Fleiri fréttir

Einhleyp á ný?

Kántrísöngkonan Taylor Swift og söngvarinn Harry Styles úr strákabandinu One Direction virðast vera hætt saman ef marka má nýjustu fregnir slúðurmiðla. Parið hefur ekki farið leynt með ást sína síðan þau byrjuðu að slá sér upp fyrir tveimur mánuðum. Meðal annars fögnuðu þau nýju ári saman á Times Square í New York og kysstust fyrir framan myndavélarnar.

Dreymir um Óskarinn

Söngkonan Katy Perry gæti unnið til Óskarsverðlaunanna í ár. Lag hennar, Wide Awake, sem hún samdi fyrir tónleikamyndina Katy Perry: Part of Me gæti keppt til verðlaunanna í flokknum besta kvikmyndatónlistin. Alls eru sjötíu og fimm lög sem koma til greina. Þeim verður síðar fækkað niður í fimm.

Er andlitið eitthvað öðruvísi en vanalega?

Nú eru getgátur um að Jennifer Aniston sé pottþétt ólétt því hún á að vera með meiri fyllingu í andlitinu en vanalega. Lífið á erfitt með að sjá að Jennifer sé eitthvað öðruvísi en vanalega í andliti - nema hvað að hún er glöð og greinilega í dúndur formi. Myndir af henni sem teknar voru í desember og í gær má skoða í myndaalbúminu hér að ofan. Sérð þú mun? Skoðaðu myndasafnið og sjáðu hvort eitthvað sé að marka þessa pælingu.

Tilvonandi foreldrar kaupa milljarðahús

Kærustuparið Kim Kardashian og Kanye West eru búin að festa kaup á glæsihýsi í Bel Air í Kaliforníu. Húsið kostaði þau ellefu milljónir dollara, tæpan einn og hálfan milljarð króna.

Á að losna við aukakílóin eftir allar jólakræsingarnar?

