Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Metviðskipti í Kauphöll eftir sölu í Íslandsbanka Samherjamenn, Nóatúnsfjölskyldan og Byggingafélag Gylfa og Gunnars koma ný í hluthafahóp Íslandsbanka. Hlutabréfaviðskipti fyrir rúma 122 milljarða í gær. Forstjóri Straums-Burðaráss sáttur við söluna. 10.1.2006 00:01
100 milljarða króna fjármögnun Actavis Actavis hefur gengið frá 100 milljarða fjármögnun sem byggist annars vegar á sambankaláni og hins vegar á sölu forgangsréttarhlutabréfa. Sambankalánið er að upphæð 80 milljarðar króna sem er það mesta sem íslensku fyrirtæki hefur verið veitt. 10.1.2006 00:01
Stelios hefur ekki gert upp hug sinn Stofnandinn og stærsti eigandi easyJet, Stelios Haji-Ioannou, segir í viðtali við Evening Standard að hann hafi ekki gert upp hug sinn hvort hann myndi fallast á hugsanlega yfirtöku FL Group. "Ég er hvergi nærri því að selja. Ég tel enn að bréfin eigi meira inni." 10.1.2006 00:01
Tilboð í Jarðboranir vel ásættanlegt Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur sem óháður aðili lagt mat á yfirtökutilboð Atorku Group í Jarðboranir og telur að tilboð Atorku sé vel ásættanlegt og sanngjarnt fyrir hluthafa í Jarðborunum. 10.1.2006 00:01
Söluhagnaður Straums-Burðaráss 16 milljarðar króna Söluhagnaður Straums-Burðaráss af sölu á tæplega fjórðungshlut fyrirtækisins í Íslandsbanka nemur um 16 milljörðum króna, að sögn Þórðar Más Jóhannessonar forstjóra. Miklar vangaveltur eru þegar uppi um frekari eignatilfærslur hér innanlands eftir að Straumur-Burðarás fékk um 80 milljarða króna fyrir hlutinn. 9.1.2006 07:47
Skýrari blokkir eftir Íslandsbankasöluna Sala Straums til FL Group, Þáttar og fleiri aðila skýrir línur í eignarhaldi stærstu bankanna. Þrjár megin viðskiptablokkir eru með stærstu viðskiptabankanna í miðju sinni. Viðskiptin marka skil í átökum sem verið hafa í eigendahópi bankans. 9.1.2006 00:01
160 milljarðar í árshagnað Hagnaður helstu Kauphallarfélaga nærri fjórfaldast á fjórða ársfjórðungi. Gengishagnaður fjármálafyrirtækja í sögulegu hámarki. Spáð minni hækkun Úrvalsvísitölunnar í ár. 8.1.2006 00:20
Dregur úr vexti íbúðarlána Sérfræðingar greiningardeildar Landsbankans segja íbúðalán bankanna á árinu 2005 hafi numið alls 203,6 ma.kr. en síðustu fjóra mánuði ársins 2004 voru afgreidd ný lán fyrir samtals 120 ma.kr. 6.1.2006 17:29
FL-group eykur eignarhlut sinn í Finnair FL-group hefur keypt rúmlega þrjú og hálft prósent í finnska flugfélaginu Finnair Oyj með framvirkum samningi. Fyrir átti félagið um tvö og hálft prósent í fyrirtækinu og eignarhluturinn því orðinn ríflega sex prósent. 4.1.2006 17:27
Steypustöðin og Merkúr sameinast undir MEST Steypustöðin og Merkúr hafa sameinað starfsemi sína undir nafninu MEST. Í tilkynningu frá hinu nýsameinaða félagi segir að með sameiningunni verði til öflugt fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á vörum og þjónustu til verktaka og fagaðila í byggingariðnaði og verklegum framkvæmdum. 2.1.2006 12:24
Pálmi kaupir 12 prósenta hlut í sænskri ferðaskrifstofu Pálmi Haraldsson, stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins Fons, hefur keypt tólf prósenta hlut í sænsku ferðaskrifstofunni Ticket og er þar með stærsti einstaki hluthafinn í félaginu. Þetta kemur fram á fréttavef sænska blaðsins Dagens Industri. Þar segir einnig að Pálmi hafi greitt um 400 milljónir íslenskra króna fyrir hlutinn, en hann á einnig stærstan hlut í sænska lággjaldaflugfélaginu Flyme. 2.1.2006 08:52
Eimskip tekur við rekstri á Herjólfi Eimskip hefur tekið við rekstri Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs frá og með áramótum. Við þá breytingu hefur nýtt bókunar- og greiðslukerfi verið tekið í notkun ásamt nýju afsláttarfyrirkomulagi auk þess sem ný siglingaáætlun hefur verið tekin í gagnið. 1.1.2006 16:19
Eimskip selur Frílager Eimskip hefur selt Frílager til Ekrunnar ehf, dótturfélags Nathan & Olsen ehf., samkvæmt samningi sem undirritaður var í dag. Samningurinn nær eingöngu til kostverslunar Frílagers, þ.e. matvöru, drykkjarvöru, hreinlætisvöru, áfengis og tóbaks. 30.12.2005 16:07
Ari Edwald verður forstjóri 365 Gunnar Smári Egilsson hefur verið ráðinn forstjóri Dagsbrúnar en Eiríkur S. Jóhannsson fer til starfa hjá Baugi Group. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hefur verið ráðinn forstjóri 365. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi fyrir stundu. 30.12.2005 10:47
Samskip opna skrifstofu í Vigo á Spáni Samskip opna skrifstofu í Vigo á vesturströnd Spánar um áramótin og verða helstu verkefni hennar umsýsla með hverskyns fiskafurðir, bæði kældar og frosnar. 29.12.2005 14:15
Avion kaupir fjórar nýjar fraktvélar Avion Group hefur staðfest kaup á fjórum Boeing 777 fraktvélum til viðbótar við þær fjórar sem félagið keypti fyrr á árinu. Heildarfjárfesting í þessum átta vélum, samkvæmt listaverði frá Boeing, nemur hátt í tveimur milljörðum Bandaríkjadala. Vélarnar fjórar verða afhentar á árunum 2010 og 2011 og verða notaðar hjá dótturfélagi Avion Group, Air Atlanta Icelandic. 29.12.2005 14:04
Viðskiptahallinn slær met Vöruskipti við útlönd voru óhagstæð upp á um ellefu milljarða króna í nóvember en þá var flutt inn fyrir tæpa 28 milljarða en út fyrir um sextán og hálfan milljarð. Halli 29.12.2005 10:16
Innheimtufyrirtæki sameinast Innheimtufyrirtækin AM-Kredit og Premium hafa komist að samkomulagi um samruna. Fimm sparisjóðir eiga hlut í sameinuðu fyrirtæki. Fyrirtækið mun áfram sinna innheimtuþjónustu en einnig leggja áherslu á að fjármagna viðskiptakröfur. 28.12.2005 11:14
Penninn hf. gerir samning um rekstur verslunnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. og Penninn hf. hafa gert samning um rekstur verslunnar undir nafni Eymundsson. Penninn hf. mun taka við sölu blaða, tímarita, bóka og annarra vara af Íslenskum markaði, en verslunin verður lögð niður í núverandi mynd þegar búið verður að gera samninga við nýja aðila um um rekstur verslanna með þá vöruflokka sem þar eru seldir í dag. 28.12.2005 09:11
Samið um rekstur gleraugnaverlsunar í FLE Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. og Optical Studio hafa gert með sér samning um rekstur verslunar með gleraugu, sólgleraugu, linsur, fylgihluti með sjóntækjum og sjónmælingar. Það voru Kjartan Kristjánsson, eigandi Optical Studio og Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, undirrituðu samninginn. 27.12.2005 09:16
Sextánföld umframeftirspurn í útboði Avion Hlutafjárútboði Avion Group til fagfjárfesta lauk klukkan fjögur í dag. Alls óskuðu fagfjárfestar eftir að kaupa hluti í félaginu fyrir ríflega 100 milljarða króna að söluvirði sem er sextánföld umframeftirspurn. 23.12.2005 16:53
Björgólfur fjárfestir í Póllandi Novator Telecom Poland, félag undir forystu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur gert kauptilboð í þrettán prósenta hlut í pólska símafélaginu Netia. Novator hefur þegar eignast tíu prósenta hlut og stefnir að því að eignast fjórðungshlut í félaginu. Markaðsvirði þess hlutar er um tólf milljarðar króna. 19.12.2005 12:15
Fasteignaverð hækkaði um 3,1% Fasteignaverð hækkaði um 3,1% í nóvember frá fyrri mánuði, samkvæmt Fasteignamati ríkisins. Greiningardeild KB banka segir þetta töluvert umfram væntingar markaðsaðila, sem og greiningardeildarinnar. 17.12.2005 11:02
Yfirtaka síðasti kostur Skarphéðinn Berg Steinarsson, framkvæmdastjóri hjá Baugi, segir að það hefði verið síðasti kostur í stöðunni að fara í yfirtöku á FL Group. "Okkur líður mjög vel með FL Group skráð og held að það sama eigi við um aðra hluthafa." Yfirtökuskylda Baugs Group í FL Group hófst þegar hlutafjárútboði í síðarnefnda félaginu lauk þann 10. nóvember. 16.12.2005 17:00
KB banki vildi í búlgarska tóbakið KB banki reyndi að ná saman hópi fjárfesta ásamt þýska bankanum Deutsche bank til að kaupa búlgarska tóbaksfyrirtækið Bulgartabac eftir að stjórnvöld ákváðu að einkavæða það árið 2002. Leitaði KB banki meðal annars til íslenskra fjárfesta til að taka þátt í verkefninu. 16.12.2005 14:44
Yfirtökutilboð í Whittard lagt fram Breska verslunarkeðjan Julian Graves lagði í gær fram yfirtökutilboð í Whittard of Chelsea, sem rekur te-, kaffi- og gjafavöruverslanir því tengdar. Yfirtökutilboðið hljóðar upp á 21,5 milljónir punda eða sem nemur 2,4 milljörðum króna. 15.12.2005 10:00
Lýsing tekur sex milljarða sambankalán Eignarleigufyrirtækið Lýsing hefur tekið sex milljarða króna sambankalán með þátttöku sex evrópskra banka auk KB banka. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að með lántökunni sé Lýsing fyrst og fremst að mæta miklum vexti útlána á þessu ári. 14.12.2005 15:32
Kögun kaupir meira hlutafél í Hands ASA Kögun hf. hefur eignast til viðbótar fyrri eign 18,8 milljónir hluta í norska félaginu Hands ASA og á því 107,7 milljónir hluta samtals. Kögun hf. hefur eftir þetta yfirráð yfir 90 prósentum hlutafjár í félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kögun í dag. 14.12.2005 15:05
Ragnhildur Geirsdóttir ráðin forstjóri Promens hf. Ragnhildur Geirsdóttir, fyrrverandi forstjóri Flugleiða, hefur verið ráðin forstjóri Promens hf. frá 1. janúar næstkomandi. Ragnhildur starfaði hjá FL Group frá árinu 1999, sem framkvæmdastjóri rekstrarstýringar frá 2003 og sem forstjóri félagsins á árinu 2005. 14.12.2005 13:00
Innflutningur eykst Samkvæmt bráðabirgðatölum um innheimtu virðisaukaskatts var innflutningur í nóvember sá mesti sem af er ári. Nam hann um 27,5 milljörðum án flutnings skipa og flugvéla. Að raungildi er það 52 prósentum meiri innflutningur en í nóvember í fyrra. 13.12.2005 10:45
Ríkur, ríkari Vladimir Lisin, næstríkasti maður Rússlands mun bæta hálfum milljarði dollara við auð sinn þegar stálframleiðslufyritæki hans Novolipetsk verður skráð á verðbréfamarkaði Lundúna. 13.12.2005 10:15
Fær 15 milljarða að láni Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hefur undirritað sambankalán að fjárhæð 200 milljónir evra og er lánið til þriggja ára. Miðað við gengi evrunnar í gær jafngildir upphæðin um 15 milljörðum íslenskra króna. 13.12.2005 10:00
Íbúðalánasjóður lánar meira út í ár Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í nóvember námu tæpum 5,9 milljörðum króna. Það er um 48 prósent aukning miðað við sama tíma í fyrra. Þar af teljast tæplega 800 milljónir króna til leiguíbúðalána, sem er samkvæmt frétt Íbúðalánasjóðs umtalsverð aukning frá fyrra mánuði. 5,1 milljarður tilheyrði almennum útlánum. Það sem af er ári hefur Íbúðalánasjóður lánað samtals tæpa 69 milljarða og eru útlánin orðin hærri en á öllu síðasta ári. 13.12.2005 10:00
Úr stjórn TM Tilkynnt var í gær að Kjartan Broddi Bragason hefði sagt sig úr stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar. Kemur úrsögnin í kjölfar þess að Fjárfestingarfélag sparisjóðanna seldi hlut sinn í TM þann 23. nóvember síðastliðinn. 13.12.2005 09:15
