Fleiri fréttir

Atvinnuleysi óbreytt

Atvinnuleysi er 2,6 prósent samkvæmt nýjustu tölum hjá Hagstofu Ísland. Atvinnulausir voru að meðaltali 4.300 á þriðja ársfjórðungi í ár sem er svipað og í fyrra þegar 4.400 voru atvinnulausir.

Breytingar hjá Íslandsbanka

Íslandsbanki hefur gert skipulagsbreytingar til að styðja vöxt í alþjóðlegri starfsemi bankans.

Glazer eykur enn hlut sinn

Líkur á yfirtöku Malcolms Glazer á Manchester United aukast dag frá degi </font /></b />

Kaupa fasteignir í Búlgaríu

Íslenskir kaupsýslumenn hafa áhuga á að kaupa fasteignir í Búlgaríu og að byggja þar bæði upp iðnað og verslun, að því er greint er frá í viðskiptablaðinu <em>Sofia Morning News</em>. Íslensk orkufyrirtæki leita einnig samstarfsaðila í Búlgaríu og hafa áhuga á að byggja þar gufuaflsvirkjanir.

Prófanir hjartalyfs jákvæðar

Íslensk erfðagreining greindi í morgun frá jákvæðum niðurstöðum prófana á hjartalyfinu DG031. Í tilkynningu segir að lyfjaprófanir sýni að lyfið hafi marktæk áhrif á áhættuþætti hjartaáfalls og veldur ekki aukaverkunum.

Stórtíðindi fyrir læknavísindin

Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa fengið jákvæðar niðurstöður úr tilraunum með nýtt lyf sem draga á úr líkunum á því að fólk fái hjartaáfall. Kári Stefánsson forstjóri segir þetta stórtíðindi fyrir fyrirtækið jafnt sem læknavísindin.

Hlutabréf í DeCode tóku stökk

Hlutabréf í DeCode Genetics tóku stórt stökk upp á við á Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum í dag eftir að fréttir bárust af jákvæðum niðurstöðum tilrauna með þróun lyfs sem draga á úr líkum á hjartaáfalli. Forsvarsmenn Íslenskrar erfðagreiningar segja að þetta séu stórmerkileg tíðindi, ekki eingöngu fyrir fyrirtækið heldur einnig fyrir læknavísindin á heimsvísu.

Nemendur fá aðgang að Kauphöllinni

Nemendur Háskólans í Reykjavík fá ókeypis aðgang að upplýsingum í á netinu af íslenskum fjármálamarkaði frá Kauphöll Íslands. Samningur þessa efnis var undirrituður fyrir skömmu og nær hann til um 150 nemenda.

Nauðsynlegt að selja Símann

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að kaup Símans í Skjá einum sýni að nauðsynlegt sé að selja Símann. Stjórn Símans hefur neitað Steingrími J. Sigfússyni um aukahluthafafund vegna kaupanna. Hann gefur lítið fyrir skýringarnar og hefur ítrekað beiðni sína.

Bjóst við meiri hækkun

Ef Decode nær að þróa og markaðssetja hjartalyfið DG031 mun það hafa veruleg áhrif á rekstur fyrirtækisins í framtíðinni. Fréttir um að öðrum fasa lyfjaþróunar væri lokið ollu snarpri hækkun á verði hlutabréfa í fyrirtækinu á Nasdaq markaðinum í gær.

Ótti við vaxtarverki

Greiningardeild Landsbankans sér fleira en hagvöxt og hamingju í spilum efnahagslífsins á næstunni. Greiningardeildin óttast að verðbólga rjúki upp árið 2006 og hefur áhyggjur af því að tök á efnahagsmálum séu ekki nógu hörð og að hagvaxtarverkirnir kunni að vera þungbærir við lok núverandi uppsveiflu.

Bakkavör eykur hlutafé

Bakkavör hyggst bjóða fjárfestum að kaupa nýtt hlutafé að nafnvirði 790 milljónir króna. Tillaga um heimild til slíkrar hækkunar liggur fyrir hluthafafundi sem haldinn verður á fimmtudag í næstu viku.

Metvelta á fasteignamarkaði

Velta á fasteignamarkaði hefur aldrei verið meiri en síðastliðnar fjórar vikur samkvæmt hálf fimm fréttum KB banka. Í kjölfar nýrra fasteignalána frá innlánsstofnunum og lægri vaxta hefur verið slegið nýtt met á markaðinum en veltan á umræddum tíma nemur 19 milljörðum og 4,8 til 4,9 milljarðar í hverri viku að undanförnu.

Olían rýkur upp

Heimsmarkaðsverð á olíu sýnir engin merki þess að lækka í bráð. Enn er framleiðsla í suðurríkjum Bandaríkjanna í ólagi eftir að fellibylurinn Ívan gekk þar yfir og nú gengur í hönd tímabil aukinnar spurnar eftir olíu í þeim löndum þar sem hún er notuð til húskyndingar.

Neyslan vex

Smásöluvelta dagvöru jókst um 4,9 prósent frá september í fyrra til septembers í ár. Þetta kemur fram í fréttabréfi Samtaka verslunar og þjónustu. Sala á áfengi jókst meira og er átta prósentum meiri en í fyrra en smásala á lyfjum jókst um 1,5 prósent.

Stefna að stækkun

Íslandsbanki hyggur á hlutafjáraukningu og hyggst stjórnin fá samþykki fyrir því á hluthafafundi að gefa út nýtt hlutafé að nafnvirði þrír millljarðar króna. Markaðsverðmæti slíkrar aukningar er um þrjátíu og fimm milljarðar ef miðað er við gengi á bréfum í félaginu í gær. Hlutaféð jafngildir tæplega þrjátíu prósent af bankanum.

Hlutabréfin komin í 507 krónur

Hlutabréf í KB banka hækkuðu upp í 507 krónur á markaði í gær eftir hlutafjárútboðið í fyrradag, og hafa aldrei verið jafn hátt skráð. Lokagengi var 500 krónur og nam hækkun dagsins 1,1%, þótt loka gengið færi niður í sama gengi og var á bréfunum daginn fyrir útboðið.

Líkur á yfirtöku United aukast

Bandaríski athafnamaðurinn Malcolm Glazer, sem stefnt hefur að því að taka yfir fótboltafélagið Manchester United, jók í gær hlut sinn í félaginu í rúman fjórðung. Hlutabréf í félaginu hækkuðu um átta prósent í kjölfarið.

Stærst sinnar tegundar

Um áramót verður til nýtt flugrekstrarfyrirtæki á Íslandi sem gæti orðið stærsta fyrirtækið á íslenskum markaði ef áform um skráningu ganga eftir. Magnús Þorsteinsson, aðaleigandi Air Atlanta, kynnti í gær áætlanir um að stofna fyrirtæki í kringum rekstur Air Atlanta, Excel Airways og Íslandsflugs.

Meira kaffi

Bandaríska kaffihúsakeðjan Starbucks hyggst þrefalda fjölda útsölustaða á næstu árum. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja að Bandaríkjamenn nenni ekki að ganga og því þurfi að sjá til þess að útibú frá Starbucks sé alltaf innan seilingar.

Kögun kaupir Opin kerfi

Kögun hefur eignast ríflega tvo þriðju í Opnum kerfum og keypt út Frosta Bergsson, stofnanda og stjórnarformann félagsins. Átök hafa verið um eignarhald á félaginu undanfarna mánuði eftir að Kögun keypti 35,77 prósent í félaginu um miðjan ágúst.

Eignir seldar á undirverði

Fjárfestar í Moskvu óttast að yfirvöld hafi í hyggju að búta olíufyrirtækið Yukos niður og selja á útsöluverði til manna sem eru stjórnvöldum í Kreml þóknanlegir og Vladimír Pútín forseta vilhallir.