"Jákvætt viðhorf á okkur sjálf og raunhæf markmið er allt sem þarf," er það fyrsta sem Freyja Sigurðardóttir þriggja barna móðir og fitnessdrottning með meiru þegar við spyrjum um markmið og ráð hennar til þeirra sem vilja huga vel að líkama og sál en hún starfar sem einkaþjálfari hjá Hreyfingu og Sporthúsinu í Reykjanesbæ. "Æfingastöðvarnar eru að fyllast og flest allir eru með sömu markmið sem eru að losna við "aukakílóin" eftir allar jólakræsingarnar. Þú ætlar að taka laugardaginn og sunnudaginn alveg í átveislu því þú ætlar svoleiðis að byrja í "átaki" á mánudaginn. Kannastu við þetta?" spyr Freyja jafnframt áður en hún þylur upp eftirfarandi ráð: 1. Morgunmatur Það er algjört lykilatriði að byrja daginn á hollum og næringarríkum mat ef þú vilt ná tökum á líkamsþyngdinni og borða svo litlar máltíðir allan daginn á 2-3 tíma fresti til að viðahalda "brennslunni" í líkamanum og að blóðsykurinn haldist í jafnvægi. 2. Raunhæf markmið Ég ætla að vera búin að missa 5-7 kg.og 7% í fitu á einum mánuði. Þetta fæ ég að heyra alltof oft. Fitan rennur ekki af þér frá fyrsta degi á nýju æfingaplani og breyttu mataræði. Það getur tekið líkamann nokkra daga jafnvel vikur að komast í jafnvægi til að brenna fitu. Líkaminn streitist á móti og reynir að halda í allt sem hann getur, og því minna sem þú borðar því þrjóskari verður hann. Raunhæft markmið er allt sem þarf og við þurfum að hætta öllum skyndikúrum og skyndi hitt og þetta. Allt tekur sinn tíma og maður uppsker eins og maður sáir.. Að breyta lífsstíl sínum og skrokk tekur tíma og mörg lítil skref verða að einu stóru skrefi sem verður hið raunverulega markmið. Breytingar eru að eiga sér stað í líkamanum þó við sjáum þær ekki frá degi til dags. 3. Jákæðni Gerðu lífsstílsbreytingu á jákvæðan hátt. Þú einn getur tekið ákvörðun um hvað þú vilt gera og hvernig þú vilt taka þig á. Enginn getur gert þetta fyrir þig þannig að ef ákvörðunin er að breyta lífsstílnum og koma sér í betra líkamlegt og andlegt form þarftu að hefja "átakið" á jákvæðni og þolinmæði. Einfalda leiðin er EKKI að sleppa hinu og þessu heldur að gæta hófs. Borðaðu einn ávöxt og grænmeti sem millimál og vatnsglas er góður ávani. 4. Gættu hófs Þú byrjar af krafti í ræktinni og tekur hrikalega vel á því, svitinn lekur af þér og þú ert afskaplega ánægður með þig. Eftir æfinguna finnst þér þú heldur betur hafa unnið fyrir því að fá þér væna próteinstöng eða álíka hressingu. En ef slík "verðlaun" koma sem viðbót við aðra fæðu sem þú neytir að jafnaði, eru litlar líkur á minnkandi ummáli. Árangursríkasta leiðin til að leggja af er að að auka hreyfinguna jafnhliða því að fækka hitaeiningum að einhverju leyti. 5-6 litlar máltíðir á dag í réttum hlutföllum í öllum fæðutegundum ásamt hreyfingu er lykillinn að bættri heilsu og minni ummáli. 5. Þú ert að gera þetta fyrir þig Til að ná varanlegum árangri í líkamsrækt þarf þú að taka ábyrgð á sjálfum þér. Ef þú ætlar að treysta á vin eða vinkonu til að draga þig alltaf með sér á æfingu og þú situr heima ef hann/hún mætir ekki til að sækja þig, þá er hætt við því að málið falli fljótt um sjálft sig. Það er vissulega besta mál að hafa æfingafélaga. En ekki treysta á að hann í blindni, og ekki ætlast til að maki þinn eða aðrir í kringum þig stoppi þig af ef þú ert að "svindla" í mataræðinu eða líkamsrækt þinni. Þú ert þinn eigin gæfu smiður. Treystu á sjálfan þig. 6. Hófsemi Það er mun auðveldra að komast í kjörþyngd með því að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl smám saman í stað þess að rjúka af stað með reglulegu millibili í strangan megrunarkúr. Ef þú heldur þig við hollt fæði flesta daga er í fínu lagi að láta eftir sér að smakka á uppáhalds óhollustunni öðru hvoru. Það er nauðsynlegt að njóta þess að borða það sem þig langar í en kunna að gæta hófs. Það gefast allir upp ef þeir neita sér um allt sem þá langar í. Besta lausnin er að finna skemmtilega tegund þjálfunar sem kemur þér í gott form og borða holla og fjölbreytta fæðu sem þú nýtur þess að borða, í hóflegu magni. 7. Geðheilsan Líkamsrækt minnkar streitu og kvíða og getur haft fyrirbyggjandi áhrif á þunglyndi. 8. Hreinsaðu til í mataræðinu Hreinsaðu burt allt konfekt, snakk og allt sem ögrar þér í mataræðinu. Það er ósköp einfalt, ef freistingarnar eru til staðar er mjög líklegt að þær muni tefja fyrir því að þú náir settu markmiði. Hugsaðu sem svo; ruslfæði og sætindi henta ekki lengur markmiðum mínum, svo út með þau! Fylltu svo skápana og ísskápinn af fjölbreyttri hollustu. 9. Þú stjórnar ferðinni Þú átt aðeins þennan eina líkama og heilsa þín er dýrmæt. Ekki vanmeta mikilvægi þess að rækta líkamann, hreyfa hann reglulega og velja vandlega næringuna þína. Mundu að þitt er valið, það er ljóst að enginn annar en þú sjálf/ur velur hvað þú borðar og hvort og hve oft þú hreyfir þig. Þitt val, þínar ákvarðanir, þinn árangur!

Í náttslopp á rauða dreglinum

Stórleikarinn Nick Nolte er eilífðartöffari. Það sást best þegar nýjasta mynd hans Gangster Squad var frumsýnd í Hollywood á mánudagskvöldið.

Selur nærfötin á eBay

Khloe Kardashian stofnaði verslun á eBay með eiginmanni sínum Lamar Odom síðasta sumar. Khloe er greinilega orðin söluóð og er meira að segja farin að selja nærfötin sín og sexí undirfatnað.

Með hríðar í 27 tíma

Skrautlega raunveruleikastjarnan Snooki eignaðist soninn Lorenzo í ágúst á síðasta ári og er afar stolt móðir. Fæðingin gekk vel fyrir sig þó aðdragandinn væri langur.

