Fleiri fréttir

Ný tegund gervifótar

Stoðtækjafyrirtækið Össur kynnti í vikunni að nú væru komnir í prófanir rafknúnir gervifætur gæddir gervigreind. Þetta er nýjung á sviði stoðtækjaframleiðslu sem Össur stendur að í samstarfi við bandaríska fyrirtækið Victhom Human Bionics.

SPRON og SPV líklega að sameinast

Formenn stjórna Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) og Sparisjóðs vélstjóra (SPV) hafa í umboði stjórna undirritað viljayfirlýsingu um sameiningu sparisjóðanna.

SH veltir SÍF úr sessi

Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna er stærsta fyrirtækið á Íslandi ef miðað er við veltutölur. Keppinauturinn SÍF laut í lægra haldi og tapaði fyrsta sætinu á lista Frjálsrar verslunar um 300 stærstu fyrirtækin. Velta hvors félags er tæpir 60 milljarðar króna.

Samskip í nýtt hús

Starfsmenn Samskipa mynduðu keðju frá Vöruhúsi A við Holtabakka að nýbyggingu félagsins við Barkarvog og selfluttu þangað pakka - til að sýna á táknrænan hátt að flutningar séu nú formlega hafnir á allri starfsemi Samskipa í nýja húsið.

Áhyggjur af stöðugleika

Ástæða er til þess að óttast að aðhald ríkisfjármála verði ekki nægjanlegt til þess að koma í veg fyrir óæskilega þenslu í efnahagslífinu að mati Samtaka atvinnulífsins.

Tekur við sem forstjóri í TM

Óskar Magnússon hefur verið ráðinn forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar. Hann tekur við starfinu 15. nóvember af Gunnari Felixsyni sem gegnt hefur starfinu frá 1991.

Hagnaður hátt í 70 milljarðar

Hagnaður skráðra fjármálafyrirtækja stefnir í að verða á sjöunda tug milljarða á þessu ár samkvæmt afkomuspá Greiningar Íslandsbanka. Mestur verður hagnaðurinn hjá Landsbankanum eða tæpir sautján milljarðar. Ef spá um hagnað KB banka er lögð saman við hagnað samkvæmt rekstraráætlun danska bankann FIH verður hagnaðurinn hærri eða á nítjánda milljarð króna.

Maritech kaupir í Chile

Hugbúnaðarfyrirtækið Maritech, dótturfélag TölvuMynda hf., hefur keypt Integra Sistemas, hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í gerð bókhalds- og framleiðsluhugbúnaðar fyrir sjávarútvegsfyrirtæki í Chile.

Tvöfaldar framleiðslugetu

Lýsi reisir nú myndarlegt verksmiðjuhúsnæði við Fiskislóð á Örfirisey. Þeir sem átt hafa leið þar um hafa rekið upp stór augu yfir því óvenjulega vinnulagi sem er á byggingunni. Þar er búið að setja upp geymslutanka fyrir lýsi innan í grind hússins. Með nýju verksmiðjunni tvöfaldast framleiðslugeta fyrirtækisins.

Landsbankinn yfir Íslandsbanka

Við lok viðskipta í Kauphöll Íslands í gær var Landsbankinn talinn verðmætari en Íslandsbanki. Þetta er í fyrsta sinn sem markaðsverðmæti Landsbankans er hærra en Íslandsbanka í lok dags þótt sú staða hafi nokkrum sinnum áður komið upp innan viðskiptadags.

Atlanta eykur hlut í Excel

Fulltrúar Air Atlanta eiga nú í viðræðum um kaup á 39 prósenta hlut í flugfélaginu Excel Airways. Fyrir á Atlanta fjörutíu prósent í félaginu. Þann hlut keypti Atlanta í byrjun árs á tæplega fjóra milljarða króna. Hópur stjórnenda félagsins á um fimmtung.

Hámarkslán hækka

Íbúðalánasjóður hefur hækkað hámarkslán vegna kaupa á notuðum íbúðum úr 9,2 milljónum króna í 11,5 milljónir.

Viðskiptin aldrei verið fleiri

Viðskipti í Kauphöll Íslands hafa aldrei verið fleiri á fyrstu þremur fjórðungum ársins samkvæmt viðskiptayfirliti Kauphallarinnar eða 1.515 talsins. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans nú síðdegis. Mikil velta hefur verið á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði á árinu og hefur hvert veltumetið á fætur öðru fallið.

