Lífið

Geggjað grímubúningafjör

Myndir/Heida HB
Leik- og söngkonan Þórunn Lárusdóttir hélt upp á fertugsafmæli sitt í reiðhöllinni í Víðidal á laugardagskvöldið með pompi og prakt. Eins og sjá má á myndunum mættu gestir í skemmtilega fjölbreyttum grímubúningum en ljóst var að mikill metnaður var lagður í búningana.

Verðlaun voru veitt þeim sem þóttu skara fram úr, utanlandsferð í boði flugfélagsins Wow air. Það voru þeir Tinni og Kolbeinn eða öllu heldur Albert Guðmann Jónsson og Axel Axelssonsem sem sigruðu enda þóttu búningar þeirra afar vel lukkaðir.

Þar sem búningarnir voru almennt mjög vandaðir var þetta erfitt starf fyrir dómnefndina, sem skipuð var Þórunni Clausen, leikkonu og Þorsteini R. Hermannssyni, umferðarverkfræðinigi. Þau gátu þó glatt fleiri en aðal sigurvegara kvöldsins, því nokkrir gestir fengu viðurkenningu fyrir flotta búninga og fóru heim með eðal rauðvín, Vina Maipo vitral, bíómiða í lúxussal Smárabíós, Glacial vatn að ógleymdri geislaplötu afmælisbarnsins "Þórunn Lár og félagar."

Hljómsveit skipuð vinum og vandamönnum (meðal annarra Jón Geir Jóhannsson úr Skálmöld og Guðmundur Stefán Þorvaldsson úr hljómsveitinni Hraun) spilaði og tóku nokkrir söngglaðir gestir lagið með þeim, meðal annars systurnar þrjár, Ingibjörg, Þórunn og Dísella Lárusdætur, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Heiða Ólafs, Stefán Hilmarsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Þórunn Clausen og fleiri.

Flugeldasýning var á miðnætti og eftir það héldu gestir áfram að skemmta sér, dönsuðu og sungu fram á rauðan morgun.

Heimasíða afmælisbarnsins Þórunnar - Thorunnlar.is.

Jón Ólafsson og Þóra unnusta hans.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×