Þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrá – mikilvægustu spurningarnar vantar! Guðjón Sigurbjartsson skrifar 22. ágúst 2012 06:00 Samkvæmt ályktun Alþingis um þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá á að leggja fyrir þjóðina sex spurningar um efni tillaganna. En svo furðulegt sem það nú er þá snýst engin spurninganna um kjarna nýju stjórnarskrárinnar sem er stjórnskipunin og staða forsetans! Þá stóru spurningu virðist ekki eiga að ræða né kanna hug þjóðarinnar til hennar. Ástæða þess að yfirleitt var farið af stað með endurskoðun stjórnarskrárinnar eftir hrun var að margir töldu að stjórnskipun ríkisins hefði brugðist í aðdraganda hrunsins og að Alþingi hefði reynst getulaust varðandi þá endurskoðun skrárinnar sem staðið hefur til að Alþingi geri allt frá stofnárinu 1944. Núverandi stjórnarskrá er enda ónákvæm og misvísandi varðandi stjórnskipunina. Þar sem stjórnskipunin og geta stjórnkerfis ríkisins til að stjórna landinu vel er mikilvægasta málefni stjórnarskrárinnar og endurskoðunar hennar hlýtur það einnig að vera mikilvægasta innhald „samræðu” Alþingis við þjóðina og meðal hennar, þegar kemur að atkvæðagreiðslunni og aðdraganda hennar. Ekki er ljóst hvort þjóðin vill breytingar á stjórnkerfinu, það er á þrískiptingu ríkisvaldsins og hlutverki forsetans. Vill þjóðin hafa hér áfram þingbundna ríkisstjórn með valdalitlum forseta eða vill hún breyta til? Vitað er að það er talsverður áhugi á að gera forsetann valdameiri og það er jafnvel skoðun margra að forsetaræði henti okkur betur en þingræði. Við forsetaræði að hætti BNA velur þjóðkjörinn forseti meðráðherra og leiðir framkvæmdavaldið. Ráðherrarnir eru gjarnan valinkunnir leiðtogar hver á sínu fagsviði. Forsetaræði er reyndar algengara stjórnarfar en þingræði eins og hægt er að kynna sér á Wikipedia. Orðið forsetaræði minnir í fyrstu á orðið einræði en í raun er þetta stjórnarfar lengra komið frá konungbundna einræðinu sem var algengt áður fyrr. Þingræðið miðaði í upphafi við að til staðar var kóngur sem varð smám saman valdalaus. Við forsetaræði er betri aðskilnaður milli framkvæmdavalds, löggjafarvalds og dómsvalds. Þingið sinnir ekki framkvæmdastjórn heldur setur lögin og er mótvægi við forsetann. Við þingræði myndar meirihluti þingmanna ríkisstjórn úr sínum hópi. Í þessu felst að varla koma aðrir til greina í ríkisstjórn en þingmenn. Faglegir stjórnendur koma vart til greina jafnvel þó þeir séu í mörgum tilvikum mun hæfari til að gegna leiðtogastörfum á borð við það sem fjármálaráðherrar og heilbrigðisráðherrar gegna en stjórnmálamenn, vegna reynslu sinnar og menntunar. Annar slæmur vankantur á þingræðinu er að formenn flokka verða sjálfkrafa leiðtogar ríkisstjórna, hafa einnig mest áhrif í þinginu. Meirihluti þingsins setur sig varla í andstöðu við sína ríkisstjórn. Afleiðingin er skortur á vel ígrundaðri og sanngjarnri gagnrýni, þöggun og meðvirkni. Betra er að þing og ríkisstjórn takist óhikað á um álitamálin. Gagnrýnendur forsetaræðis halda því fram að stöðug átök séu milli framkvæmdavalds og löggjafarvalds. En einmitt slík átök kunna að vera mjög mikilvæg um álitamálin til að þau séu rædd og skilgreind áður en ákvarðanir eru teknar. Meðvirkni er óheppilegt stjórnarfar. Átökin milli þings og ríkisstjórnar þurfa að vera hæfilega mikil og sanngjörn. BNA, Frakkland og fleiri lönd sem búa við forsetaræði eru meðal fremstu landa á heimsvísu og það er ekki tilviljun. Minni lönd þurfa ef til vill ekki á snörpu stjórnarfari að halda því þau geta haldið í humátt á eftir forysturíkjunum en samt er gott stjórnarfar að sjálfsögðu mjög mikilvægt öllum framsæknum ríkjum. Tillögur stjórnlagaráðs eru um margt mjög góðar en það hefðu þurft að koma markvissari tillögur um breytingar á stjórnskipuninni. Alþingi getur þokað málum áfram með því að bæta við spurningum til þjóðarinnar um stjórnskipunina og spyrja í þessa veru: Á að byggja hér á forsetaræði eða þingræði? Ef hér verður áfram þingræði hver á þá staða forsetans og forsætisráðherrans að vera? Á að sameina þessi embætti? Umræðu um þessar spurningar og fleiri af þessum meiði er þörf og hún yrði vonandi frjó í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Beint lýðræði á helst við í stóru málunum. Það á að spyrja þjóðina um það sem mestu skiptir fyrir hana en það verður að vanda vel undirbúninginn og fræða þjóðina vel um kostina sem í boði eru áður en til atkvæðagreiðslunnar kemur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Halldór 20.06.2026 Halldór Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Frelsi ungra Íslendinga til framtíðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Til hamingju með Þjóðarhöll! Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar