Hagnaður tæpir tólf milljarðar 12. október 2004 00:01
KB banki hagnaðist um tæpa tólf milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagnaður þriðja ársfjórðungs samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri var 5,5 milljarðar króna. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, segist sáttur við þessa niðurstöðu. "Það hefur gengið vel á flestum vígstöðvum." Eignir bankans samkvæmt uppgjörinu nema 1.500 milljörðum króna og hafa nær þrefaldast frá áramótum. Arðsemi eiginfjár bankans nam 32,5 prósentum, sem er meira en helmingi hærra en langtímamarkmið bankans um arðsemi eiginfjár. Danski bankinn FIH er með í reikningum bankans frá 1. júlí og lagði til tæpa 1,5 milljarða í hagnað þriðja ársfjórðungs, auk þess að skýra bróðurpartinn af eignaaukningu bankans. KB banki hyggst sækja sér nýtt hlutafé fyrir allt að 50 milljarða á markað til að efla eiginfjárstöðu bankans og til frekari útrásar. Núverandi hluthafar munu ekki eiga forkaupsrétt líkt og í útboði bankans fyrr á árinu, en þá aflaði bankinn 40 milljarða í nýju hlutafé. Sú hlutafjáraukning var nýtt til kaupa á FIH bankanum sem keyptur var á 84 milljarða króna. Hreiðar Már segir menn renna nokkuð blint í sjóinn með hver skiptingin verði á milli innlendra og erlendra fjárfesta í bankanum. "Við höfum verið að kynna bankann erlendum fjárfestum og Deutsche Bank hefur verið að vinna að sölunni með okkur. Það mun koma í ljós." Tilkynnning KB banka um útboðið er meðal annars talin hafa leitt til lækkunar á markaði í gær. Sérfræðingar á markaði telja að fjárfestar hafi selt bréf til að kaupa í útboði bankans. Augu markaðarins beinast nú að breska bankanum Singer and Friedlander sem KB banki á fimmtungs hlut í. Gengi bankans hækkaði í gær í kjölfar frétta á alþjóðamörkuðum um hlutafjáraukningu KB banka. Spákaupmenn gera ráð fyrir að það styttist í yfirtöku KB banka á breska bankanum. Lágmarksupphæð sem KB banki hyggst sækja í útboðinu er 37 milljarðar króna. Ekki er talið að svo mikið þurfi til þess að yfirtaka Singer and Friedlander. Þeirri staðreynd fylgja á markaði vangaveltur um að önnur útrásarverkefni kunni að vera í sjónmáli hjá bankanum.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira