Viðskipti innlent

Jarðvegur Indlands nærir forystu Actavis

Jón Valgeirsson og Róbert Wessman opna formleg þróunarsetur Bangalore á Indlandi. Starfsfólk fylgist með.
Jón Valgeirsson og Róbert Wessman opna formleg þróunarsetur Bangalore á Indlandi. Starfsfólk fylgist með.

Kaup á lyfjaverksmiðju Sanmar í Suður-Indlandi í síðasta mánuði mörkuðu þáttaskil í starfsemi Actavis á Indlandi. Með þeim hafði Actavis náð tökum á allri virðiskeðju sinni, allt frá þróun á lyfjaefnum, framleiðslu þeirra og fullbúinna lyfja og aðstöðu til þróunar og klínískra prófana. Actavis getur því í raun sinnt öllum stigum þróunar og framleiðslu lyfja í Indlandi án þess að aðrir komi þar að máli.

Stjórnendur Actavis stefna grimmt að því markmiði að félagið verði innan næstu árum meðal þriggja stærstu lyfjafyrirtækja heims. Það mun bæði fara fram með ytri og innri vexti. Frekari yfirtaka er hins vegar ekki að vænta á Indlandi í bráð. Aukið fjármagn verður nú lagt í að efla þá starfsemi sem félagið hefur komið upp í landinu. Á næstu árum stefnir félagið að því að fjárfesta fyrir þrjá til fjóra milljarða í Indlandi samhliða auknum umsvifum. Alls starfa nú um 620 manns hjá Actavis á Indlandi í borgunum Chennai, Bangalore og Hyderabad.

Stjórnendur Actavis hafa sagst sækja inn á Indlandsmarkað af tvennum ástæðum. Annars vegar vegna þess hversu kostnaður þar er lágur. Hins vegar vegna þess hversu gott aðgengi er að hámenntuðu og hæfileikaríku fólki þar. Mörg hundruð umsóknir hámenntaðra sérfræðinga berast fyrir hvert starf sem fyrirtækið auglýsir laust á Indlandi.

Actavis stefnir að því að stór hluti af framleiðslu og endurþróun vissra eldri lyfjaflokka muni fara fram í Indlandi. Það er nauðsynlegt félaginu svo það geti framleitt lyf með sama kostnaði og indverskir samkeppnisaðilar þeirra sem hafa verið að koma sterkir inn á samheitalyfjamarkaðinn á heimsvísu. Félagið hefur þó ekki í hyggju að færa framleiðslu sína eins og hún leggur sig til Indlands. Ákveðin lyf verða alltaf framleidd í Bandaríkjunum, á Íslandi eða Evrópu þar sem lög segja einfaldlega til um að þau verði að vera framleidd þar.

Enn sem komið er stendur framleiðsla Actavis í Indlandi einungis fyrir litlum hluta af heildarsölu Actavis. Hún mun hins vegar fara stigvaxandi strax á þessu ári ef allar áætlanir um lyfjaskráningar ganga eftir. Actavis á jafnframt í samstarfi við aðra lyfjaframleiðendur á Indlandi. Þau lyf sem unnið hefur verið að þróun að með þeim munu koma á markað á næstu misserum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×