Fleiri fréttir Íbúalýðræði Gestur Svavarsson skrifar Það er ergilegt þegar fulltrúar Sjálfstæðisflokksins setja fram rökfærslu sem ekki stenst, eða þvætting sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Það gildir líka um bæjarfulltrúann í Hafnarfirði, Rósu Guðbjartsdóttur. Hún skrifaði á dögunum um íbúalýðræði. 3.9.2011 06:00 Eistneski kúrinn Össur Skarphéðinsson skrifar Eistar telja að aðildin að ESB árið 2004 hafi skipt sköpum um hve vel gengur í landinu. Þrátt fyrir óróann á alþjóðlegum fjármálamörkuðum héldu þeir ótrauðir sínu striki og tóku upp evruna um síðustu áramót. Hagvöxtur í kjölfar aðildar, og síðan evrunnar, er með því besta sem þekkist í Evrópu. 3.9.2011 06:00 Opið bréf til umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkur Jóhann G. Gunnarsson skrifar Sæll vertu Karl og aðrir kjörnir fulltrúar í umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar. Við hér í fyrirmyndarhúsfélaginu Dalseli 38, 109 Reykjavík, finnum okkur knúin til að senda þér/ykkur þessar línur, þar sem okkur finnst við ekki hafa fengið viðeigandi svör við bréfi okkar, dagsettu þann 19.4.2011 síðastliðinn, varðandi sorphirðu og svokallaða 15 metra reglu. Satt að segja, þá erum við svolítið hissa á því, að umræddu bréfi hefur ekki verið svarað. Það var sent í gegnum netsíðu ykkar. 3.9.2011 06:00 Handritshöfundurinn 2011 Davíð Þór Jónsson skrifar Handritshöfundurinn 2011 sat við tölvuskjáinn og las yfir byrjunina á sjónvarpsþættinum sem hann hafði skrifað: „Jón lögregluforingi stóð yfir líkinu. Morðið hafði verið óvenjulegt og frumlegt. Verst að götulöggan hafði spillt vettvangnum. Nýliðinn í hópnum kastaði upp. Aðrir í hópnum voru drykkfelldur ruddi, kvennabósi og ung stúlka sem átti erfitt uppdráttar innan lögreglunnar vegna kynferðis síns. Sjálfur glímdi Jón við vandræði í einkalífinu.“ 3.9.2011 06:00 Halldór 02.09.2011 2.9.2011 16:00 Ekki fjárfesta takk Ólafur Þ. Stephensen skrifar Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er efins um að veita eigi kínverska fjárfestinum Huang Nubo heimild til að kaupa 72 prósenta hlut í Grímsstöðum á Fjöllum. Auðmaðurinn hyggst greiða eigendum jarðarinnar nærri milljarð króna fyrir landið, sem er um 300 ferkílómetrar. 2.9.2011 06:00 Bauðstu góðan daginn? Marta María Friðriksdóttir skrifar Góðan daginn–dagurinn var í Reykjavík í gær. Þetta vissi ég ekki fyrr en langt var liðið á dag. Þá rakst ég óvart á myndband af borgarstjóra með risanef bjóða okkur góðan daginn. Í myndbandinu óskar hann okkur til hamingju með daginn og hálfpartinn stærir sig af því hversu vel tókst til í fyrra. 2.9.2011 06:00 Brestur í brynju verðtryggingar Eygló Harðardóttir skrifar Almenningur kallar eftir afnámi verðtryggingar. Í skýrslu verðtryggingarnefndar voru skoðaðar fjölmargar leiðir til að draga varanlega úr notkun verðtryggingar. Ein þeirra var að Íbúðalánasjóður fengi heimild til að bjóða upp á óverðtryggð húsnæðislán. Fagnaði forstjóri sjóðsins þessari hugmynd og hafa nú jafnvel þingmenn stjórnarflokkanna tekið undir hana. 2.9.2011 06:00 Fagurgali Samfylkingarinnar um íbúalýðræði Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Mörgum er það enn í fersku minni þegar Samfylkingin í Hafnarfirði ákvað fyrir nokkrum árum að láta Hafnfirðinga kjósa um stækkunaráform álversins í Straumsvík. Nú eftir hrun er flestum ljóst að stækkun þessa öfluga fyrirtækis hefði skapað mörg hundruð störf sem hefðu haft hagfelld margfeldisáhrif út um allt samfélagið. 2.9.2011 06:00 Tannlækningar barna Nokkuð hefur verið ritað og rætt um tannlækningar barna undanfarin misseri. Hefur þar hæst borið sú staðreynd að tennur íslenskra barna skemmast meir en hjá frændþjóðum okkar í Skandinavíu. En hvers vegna skemmast tennur? Jú það er almenn þekking að bakteríur sitja á tönnum í lengri tíma og mynda sýru sem holar tennur að innan og skemmir fyrst glerung og síðar tannbein. 2.9.2011 06:00 Kvikmyndagerð á krossgötum? Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Kvikmyndagerð á Íslandi er að mínu mati afar merkilegt fyrirbæri. Það mat byggi ég á því að hafa fylgst með iðnaðinum úr fjarska en ekki af innihaldsríkri þekkingu á greininni þó svo að ég hafi leikið í "Annir og appelsínur“ 1988. Flóra íslenskra kvikmynda er afar mikil og þjónustu við erlenda framleiðendur er hælt. Það er margt samofið kvikmyndagerð. Nægir þar að nefna gerð auglýsinga, fræðslu og menningarefnis og fleira auk þess sem leiklistin er náskyldur ættingi. Við sjáum gjarnan sama fólkið á sviði og í kvikmyndum en svo stíga fram leikarar og framleiðendur sem sýna okkur hvað hægt er að gera með einni myndavél og leikara. Fyrir nokkru ákvað núverandi ríkisstjórn að skera niður framlög til kvikmyndagerðar þótt sannað væri að kvikmyndagerð býr til mun meiri tekjur en hún fær í styrki. Skrítinn sparnaður þar. 2.9.2011 06:00 Árangurinn er eini jarðneski mælikvarðinn á milli rétts og rangs Hinn 29. ágúst sl. fjallar leiðari Fréttablaðsins um stefnu ríkisstjórnar Vinstri grænna og Samfylkingar í skattlagningu ferðamáta. Að sönnu er ýmislegt sem betur mætti fara í skattastefnu þeirrar stjórnar, en henni er þó ekki alls varnað. Hið sama á við um leiðaraskrifin. 