Fleiri fréttir

Kristrún Ösp eignaðist dreng

Kristrún Ösp Barkardóttir fyrirsæta er búin að eignast lítinn dreng. Það vakti mikla athygli í ágúst síðastliðinn þegar Kristrún tilkynnti um það á Facebook að hún væri ólétt, en hún gaf ekkert uppi um faðerni barnsins.

Mæðgin keppa á Northern Wave

Spænski kvikmyndagerðarmaðurinn Sergio De Vega verður gestur á alþjóðlegu stuttmyndahátíðinni Northern Wave sem fram fer í Grundarfirði um helgina. Stuttmynd De Vega, Making Counts, verður sýnd á hátíðinni auk þess sem móðir hans mun keppa í hinni vinsælu fiskisúpukeppni sem haldin er í tengslum við hátíðina.

Mila Kunis andlit Dior

Leikkonan Mila Kunis, 28 ára, var klædd í bleikan kjól fyrir herferð Dior fataframleiðandans í Frakklandi í gærdag. „Ég er alltaf með plan B,“ lét Mila hafa eftir sér. Eins og sjá má var hugað að hári leikkonunnar við tökurnar.

Poppstjarnan Rex á leið til Íslands

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá viðtal við poppstjörnurnar Rex og Atle Petterson sem tóku fyrir skömmu upp myndband við nýjasta smell sinn Amazing á Íslandi. Kvikmyndadeild Pipar/TBWA sá um framleiðsluna og Gus Ólafsson leikstýrði. „Við fengum handrit frá nokkrum fyrirtækjum á Norðurlöndum og við völdum Pipar/TBWA og Gus og við sjáum ekki eftir því, segir Rex um útkomuna. Útgáfuteiti var í gærkvöldi í Osló fyrir fjölmiðlafólk og fólk úr tónlistargeiranum, en í kvöld verður almennt útgáfupartý fyrir almenning í Noregi. Stjörnurnar fljúga svo til Íslands á morgun laugardag til að halda upp á útgáfuna á laginu og myndbandinu á Austur í Reykjavík klukkan: 23.00. „Við vildum endilega halda líka partý á Íslandi þar sem við vorum með svo marga sem unnu að myndbandinu og það hefði verið svo leiðinlegt að geta ekki haldið upp á svo flotta útkomu án þess að fagna henni með þeim sem unnu verkið," sagði Rex . Það var 35 manna hópur frá Íslandi sem vann að verkinu og var myndbandið tekið upp í Atantic studios að Ásbrú í Keflavík, en það var áður flugskýli Bandaríska hersins.

Sjáðu myndirnar frá frumsýningu Svartur á leik

Meðfylgjandi má sjá myndir sem voru teknar á frumsýningu kvikmyndarinnar Svartur á leik í leikstjórn Óskars Þórs Axelssonar. Troðið var út úr dyrum í Smárabíó og góð stemning á meðal frumsýnignargesta að sjá spennutryllinn sem olli ekki vonbrigðum.

Snooki ólétt

Nicole Polizzi, betur þekkt sem Snooki úr raunveruleikaþáttunum Jersey Shore, er ólétt. Snooki er hvað þekktust fyrir mikið partýstand í raunveruleikaþáttunum sem sýndir eru á MTV og hafa notið mikilla vinsælda vestanhafs.

Mörg andlit J.Lo

Það eru fáar konur sem komast nánast upp með allt þegar kemur að hári, förðun og fatastíl en söngkonan og leikkonan Jennifer Lopez er svo sannarlega ein þeirra. J.Lo hefur óneitanlega farið út um víðan völl í gegnum árin en margir eru á því að hún sé upp á sitt allra besta í dag, komin yfir fertug.

