Fleiri fréttir
Sjá næstu 50 greinar
Hagsmunir Kína Róbert T. Árnason skrifar Kínverjar eru meðal elstu og sérstæðustu menningarþjóða heims og hafa átt einkennilegri feril en þær flestar. Það sem fjölmennasta ríki heims og veldið Kína gerir á næstu árum hefur geysimikla þýðingu. Ýmsar áleitnar spurningar heimsins velta á því hvað kínverskir ráðamenn gera innan landamæra alþýðulýðveldisins eins og sakir standa. Og hvað kínverskir ráðamenn kunna með tíð og tíma að gera utan landamæra Kína. Stóísk þolinmæði sem hjálpar kínverskum almúga til að þola ólýsanlegar raunir mun verða enn nauðsynlegri á næstu árum þegar kínverskir ráðamenn leggja inn á nýjar brautir erfiðleika og umskipta með eflingu fjandskapar við nágranna Kína í leit að meira valdi og yfirráðum. 22.8.2012 06:00
Þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrá – mikilvægustu spurningarnar vantar! Guðjón Sigurbjartsson skrifar Samkvæmt ályktun Alþingis um þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá á að leggja fyrir þjóðina sex spurningar um efni tillaganna. En svo furðulegt sem það nú er þá snýst engin spurninganna um kjarna nýju stjórnarskrárinnar sem er stjórnskipunin og staða forsetans! Þá stóru spurningu virðist ekki eiga að ræða né kanna hug þjóðarinnar til hennar. 22.8.2012 06:00
Sjálfbærni á Seyðisfirði? Sigurjón Benediktsson skrifar Er ég held áfram mínum pólitiska flótta frá Íslandi, landi auðs og græðgi, liggur leið mín til Seyðisfjarðar. Þar mun ég stíga um borð í ferjuna sem lítur út eins og gámur með stefni og stromp. Sælt er koma á Seyðisfjörð. Eins og vanalega er þar 22 stiga hiti og glampandi sólskin. Er snemma á ferðinni. Klukkan rétt sex um morgun. 22.8.2012 06:00
Hugmyndin um að gelda Alþingi er vond Ólafur Hauksson skrifar Tillaga stjórnlagaráðs um fyrirkomulag Alþingiskosninga er vægast sagt vond. Reyndar sker hún sig úr, því flestallt annað í frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá er sallafínt. 22.8.2012 06:00
Byrjum upp á nýtt Guðmundur Franklín Jónsson skrifar Ljóst er að stjórnvöld ætla ekki að taka á skuldavanda heimilanna og leiðrétta og afnema hugsanlega ólögmæta verðtryggingu á neyslu- og húsnæðislánum. Á málstofu Seðlabankans nýlega kom fram að 110% leiðin hefur eingöngu bjargað nokkur hundruð heimilum og því gjörsamlega mislukkast eins og allar aðrar leiðir stjórnvalda til þess að leysa skuldavanda heimilanna. Alvarlegum vanskilum heldur áfram að fjölga og um tuttugu og sjö þúsund einstaklingar eru í alvarlegum vanskilum og hafa aldrei verið fleiri. Fjöldi fasteigna sem seldar eru á nauðungarsölu hefur margfaldast á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Ekkert lát er á þessari þróun samkvæmt tölum Creditinfo og uppboðsmálum mun fjölga verulega og nauðungarsölum hvergi nærri að ljúka. Yfir 60 þúsund landsmanna eru í hættu á félagslegri einangrun og rúmlega helmingur íslenskra heimila á í erfiðleikum með að ná endum saman. 22.8.2012 06:00
Króna eða evra? Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar Hrunið 2008 var tvenns konar: hrun fjármálakerfisins og hrun krónunnar. Kreppan í kjölfarið var því af tvennum toga: fjármálakreppa og gjaldmiðilskreppa. Algjöru hruni krónunnar var forðað með gjaldeyrishöftum og lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. 22.8.2012 06:00