2.9.2011 06:00 Netið og stjórnmálin Haukur Arnþórsson skrifar Á tímum netsins stendur lýðræðið frammi fyrir margskonar breytingum. Á síðustu 20 árum hefur hópur vísindamanna, einkum í félagsvísinda- og tölvunarfræðideildum, rannsakað áhrif netsins á stjórnmál og kallað þær e-government og e-democracy. Töluverð þekking liggur þegar fyrir. 2.9.2011 06:00 Tilboð í nafla alheimsins Pawel Bartoszek skrifar Það kemur margt gott frá útlöndum. Ég er til dæmis þakklátur fyrir að hafa IKEA á Íslandi, mér finnst leiðinlegt að McDonald's hafi farið, ég vona að Bauhaus opni einn daginn og mig dreymir um H&M-búð á ofanverðum Laugaveginum. Ég myndi fátt vilja frekar en að hingað kæmu fleiri vondar erlendar keðjur til að græða á Íslendingum. Þeir sem verslað hafa beggja vegna hafsins, og víðar, vita að þar er oft gaman að láta græða á sér. 2.9.2011 06:00 Ný stjórnarskrá – ný grundvallarlög Tryggvi Gíslason skrifar Stjórnlagaráð Alþingis lagði í fyrra mánuði fram frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga sem hlýtur að vekja athygli allra sem áhuga hafa á þróun lýðræðis og mannréttindum. Stjórnlagaráð Alþingis vann á stuttum tíma gott starf og náði samstöðu um erfið ágreiningsmál. 2.9.2011 06:00 Halldór 01.09.2011 1.9.2011 16:00 Sólskin í skúffunum Bakþankar Ragnheiðar Tryggvadóttur skrifar "Sumarið kom aldrei og nú er komið haust, það er ekki búandi á þessu grjótkalda skeri,“ heyri ég nöldrað í kringum mig. Ég get orðið móðguð yfir þessu tuði og þreytt á staglinu um að allt sé ómögulegt á Íslandi, ekki bara veðrið. En stundum tek ég sjálf undir nöldrið af fullum móð, þegar þannig liggur á mér. Enda var nú óvenju kalt í sumar! 1.9.2011 06:00 Gosið og kvótinn Bergsteinn Sigurðsson skrifar Vestmannaeyjar eru rótgróinn útgerðarbær sem á allt sitt undir auðlindum hafsins. Því er rétt að leggja við eyrun þegar forsvarsmenn bæjarfélagsins tjá sig um hvernig nýtingu þeirra auðlinda skuli háttað. Í fyrradag lagði bæjarráð Vestmannaeyja fram umsögn um frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnunarlögum. Þar kemur fram að verði frumvarpið samþykkt muni það ríða útgerðarfyrirtækjum í bænum á slig og valda svo mikilli fólksfækkun að ekki "verður séð að aðrir viðburðir í sögu byggðar í Vestmannaeyjum muni hafa áður haft viðlík áhrif á samfélag Eyjamanna nema ef til vill eldgosið 1973 og Tyrkjaránið 1627". 1.9.2011 06:00 Hvatning til Suðurnesjabúa Haukur Hilmarsson skrifar Þau sluppu ekki framhjá mér pólitísku bréfaskrifin á vef Víkur-frétta um framtíðarhorfur atvinnumála á Suðurnesjum. Að mínu mati merkileg ritröð sem sýnir svo ekki verður um villst hvernig pólitískur boltaleikur fer fram. Það getur vel verið að það sé ósanngjarnt af bæjarstjóranum í Reykjanesbæ að senda stjórnarflokkunum línu þar sem hann setur stöðu atvinnumála á Suðurnesjum að hluta á þeirra ábyrgð. Svo getur líka vel verið að svarbréfin sem fylgdu í kjölfarið séu gott dæmi um pólitískt málþóf sem einkennir tafirnar sem bæjarstjóri telur upp. 1.9.2011 06:00 Meiri steypa? Sighvatur Björgvinsson skrifar Hvað er hátæknisjúkrahús? Það er heilbrigðisstofnun, þar sem auk hefðbundinna viðfangsefna almennra sjúkrahúsa eru leystar af höndum flóknustu aðgerðir og rannsóknir fyrir tilstilli nýjustu og um leið dýrustu tækni sem þekkingarsamfélagið hefur yfir að ráða og með aðkomu mjög sérhæfðs starfsfólks með langa menntun og mikla starfsreynslu að baki sem auk þess þarf að hafa nægilega mörg hinna flóknustu viðfangsefna í heilbrigðisþjónustu að fást við til þess að geta viðhaldið reynslu sinni og þekkingu. Húsnæðið, steinsteypan utan um starfsemina, er og verður aldrei annað en umbúðir utan um þá þjónustu, sem þar fer fram. Steinsteypa ein og sér getur aldrei orðið hátæknisjúkrahús. 1.9.2011 06:00 Til umhugsunar fyrir alþingismenn Þorvaldur Gylfason skrifar Alþingi ákvað í samræmi við tillögur Rannsóknarnefndar Alþingis að efna til endurskoðunar stjórnarskrárinnar frá 1944. Gömlu Gránu var aðeins ætlað að standa til bráðabirgða. Endurskoðun hennar hefur þó miðað hægt vegna ósamkomulags milli stjórnmálaflokka um ýmis mál. 1.9.2011 06:00 Svona er þetta bara Ólöf Guðný Valdimarsdóttir skrifar "Það er ekkert um að semja ef 110% leiðin er ekki samþykkt. Þá fer íbúðin þín auðvitað á nauðungaruppboð. Svona er þetta bara,“ sagði kona í Arionbanka sem hringdi í mig í kjölfar síðasta pistils míns. Þetta sagði hún eins og hún væri að tala um náttúrulögmál og ekki var annað að heyra en að henni þætti þetta fullkomlega sjálfsagt og eðlilegt. Og hún sagðist ekki vilja sleppa mér úr símanum fyrr en ég væri orðin sátt. Það hefði nú verið gott að vita fyrir