Elín Hirst horfir til Bessastaða

Elín Hirst gefur sér góðan tíma til að sinna ömmuhlutverkinu með eins árs gamalli sonardóttur sinni, Margréti Stefaníu Friðriksdóttur Hirst, ásamt því að huga að góðgerðamálum og framtíðinni. Hún rifjar upp með Lífinu eftirminnileg atvik á þrjátíu ára löngum farsælum fjölmiðlaferli. Nú styttist í 30 ára starfsafmæli þitt sem fjölmiðlamaður. Ef þú lítur um öxl og skoðar fjölmiðlaferil þinn í nokkrum orðum? Ég hef gegnt ábyrgðarstöðum, störfum varafréttastjóra og fréttastjóra, bæði á fréttastofu Stöðvar tvö og Bylgjunnar og á fréttastofu Sjónvarpsins. Auk þessa hef ég framleitt framleitt einar fimm sögulegar heimildarmyndir sem sjálfstæður framleiðandi og einnig heimildarmyndir um önnur efni s.s. börn með Downs-heilkenni og fleira. Ég hef einnig verið fréttaþulur á þriðja áratug og því tíður gestur á heimilum fólks, enda heilsa mér margir eins og gömlum og góðum vini. Það er notalegt. Hvað stendur upp úr þegar þú lítur til baka? Það sem stendur upp úr er skemmtilegur og skapandi starfsferill með hæfileikaríku og flottu fagfólki. Ég hef kynnst þvílíku úrvalsfólki í gegnum störf mín á fjölmiðlunum sem myndi sóma sér vel hvar sem væri í heiminum. Ég sá þetta best þegar ég vann með teymi frá bandaríska fréttaskýringaþættinum 60 mínútur frá CBS í tengslum við eldgosið í Eyjafjallajökli en Þorvarður Björgúlfsson, eigandi kvikmyndafyrirtækisins Kukls, sá um þá heimsókn og ég aðstoðaði hann. Íslenska sjónvarpsfólkið í þeim leiðangri var í heimsklassa, og þarna vorum við að vinna með heimsmeisturunum í sjónvarpsþáttagerð ef svo má að orði komast. Áttu eftirminnilegt augnablik á skjánum sem þú vilt deila með okkur? Ég held að það erfiðasta sem ég hef upplifað sé þegar við fluttum Sjónvarpið af Laugavegi 176 upp í Efstaleiti árið 2000. Við tókum um leið í gagnið nýtt útsendingakerfi sem stríddi okkur mikið fyrstu vikurnar. Eitt kvöldið sem oftar var ég fréttaþulur og ég held að ég hafi verið meira og minna á skjánum í 30 mínútur að biðja fólk afsökunar og biðja það um að hafa biðlund því nýja kerfið var kolstíflað og engar fréttir birtust á skjánum. Þetta var mikil þolraun og mig langaði mest að skríða undir fréttaborðið og fela mig. Lá alltaf fyrir að fara í fjölmiðla? Nei, alls ekki. Ég byrjaði í viðskiptafræði en leiddist námið og hætti eftir eitt ár og kom mér til útlanda í háskóla. Það var gríðarlega mikilvæg lífsreynsla fyrir mig að fara til útlanda í nám rúmlega tvítug og brjóta allar brýr að baki mér því foreldrum mínum leist ekkert sérlega vel á blikuna í fyrstu, en svo skilaði ég mér heim með háskólagráðu, þeim til mikils léttis, auk þess sem ég hafði kynnst hinum stóra heimi og lært að standa á eigin fótum, og ég hef búið að því alla tíð. Hvaða lærdóm hefurðu helst dregið af reynslu þinni í fjölmiðlum? Pólitík er eitur inni á fjölmiðlum. Þá á ég við bæði flokkapólitík, eigendapólitík eða aðra sérhagsmunapólitík. Fréttastofur eru ekkert annað en fólkið sem þar starfar. Því eru stöðug opin skoðanaskipti, gagnrýni á fréttamat og vinnubrögð lífsnauðsynleg inni á hverri fréttastofu sem vill kallast hlutlæg. Öflugar fréttastofur sem fara að líta of stórt á sig og gleyma þessu eru hættulegar fyrir lýðræði og tjáningarfrelsið í landinu. Hvað Ríkisútvarpið varðar hef ég áhyggjur af því að verið sé að gera það of háð valdhöfunum, en fjármunir til þess eru í raun skammtaðir úr fjármálaráðuneytinu nú um stundir. Gömlu afnotagjöldin voru að mörgu leyti skárra kerfi og tryggðu betur fjárhagslegt sjálfstæði RÚV. Ertu hætt í fjölmiðlum? Nei, hreint alls