Heima og að heiman! Jónas Þórir Þórisson skrifar Nú er það skóladótið sem Hjálparstarf kirkjunnar er að deila út; stílabækur, reiknivélar, möppur, plasthulstur og allt hitt sem foreldrar skólabarna þekkja af innkaupalista skólanna. Þetta getur orðið býsna stór biti þar sem börnin eru fleiri en eitt og tekjurnar lágar. Auk þess hafa börnin vaxið og ný stígvél, kuldagalli, húfur og íþróttaföt eru oft líka á listanum. Þessu svarar Hjálparstarfið með gjöfum af eigin lager eða inneignarkorti í verslun. Þetta er mikils metin aðstoð og stór liður í aðaláherslu Hjálparstarfsins að hlúa að börnum – að þau finni sem minnst fyrir kreppu og fátækt foreldra. Allir skila inn gögnum um tekjur og útgjöld svo fjármunum Hjálparstarfsins sé sem best varið. 21.8.2012 06:00
Veiðar á lóu og spóa Að meginreglu eru allar villtar fuglategundir friðaðar hér á landi samkvæmt lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Þær tegundir sem heimilt er að veiða eru sérstaklega tilgreindar í reglugerð um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum. Það sama á við um veiðitímabil og veiðiaðferðir. Lóa og spói eru ekki á meðal þeirra 29 fuglategunda sem heimilt er að veiða á Íslandi en þær eru hrafn, fýll, dílaskarfur, toppskarfur, súla (hefðbundin ungataka), helsingi, hvítmáfur, rita, skúmur (hefðbundin eggjataka), kjói, álka, langvía, stuttnefja, teista, lundi, svartbakur, sílamáfur, silfurmáfur, heiðagæs, duggönd, hávella, toppönd, hettumáfur, grágæs, stokkönd, urtönd, rauðhöfðaönd, skúfönd og rjúpa. 21.8.2012 06:00
Kostnaðarsöm fáfræði stjórnvalda Gunnar Kristinn Þórðarson skrifar Aldrei í sögu landsins hefur opinber stofnun eða háskóli gert úttektir eða rannsóknir á félagslegum og fjárhagslegum högum meðlagsgreiðenda. 21.8.2012 06:00
Óbætanleg náttúruspjöll á Þríhnúkagíg og nágrenni Björn Guðmundsson skrifar Skipulagsstofnun auglýsir eftir athugasemdum vegna frummatsskýrslu um aðgengi að Þríhnúkagíg. 21.8.2012 06:00
Hugleiðingar um virði vinnunnar Svana Helen Björnsdóttir skrifar Við Íslendingar höfum verið svo lánsamir lengst af að búa við lítið atvinnuleysi. Undanfarin fimmtíu ár hafa þó komið nokkur atvinnuleysistímabil, t.d. í kjölfar síldarbrests á sjöunda áratugnum, í efnahagsþrengingum upp úr 1990 og nú í kjölfar hrunsins. 21.8.2012 06:00
Skuldadagar. Um Ísland í Evrópu Árni Páll Árnason skrifar Í fyrri greinum hef ég rakið þann mikla ávinning sem við höfum haft af opnun hagkerfisins með EES-samningnum en líka rætt hversu berskjölduð við urðum þá fyrir hræringum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Markmið okkar hlýtur nú að vera að koma Íslandi aftur í full tengsl við hið alþjóðlega viðskiptaumhverfi, en tryggja okkur líka fullnægjandi hagvarnir svo að við verðum ekki aftur jafn berskjölduð og við höfum verið síðustu ár. Og stóra spurningin er hvort það sé mögulegt innan EES eða hvort það verði auðveldara með aðild að ESB? 21.8.2012 06:00
ESB-aðild og íslensk menning Einar Benediktsson skrifar Samstarf að því er varðar menntun, menningarmál og æskulýðsmál er ein af grunnstoðum Evrópusambandsins. Ísland hóf þátttöku í verkefnum þess varðandi menntun og starfsþjálfun þegar árið 1990. 21.8.2012 06:00