einu og hálfu ári að bankinn ætlaði ekkert að semja við mig og væri bara að ásælast heimili mitt. Og henni fannst sjálfsagt og eðlilegt að ég væri sátt. 1.9.2011 06:00 Af heimsbókmenntum Gauti Kristmannsson skrifar Hannes Pétursson skrifaði skondna grein í Fréttablaðið nú fyrir skömmu þar sem hann hjó létt til manns og annars að fornum sið. Eitt þarf þó að leiðrétta í máli hans og það snýr að nafna mínum Goethe. Hannes heldur því fram (reyndar eins og flestar handbækur enn) að Goethe hafi fundið upp hugtakið heimsbókmenntir, á þýsku Welt-literatur. Það er ekki rétt. Sá sem fyrstur kom því á prent svo vitað sé hét August Ludwig Schlözer og var hann merkur sagnfræðingur í Göttingen á 18. öld, svo merkur að hans var getið í Encyclopædiu Britannicu fram á síðustu öld. 1.9.2011 06:00 Halldór 31.08.2011 31.8.2011 16:00 Vantraust á flokksforystuna Ólafur Þ. Stephensen skrifar Samþykkt flokksráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um að skipuð verði sérstök rannsóknarnefnd til að fara yfir aðdraganda þess að Ísland studdi hernaðar-aðgerðir Atlantshafsbandalagsins í Líbíu er veruleg tíðindi. 31.8.2011 06:00 Gegn fullu gjaldi Guðmundur Örn Jónsson skrifar Þegar á reynir, er rökrétt fyrir handhafa forréttinda að nota arðinn af þeim í að verja þau. Því sýnir gríðarlegt umfang baráttunnar um gjafakvótann, hversu verðmæt þau forréttindi eru. 31.8.2011 06:00 Hvers vegna er ríkisstjórnin á móti framleiðslu kvikmynda? Björn B. Björnsson skrifar Það klúður sem málefni Kvikmyndaskólans eru komin í einkenna alla aðkomu núverandi ríkisstjórnar að málefnum kvikmyndagerðar á Íslandi – en eru aðeins toppurinn á ísjakanum. 31.8.2011 06:00 Opið bréf til landbúnaðarráðherra Hæstvirti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason. Á undanförnum mánuðum hefur borið á mikilli fjölmiðlaumfjöllun um velferð eldisdýra. Þar hafa m.a. samtök um dýravelferð látið til sín taka og bent á að núgildandi reglugerðarákvæði heimili framleiðendum dýraafurða að halda eldisdýr við aðstæður sem eru ekki í samræmi við gildandi lög um dýravernd. Í lögunum er m.a. kveðið á um að dýrum skuli séð fyrir viðunandi vistarverum og þeim tryggt eðlilegt frelsi til hreyfingar samkvæmt viðurkenndri reynslu og þekkingu. Þessi skýru lagafyrirmæli er m.a. að finna í 3. gr. dýraverndarlaga nr. 15/1994. Upplýst hefur verið að þessu er ekki fylgt eftir í tilteknum greinum búfjárhalds, einkum þó í eggjaframleiðslu, alisvínarækt, loðskinnaframleiðslu (minka) og eggjaframleiðslu þar sem stuðst er við reglugerð um vistvæna landbúnaðarframleiðslu. 31.8.2011 06:00 Hagsmunir okkar allra Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Heildarendurskoðun á stjórn laga um fiskveiðar stendur nú yfir og hefur frumvarpið sem lagt var fram í vor verið í umsagnarferli. Nú mun sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd skila frá sér áliti ásamt umsögnunum til ráðherra en ekki kalla til umsagnaraðila á septemberþingi að ósk stjórnarandstöðunnar við þinglok í vor. Mikil gagnrýni hefur komið fram á frumvarpið af hálfu margra hagsmunaaðila og telja menn því helst til foráttu að framsal sé bannað og veðsetning aflaheimilda ekki leyfð og þar með sé komið í veg fyrir enn meiri hagræðingu í fækkun skipa og vinnslustöðva um landið, einnig að nýtingarsamningar séu til of skamms tíma þ.e. allt að 23 ár. 31.8.2011 06:00 Sama bókin, sitthvor skatturinn Kristján B. Jónasson skrifar Í öllum löndum Evrópska efnahagssvæðisins, með tveimur undantekningum, eru prentaðar bækur í lægsta virðisaukaskattsþrepi eða undanþegnar virðisaukaskatti. Sömu sögu er að segja utan Evrópu. Bækur eru ýmist undanþegnar virðisaukaskatti eða skatturinn hafður í lægsta þrepi, jafnvel í sérstöku undanþáguþrepi. Á Íslandi er lagður 7% virðisaukaskattur á prentaðar bækur, sem er nálægt meðaltalsprósentu EES-landanna. 31.8.2011 06:00 Spilling fyrir opnum tjöldum Sif Sigmarsdóttir skrifar Það var af ákafri vandlætingu sem ég hristi höfuðið er kunningi minn frá Íran sagði mér sögu frá heimalandi sínu. Sem nemandi í eðlisfræði við Háskólann í Teheran á níunda áratugnum varð hann var við að framgangur stúdenta við útskrift hélst ekki í hendur við frammistöðu í námi heldur hversu mikinn þátt menn tóku í starfi íslamista. Af gremju fylgdust þeir sem ekki voru í klíkunni með embættismannakerfi borgarinnar fyllast af misvanhæfum flokksgæðingum. 31.8.2011 06:00 Halldór 30.08.2011 30.8.2011 16:00 Myndin logna af Líbíu Þórarinn Hjartarson skrifar Það blasir við að myndin af „frelsun“ Tripólí var fölsk, að borgin hafi fallið í hendur „uppreisnarmanna“ sem þroskaður ávöxtur strax á fyrsta degi stórárásar á borgina. Íslenskir fjölmiðlar sögðu þá að 95% borgarinnar væru „frelsuð“ en þær hreinu línur hafa orðið óskýrari síðan. 