Lífeyririnn og lýðræðið

Verðtrygging skuldbindinga lífeyrissjóðanna hefur skapað misræmi, þar sem kaupmáttur launa hefur vaxið töluvert umfram verðbólgu. Greiðslur til lífeyrisþega fylgja því ekki launaþróun. Hækkandi lífaldur dregur úr lífskjörum sjóðfélaga og hugleiða ber að lækka greiðslur með hækkandi aldri.

Meiri merki bólu

Hlutabréfamarkaðurinn ber meiri merki verðbólu en áður að mati Greiningardeildar Íslandsbanka. Greiningardeildin birti afkomuspá í gær. Sérfræðingar hennar telja ekki hægt að fullyrða að verðbóla sé á markaðnum en meta það svo að áhættan af skráðum bréfum sé meiri nú en áður.

Eignast 32% hlut í Flugleiðum

Fjárfestingarfélagið Prímus, sem er í eigu Hannesar Smárasonar, hefur keypt hlut Jóns Helga Guðmundssonar í Flugleiðum. Saman áttu þeir Hannes og Jón Helgi rúmlega 32 prósenta hlut í Flugleiðum sem bundið var í eignarhaldsfélaginu Oddaflug. Hannes á það fyrirtæki einn eftir þessi viðskipti.

Stjórnarformaðurinn á þriðjung

Hannes Smárason, stjórnarformaður Flugleiða, er orðinn stærsti eigandi félagsins með þriðjungshlut eftir að hann keypti Jón Helga Guðmundsson, forstjóra BYKO, út úr Eignarhaldsfélaginu Oddaflugi. Jafnframt hefur Jón Helgi sagt sig úr stjórn félagsins. 

Hannes ræður för í Flugleiðum

Hannes Smárason stjórnar nú einn tæplega þriðjungshlut í Flugleiðum. Hann keypti á sunnudaginn helming hlutafjár í Oddaflugi af Jóni Helga Guðmundssyni í Byko. Hannes og Jón Helgi keyptu kjölfestuhlut í Flugleiðum í lok janúar og í kjölfarið voru þeir kosnir í stjórn félagsins. Hannes er stjórnarformaður Flugleiða.

Fyrsta skrefið í greiningu

Í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ um kostnaðargreiningu á heilbrigðisþjónustu kemur fram að kostnaður við komu sjúklinga á heilsugæslu er lægri en kostnaður við komu til sérgreinalækna.

Íslandsbanki enn í skotlínu

Íslandsbanki hefur nokkrum sinnum orðið bitbein sterkra afla í fjármálaheiminum. Svo er einnig nú og margt sem bendir til þess að uppgjör sé á næsta leiti.

Ekki breytingar í vændum

Hópur fjárfesta hefur gengið frá kaupum á öllum hlutabréfum í Bræðurnir Ormsson ehf. Ekki fæst uppgefið á hvaða kjörum fyrirtækið var selt, en fjárfestarnir eru þeir Gunnar Örn Kristjánsson, Birgir Sævar Jóhannsson og Sigurður Sigfússon.

Óskar hættur hjá Og Vodafone

Samkomulag hefur orðið á milli Óskars Magnússonar, forstjóra Og Vodafone (Og fjarskipta hf.), og stjórnar félagsins um að Óskar láti af störfum forstjóra. Viðar Þorkelsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Og Vodafone, mun gegna starfi forstjóra tímabundið.

Með breiðþotu til Frisco

Flugleiðir ætla að hefja áætlunarflug til San Francisco næsta vor. Flugleiðir munu samhliða því taka í notkun breiðþotu af gerðinni Boeing-767 sem tekur 270 farþega. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða segir þessa útvíkkun leiðakerfisins marka ákveðin tímamót.

Bakkavör í skotstöðu

Bakkavör Group jók í gær getur sína til kaupa á fyrirtækjum. Félagið stækkaði skuldabréfaflokk sinn um tvo milljarða að nafnvirði. Miðað við ávöxtunarkröfu flokksins á markaðnummá ætla að söluvirði útboðsins hafi verið um 2,3 milljarðar króna. Ætla má að markaðsvirið flokksins nú sé um tólf milljarðar króna.

Verslað með stofnfé

Nokkur viðskipti hafa átt sér stað með stofnbréf í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis á síðustu dögum. Á fimmtudag byrjaði HF verðbréf að hafa milligöngu um sölu á stofnbréfum.

Mikill hagvöxtur og viðskiptahalli

Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir miklum hagvexti á næstu árum. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur í ár verði fimm og hálft prósent en fimm prósent á næsta ári og fjögur og hálft árið 2006.

Sjá næstu 50 fréttir