ekki. Hefur þú upplifað það að vera þekkt á Íslandi? Já, nokkrum sinnum. Helst var það þegar ég fór á skemmtistaði, en ég hætti því bara. Þá vildi fólk fara að ræða um ýmsa persónulega hluti eins og hvernig ég klæddi mig og hvernig hárið á mér væri. Mér fannst þetta mjög óþægilegt. Hvernig upplifun er það að vera kona sem hefur klifið metorðastigann? Æ, mér finnst þessi metorðastigi ósköp mikið hjóm. Það eina sem ég vil er að láta gott af mér leiða og fá að starfa í friði við það sem mér finnst skemmtilegast og geri best. Ég hef enga sérstaka þörf fyrir að ráða og stjórna, en axla auðvitað þá ábyrgð sem mér er falin með glöðu geði, ef ég á annað borð tek að mér slík verkefni. Hvernig hefur gengið að tvinna saman álagsvinnu og uppeldi barna þinna? Ég var oft þjökuð af samviskubiti gagnvart börnunum mínum þegar þau voru lítil. Vinnan var svo krefjandi og vinnutíminn svo ófjölskylduvænn, fram á kvöld og um helgar. Ég held hins vegar að ég hafi verið góð mamma og naut þess að vera með sonum mínum í öllum mínum frístundum. Við höfum alltaf verið miklir vinir og mjög samrýmd og ég man að ég skrapp oft í hádeginu og við fórum og fengum okkur pitsu eða hamborgara til að stytta daginn. Nú ertu orðin amma – hvernig tilfinning er það? Það er mjög góð tilfinning. Sonardóttir mín heitir Margrét Stefanía Friðriksdóttir Hirst og er eins árs. Við erum miklar vinkonur og oft að bralla eitthvað saman. Við kubbum mikið, púslum og lesum. Dýrin í Hálsaskógi eru í miklu uppáhaldi hjá okkur um þessar mundir en Margrét er stundum svolítið hrædd við Mikka ref. Við erum oft mjög menningarlegar og förum til dæmis í barnadeildina í Borgarbókasafninu og dundum okkur. Um daginn fórum við og skoðuðum Alþingi og Dómkirkjuna og svo vorum við teknar tali á Austurvelli af sjónvarpsmönnum sem voru að spyrja okkur um einhver bankahrunsmál. Margrét Stefanía er því orðin mjög meðvitaður þjóðfélagsþegn aðeins ársgömul. Margrét Stefanía er líka svo heppin að eiga afa sem er mjög duglegur að passa hana og yndislega móðurömmu og afa sem bera hana á höndum sér. Hvað gerið þið fjölskyldan helst saman í fríum? Við förum á skíði og göngum á fjöll með hundinn á sumrin. Ég er mjög hrifin af gönguskíðum en ég er líka þokkaleg á svigskíðum. En hvað gerir þú til að rækta sjálfa þig? Stunda jóga og hreyfi mig. Nú varstu stödd á Ísafirði í vikunni – hvað ertu að takast á við þessa dagana? Það er leyndarmál hvað ég var að gera á Ísafirði, en kemur í ljós í haust. Annars er ég að skipuleggja fleiri fjölmiðlanámskeið fyrir konur sem vilja auka færni sína í að fara í sjónvarpsviðtöl. Ég er búin að fara í gegnum svona námskeið með fimmtíu konum frá áramótum, læknum, prestum, verkfræðingum, lögfræðingum og endurskoðendum. Námskeiðið er fyrir konur því ég vil stuðla að því að auka þátttöku kvenna í opinberri umræðu. Mér finnst of fáar konur tilbúnar að tjá sig og það vil ég laga. Við eigum svo margar frábærar konur á öllum sviðum samfélagsins. Ég held að margar okkar séu með fullkomnunaráráttu og við óttumst að standa okkur ekki nógu vel ef við gefum kost á okkur í sjónvarpsviðtal. Það eru óþarfa áhyggjur en oft þarf bara eitt kvöldnámskeið til að yfirvinna þennan ótta. Þá er ég að undirbúa ásamt fleira góðu fólki, þar á meðal konunum í á Allra vörum, LSH, Umhyggju og RÚV að hleypa af stað stórri landssöfnun í haust til að opna miðstöð sem aðstoðar veikustu börnin okkar í landinu, börn með sjaldgæfa, alvarlega, langvinna sjúkdóma, sem sum þurfa öndunarvél til að geta lifað. Þetta eru um 50 börn hér á landi en þessi hópur hefur stækkað