30.8.2011 11:00 Tilgangsleysi skólastarfs – óvænt tíðindi í skólabyrjun Guðbjörg Vilhjálmsdóttir skrifar Upphaf skólaársins er alltaf fréttaefni í fjölmiðlum hvar sem er í heiminum. Ég horfði t.d. á fréttir frá Frakklandi um styrki vegna upphafs skólaársins. Hver fjölskylda fékk um 50 þúsund krónur og í fréttinni var fylgst með því hvernig þetta létti þeim lífið. Svona stendur franska velferðarkerfið sig í stykkinu. 30.8.2011 11:00 Þjóðin, það er ég Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar Skakkaföll kalla ungir sjálfstæðismenn efnahagshrun heillar þjóðar. Þetta væri næstum broslegt ef þetta væru ekki þeir sem valdastöður flokksins munu erfa sem í hlut ættu. Erfa þær frá þeim sem bjuggu til það kerfi sem gerði hrunið mögulegt. Þannig er striki slegið yfir söguna í ungæðislegum ákafa SUS-aranna við að útmála þá sem nú eru við stjórnvölinn sem handbendi andskotans. 30.8.2011 07:00 Fegurð einfaldleikans Steinunn Stefánsdóttir skrifar Þegar indverski hugsuðurinn og baráttukonan Vandana Shiva kynnir sig segir hún frá veganestinu sem foreldrar hennar sendu hana með út í lífið og felst í að vera meðvituð um fegurð einfaldleikans. Þannig leggur baráttukonan áherslu á að verkefni nútímamannsins sé að tengja að nýju það sem í samfélagi nútímans hefur verið slitið í sundur og þar með glatað merkingu sinni. Sem dæmi um þetta nefnir hún fjármálakerfi sem öðlast hefur sjálfstætt líf óháð þeim fjölmörgu þáttum sem eru því þó nauðsynlegir til að viðhalda sér. Mikilvægast er að mati Vandönu að tengja að nýju mann og náttúru því milli manns og náttúru hafi alvarlegasti aðskilnaðurinn átt sér stað. 30.8.2011 07:00 Ísland á betra skilið Össur Skarphéðinsson skrifar Þó að atvinnuleysi minnki, kaupmáttur aukist, auknum hagvexti sé spáð, útflutningsgreinar séu í bullandi stuði, fjárlagahalli minnki samkvæmt áætlun, skuldir Íslands séu á niðurleið, og ríkisstjórninni hafi með fyrirhyggju tekist að tryggja allar greiðslur landsins fram til ársins 2016, þá sjá hinir neikvæðu ungu menn sem leiða stjórnarandstöðuna aldrei til sólar. Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð eru njörv 30.8.2011 06:00 Hugræn atferlismeðferð Eiríkur Örn Arnarson skrifar Félag um Hugræna atferlismeðferð (FHAM) var stofnað árið 1987 af sjö sálfræðingum. Varla datt nokkru okkar í hug að tuttugu og fjórum árum síðar yrði tala félaga orðin 260 og komið yrði á skipulegt eins og tveggja ára nám í Hugrænni atferlismeðferð (HAM) í samvinnu við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og The Cognitive Therapy Centre í Oxford í Englandi. 30.8.2011 06:00 Frelsi er ekki sjálfsagður hlutur Jónína Michaelsdóttir skrifar Manneskjan almennt metur ekki að verðleikum það sem hún hefur fyrr en hún er svipt því. Þá fer hún að trega það. Hún tekur gott heilsufar fyrir sjálfsagðan hlut þar til hún veikist. Hún gengur að því sem vísu að fá þrjár máltíðir á dag, þangað til hún kynnist hungri, 30.8.2011 06:00 Halldór 29.08.2011 29.8.2011 16:00 Græn skattalækkun Ólafur Þ. Stephensen skrifar Ríkisstjórnin hefur sett sér markmið um að árið 2020 komi tíu prósent allrar orku sem notuð er í samgöngum á Íslandi frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Þetta er gott markmið og nauðsynlegt. Talsvert er til vinnandi að gera Ísland minna háð olíu, sem sífellt hækkar í verði. Orkuskiptin geta eflt nýsköpun og atvinnu og síðast en ekki sízt eru þau nauðsynleg til að Ísland geti staðið við alþjóðlegar skuldbindingar um að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda. 29.8.2011 11:00 Kerfið þegir Guðmundur Andri Thorsson skrifar Maður hefur svolítið verið að bíða eftir því að meiri og minni spámenn tjáðu sig um frumvarp stjórnlagaráðsins að nýrri stjórnarskrá. Kannski eru allir enn að hugsa. Allir stjórnmálafræðingarnir, heimspekingarnir, stjórnmálamennirnir, háskólamennirnir, já og lögfræðingarnir sem alltaf eru að fella úrskurði sína í fréttatímunum… 29.8.2011 06:00 Lögreglumaður mun ávallt svara kalli þínu! Heiða Rafnsdóttir skrifar Lögreglumenn mega ekki fara í verkfall. Margir velta eflaust fyrir sér hvort verkfall þessarar stéttar sé í raun framkvæmanlegt í ljósi þess í hverju starfið felst. Kjarabarátta lögreglumanna hefur verið í gangi lengi og baráttan við niðurskurð hefur verið blóðug. Lögreglumenn hafa verið samningslausir í tæpa 270 daga en núna er beðið niðurstöðu gerðardóms. Með þeirri niðurstöðu mun framtíð margra lögreglumanna vafalaust ráðast. 29.8.2011 06:00 Virðing Alþingis Friðrik J. Arngrímsson skrifar Verði frumvarp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða að lögum er það niðurstaða áfangaskýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að afskrifa 180 milljarða vegna keyptra aflaheimilda. Við það minnkar eigið fé fyrirtækjanna samsvarandi og verður í mörgum tilvikum neikvætt. 29.8.2011 06:00 Borg fyrirferðar Gerður Kristný skrifar Það er orðið algengt að fjölmiðlar geri stöðumælasektir að sérstöku umfjöllunarefni að loknum íþróttakappleikjum, útitónleikum og öðrum uppákomum hér á landi. 29.8.2011 06:00 Sjá næstu 50 greinar