Stokkbólginn ritstjóri

Björk Eiðsdóttir ritstjóri Séð og heyrt fékk aldeilis að finna fyrir því á síðasta ári. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd bólgnuðu varir ritstjórans á örfáum sekúndum en ástæðan var heiftarlegt birkiofnæmi. Atvikið átti sér stað í fyrra sumar en þá er birkifrjóin mjög virk í loftinu hér á landi. Þá verður krossverkun sem leiðir til þess að eplið sem Björk borðaði aðeins nokkrum sekúndum áður en varir hennar bólgnuðu svona mikið framkölluðu þessi viðbrögð sem sjá má á myndinni. Það gengur mikið á hjá Björk þessa dagana. Hún og dóttir hennar Blær berjast eins og hetjur fyrir nafni stúlkunnar. Málið hefur vakið athygli út um allan heim og fjölmiðlar sýnt því gríðarlega mikla athygli.

Forsetinn með afabarnið í Zöru

Viðskiptavinum í versluninni Zöru fannst eflaust vinalegt að standa við hliðina á forseta Íslands við afgreiðslukassann í gær. Þar var Ólafur Ragnar Grímsson með einu af barnabarni sínu í verslunarleiðangri.

Hún er sextug! Trúiði því?

Leikkonan Jane Seymour var stórglæsileg á rauða dreglinum þegar nýjasta mynd hennar Freeloaders var frumsýnd í Los Angeles á mánudagskvöldið.

Barnalukka hjá Hrafni Gunnlaugssyni

Kvikmyndagerðamaðurinn þekkti Hrafn Gunnlaugsson á von á barni með vorinu. Barnsmóðir Hrafns ku vera af erlendu bergi brotin.

Mjög góður andi á Íslandi

Kvikmyndatökumaðurinn Christoph "Cico" Nicoalisen, sem tók upp Óskarsverðlaunastuttmyndina Toyland, hafði gaman af vinnu sinni við Falskan fugl sem hófst síðasta vor. Myndin verður frumsýnd 22. febrúar.

Anna Mjöll dæmd til að borga bílasalanum

Eins og RÚV greindi frá fyrr í kvöld var íslenska djasssöngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir dæmd samkvæmt bráðabirgðarúrskurði dómara í Los Angeles í desember á síðasta ári til að greiða fyrrum eiginmanni sínum, Cal Worthington, hvorki meira né minna en tæpar 30 milljónir íslenskar krónur.

Leikhússtjóri orðinn pabbi

"Fallegur drengur kom í heiminn í dag kl. 9.10. Hann er fullkominn í alla staði, 53 cm og 17 merkur. Öllum heilsast vel og við erum að springa af hamingju. Lífið er dásamlegt!" skrifar leikhússtjóri Borgarleikhússins Magnús Geir Þórðarson á Facebooksíðunni sinni í gær en hann og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir eignuðust dreng. Lífið óskar fjölskyldunni innilega til hamingju með barnið.

Hefur ekki undan við að eyða neikvæðum kommentum

Lífið hafði samband við stjórnanda heilsusíðunnar Nutramino á Facebook og spurði hann af hverju ein tiltekin mynd á síðunni sem tekin var af íslenskum fitnesskeppendum hefur fengið rúmlega 800 athugasemdir. Hvað er á þessum myndum? "Þetta eru myndir af fitness keppendum. Myndir af fólki sem hefur náð árangri með því að koma sér í form. Jákvæðar myndir af heilbrigðu fólki en keppnin var í nóvember á síðasta ári, svarar Friðfinnur Magnússon framkvæmdastjóri Sanitas heildverslun.

Geggjað grímubúningafjör

Leik- og söngkonan Þórunn Lárusdóttir hélt upp á fertugsafmæli sitt í reiðhöllinni í Víðidal á laugardagskvöldið með pompi og prakt. Eins og sjá má á myndunum mættu gestir í grímubúningum en ljóst var að mikill metnaður var lagður í búninga.

Afmynduð eftir Botox

Stórleikkonan Anjelica Huston var nær óþekkjanleg þegar hún kynnti aðra seríu af Smash í Pasadena í Kaliforníu á sunnudaginn. Andlit þessarar 61 árs leikkonu er vægast sagt afmyndað.

Sýndi brjóstin í beinni

Kynbomban Pamela Anderson var rekin heim í fyrstu viku í þáttaröðinni Dancing on Ice en hún kennir brjóstunum um. Hún klæddist agnarsmáum, hvítum kjól er hún sýndi listir sínar á skautum og náði kjóllinn ekki að hylja hennar allra heilagasta.