mikið á síðustu tíu árum. Börn með slíka sjúkdóma lifðu ekki af áður fyrr en gera það í dag, en eiga afar erfitt líf sem og fjölskyldur þeirra. Þetta er verkefni sem brennur á okkur árið 2012 að mæta þörf sem nú er brýn að hlúa betur að allra veikustu börnunum okkar. Ég er reyndar í fleiri slíkum verkefnum, til dæmis á vegum Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Svo í dag fer dágóður tími hjá mér í hverri viku í sjálfboðastörf tengd mannúðarmálum, sem er mjög gaman og gefandi. Einnig er ég að ljúka við gerð heimildarmyndar um stofnfrumur ásamt Ásvaldi Kristjánssyni kvikmyndagerðarmanni sem er afar spennandi og skemmtilegt verkefni. Þú varst viðloðandi pólitík fyrir allmörgum árum hjá Sjálfstæðisflokknum, geturðu hugsað þér að fara aftur í pólitíkina? Nei, ég hef aldrei verið í pólitík, nema að ég slysaðist inn í stjórn Heimdallar þegar ég var rúmlega tvítug en var fljót að hætta þar vegna starfa minna sem blaðamaður. Flokkapólitík og hagsmunagæsla í tengslum við hana fer í raun mjög gegn mínu eðli. Ég hugsa eins og fréttamaður, vil alltaf skoða allar hliðar, þess vegna valdi ég líka fréttamennsku sem ævistarf. Það fer oft í taugarnar á eiginmanninum sem er mjög pólitískur og mikill sjálfstæðismaður hvað ég læt illa að stjórn. Samt hefur sá stimpill loðað við mig alla tíð að ég sé eldheitur sjálfstæðis­maður, líklega af því að margir vina okkar eru þekktir sjálfstæðismenn. Ég á mig sjálf. Nú ert þú ein þeirra kvenna sem nefnd hefur verið á nafn í forsetaumræðunni – að öllu gamni slepptu, er það eitthvað sem þú getur raunverulega hugsað þér að skoða? Já, það get ég. Það eru hins vegar ýmis ljón á veginum. Fyrsta ljónið er núverandi forseti. Ætlar hann að gefa kost á sér í fimmta sinn eður ei. Hann stóð illa eftir hrunið, og tengsl hans við almenning höfðu beðið skaða, en svo hefur hann náð aftur sambandi við fólkið í landinu til dæmis með því að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samninginn. En að mínum dómi er þetta orðið ágætt eftir sextán ár í embætti. Það þarf að hleypa frískum vindum inn á Bessastaði. Fleiri ljón eru á veginum fyrir hugsanlega forsetaframbjóðendur. Kostnaður við slíkt framboð er óheyrilegur og fjármálin voru frambjóðendum árið 1996 þrautin þyngri. Síðast en ekki síst er afar óljóst um stöðu forseta Íslands í framtíðinni vegna boðaðra stjórnarskrárbreytinga. Hvað mig sjálfa snertir þá hef ég ekki hugmynd um hvort ég hefði eitthvað fylgi meðal kjósenda, en það er að sjálfsögðu lykilatriði. Ég gef því minni líkur en meiri að ég verði næsti húsráðandi á Bessastöðum, segir Elín og kímir. Hvaða áherslur leggur Elín Hirst forseti Íslands á? Ég vil færa forsetaembættið nær fólkinu í landinu þar sem forsetinn yrði fremstur á meðal jafningja sem ynni með þjóðinni að hinu góða hverju nafni sem það nefnist. Svo einfalt er það. Allt annað yrðu praktísk úrlausnarefni með þetta meginþema. Hverjar eru þínar fyrirmyndir og af hverju? Forfeður mínir sem þorðu að taka þá áhættu að flytja til Vesturheims með fjögur ung börn í leit að betri lífskjörum, sem þeim tókst. Þetta fólk sem ekkert átti var líka annálað fyrir góðmennsku, gjafmildi og hjálpsemi við þá sem þurftu á að halda. Hvar sérðu þig eftir 10 ár? Ætli við Margrét Stefanía verðum ekki að bauka eitthvað skemmtilegt saman með hinum barnabörnunum sem þá hafa bæst í hópinn. Eitthvað að lokum? Já, þú vilt að ég nefni einhverja speki og í því sambandi er ég mjög hrifin af því sem Albert Einstein sagði: að árangur væri 1% snilli og 99% vinna. Þetta finnst mér afar gott veganesti í lífinu.