Íbúalýðræði Gestur Svavarsson skrifar Það er ergilegt þegar fulltrúar Sjálfstæðisflokksins setja fram rökfærslu sem ekki stenst, eða þvætting sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Það gildir líka um bæjarfulltrúann í Hafnarfirði, Rósu Guðbjartsdóttur. Hún skrifaði á dögunum um íbúalýðræði. 3.9.2011 06:00
Eistneski kúrinn Össur Skarphéðinsson skrifar Eistar telja að aðildin að ESB árið 2004 hafi skipt sköpum um hve vel gengur í landinu. Þrátt fyrir óróann á alþjóðlegum fjármálamörkuðum héldu þeir ótrauðir sínu striki og tóku upp evruna um síðustu áramót. Hagvöxtur í kjölfar aðildar, og síðan evrunnar, er með því besta sem þekkist í Evrópu. 3.9.2011 06:00
Opið bréf til umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkur Jóhann G. Gunnarsson skrifar Sæll vertu Karl og aðrir kjörnir fulltrúar í umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar. Við hér í fyrirmyndarhúsfélaginu Dalseli 38, 109 Reykjavík, finnum okkur knúin til að senda þér/ykkur þessar línur, þar sem okkur finnst við ekki hafa fengið viðeigandi svör við bréfi okkar, dagsettu þann 19.4.2011 síðastliðinn, varðandi sorphirðu og svokallaða 15 metra reglu. Satt að segja, þá erum við svolítið hissa á því, að umræddu bréfi hefur ekki verið svarað. Það var sent í gegnum netsíðu ykkar. 3.9.2011 06:00
Handritshöfundurinn 2011 Davíð Þór Jónsson skrifar Handritshöfundurinn 2011 sat við tölvuskjáinn og las yfir byrjunina á sjónvarpsþættinum sem hann hafði skrifað: „Jón lögregluforingi stóð yfir líkinu. Morðið hafði verið óvenjulegt og frumlegt. Verst að götulöggan hafði spillt vettvangnum. Nýliðinn í hópnum kastaði upp. Aðrir í hópnum voru drykkfelldur ruddi, kvennabósi og ung stúlka sem átti erfitt uppdráttar innan lögreglunnar vegna kynferðis síns. Sjálfur glímdi Jón við vandræði í einkalífinu.“ 3.9.2011 06:00
Ekki fjárfesta takk Ólafur Þ. Stephensen skrifar Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er efins um að veita eigi kínverska fjárfestinum Huang Nubo heimild til að kaupa 72 prósenta hlut í Grímsstöðum á Fjöllum. Auðmaðurinn hyggst greiða eigendum jarðarinnar nærri milljarð króna fyrir landið, sem er um 300 ferkílómetrar. 2.9.2011 06:00
Bauðstu góðan daginn? Marta María Friðriksdóttir skrifar Góðan daginn–dagurinn var í Reykjavík í gær. Þetta vissi ég ekki fyrr en langt var liðið á dag. Þá rakst ég óvart á myndband af borgarstjóra með risanef bjóða okkur góðan daginn. Í myndbandinu óskar hann okkur til hamingju með daginn og hálfpartinn stærir sig af því hversu vel tókst til í fyrra. 2.9.2011 06:00
Brestur í brynju verðtryggingar Eygló Harðardóttir skrifar Almenningur kallar eftir afnámi verðtryggingar. Í skýrslu verðtryggingarnefndar voru skoðaðar fjölmargar leiðir til að draga varanlega úr notkun verðtryggingar. Ein þeirra var að Íbúðalánasjóður fengi heimild til að bjóða upp á óverðtryggð húsnæðislán. Fagnaði forstjóri sjóðsins þessari hugmynd og hafa nú jafnvel þingmenn stjórnarflokkanna tekið undir hana. 2.9.2011 06:00
Fagurgali Samfylkingarinnar um íbúalýðræði Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Mörgum er það enn í fersku minni þegar Samfylkingin í Hafnarfirði ákvað fyrir nokkrum árum að láta Hafnfirðinga kjósa um stækkunaráform álversins í Straumsvík. Nú eftir hrun er flestum ljóst að stækkun þessa öfluga fyrirtækis hefði skapað mörg hundruð störf sem hefðu haft hagfelld margfeldisáhrif út um allt samfélagið. 2.9.2011 06:00
Tannlækningar barna Nokkuð hefur verið ritað og rætt um tannlækningar barna undanfarin misseri. Hefur þar hæst borið sú staðreynd að tennur íslenskra barna skemmast meir en hjá frændþjóðum okkar í Skandinavíu. En hvers vegna skemmast tennur? Jú það er almenn þekking að bakteríur sitja á tönnum í lengri tíma og mynda sýru sem holar tennur að innan og skemmir fyrst glerung og síðar tannbein. 2.9.2011 06:00
Kvikmyndagerð á krossgötum? Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Kvikmyndagerð á Íslandi er að mínu mati afar merkilegt fyrirbæri. Það mat byggi ég á því að hafa fylgst með iðnaðinum úr fjarska en ekki af innihaldsríkri þekkingu á greininni þó svo að ég hafi leikið í "Annir og appelsínur“ 1988. Flóra íslenskra kvikmynda er afar mikil og þjónustu við erlenda framleiðendur er hælt. Það er margt samofið kvikmyndagerð. Nægir þar að nefna gerð auglýsinga, fræðslu og menningarefnis og fleira auk þess sem leiklistin er náskyldur ættingi. Við sjáum gjarnan sama fólkið á sviði og í kvikmyndum en svo stíga fram leikarar og framleiðendur sem sýna okkur hvað hægt er að gera með einni myndavél og leikara. Fyrir nokkru ákvað núverandi ríkisstjórn að skera niður framlög til kvikmyndagerðar þótt sannað væri að kvikmyndagerð býr til mun meiri tekjur en hún fær í styrki. Skrítinn sparnaður þar. 2.9.2011 06:00
