Fleiri fréttir

Sá hefur aldeilis breyst!

Jeremy Jackson ólst upp fyrir framan myndavélarnar sem sonur Davids Hasselhoffs í sjónvarpsþáttunum Baywatch. Þá var hann lítill og væskilslegur en það sama er ekki hægt að segja um hann í dag.

Ber að ofan og í fáránlegu formi

Stórleikarinn Sean Penn fagnaði áramótunum á Maui á Havaí. Hann spókaði sig um á ströndinni á nýja árinu og ráku margir upp stór augu.

Sjóðheit mamma

Leikkonan Jessica Alba er í fríi í Cabo San Lucas í Mexíkó með fjölskyldunni og er búin að nýta hvert tækifæri til að sóla tónaðan líkamann.

Nýr raunveruleikaþáttur í bígerð

Kim Kardashian og Kanye West hafa ákveðið að leyfa upptökuvélunum að fylgjast með meðgöngunni og væntanlegri fæðingu frumburðarins í raunveruleikaþætti sem skapaður verður í kringum stjörnurnar en þættirnir verða sýndir á sjónvarpsstöðinni E! sem sýnir að sama skapi vinsælan raunveruleikaþátt Kardashian fjölskyldunnar 'Keeping Up WIth The Kardashians'.

Ég er ekki ofbeldisfullur maður

Gunnar Nelson mun berjast við Bandaríkjamanninn Justin Edwards í London þann 16. febrúar. Þetta er annar bardagi Gunnars á skömmum tíma en hann lagði af velli DaMarques Johnson í frumraun sinni í UFC bardagakeppninni í lok september síðastliðinn.

Lopez leggur á borð

Jennifer Lopez, 43 ára, ber aldurinn vægast sagt mjög vel eins og sjá má á myndunum af henni í tímaritinu Bazaar. Í forsíðuviðtalinu viðurkennir Jennifer að hún pakki niður töskurnar sínar sjálf og að hún velur fötin sem hún klæðist alfarið sjálf.

Frægir fagna á nýárskvöld

Eins og sjá má á þessum skemmtilegu símamyndum var gleðin við völd á fyrsta kvöldi ársins á skemmtistaðnum Austur og Iðusölum. Systurnar Birna og Selma Björnsdætur,, Björk Eiðsdóttir ritstjóri, markaðsstjórinn og rithöfundurinn Tobba Marínós og kærastinn hennar, Kalli Baggalútur, stórsöngvarinn Garðar Thor og leikkonan Anna Svava, fyrirsætan Ásdís Rán, fjölmiðlastjörnurnar Logi Bergmann og Ívar Guðmunds skemmtu sér stórkostlega eins og sjá má.

Ætlar að missa 13 kíló árið 2013

Það var ekki fyrr en ég viðurkenndi fyrir sjálfri mér að ég væri sykurfíkill sem boltinn fór að rúlla. Ég veit ekki hversu oft ég hef ákveðið að taka mig á í matarræðinu en alltaf hefur það fallið um sjálft sig hraðar en mig óraði um.

Eldhúsið afhjúpað í kvöld

Þáttaröðin MasterChef Ísland snýr aftur á Stöð 2 í kvöld en serían hefur verið í jólafríi. Í kvöld ganga átta bestu áhugakokkarnir inn í MasterChef-eldhúsið - það stærsta í íslenskri sjónvarpssögu.

Slúðurkóngur fjallar um Björk og Blævi

Slúðurkóngurinn Perez Hilton fjallar um baráttu Bjarkar Eiðsdóttur og Blævar dóttur hennar til þess að sú síðarnefnda fái að skrá nafn sitt í Þjóðskrá. Hann vísar til orða Bjarkar þess efnis að hún hafi sagt að hún hafi ekki haft hugmynd um að hún væri að brjóta lögin þegar hún ákvað að nefna dóttur sína Blæ. Síðan furðar Hilton sig á því að hér á Íslandi skuli vera mannanafnaskrá. Perez Hilton er ekki eini maðurinn til að fjalla um þetta því að þær mæðgur urðu heimsfrægar í gær þegar fjölmiðlar víðsvegar um heim fóru að fjalla um baráttu þeirra.

Ofurfyrirsæta í leðurbuxum

Ísraelska fyrirsætan Bar Refaeli fagnaði nýja árinu á heimaslóðum í Tel Aviv. Bar skellti sér auðvitað á djammið með vinkonu sinni Valentinu Micchetti.