Staða refsins á Íslandi er önnur en í Evrópu Þórhildur Hagalín skrifar Um vernd villtra spendýra í Evrópusambandinu gildir tilskipun um verndun vistgerða og búsvæða, villtra dýra og plantna. Ekki er fjallað um vernd minks í tilskipuninni en með aðildarsamningi Austurríkis, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar að ESB var heimskautarefnum hins vegar bætt á lista hennar. Finnland, Noregur og Svíþjóð voru fyrstu löndin á útbreiðslusvæði heimskautarefsins sem sóttu um aðild að ESB en í þessum löndum er refurinn í útrýmingarhættu. Refurinn rataði því bæði á lista 20.8.2012 09:30
Að trúa á evruna Eygló Harðardóttir skrifar Trú stuðningsmanna aðildar að Evrópusambandinu á evruna er mikil. Ef marka má málflutning þeirra er upptaka evru eina leiðin til að takast á við efnahags- og peningamál landsins. Þetta ítrekaði Árni Páll Árnason, fulltrúi Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd, nýlega á Rás 2. Því kæmi ekki til greina að fresta eða hætta við umsóknina, líkt og samstarfsmenn hans í Vinstri grænu hafa lagt til. 20.8.2012 09:00
Eignavandinn Friðrik Jónsson skrifar Skilgreiningar skipta máli og einnig frá hvaða hlið menn horfa á vandamál sem við er að etja. Undanfarin ár hefur verið tíðrætt um skuldavandann, bæði heima á Íslandi og erlendis. Skuldavanda má hins vegar skilgreina líka sem eignavanda. Skuld eins er eign annars, í samræmi við reglur hins tvöfalda bókhalds. 18.8.2012 06:00
Fyrir hönd Valkosta Þóra Huld Magnúsdóttir skrifar Í þessari grein viljum við vekja athygli á nýstofnuðum samtökum sem bera nafnið Valkostir – Samtök um úrræði við ótímabærum þungunum, og heimasíðu samtakanna http://www.valkostir.is. 18.8.2012 06:00
Er duna jarðarstríð. Um Ísland í Evrópu Árni Páll Árnason skrifar Í síðustu greinum hef ég rakið ávinninginn af þátttöku Íslands í evrópskri efnahagssamvinnu, frá aðild okkar að EES-samningnum, en líka fjallað um hversu vanbúið íslenskt efnahagslíf var til að ganga inn í fullkomlega frjálst viðskiptaumhverfi þegar EES-samningurinn tók gildi. 18.8.2012 06:00
Ekkert heimili í Grikklandi farið í þrot vegna hækkunar lána Bolli Héðinsson skrifar Sem svar við efnahagsþrengingum og til að stuðla að þróun hagkerfa sinna hefur fjöldi Evrópulanda leitað eftir aðild að Evrópusambandinu (ESB) sem leið út úr erfiðleikum sínum. Finnar, sem brugðu á það ráð eftir efnahagshrunið 1990, eru þar nærtækt dæmi. Því hlaut það að vera ein þeirra leiða sem kom til álita fyrir Íslendinga eftir efnahagshrunið 2008. Ekkert annað þarf að búa þar að baki, engin landráð eða svik, heldur aðeins það að kanna hvort leið sem aðrar þjóðir hafa farið gæti reynst heppileg fyrir Íslendinga. Ástæður aðildarviðræðna við ESB eru ekki flóknari en þessar. 18.8.2012 06:00
Út með bleika fílinn Það er gleðiefni að sjá að „Bleiki fíllinn“ virðist vera á vörum margra landsmanna. Reyndar er hugsunin á bak við bleika fílinn sorgarefni (hann stendur jú fyrir nauðgara eða nauðgun) – en markmið átaksins var að stuðla að hugarfarsbreytingu – og til að hefja hugarfarsbreytingu verður að byrja á að fá fólk til að tala. Og það virðist hafa tekist. 17.8.2012 16:00
ESB aðild og öryggismál Einar Benediktsson skrifar Á fyrstu árunum eftir kalda stríðið við upplausn Sovétríkjanna var öll fyrri þýðing norðurskautssvæðisins og Íslands fyrir Bandaríkin afskrifuð. 17.8.2012 06:00