Árangurinn er eini jarðneski mælikvarðinn á milli rétts og rangs Hinn 29. ágúst sl. fjallar leiðari Fréttablaðsins um stefnu ríkisstjórnar Vinstri grænna og Samfylkingar í skattlagningu ferðamáta. Að sönnu er ýmislegt sem betur mætti fara í skattastefnu þeirrar stjórnar, en henni er þó ekki alls varnað. Hið sama á við um leiðaraskrifin. 2.9.2011 06:00
Netið og stjórnmálin Haukur Arnþórsson skrifar Á tímum netsins stendur lýðræðið frammi fyrir margskonar breytingum. Á síðustu 20 árum hefur hópur vísindamanna, einkum í félagsvísinda- og tölvunarfræðideildum, rannsakað áhrif netsins á stjórnmál og kallað þær e-government og e-democracy. Töluverð þekking liggur þegar fyrir. 2.9.2011 06:00
Tilboð í nafla alheimsins Pawel Bartoszek skrifar Það kemur margt gott frá útlöndum. Ég er til dæmis þakklátur fyrir að hafa IKEA á Íslandi, mér finnst leiðinlegt að McDonald's hafi farið, ég vona að Bauhaus opni einn daginn og mig dreymir um H&M-búð á ofanverðum Laugaveginum. Ég myndi fátt vilja frekar en að hingað kæmu fleiri vondar erlendar keðjur til að græða á Íslendingum. Þeir sem verslað hafa beggja vegna hafsins, og víðar, vita að þar er oft gaman að láta græða á sér. 2.9.2011 06:00
Ný stjórnarskrá – ný grundvallarlög Tryggvi Gíslason skrifar Stjórnlagaráð Alþingis lagði í fyrra mánuði fram frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga sem hlýtur að vekja athygli allra sem áhuga hafa á þróun lýðræðis og mannréttindum. Stjórnlagaráð Alþingis vann á stuttum tíma gott starf og náði samstöðu um erfið ágreiningsmál. 2.9.2011 06:00
Sólskin í skúffunum Bakþankar Ragnheiðar Tryggvadóttur skrifar "Sumarið kom aldrei og nú er komið haust, það er ekki búandi á þessu grjótkalda skeri,“ heyri ég nöldrað í kringum mig. Ég get orðið móðguð yfir þessu tuði og þreytt á staglinu um að allt sé ómögulegt á Íslandi, ekki bara veðrið. En stundum tek ég sjálf undir nöldrið af fullum móð, þegar þannig liggur á mér. Enda var nú óvenju kalt í sumar! 1.9.2011 06:00
Gosið og kvótinn Bergsteinn Sigurðsson skrifar Vestmannaeyjar eru rótgróinn útgerðarbær sem á allt sitt undir auðlindum hafsins. Því er rétt að leggja við eyrun þegar forsvarsmenn bæjarfélagsins tjá sig um hvernig nýtingu þeirra auðlinda skuli háttað. Í fyrradag lagði bæjarráð Vestmannaeyja fram umsögn um frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnunarlögum. Þar kemur fram að verði frumvarpið samþykkt muni það ríða útgerðarfyrirtækjum í bænum á slig og valda svo mikilli fólksfækkun að ekki "verður séð að aðrir viðburðir í sögu byggðar í Vestmannaeyjum muni hafa áður haft viðlík áhrif á samfélag Eyjamanna nema ef til vill eldgosið 1973 og Tyrkjaránið 1627". 1.9.2011 06:00
Hvatning til Suðurnesjabúa Haukur Hilmarsson skrifar Þau sluppu ekki framhjá mér pólitísku bréfaskrifin á vef Víkur-frétta um framtíðarhorfur atvinnumála á Suðurnesjum. Að mínu mati merkileg ritröð sem sýnir svo ekki verður um villst hvernig pólitískur boltaleikur fer fram. Það getur vel verið að það sé ósanngjarnt af bæjarstjóranum í Reykjanesbæ að senda stjórnarflokkunum línu þar sem hann setur stöðu atvinnumála á Suðurnesjum að hluta á þeirra ábyrgð. Svo getur líka vel verið að svarbréfin sem fylgdu í kjölfarið séu gott dæmi um pólitískt málþóf sem einkennir tafirnar sem bæjarstjóri telur upp. 1.9.2011 06:00
Meiri steypa? Sighvatur Björgvinsson skrifar Hvað er hátæknisjúkrahús? Það er heilbrigðisstofnun, þar sem auk hefðbundinna viðfangsefna almennra sjúkrahúsa eru leystar af höndum flóknustu aðgerðir og rannsóknir fyrir tilstilli nýjustu og um leið dýrustu tækni sem þekkingarsamfélagið hefur yfir að ráða og með aðkomu mjög sérhæfðs starfsfólks með langa menntun og mikla starfsreynslu að baki sem auk þess þarf að hafa nægilega mörg hinna flóknustu viðfangsefna í heilbrigðisþjónustu að fást við til þess að geta viðhaldið reynslu sinni og þekkingu. Húsnæðið, steinsteypan utan um starfsemina, er og verður aldrei annað en umbúðir utan um þá þjónustu, sem þar fer fram. Steinsteypa ein og sér getur aldrei orðið hátæknisjúkrahús. 1.9.2011 06:00
Til umhugsunar fyrir alþingismenn Þorvaldur Gylfason skrifar Alþingi ákvað í samræmi við tillögur Rannsóknarnefndar Alþingis að efna til endurskoðunar stjórnarskrárinnar frá 1944. Gömlu Gránu var aðeins ætlað að standa til bráðabirgða. Endurskoðun hennar hefur þó miðað hægt vegna ósamkomulags milli stjórnmálaflokka um ýmis mál. 1.9.2011 06:00
Svona er þetta bara Ólöf Guðný Valdimarsdóttir skrifar "Það er ekkert um að semja ef 110% leiðin er ekki samþykkt. Þá fer íbúðin þín auðvitað á nauðungaruppboð. Svona er þetta bara,“ sagði kona í Arionbanka sem hringdi í mig í kjölfar síðasta pistils míns. Þetta sagði hún eins og hún væri að tala um náttúrulögmál og ekki var annað að heyra en að henni þætti þetta fullkomlega sjálfsagt og eðlilegt. Og hún sagðist ekki vilja sleppa mér úr símanum fyrr en ég væri orðin sátt. Það hefði nú verið gott að vita fyrir einu og hálfu ári að bankinn ætlaði ekkert að semja við mig og væri bara að ásælast heimili mitt. Og henni fannst sjálfsagt og eðlilegt að ég væri sátt. 1.9.2011 06:00