Berndsen verður bráðum pabbi

Tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen og Guðrún Harðardóttir eiga von á barni. Davíð hefur gert það mjög gott í tónlistinni hér á landi. Athygli vakti þegar Guðrún birti ...

Kynbombur í kápum

Leikkonan Jessica Alba og söngkonan Fergie eru afar eftirsóttar í stjörnuheiminum. Þær kunna að klæða sig eins og sést á meðfylgjandi myndum.

Vinslit hjá Ívari Guðmunds og Arnari Grant

"Þetta er nú ekki neitt, neitt. Svona mál geta nú alltaf komið upp," segir Ívar í samtali við tímaritið Séð og heyrt spurður út í vináttu hans og Arnars Grant en þessir þekktu viðskiptafélagar og vinir talast varla við lengur og vita kunningjar þeirra varla hvaðan á þá stendur veðrið eins og segir í tímaritinu. Arnar neitaði alfarið að tjá sig um málið og Ívar var heldur stuttorður þegar hann var inntur eftir viðbrögðum.

Obbosí! Sést í bossa!

Jersey Shore-stjarnan Jennifer “JWoww” Farley sér örugglega eftir því núna að hafa verið í alltof stuttum glimmerkjól á gamlárskvöld. Hún sá um sérstakan gamlárskvöldsþátt MTV ásamt vinkonu sinni Snooki.

Stjörnurnar eyddu áramótunum á ströndinni

Lífstíll fræga og ríka fólksins er ekki af verri endanum en fjöldi frægra Hollywood stjarna ákvað að leggja leið sína í frí á framandi slóðir yfir hátíðarnar.

Ræðir kílóamissi í glanstímariti

Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian, 33 ára, prýðir forsíðu Us Weekly aðeins sex mánuðum eftir að hún eignaðist sitt annað barn, stúlkuna Penelope sem fæddist 8. júlí síðastliðinn. Hún hefur lést um 19 kg síðan hún var ólétt að eigin sögn. Fyrir á hún 3 ára soninn Mason með sambýlismanni sínum Scott Disick.

Komin með alveg upp í kok af þessu samfélagi

"Ókei shit ég get þetta ekki lengur. Ég er komin með alveg mikið meira en upp í kok af þessu samfélagi, þessum heimi sem við lifum í og þessum óraunhæfu staðalímyndum sem við eigum að líkjast! Ég er komin með nóg að því að líða illa yfir líkama mínum afþví að ég er ekki með grönn læri, af því ég er ekki með grannt andlit og af því ég er ekki með einhvern fullkominn sléttan maga! Af hverju á mér að líða illa yfir því? Af hverju fynnst mér stanslaust eins og ég þurfi að svelta mig til að líða vel? Af hverju má ég ekki vera flott og fín nákvæmlega eins og ég er? Ég er alls ekki að stuðla til þess að lifa óheilbrigðum lífsstíl eða þá að sé í lagi að borða óhollt eins og svín og lifa bara fyrir framan sjónvarpið. Auðvitað borða ég að mestu hollan mat og hreyfi mig reglulega en því miður er ég bara ekki ein af þeim með fullkominn maga. En enn og aftur, hver ákveður hvað er fullkominn magi? Afhverju getur minn magi ekki alveg eins verið fullkominn? Og þó enginn sé að segja mér að ég þurfi að grennast eða taka mig á eða eitthvað, þá líður mér eins og ég sé undir stöðugri pressu, að ég þurfi að vera með flatan maga. Eins og mér á ekki að þurfa að líða illa yfir því að fara í sund með vinum mínum! Ég ákvað því að mín áramótaheit skyldu verða að vera ánægð og stolt af líkama mínum hvernig sem hann er þó eg ætli að demba mér líka í gott átak. Þess vegna ætla ég að setja þessa mynd af mínum maga hérna inná og auk þess vera ómáluð og með ekkert filter og bara vera stolt af því! Haha varð bara að koma þessu út. Takk fyrir að lesa ef þú nenntir því og ég hvet þig til að vera ánægð/ur með sjálfan þig sama hvernig þú ert! :) ást og friður," skrifar Helga María Helgadóttir 14 ára á Facebooksíðuna sína. Lífið hafði samband við Helgu og bað hana um leyfi til að birta þessa frábæru hugleiðingu og forvitnaðist í leiðinni um viðbrögð vina hennar við pistlinum. "Þau hafa verið alveg æðisleg. Ég hef ekki fengið neitt annað en svo flott skilaboð hérna á Facebook og ég hefði aldrei trúað því hvað fólk er yndælt. Ég hef séð reyndar eitt og eitt skítakomment en bjóst alveg við því og læt það ekkert á mig hafa," segir Helga.

