfélagið Atlantic Petroleum skilaði tapi upp á rúma 8,1 milljón danskra króna, jafnvirði rétt rúmra 96 milljóna íslenskra króna, á síðasta ári. Þetta er nokkru minna tap en árið áður en þá tapaði félagið tæplega 10,4 milljónum danskra króna, sem jafngildir 123,3 milljónum íslenskra króna. Tap félagsins á fjórða ársfjórðungi í fyrra minnkaði talsvert á milli ára. 5.3.2007 15:57
Lítil breyting á markaði í Bandaríkjunum Fjármálamarkaðir í Bandaríkjunum opnuðu fyrir skömmu. Lækkanir á vísitölum á mörkuðum í Asíu og í Evrópu virðast ekki hafa skilað sér vestur um haf enda hækkuðu helstu vísitölur á bandaríska markaðnum lítillega við opnun markaða. Greinendur eru ekki vissir um hvað dagurinn feli í skauti sér en vísa til orða Henry Paulsons, fjármálaráðherra, sem segist hafa tröllatrú á bandaríska hagkerfinu. 5.3.2007 15:21
Olíuverðslækkanir hafa áhrif í Noregi Gengi hlutabréfa í kauphöllinni í Osló í Noregi hefur ekki farið varhluta af lækkunum á helstu fjármálamörkuðum í Asíu og Evrópu í dag. Inn í spilaði reyndar heimsmarkaðsverð á hráolíu, sem hefur talsverð áhrif inn í norsku kauphölina, en það dró vísitöluna niður um 2,8 prósent. Gengi bréfa í Kauphöll Íslands hefur lítið breyst eftir því sem liðið hefur á daginn. 5.3.2007 13:18
Úrvalsvísitalan tók dýfu Úrvalsvísitala Kauphallarinnar tók dýfu við opnun markaða í morgun. Þá hafa vísitölur um allan heim lækkað. Danska viðskiptablaðið Börsen spáir blóðrauðum degi í dönsku kauphöllinni. 5.3.2007 12:26
Lækkanir í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð við opnun Kauphallar Íslands í dag en Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 2,07 prósent það sem af er dags. Þetta er nokkuð í samræmi við gengi á mörkuðum í Evrópu og í Asíu. Gengi kínversku hlutabréfavísitölunnar lækkaði um 3,5 prósent en gengi japönsku Nikkei-hlutabréfavísitölunnar lækkaði um 3,4 prósent í dag. Hún hefur ekki lækkað jafn mikið í níu mánuði. 5.3.2007 10:35
HSBC skilaði methagnaði Alþjóðlegi bankinn HSBC, einn stærsti banki í Evrópu, skilaði 11,5 milljarða punda hagnaði á síðasta ári. Þetta jafngildir rúmum 1.500 milljörðum íslenskra króna sem er fimm prósenta hækkun á milli ára. Þetta er langt yfir væntingum greinenda enda metafkoma í sögu bankans. Á sama tíma varð bankinn að afskrifa um 5,4 milljarða punda á bandaríska fasteignalánamarkaðnum. 5.3.2007 09:59
Enn lækka markaðir í Asíu Hlutabréfamarkaðir í Japan tóku enn eina dýfuna þegar markaðir opnuðu þar eftir helgina en Nikkei-vísitala kauphallarinnar í Tokyo féll um þrjú og hálft prósent í dag. Samtals hefur vísitalan því lækkað um nær 8 prósent á einni viku. Þá veiktist staða japanska jensins gagnvart dollara. Ekki sér fyrir endann á lækkun markaða. Þá lækkuðu hlutabréf í kauphöllinni í Shanghai í Kína um nær 2 prósent í dag eftir að hafa tekið lítinn kipp upp á við fyrir helgi. 5.3.2007 07:14
BBC og YouTube í eina sæng BBC og YouTube hafa gert með sér samstarfssamning sem felur í sér að YouTube býður nú myndskeið frá þremur sjónvarpsrásum BBC. Þá verður hægt að sjá viðtöl BBC við „fræga fólkið“, fréttir og eitthvað skemmtiefni. BBC mun að líkindum sjálft sjá um að hýsa myndskeiðin, en þeim verður veitt á síðu YouTube eins og öðrum myndskeiðum sem þar má sjá. 3.3.2007 15:43
SPV og SH heita nú Byr - sparisjóður Sparisjóður vélstjóra og Sparisjóður Hafnarfjarðar hafa nú tekið sameiginlegt nafn; Byr - sparisjóður. Sparisjóðirnir sameinuðust formlega um áramót. Starfsmenn og fjölskyldur þeirra komu saman í Smárabíó í dag til að fagna nýja nafninu. Heildareignir hins nýja sparisjóðs nema rúmum 100 milljörðum króna og eiga um 50 þúsund einstaklingar í viðskiptum við hann. 3.3.2007 13:42