Af heimsbókmenntum Gauti Kristmannsson skrifar Hannes Pétursson skrifaði skondna grein í Fréttablaðið nú fyrir skömmu þar sem hann hjó létt til manns og annars að fornum sið. Eitt þarf þó að leiðrétta í máli hans og það snýr að nafna mínum Goethe. Hannes heldur því fram (reyndar eins og flestar handbækur enn) að Goethe hafi fundið upp hugtakið heimsbókmenntir, á þýsku Welt-literatur. Það er ekki rétt. Sá sem fyrstur kom því á prent svo vitað sé hét August Ludwig Schlözer og var hann merkur sagnfræðingur í Göttingen á 18. öld, svo merkur að hans var getið í Encyclopædiu Britannicu fram á síðustu öld. 1.9.2011 06:00
Vantraust á flokksforystuna Ólafur Þ. Stephensen skrifar Samþykkt flokksráðs Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um að skipuð verði sérstök rannsóknarnefnd til að fara yfir aðdraganda þess að Ísland studdi hernaðar-aðgerðir Atlantshafsbandalagsins í Líbíu er veruleg tíðindi. 31.8.2011 06:00
Gegn fullu gjaldi Guðmundur Örn Jónsson skrifar Þegar á reynir, er rökrétt fyrir handhafa forréttinda að nota arðinn af þeim í að verja þau. Því sýnir gríðarlegt umfang baráttunnar um gjafakvótann, hversu verðmæt þau forréttindi eru. 31.8.2011 06:00
Hvers vegna er ríkisstjórnin á móti framleiðslu kvikmynda? Björn B. Björnsson skrifar Það klúður sem málefni Kvikmyndaskólans eru komin í einkenna alla aðkomu núverandi ríkisstjórnar að málefnum kvikmyndagerðar á Íslandi – en eru aðeins toppurinn á ísjakanum. 31.8.2011 06:00
Opið bréf til landbúnaðarráðherra Hæstvirti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason. Á undanförnum mánuðum hefur borið á mikilli fjölmiðlaumfjöllun um velferð eldisdýra. Þar hafa m.a. samtök um dýravelferð látið til sín taka og bent á að núgildandi reglugerðarákvæði heimili framleiðendum dýraafurða að halda eldisdýr við aðstæður sem eru ekki í samræmi við gildandi lög um dýravernd. Í lögunum er m.a. kveðið á um að dýrum skuli séð fyrir viðunandi vistarverum og þeim tryggt eðlilegt frelsi til hreyfingar samkvæmt viðurkenndri reynslu og þekkingu. Þessi skýru lagafyrirmæli er m.a. að finna í 3. gr. dýraverndarlaga nr. 15/1994. Upplýst hefur verið að þessu er ekki fylgt eftir í tilteknum greinum búfjárhalds, einkum þó í eggjaframleiðslu, alisvínarækt, loðskinnaframleiðslu (minka) og eggjaframleiðslu þar sem stuðst er við reglugerð um vistvæna landbúnaðarframleiðslu. 31.8.2011 06:00
Hagsmunir okkar allra Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Heildarendurskoðun á stjórn laga um fiskveiðar stendur nú yfir og hefur frumvarpið sem lagt var fram í vor verið í umsagnarferli. Nú mun sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd skila frá sér áliti ásamt umsögnunum til ráðherra en ekki kalla til umsagnaraðila á septemberþingi að ósk stjórnarandstöðunnar við þinglok í vor. Mikil gagnrýni hefur komið fram á frumvarpið af hálfu margra hagsmunaaðila og telja menn því helst til foráttu að framsal sé bannað og veðsetning aflaheimilda ekki leyfð og þar með sé komið í veg fyrir enn meiri hagræðingu í fækkun skipa og vinnslustöðva um landið, einnig að nýtingarsamningar séu til of skamms tíma þ.e. allt að 23 ár. 31.8.2011 06:00
Sama bókin, sitthvor skatturinn Kristján B. Jónasson skrifar Í öllum löndum Evrópska efnahagssvæðisins, með tveimur undantekningum, eru prentaðar bækur í lægsta virðisaukaskattsþrepi eða undanþegnar virðisaukaskatti. Sömu sögu er að segja utan Evrópu. Bækur eru ýmist undanþegnar virðisaukaskatti eða skatturinn hafður í lægsta þrepi, jafnvel í sérstöku undanþáguþrepi. Á Íslandi er lagður 7% virðisaukaskattur á prentaðar bækur, sem er nálægt meðaltalsprósentu EES-landanna. 31.8.2011 06:00
Spilling fyrir opnum tjöldum Sif Sigmarsdóttir skrifar Það var af ákafri vandlætingu sem ég hristi höfuðið er kunningi minn frá Íran sagði mér sögu frá heimalandi sínu. Sem nemandi í eðlisfræði við Háskólann í Teheran á níunda áratugnum varð hann var við að framgangur stúdenta við útskrift hélst ekki í hendur við frammistöðu í námi heldur hversu mikinn þátt menn tóku í starfi íslamista. Af gremju fylgdust þeir sem ekki voru í klíkunni með embættismannakerfi borgarinnar fyllast af misvanhæfum flokksgæðingum. 31.8.2011 06:00
Myndin logna af Líbíu Þórarinn Hjartarson skrifar Það blasir við að myndin af „frelsun“ Tripólí var fölsk, að borgin hafi fallið í hendur „uppreisnarmanna“ sem þroskaður ávöxtur strax á fyrsta degi stórárásar á borgina. Íslenskir fjölmiðlar sögðu þá að 95% borgarinnar væru „frelsuð“ en þær hreinu línur hafa orðið óskýrari síðan. 30.8.2011 11:00
Tilgangsleysi skólastarfs – óvænt tíðindi í skólabyrjun Guðbjörg Vilhjálmsdóttir skrifar Upphaf skólaársins er alltaf fréttaefni í fjölmiðlum hvar sem er í heiminum. Ég horfði t.d. á fréttir frá Frakklandi um styrki vegna upphafs skólaársins. Hver fjölskylda fékk um 50 þúsund krónur og í fréttinni var fylgst með því hvernig þetta létti þeim lífið. Svona stendur franska velferðarkerfið sig í stykkinu. 30.8.2011 11:00