Nennir ekki lengur að telja húðflúrin

Friðrik Jónsson er húðflúraðasti maður Eskifjarðar. Hann hefur ekki hugmynd um hvað húðflúrin eru orðin mörg og nennir ekki lengur að telja.

Engin morgunógleði hér

Heimspressan logaði þegar Kanye West og Kim Kardashian tilkynntu að þau ættu von á barni daginn fyrir gamlársdag. Meðganga Kim hefur gengið mjög vel hingað til.

Ég er ekki kynþokkafull

Leikkonan Anne Hathaway hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinni Les Misérables sem frumsýnd verður á Íslandi á næstunni. Hún hefur þó oft glímt við ímyndarvandræði og finnst leiðinlegt að hún sé ekki álitin svöl.

Rekinn út af næturklúbbi á gamlárs

Nick Loeb, unnusti Modern Family-bombunnar Sofiu Vergara, var hent út af næturklúbbi í Miami eftir að skötuhjúin rifust heiftarlega á gamlárskvöld.

Yfir sig ástfangin

Partýstelpan og hótelerfinginn Paris Hilton er yfir sig ástfangin af nýjasta kærastanum og módelinu River Viiperi.

Handleggsbrotin Idol-stjarna

Idol-stjarnan Kris Allen lenti illa í því á fyrsta degi ársins. Þessi 27 ára sjarmör lenti nefnilega í bílslysi og handleggsbraut sig.

Hugh Hefner genginn út

Fyrirsætan Crystal Harris, 26 ára, og Hugh Hefner, 86 ára, giftu sig á gamlárskvöld eftir vægast sagt dramatíkina sem átti sér stað hjá þeim árið 2011 þegar brúðurin stakk af örfáum dögum eftir að þau ætluðu að ganga í heilagt hjónaband og að ekki sé minnst á alla gestina sem þurfti að afboða eftir lætin. Eins og sjá má á myndunum sem teknar voru umrætt kvöld var brúðurin klædd í fölbleikan síðan kjól og brúðguminn í svartan smóking sem er vissulega tilbreyting frá slikináttfötunum sem hann klæðist nánast alltaf. Athöfnin fór fram í Playboyhöllinni eins og hún er oftast nefnd.

Einsetti sér að hjálpa ófrjósömum

"Eftir að viðtalið birtist við mig í Íslandi í dag fór gjörsamlega allt af stað,“ segir Andri Hrafn Agnarsson, sem greindist ófrjór í haust og hefur einsett sér að hjálpa fólki í sömu sporum. "Fyrir utan stuðning frá fjölskyldu og vinum þá hefur þvílíkur fjöldi fólks sem við þekkjum og sem við þekkjum ekki neitt skrifað mér og Söru á Facebook, og meira að segja fékk ég símtal frá manni utan af landi sem ég þekki ekkert,“ segir Andri.

Rihanna og Chris saman yfir áramótin

Rihanna og Chris Brown eyddu áramótunum saman upp í rúmi ef marka má myndirnar sem þau settu af sér á netið. Rihanna setti myndir af sér og Chris en eyddi þeim jafn óðum. Hér má sjá eina mynd af stúlkunni undir sæng á gamlárskvöld tekin af Chris.

Ólétt og yfir sig hamingjusöm

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og rapparinn Kanye West voru glæsileg á gamlárskvöld er þau kvöddu árið með stæl í Las Vegas ásamt vinum og vandamönnum.

Sting og Trudie eyddu áramótunum í Stóru-Mörk

Tónlistarmaðurinn Sting og eiginkonan Trudie Styler hafa verið hér á landi undanfarna daga. Fjölskyldan öll kom saman á Íslandi, hjóni Sting og Trudie ásamt börnunum þeirra fjórum og tveimur börnum Sting úr fyrra hjónabandi. Börnin eru á aldrinum 17 til 36 ára og búa beggja vegna Atlantsála.

Bieber sýnir magavöðvana

Justin Bieber, 18 ára, sýndi magavöðvana á síðasta kvöldi ársins 2012 í sjónvarpsætti Ryan Seacrest. Meðfylgjandi má sjá "six-pakkinn" í öllu sínu veldi. Poppstjarnan flutti í þættinum meðal annars lagið “As Long As You Love Me” með Big Sean en flutninginn má sjá í heild sinni í myndskeiðinu hér að neðan.

Sjá næstu 50 fréttir