Vandræði VG Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar Sumarið 2009 samþykkti Alþingi að sækja um aðild að ESB. Allar götur síðan hafa verið háværar raddir um að draga umsóknina til baka eða fresta henni um óákveðinn tíma. Nú er söngurinn byrjaður að nýju og að þessu sinni eru forsöngvarar þingmenn og ráðherrar vinstri grænna. 17.8.2012 06:00
Spegill sálar og líkama Jóhannes Kári Kristinsson skrifar Sagt er að augun séu spegill sálarinnar. Til viðbótar þá geta þau endurspeglað líkamann og ýmislegt sem þar fer fram. Augnlæknar eru svo heppnir að geta kíkt inn um gluggann á auganu (í auganu er tvöfalt gler, hornhimna og augasteinn) og sjá bæði æðar og sjóntaugina. Þetta er eini staðurinn í líkamanum þar sem hægt er að sjá bæði slagæðar og bláæðar, ekki ósvipað og hægt er að skoða fiska og mörgæsir synda í gegnum gler á sædýrasafni. Sjúkdómar sem herja á æðar, taugar og ónæmiskerfi líkamans koma oft fram í augunum. Augnlæknir getur því í mörgum tilvikum verið sá sem sér fyrstur ummerki vissra sjúkdóma, jafnvel áður en þeir koma fram annars staðar í líkamanum eða valda einkennum. Sem dæmi má nefna að stíflur í æðum augans geta bent til aukinnar áhættu á heilablóðfalli, hægara blóðflæði gæti verið merki um yfirvofandi lokun í hálsæðum og mjókkun á slagæðum augans er oft merki um háan blóðþrýsting. Hægt er því að hjálpa til við greiningu ýmissa sjúkdóma með því að skoða augun vel. Mikilvægt er því að fara til augnlæknis þegar í stað ef breytingar verða á sjón. 17.8.2012 06:00
Ferðaþjónustan og tíminn Pétur Óskarsson skrifar Hugmynd sett fram af fjármálaráðherra um hækkun á virðisaukaskatti á gistingu frá 1. júní 2013 er nú þegar farin að hafa neikvæð áhrif á sölu Íslandsferða fyrir næsta ár. Óvissan er algjör, málið virðist vera órætt meðal stjórnarliða og enginn veit hvert þessi vonda hugmynd er að fara. 17.8.2012 06:00
Sótt eftir undanþágu frá verslun með lifandi dýr Þórhildur Hagalín skrifar Samkvæmt lögum um innflutning dýra er óheimilt að flytja til landsins hvers konar dýr, tamin eða villt, svo og erfðaefni þeirra, þar með talin hross og hrossasæði. Þetta bann gegnir lykilhlutverki í vörnum gegn smitsjúkdómum en íslenski hrossastofninn hefur til þessa verið laus við marga alvarlega smitsjúkdóma, svo sem hestainflúensu og kverkaeitlabólgu, sem allir eru landlægir í nágrannalöndum okkar. 17.8.2012 06:00
Af Guðs ríki og öðrum skúmaskotum hugans Gunnlaugur Bragi Björnsson skrifar Hún stakk nokkuð í stúf, auglýsing Söfnuðar Moskvu-Patríarkatsins á Íslandi í Fréttablaðinu laugardaginn 11. ágúst. Sama dag birtust í fjölmiðlum landsins litríkar auglýsingar fyrirtækja í tilefni þess að þann dag gekk gleðiganga Hinsegin daga um miðborgina og endaði með stórhátíð á Arnarhóli. Þar gerði hinsegin fólk ásamt tugþúsundum fjölskyldumeðlima, vina og annarra gesta sér glaðan dag og fagnaði mannréttindum sem Íslendingar kjósa að virða í stað þess að troða fótum. Á þessum gleðidegi kaus Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins þó að minna á þá skoðun sína að ákveðnir hópar muni ekki erfa Guðs ríki. Söfnuðurinn valdi reyndar að koma ekki fram undir nafni í umræddri auglýsingu en fréttavefurinn Vísir.is nafngreindi auglýsandann tveimur dögum síðar. En í auglýsingunni nefndu rétttrúnaðarmenn „kynvillinga“ ásamt meðal annars þjófum og ræningjum, saurlífismönnum, hórkörlum og skurðgoðadýrkendum. 17.8.2012 06:00