Slorið úr vísitölunni og tískan kemur inn Ný Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands tekur gildi um áramótin. Ekkert sjávarútvegsfyrirtæki verður í vísitölunni, en sjávarútvegsfyrirtæki voru áberandi í Kauphöllinni á upphafsárum hennnar. HB Grandi uppfyllir ekki lengur skilyrði um verðbil og fellur út úr vísitölunni, auk þess sem eignarhald fyrirtækisins er á færri höndum. 13.12.2005 09:00
Verðlag hækkar umfram spár Spáð var að verðlag stæði í stað milli nóvember og desember. Það stóðst ekki og er verðbólga enn fyrir ofan þolmörk Seðlabankans. Vísitalan sem mælir breytingar á verði neysluvara hækkaði um 0,36 prósent milli nóvember og desember. Hagstofa Íslands tilkynnti þetta í gær. 13.12.2005 07:45
Bankastjóri kaupir bréf Ingólfur Helgason, forstjóri KB banka á Íslandi, keypti í gær 400 þúsund hluti í bankanum á genginu 665. Jafngildir það 266 milljónum króna. Eftir viðskiptin á Ingólfur um 2,8 milljónir hluta í KB banka. 13.12.2005 06:00
Bréf í French Connection lækka! Bréf í tískufatafyrirtækinu French Connection, sem Baugur á rúmlega 13 prósent hlut í féllu um 5 prósent eftir afkomuviðvörun frá félaginu. Í yfirlýsingunni kom fram að að áætlaður hagnaður ársins myndi lækka úr 20 -25 miljónum punda niður í 11-14 milljónir punda. 13.12.2005 05:30
Dýrari fasteignir keyptar Heildarvelta á húsnæðismarkaði á höfuðborgarsvæðinu í nóvember var tæpur 21 milljarður króna og jóks um 3,6 prósent milli mánaða. Í morgunkornum Íslandsbanka segir að veltan aukist þótt kaupsamningum hafi fækkað um rúm sex prósent frá fyrra mánuði. Þinglýstir samningar voru 735 í nóvember. 13.12.2005 05:00
Ráðinn til KEA Bjarni Hafþór Helgason hefur verið ráðinn fjárfestingastjóri Kaupfélags Eyfirðinga og mun hann hefja störf hjá félaginu í byrjun nýs árs. Fjárfestingastjóri er nýtt starf hjá Kaupfélagi Eyfirðinga en í því felst framkvæmdastjórn tveggja dótturfélaga KEA, fjárfestingafélaganna Hildings og Upphafs, en stofnfé þeirra er samtals um 1,7 milljarðar króna. 12.12.2005 06:00
Vilja öflugt net tvísköttunarsamninga Tvísköttunarsamningar eru ein af meginforsendum þess að viðskipti milli landa verði arðbær segir í nýrri skýrslu Viðskiptaráðs Íslands. Nú séu 23 slíkir samningar í gildi við Ísland og þeim þurfi að fjölga. 11.12.2005 09:15
Verðbólgutölur eftir helgi Hagstofa Íslands birtir verðbólgutölur á mánudaginn. Bíða margir spenntir eftir upplýsingum um þróun verðlags, sem hefur verið að hækka undanfarið. Vaxtahækkanir Seðlabankans hafa miðað að því að ná verðbólgunni niður. 10.12.2005 12:00
Yfirtaka Atorku er ekki óvinsamleg "Við lítum ekki á þetta sem óvinsamlega yfirtöku. Atorka hefur verið stærsti hluthafinn í Jarðborunum um nokkurt skeið og því var viðbúið að það færi þessa leið," segir Guðmundur Þóroddsson, stjórnarformaður Jarðborana, spurður um álit stjórnar félagsins til yfirtökutilboðs Atorku Group í hlutabréf annarra hluthafa Jarðborana. 10.12.2005 11:30
Tóku milljarðalán Forsvarsmenn Landsvirkjunar tóku lán uppá 400 milljónir Bandaríkjadali, eða 25,6 milljarða króna, í London í gær. Með lántökunni er Landsvirkjun að endurfjármagna sams konar lán sem tekið var með óhagstæðari kjörum árið 2003. Um lántökuna sáu Barclays Capital, Citicorp, Landsbanki Íslands, SEB, Société Générale og Sumitomo. 10.12.2005 09:45
Íslendingar framar í fiskveiðistjórnun Íslendingar standa betur að vígi en Norðmenn í fiskveiðistjórnun, fiskvinnslu og markaðassetningu samkvæmt nýrri skýrslu um samkeppnishæfni sjávarútvegs sem Einar K. Guðfinnsson kynnti í dag. 10.12.2005 08:30