Boladagurinn í dag - Íslendingar hrella stjörnur á Twitter

"Það sem er búið að vera gerast síðustu tíu klukkutímana er langt frá mínum björtustu vonum og maður er gjörsamlega orðlaus,“ segir íþróttafréttamaðurinn Henry Birgir Gunnarsson, sem stendur fyrir Boladeginum svokallaða á samskiptasíðunni Twitter í dag.

Ellen gefur Justin Bieber bíl

Justin Bieber sem fagnaði 18 ára afmæli sínu í vikunni varð heldur betur hissa er hann heimsótti spjallþáttardrottninguna Ellen í gær.

Eftirpartý - Svartur á leik

Meðfylgjandi myndir tók Sigurjón Ragnar ljósmyndari í frumsýningarteiti á veitingahúsinu Kex sem haldið var eftir frumsýningu myndarinnar Svartur á leik...

Hlauparáð fyrir byrjendur

Elísabet Margeirsdóttir starfar sjálfstætt við það að ráðleggja einstaklingum um mataræði og heilsusamlegan lífstíl en ásamt því flytur hún landanum veðurfréttir á Stöð 2 nokkrum sinnum í viku...

Björk fær fullt hús

Björk Guðmundsdóttir fær fullt hús stiga, eða fimm stjörnur, fyrir Biophilia-tónleika sína í New York í nýjasta hefti breska tónlistartímaritsins Q.

Bístró-veitingastaðir njóta vaxandi vinsælda

Bístró veitingastaðir sem bjóða upp á fjölbreyttan en ódýran matseðil virðast njóta aukinna vinsælda hér á landi. Að sögn veitingamanna má rekja þess þróun til breytts tíðaranda.

Connery besti Bond allra tíma

Sean Connery hefur verið kjörinn besti James Bond allra tíma í nýrri könnun á vegum tímaritsins Vanity Fair. Skoski leikarinn hlaut 56% atkvæða fyrir frammistöðu sína sem njósnari hennar hátignar, 007, í myndum á borð við Dr. No, Goldfinger og Diamonds Are Forever. Connery er fyrsti Bondinn sem leit dagsins ljós og lék hann njósnarann alls í sjö myndum.