Frjáls við ysta haf? Um Ísland í Evrópu Árni Páll Árnason skrifar Í síðustu grein rakti ég hinn mikla ávinning sem orðið hefur af þátttöku Íslands í evrópskri efnahagssamvinnu, frá aðild okkar að EES-samningnum. 17.8.2012 06:00
Krafan er einföld og auðskilin Árni Stefán Jónsson skrifar Með jöfnu millibili birtast fréttir og greinar um lífeyriskjör opinberra starfsmanna. Þessar fréttir eru þó oftar en ekki mjög ónákvæmar og gefa villandi upplýsingar um stöðu lífeyrismála og þá sér í lagi um stöðu lífeyrissjóðs ríkisstarfsmanna (LSR). Reglulega er þó reynt að leiðrétta helstu villur í umræðunni, hér er það gert enn og aftur. 17.8.2012 06:00
Staðan í þjóðfélaginu vegna úreltra búskaparhátta Herdís Þorvaldsdóttir skrifar Gömul og löngu úrelt lög um sauðfjárbúskap skikka okkur hin til að halda uppi dýrasta landbúnaðarkerfi sem þekkist. Sauðfjárbændur fá 4,2 milljarða á ári frá ríkinu fyrir að rækta sauðfé, auk ótal annarra styrkja. Það er auðvitað framleiðsluhvetjandi fyrir þá, en hefur skelfilegar afleiðingar fyrir gróður landsins. Meira en milljón sauðfjár er á lausagöngu allt sumarið, auk sjötíu og sjö þúsund hrossa. Og auðvitað er engin leið að stjórna lausabeitinni, jafnvel þó hún sé á skemmdum svæðum, sem alls ekki þola neina beit. 17.8.2012 06:00
Skrímslavæðingin Steinunn Rögnvaldsdóttir skrifar Árviss fylgifiskur útihátíða sumarsins er umræða um nauðganir. Það kemur ekki til af góðu, því nauðganir virðast vera fylgifiskur slíkra hátíða, hvort sem þær eru haldnar um verslunarmannahelgina eða á öðrum tíma. Umræðan einkennist í heildina – sem betur fer – af mikilli andúð á kynferðisofbeldi. Algengt er að heyra að það sé sannarlega óþolandi að fáir „veikir“/„truflaðir“/ „vondir“ menn, eða jafnvel „illmenni“ eða „skrímsli“ skuli geta „skemmt hátíðirnar“ fyrir þeim sem haga sér sómasamlega. 17.8.2012 06:00
Hærri virðisaukaskattur á gistingu á sumrin? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Á árunum fyrir hrun varð verðlag á Íslandi gríðarlega hátt í alþjóðlegum samanburði vegna þess að krónan varð mjög sterk. Það kom þó ekki í veg fyrir það að erlendum ferðamönnum fjölgaði feikilega á sama tíma. Þessi staðreynd bendir til að ferðamennska til Íslands sé ekki mjög viðkvæm fyrir háu verði. Það er, að hátt verðlag fæli ekki frá ferðamenn í miklum mæli. Með gengisfalli var tækifæri fyrir ferðaþjónustuna að hækka verð (í íslenskum krónum talið) og auka arðsemina í greininni. Þetta er sérstaklega aðkallandi á háönninni yfir sumarið, verð þyrfti að vera verulega hærra þá en á lágönn til að auka nýtingu á fjárfestingum. Í ferðaþjónustunni er hins vegar mikil samkeppni margra aðila, sem betur fer, og slík samkeppni heldur verði sjálfkrafa niðri. 16.8.2012 11:00
Ævintýri úr Lýðræðislandi Júlíus Valdimarsson skrifar Ýmsir stuðningsmenn frumvarps stjórnlagaráðs tala um að í frumvarpinu felist risastórt skref í lýðræðisátt en í raun er frumvarpið vægast sagt afar fátækt af ákvæðum sem gefa fólkinu ákvarðanavald um mál sem snerta daglega tilveru þess og hag. 16.8.2012 06:00
Mannslífum bjargað í Sómalíu Þórir Guðmundsson skrifar Í fyrrasumar gaf almenningur á Íslandi af miklum rausnarskap um 57 milljónir króna í söfnun Rauða krossins vegna hræðilegrar hungursneyðar í Sómalíu. Nú, ári síðar, er rétt að gefa skýrslu um árangur af starfi Rauða krossins, sem er umtalsverður. 16.8.2012 06:00
Hæstiréttur á heljarþröm Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Nýlegur dómur Evrópudómstólsins nr. C-618/10 hefur snúið við þeirri þróun sem var að hefjast hér á landi þar sem Hæstiréttur Íslands taldi sig geta breytt ákvæðum lánasamninga eftir að einstök ákvæði þeirra hafi verið dæmd ólögmæt. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem almenningur á Íslandi hefur fengið betri rétt frá öðrum dómstól en sínum eigin. 16.8.2012 06:00
Þar sem Evrópa endar? Um Ísland í Evrópu Árni Páll Árnason skrifar Við lifum mikla umbrotatíma. Óþarfi er að fjölyrða um íslenskt banka- og gjaldeyrishrun og afleiðingar þess. Um alla Evrópu hafa afleiðingar fjármálakreppunnar árið 2008 líka verið miklar og langvarandi. Allar þessar hræringar vekja spurningar um evrópskt efnahagssamstarf og gildi þess. 16.8.2012 06:00
Af hverju ESB-aðild? Einar Benediktsson skrifar Umræðan þessa dagana um Ísland og Evrópusambandið tengist ekki raunveruleika aðildarsamninganna heldur sýndarleik um ókunnar niðurstöður. Hinn mesti vindmyllubardagi er látlaust háður í Morgunblaðinu um þessi mál og tal um þjóðaratkvæðagreiðslu nú er út í bláinn enda einungis nokkrir mánuðir síðan Alþingi felldi síðast tillögu um slíkt. Ákvörðun þjóðarinnar um aðild á að sjálfsögðu að koma, en aðeins þegar málið liggur fyrir. 16.8.2012 06:00
Hver á að borga skattinn Bergvin Oddsson skrifar Það hefur varla farið fram hjá þjóðinni að ferðaþjónustuaðilar í hótel- og gistiþjónustu eru æfir út í ríkisstjórnina vegna hugmynda um að stórhækka virðisaukaskatt á gistinætur hótelrekenda og annarra sem sinna gistiþjónustu. Lagt er til að hækka virðisaukaskattinn úr 7% í 25,5% á næsta ári. 16.8.2012 06:00
Uppnefndur þjófur að ósekju Hilmar Hallbjörnsson skrifar Á síðastliðnum dögum hafa SMÁÍS, samtök myndrétthafa á Íslandi, verið með harkalega auglýsingaherferð í Fréttablaðinu. Auglýsingarnar hafa verið á þann veg að birt er mynd af skúrki, fyrst af manni sem þeir kölluðu Yuri og er líklega rússneskur og síðan af Brad, en hann er líklega bandarískur, og undir er texti sem segir að þeir séu að aðstoða Íslendinga við að brjóta lög og rétthafar myndefnis fái ekki greitt það sem þeir eigi að fá greitt. Leitt er að því að þeir sem noti þjónustur á borð við Netflix og erlenda hluta iTunes búðarinnar séu að brjóta lög. 16.8.2012 06:00
Björt framtíð Heiða Kristín Helgadóttir og Guðmundur Steingrímsson skrifar Þótt Björt framtíð sé nýtt stjórnmálaafl er hún ekki jaðarframboð eða sérframboð. Hún er heldur ekki óánægjuframboð. Björt framtíð er frjálslynd og bjartsýn miðjuhreyfing sem er vonandi komin til að vera. Hún er miðflokkurinn sem vantar í íslensk stjórnmál. Hún er nýtt afl fyrir nýja tíma. Hún er stofnuð 4. febrúar 2012 af fólki úr öllum áttum sem vill sjá stjórnmálin breyta um stefnu, í átt til meiri yfirvegunar og skynsemi. Í átt til bjartari og traustari framtíðar. Björt framtíð fagnar lýðræðinu og möguleikanum sem í því felst fyrir okkur öll til þess að gera gagn. Hún er ánægjuframboð. 16.8.2012 06:00