Þjóðin, það er ég Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar Skakkaföll kalla ungir sjálfstæðismenn efnahagshrun heillar þjóðar. Þetta væri næstum broslegt ef þetta væru ekki þeir sem valdastöður flokksins munu erfa sem í hlut ættu. Erfa þær frá þeim sem bjuggu til það kerfi sem gerði hrunið mögulegt. Þannig er striki slegið yfir söguna í ungæðislegum ákafa SUS-aranna við að útmála þá sem nú eru við stjórnvölinn sem handbendi andskotans. 30.8.2011 07:00
Fegurð einfaldleikans Steinunn Stefánsdóttir skrifar Þegar indverski hugsuðurinn og baráttukonan Vandana Shiva kynnir sig segir hún frá veganestinu sem foreldrar hennar sendu hana með út í lífið og felst í að vera meðvituð um fegurð einfaldleikans. Þannig leggur baráttukonan áherslu á að verkefni nútímamannsins sé að tengja að nýju það sem í samfélagi nútímans hefur verið slitið í sundur og þar með glatað merkingu sinni. Sem dæmi um þetta nefnir hún fjármálakerfi sem öðlast hefur sjálfstætt líf óháð þeim fjölmörgu þáttum sem eru því þó nauðsynlegir til að viðhalda sér. Mikilvægast er að mati Vandönu að tengja að nýju mann og náttúru því milli manns og náttúru hafi alvarlegasti aðskilnaðurinn átt sér stað. 30.8.2011 07:00
Ísland á betra skilið Össur Skarphéðinsson skrifar Þó að atvinnuleysi minnki, kaupmáttur aukist, auknum hagvexti sé spáð, útflutningsgreinar séu í bullandi stuði, fjárlagahalli minnki samkvæmt áætlun, skuldir Íslands séu á niðurleið, og ríkisstjórninni hafi með fyrirhyggju tekist að tryggja allar greiðslur landsins fram til ársins 2016, þá sjá hinir neikvæðu ungu menn sem leiða stjórnarandstöðuna aldrei til sólar. Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð eru njörv 30.8.2011 06:00
Hugræn atferlismeðferð Eiríkur Örn Arnarson skrifar Félag um Hugræna atferlismeðferð (FHAM) var stofnað árið 1987 af sjö sálfræðingum. Varla datt nokkru okkar í hug að tuttugu og fjórum árum síðar yrði tala félaga orðin 260 og komið yrði á skipulegt eins og tveggja ára nám í Hugrænni atferlismeðferð (HAM) í samvinnu við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og The Cognitive Therapy Centre í Oxford í Englandi. 30.8.2011 06:00
Frelsi er ekki sjálfsagður hlutur Jónína Michaelsdóttir skrifar Manneskjan almennt metur ekki að verðleikum það sem hún hefur fyrr en hún er svipt því. Þá fer hún að trega það. Hún tekur gott heilsufar fyrir sjálfsagðan hlut þar til hún veikist. Hún gengur að því sem vísu að fá þrjár máltíðir á dag, þangað til hún kynnist hungri, 30.8.2011 06:00
Græn skattalækkun Ólafur Þ. Stephensen skrifar Ríkisstjórnin hefur sett sér markmið um að árið 2020 komi tíu prósent allrar orku sem notuð er í samgöngum á Íslandi frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Þetta er gott markmið og nauðsynlegt. Talsvert er til vinnandi að gera Ísland minna háð olíu, sem sífellt hækkar í verði. Orkuskiptin geta eflt nýsköpun og atvinnu og síðast en ekki sízt eru þau nauðsynleg til að Ísland geti staðið við alþjóðlegar skuldbindingar um að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda. 29.8.2011 11:00
Kerfið þegir Guðmundur Andri Thorsson skrifar Maður hefur svolítið verið að bíða eftir því að meiri og minni spámenn tjáðu sig um frumvarp stjórnlagaráðsins að nýrri stjórnarskrá. Kannski eru allir enn að hugsa. Allir stjórnmálafræðingarnir, heimspekingarnir, stjórnmálamennirnir, háskólamennirnir, já og lögfræðingarnir sem alltaf eru að fella úrskurði sína í fréttatímunum… 29.8.2011 06:00
Lögreglumaður mun ávallt svara kalli þínu! Heiða Rafnsdóttir skrifar Lögreglumenn mega ekki fara í verkfall. Margir velta eflaust fyrir sér hvort verkfall þessarar stéttar sé í raun framkvæmanlegt í ljósi þess í hverju starfið felst. Kjarabarátta lögreglumanna hefur verið í gangi lengi og baráttan við niðurskurð hefur verið blóðug. Lögreglumenn hafa verið samningslausir í tæpa 270 daga en núna er beðið niðurstöðu gerðardóms. Með þeirri niðurstöðu mun framtíð margra lögreglumanna vafalaust ráðast. 29.8.2011 06:00
Virðing Alþingis Friðrik J. Arngrímsson skrifar Verði frumvarp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða að lögum er það niðurstaða áfangaskýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að afskrifa 180 milljarða vegna keyptra aflaheimilda. Við það minnkar eigið fé fyrirtækjanna samsvarandi og verður í mörgum tilvikum neikvætt. 29.8.2011 06:00
Borg fyrirferðar Gerður Kristný skrifar Það er orðið algengt að fjölmiðlar geri stöðumælasektir að sérstöku umfjöllunarefni að loknum íþróttakappleikjum, útitónleikum og öðrum uppákomum hér á landi. 29.8.2011 06:00
„Elska skaltu náunga þinn“ – gegn rasisma, hatri og sögufölsunum öfga hægrisins Guðrún Ósk Þórudóttir Skoðun