Eiga konur að lyfta eins og karlar?

"Eru konur hræddar við þung lóð? Eiga konur að æfa eins og karlmenn? Lengi vel hefur mér fundist margar konur vera hræddar við að lyfta þungt. Ef það er rétt það sem mér finnst, að konur séu hræddar við að lyfta þungt þá er aðalspurningin, afhverju? Út frá því þá kemur önnur spurning, eiga konur að lyfta eins og karlmenn eða öðruvísi?" spyr Sævar Borgars einkaþjálfari á heimasíðu sinni Saevaringi.wordpress.com.

Búningaleikur í svefnherberginu

Fyrirsætan Heidi Klum ljómar á forsíðu nýjasta heftis Marie Claire. Hún talar mikið um ástina og lífið en hún skildi við Seal, eiginmann sinn til átta ára, í fyrra. Hún talar líka mjög opinskátt um kynlíf sitt.

Handtekinn fyrir ölvun

Leikarinn Josh Brolin var handtekinn á nýársdag fyrir ölvun á almannafæri. Brolin var handtekinn skömmu fyrir miðnætti á nýársdag en sleppt úr haldi næsta morgun.

Berfætt á djamminu

Söngkonan LeAnn Rimes skemmti sér vel á stelpukvöldi í Hollywood um helgina þar sem hún borðaði með sínum nánustu vinkonum á vinsæla veitingastaðnum Katsuya.

Svona líta þær út í raunveruleikanum

Í kjölfar pistils sem Helga María Helgadóttir 14 ára skrifaði um útlitsdýrkun sem lesa má hér langar okkur að leyfa ykkur að sjá hvernig fyrirsæturnar úti í hinum stóra heimi líta út í raunveruleikanum. Eins og sjá má á myndunum er sjokkerandi að sjá hvað búið að gera við þessar ungu stúlkur sem starfa sem fyrirsætur þegar kemur að gjörbreyttu útlitinu.

23ja ára aldursmunur

Kvikmyndagerðarmaðurinn Danny Boyle og leikkonan Rosario Dawson fóru saman í rómantískt frí yfir hátíðarnar á Barbados. 23ja ára aldursmunur er á parinu en þau láta það ekki stoppa sig.

Kryddpía í útvarpið

Söngkonan Emma Bunton, 36 ára, í stúlknasveitinni Kryddpíunum hefur ráðið sig í nýja vinnu á breskri útvarpsstöð sem ber heitið FM Heart. Um er að ræða morgunþátt sem hún stjórnar ásamt útvarpsmanninum Jamie Theakston. Emma lét hafa eftir sér að Mel C sem er einnig meðlimur Spice Girls stúlknagrúbbunnar hafi hlegið að henni þegar hún sagði henni frá nýja starfinu: "Emma þú ert ekki morgunmanneskja!"

Vala Matt einblínir á hollustuna

"Ég var með eitt áramótaheit að þessu sinni en það tengist glænýju verkefni sem ég er að byrja á en get ekki sagt frá strax" segir Valgerður Matthíasdóttir athafnakona og brosir leyndardómsfull þegar Lífið spyr hana út í verkefnin sem hún vinnur að núna í upphafi nýs árs 2013. Hvernig kemur þú undan jólunum? "Ég kem vel undan hátíðarhaldinu. Hef sjaldan borðað minna af óhollustu um hátíðir. Held að allt sem ég hef lært til dæmis af snillingum eins og Sollu Eiríks og Lukku á Happ hafi komið sér vel því ég var með dýrindis sælgæti án sykurs og óhollustu og einnig bjó ég til fullt af hollustudrykkjum til að vega upp á móti þungum máltíðum. Ég veit að þetta hljómar dáldið "boring" en er bara löngu orðinn lífsstíll hjá mér og alveg nauðsynlegt til að mér líði vel," segir Vala. Hvað stendur upp úr hjá þér árið 2102 ? "Eitt af því sem stendur upp úr hjá mér á árinu var þegar ég hellti mér út í útgáfu og bjó til sælkeraverkefnið mitt Sælkeraleiðarvísir/Icelandlocalfood með sælkerabæklingi og heimasíðunni http://www.Icelandlocalfood.is sem nú fer brátt af stað aftur fyrir næsta sumar. Ótrúlega skemmtilegt fjölmiðlaverkefni sem hefur átt hug minn allan."

