Viðskipti innlent

Síldarvinnslan afskráð

Enn fækkar sjávarútvegsfyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöllinni. Í gær var samþykkt beiðni Síldarvinnslunnar um afskráningu. Eftir afskráningu Síldarvinnslunnar eru sjö sjávarútvegsfyrirtæki skráð í Kauphöllinni. Í Morgunpunktum Íslandsbanka kemur fram að fyrirtækjunum hefur fækkað jafnt og þétt frá árinu 2000, en þá voru þau sautján talsins. Valdimar Halldórsson, sérfræðingur hjá Greiningu Íslandsbanka, segir að líklegt sé að þessi þróun haldi áfram. Mjög lítil viðskipti séu með nokkur sjávarútvegsfyrirtæki sem enn eru skráð í Kauphöllinni. Sem dæmi um slík félög má nefna Tanga og Þormóð ramma. Valdimar segir ytri aðstæður greinarinnar erfiðar um þessar mundir og ekki séð fyrir endann á háu gengi krónunnar og háu olíuverði. Þær aðstæður ýti enn frekar á þá þróun að sjávarútvegsfyrirtækjum fækki fremur en fjölgi í Kauphöllinni á næstu misserum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×