Eigið fé þrefaldast frá áramótum

Eigið fé KB banka er orðið 149 milljarðar króna eftir hlutafjárútboðið í gær en var fjörutíu og sex milljarðar í ársbyrjun. Það hefur því ríflega þrefaldast frá áramótum. 

Tryggja sjálfstæði Skjás eins

Landssíminn styrkti stöðu sína í Íslenska sjónvarpsfélaginu til að tryggja áfram rekstur Skjás eins sem sjálfstæðrar sjónvarpsstöðvar samkvæmt tilkynningu frá félaginu til Kauphallarinnar. Þar segir einnig að fyrirtækið gæti þannig að aðgangi Landssímans að gæðaefni til að dreifa um fjarskiptakerfi Símans.

Athyglin vex í London

Íslenskir kaupsýslumenn eru í kastljósi breskra fjölmiðla. Stórblöðin Financial Times og Guardian fjalla um áhuga Íslendinga á kaupum á breskum fyrirtækjum. Baugur kannar nú áreiðanleika reikninga Big Food Group og hefur stjórn Big Food samþykkt fyrir sitt leyti yfirtökutilboð Baugs.

Formaður útvarpsráðs segi af sér

Með fjárfestingum Símans í Skjá einum er Sjálfstæðisflokkurinn að vaða á skítugum skónum yfir almannaeigur, segir formaður Samfylkingarinnar, en Síminn hefur eignast meirihluta í fyrirtækinu. Össur Skarphéðinsson segir að formaður útvarpsráðs eigi að segja af sér eða vera rekinn fyrir leynifundi sína með forstjóra Skjás eins.

Vandi hjá General Motors

Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors ætlar að fækka starfsmönnum sínum í Evrópu um tólf þúsund fyrir árslok 2006. Stjórnendur fyrirtækisins telja að launakostnaður sé of hár í Evrópu auk þess sem spurn eftir bílum fari minnkandi.

SPK í sameiningarhug

Fulltrúar frá Sparisjóði Kópavogs (SPK) hafa rætt óformlega við fulltrúa frá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) og Sparisjóðs vélstjóra (SPV) um þátttöku SPK í sameiningu sparisjóða á höfuðborgarsvæðinu. Þegar hefur verið tilkynnt um samrunaviðræður SPV og SPRON.

Síminn ræður Skjá einum

Síminn ræður nú meirihluta Íslenska sjónvarpsfélaginu sem rekur Skjá einn.<font face="Helv"></font>

Bjarni styrkti stöðu sína

Kaflaskipti urðu í baráttunni um Íslandsbanka í gær. Forstjóri bankans hefur styrkt stöðu sína og stuðningsmenn hans mynda kjölfestu bankans ásamt Straumi.

Ráða fleiri á Indlandi

Stofnendur Google gera nú víðreist á Indlandi þar sem þeir leita að hæfileikaríkum forriturum sem þeir hyggjast ráða til félagsins. Nýjungar á Google-leitarvélinni eru margar hverjar hannaðar í Bangalore en þar hefur undanfarin ár risið mikill hugbúnaðariðnaður.

Yahoo græðir

Internetfyrirtækið Yahoo sýndi betri afkomu en búist var við á síðasta ársfjórðungi. Hagnaður fyrirtækisins er fjórum sinnum meiri en hann var á sama tíma í fyrra.

Kaupa ekki Numis

Talsmaður Landsbankans segir að fréttir breskra fjölmiðla um að bankinn hyggist gera yfirtökutilboð í fjármálafyrirtækið Numis í Bretlandi séu rangar. Hann staðfestir hins vegar að Landsbankinn hafi ráðið alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið HSBC til þess að aðstoða við leit að tækifærum til fjárfestingar í breskum fjármálafyrirtækjum.

Ísland í áttunda sæti

Ísland er í áttunda sæti á lista yfir 104 þjóðir þegar hagvaxtarlíkur á komandi árum eru metnar. Niðurstöður í alþjóðlegri rannsókn World Economic Forum voru kynntar í gær og þar kemur fram að Ísland fellur um tvö sæti. Í fyrra var Ísland í áttunda sæti.

Sölu nýrra hluta í KB banka lokið

Söluferli á nýjum hlutum í Kaupþingi Búnaðarbanka er lokið. Á bilinu 80 - 110 milljónir hluta voru í boði á genginu 460 – 500, háð eftirspurn. Alls skráðu fagfjárfestar sig fyrir rúmum 86 milljörðum króna og var því umframeftirspurn. Samtals voru seldir 110 milljónir hlutir til fagfjárfesta á genginu 480 krónur á hlut og er markaðsvirði þeirra 52,8 milljarðar króna.

Útboði hluta lokið hjá KB banka

Af 110 milljónum hluta sem seldir voru í söluferli nýrra hluta í Kaupþingi Búnaðarbanka fóru um 55 milljónir hluta til fjárfesta sem ekki tilheyrðu hluthafahópi Kaupþings Búnaðarbanka fyrir útboðið. Gengið var 480 krónur á hlut og nam því markaðsvirði sölunnar 52,8 milljörðum króna.

Hækkunin á sér fáar hliðstæður

Íslensk hlutabréf hafa hækkað mjög í verði á síðustu mánuðum. Úrvalsvísitalan hefur slegið hvert metið á fætur öðru. Á föstudaginn stóð vísitalan í 3.947 stigum og hafði þá hækkað í tólf daga af síðustu þrettán. Alls hefur vísitalan hækkað um 88 prósent frá byrjun ársins.

Verðbólgan hækkar

Verðbólgan fer vaxandi á Íslandi og nálgast nú þolmörk Seðlabankans. Ný vísitala neysluverðs sýnir að verðbólga á ársgrundvelli er nú 3,7 prósent en á sama tíma í fyrra var hún 2,2 prósent á ársgrundvelli.

Síminn tekur við rekstrinum

Síminn hefur tekið við rekstri tetra fjarskiptakerfisins af Tetra Íslandi. Eftir þessa breytingu verður enginn fastur starfsmaður hjá fyrirtækinu.

Hagnaður tæpir tólf milljarðar

KB banki hagnaðist um tæpa tólf milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagnaður þriðja ársfjórðungs samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri var 5,5 milljarðar króna. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, segist sáttur við þessa niðurstöðu

Hópur forstjóra ræður Íslandsbanka

Öfl innan Íslandsbanka sem hafa stutt forstjóra bankans náðu á ný yfirhönd í stjórn bankans, þegar Lífeyrissjóður Verlsunarmanna seldi fjögurra prósenta hlut. Í kjölfarið munu fjórir bankaráðsmenn fara úr stjórn bankans

Síldarvinnslan afskráð

Enn fækkar sjávarútvegsfyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöllinni. Í gær var samþykkt beiðni Síldarvinnslunnar um afskráningu. Eftir afskráningu Síldarvinnslunnar eru sjö sjávarútvegsfyrirtæki skráð í Kauphöllinni.

Útgjöld vegna gjaldþrota aukast

Útgjöld ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota fyrirtækja hafa aukist verulega undanfarin þrjú ár. Til að bregðast við þessu þarf sjóðurinn stórauknar fjárheimildir frá ríkissjóði.

Í lykilstöðu í Atlantshafinu

Icelandair hefur nýverið kynnt fyrirhugað flug til San Fransisco. Það er eina flugið til Kaliforníu sem Norðurlandabúum stendur til boða. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, segir legu landsins bjóða upp á sérstakt tækifæri til að tengja Evrópu og Bandaríkin. </font /></b />

Æfir vegna yfirtöku

Bandarískur athafnamaður, Malcolm Glazer, stefnir á yfirtöku á Manchester United. Félagið er metið á um 90 milljarða íslenskra króna. Stuðningsmenn óttast að Glazer muni skaða liðið og hafa hótað að efna til borgarastyrjaldar verði af yfirtökunni. </font /></b />

Sjá næstu 50 fréttir