Fyrsta myndin eftir skilnaðinn

Hjartaknúsarinn Bradley Cooper mætti í fyrsta sinn á rauða dregilinn um helgina eftir að hann og leikkonan Zoe Saldana hættu saman rétt fyrir jól.

135 elskhugar á tíu árum

Karakterarnir í þáttaröðinni Friends voru duglegir við að finna og tapa ástinni þessi tíu ár sem þátturinn var í sjónvarpi. Nú er talið að karakterarnir sex hafi átt um það bil 135 elskhuga á þessu tíu ára tímabili.

Bubbi hættur á Facebook- reifst síðast við Egil

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er hættur á Facebook. Ekki er ljóst hversvegna þessi dáði tónlistarmaður hefur ákveðið að yfirgefa samskiptasíðuna, sem hefur raunar reynst þrautinni þyngri fyrir fjölmarga notendur Facebook sem treysta á samskiptamiðilinn þegar kemur að því að fylgjast með dægurumræðunni.

Gylfi hélt uppi stuðinu

Nýársfögnuður borgarstjórnar fór fram með pompi og prakt um helgina. Gleðskapurinn fór fram á Höfða þar sem mátti meðal annars sjá Gísla Martein Baldursson og eiginkonu hans, Völu Ágústu Káradóttur, skemmta sér.

Halda í upprunann

Of Monsters and Men spiluðu fyrir fullu húsi á Faktorý þrjú kvöld í röð.

Fótboltastjarna í ástarsorg

Knattspyrnukappinn Mario Balotelli er vanur því að vingast við fjöldamargar fallegar konur. Nú er Mario hins vegar í ástarsorg eftir að kærasta hans, Tabby Brown sparkaði honum.

Þessi kann að gera hækjur heitar

Leikkonan glæsilega Andie McDowell vílaði ekki fyrir sér að mæta á hækjum á viðburð á vegum sjónvarpsstöðvarinnar Hallmark í San Marino í Kaliforníu á föstudagskvöldið.

Ég sýni brjóstin næst

Vinalega leikkonan Courteney Cox er í óðaönn að kynna nýjustu seríuna af Cougar Town. Hún mætti galvösk í spjallþáttinn hjá Jay Leno fyrir stuttu og lofar að hún sýni brjóstin á sér meira í nýju seríunni.

Handtekinn!

Stórleikarinn Josh Brolin fagnaði áramótunum aðeins of mikið og var handtekinn rétt fyrir miðnætti á nýársdag í Santa Monica í Kaliforníu fyrir að vera ölvaður á almannafæri.

Fáklætt ofurpar

Stjörnuparið Julianne Hough og Ryan Seacrest skemmtu sér konunglega um helgina á St. Barts. Þessi 24ra ára leikkona og 38 ára Idol-kynnir dýfðu sér í sjóinn og hlógu dátt.

Siggi og Hanna slitu trúlofuninni

Dansparið Hanna Rún Óladóttir og Sigurður Þór Sigurðsson vakti verðskuldaða athygli í þáttunum Dans, dans, dans á Rúv í lok síðasta árs. Parið hefur dansað saman um áraraðir auk þess sem þau voru ástfangin upp fyrir haus og búin að trúlofa sig.

Mynd af Sting eftir sleðaferð

Haraldur G. Bender gaf okkur leyfi til að birta meðfylgjandi mynd af sér og tónlistarmanninum Sting. Hinsvegar vildi Haraldur, eða Halli eins og hann er kallaður, ekki tjá sig um staðsetningu því Sting vill fá að vera í friði á meðan hann dvelur hér á landi að sögn Halla. Halli skrifaði við myndbirtinguna af þeim tveimur: "Tveir þreyttir eftir góðan sleðarenning," sem segir okkur að þeir hafi notið sín saman á vélsleða. Fréttablaðið sagði frá því í vikunni að Sting væri staddur hér á landi ásamt fjölskyldu sinni, eiginkonuTrudie Styler og börnum þeirra fjórum. Tvö þeirra á Sting úr fyrra hjónabandi en börnin eru á aldrinum 17 - 36 ára. Hópurinn eyddi áramótunum í Stóru Mörk undir Eyjafjöllum og hafði ráðið sér þjón og kokk til að veislumaturinn væri sem frambærilegastur.

Star Wars-aðdáandi og kynbomba

Kynbomban og leikkonan Megan Fox er byrjuð á Twitter og byrjar vel. Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hún stofnaði reikning á samskiptasíðunni opinberaði hún að hún er mikill Star Wars-aðdáandi.

Sjá næstu 50 fréttir