Fjárfest í tækifærum Kristján Freyr Kristjánsson skrifar Í síðustu viku birtist fréttaskýring þess efnis að margir lífeyrissjóða landsins væru ekki áhugasamir um að fjárfesta í nýsköpun þar sem slíkar fjárfestingar þættu "áhættusamar og eru [lífeyrissjóðirnir] enn brenndir eftir mislukkaðar fjárfestingar í nýsköpun í kringum aldamótin“. 15.8.2012 06:00
Fjárhagur framhaldskólanna Ólafur Haukur Johnson skrifar Umræða hefur verið í fjölmiðlum síðustu daga um fjárhag framhaldsskólanna. Stjórnendur þeirra hafa kvartað undan þröngri stöðu og undir þau sjónarmið hefur verið tekið af ráðherra. Látið er eins og að staðan sé verri en þolanlegt er og að nú þurfi að auka útgjöld til skólanna. Staðan er ekki svona slæm að mínu mati og ágætir kostir í stöðunni. Nú er tækifæri til að endurskipuleggja skólastarfið með það í huga að bæta það, auka aga og stytta námstímann. Þannig má auka skilvirkni nemenda og draga úr kostnaði. Svigrúm til að gera þetta er vissulega til staðar. 15.8.2012 06:00
Vertu þinn eigin útgefandi Óskar Þór Þráinsson skrifar Bókaútgáfa er mjög öflug á Íslandi. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands koma út fimm titlar á hverja þúsund íbúa á Íslandi. Þetta er um tvöfaldur fjöldi titla miðað við önnur norræn ríki. Bókaþjóðin Ísland les ekki bara mikið heldur er hún einstaklega dugleg í að skrifa. Fyrir utan þá rithöfunda sem vinna við ritstörf skrifa ótal Íslendingar sér til dægrastyttingar hvort sem það eru ljóð, smásögur, myndasögur, skáldsögur í fullri lengd, fræðibækur eða kvikmyndahandrit. Fjöldi handrita berst útgáfufélögum á hverju ári en það er glæpsamlega lítið hlutfall þeirra sem gefið er út á endanum. Þessi handrit lenda því flest ofan í skúffum, rykfalla og gleymast því aðeins stórhuga höfundar fara út í útgáfu. 15.8.2012 06:00
Slysatrygging við heimilisstörf – góð trygging verður betri Ingólfur Kristinn Magnússon skrifar Slysatrygging við heimilisstörf skv. 30. gr. almannatryggingalaga nr. 100/2007 er ein af bestu slysatryggingum sem einstaklingum stendur til boða. Hún kostaði litlar 450 kr. fyrir einstakling á síðasta ári fyrir tryggingatímabilið 1. ágúst 2012 til 31. júlí 2013. Óhætt er að fullyrða að vart finnst ódýrari trygging með jafn víðtækri tryggingavernd. Þrátt fyrir lágt verð og góða vernd þá hafa iðgjöld tryggingarinnar staðið undir útgjöldum skv. ársreikningum Tryggingastofnunar ríkisins og nú, frá árinu 2008, skv. ársreikningum Sjúkratrygginga Íslands. 15.8.2012 06:00
Lífslíkur mínar eru 25 árum skemmri en annarra – vilt þú styðja mig? Þórunn Helga Garðarsdóttir skrifar Ég heiti Þórunn Helga en allir kalla mig Tótu. Ég er búin að vera félagi í Klúbbnum Geysi í níu ár. Að gerast félagi í Klúbbnum Geysi bjargaði lífi mínu. 15.8.2012 06:00
Geta ólögmæt lán verið í vanskilum? Lúðvík Bergvinsson og Sigurvin Ólafsson skrifar Á undanförnum misserum hafa smám saman komið betur í ljós raunverulegar ástæður þess að íslensku bankarnir hófu í stórum stíl að veita einstaklingum og fyrirtækjum gengistryggð lán. Ljóst er að lánveitingarnar hljóta að hafa verið bönkunum afar mikilvægar enda lá fyrir skýrt bann við slíkum lánum í lögum um vexti og verðtryggingu. 14.8.2012 18:30
Stöðvum helvíti á jörðu Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Sigríður Schram,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir Skoðun