Kinnaman gæti leikið Robocop

Sænski leikarinn Joel Kinnaman hefur verið orðaður við aðalhlutverkið í endurgerð kvikmyndarinnar RoboCop sem kom fyrst út árið 1987. Kinnaman vakti fyrst athygli fyrir leik sinn í myndinni Snabba Cash þar sem hann fór með hlutverk Daniels Espinosa.

Glee höfundur framleiðir söngvamynd

Cameron Diaz, Gwyneth Paltrow, Reese Witherspoon og Ryan Murphy, höfundur sjónvarpsþáttanna Glee, eru sögð vera að undirbúa framleiðslu nýrrar söngvamyndar sem mun skarta leikkonunum þremur í aðalhlutverkum.

Skrifar bók um Cobain

Eric Erlandson, fyrrum gítarleikari Hole, hefur skrifað bók um sjálfsvíg vinar síns Kurts Cobain úr Nirvana. Bókin heitir Letter To Kurt og kemur út 8. apríl.

Á stefnumót með óþekktum manni

Söngkonan Katy Perry sást á dögunum á stefnumóti með óþekktum manni í Los Angeles en samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs daðraði Perry ófeimin við kappann fyrir framan ljósmyndara.

Leirlistamenn hanna skeggbolla

Fjórir listamenn hafa hannað hver sína útgáfu af skemmtilegum skeggbollum til styrktar Mottumars. Bollarnir eru að erlendri fyrirmynd og eru ætlaðir undir hvers kyns kaffidrykki en um leið að minna karlmenn á að fylgjast með sjálfum sér.

Laug til um aldur sinn

Fyrirsætan Agyness Deyn viðurkennir að hún hafi logið um aldur sinn og að hún sé í raun 29 ára gömul í stað þess að vera 24 eins og flestir héldu. Þetta kemur fram í viðtali ofurfyrirsætunnar við blaðið Guardian. "Þegar ég byrjaði í fyrirsætubransanum var ég 18 ára og í raun of gömul til að geta orðið nýtt andlit þá. Þess vegna ákváðum við umboðsmaður minn að yngja mig um nokkur ár á pappírunum,“ segir Deyn sem eldist því um fimm ár á skömmum tíma.

Mætti með nýju kærustuna

Leikarinn Ashton Kutcher mætti með nýja dömu í eftirpartý eftir Óskarsverðlaunin um síðustu helgi. Frá þessu greinir US Magazine en daman er sú sama og sást ítrekað með kappanum í fríi um Evrópu á dögunum, Lorene Scafaria.

Nicole Kidman og fjölskyldan

Leikkonan Nicole Kidman, 44 ára, og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Keith Urban, leiddu þriggja ára dóttur þeirra Sunday á flugvellinum í Sydney í Ástralíu...

Með hnút í maganum

Kvikmyndin Svartur á leik verður frumsýnd annað kvöld. Þetta er fyrsta kvikmynd leikstjórans Óskars Þórs Axelssonar og hefur verið mörg ár í vinnslu. Myndin er byggð á samnefndri metsölubók höfundarins Stefáns Mána og segir frá Stebba psycho sem flækist óvart inn í dimma undirheima Reykjavíkur í lok síðustu aldar. Með aðalhlutverk fara Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Damon Younger og María Birta Bjarnadóttir.

Vöxuð Celine Dion

Vaxstytta af kanadísku söngkonunni Celine Dion var afhjúpuð í vikunni á Madame Tussauds safninu í Las Vegas. Eins og sjá má er vaxmyndin nákvæm eftirlíking af söngkonunni. Þá má einnig sjá Celine sjálfa á sviði með Andrea Bocelli.

Lopez ber með boxhanska

Jennifer Lopez, 42 ára, prýðir forsíðu V tímaritsins fáklædd með boxhanska. Eins og sjá má eru myndirnar af henni ólíkar því sem fólk er vant að sjá. Fyrrum franski Vogue ritstjórinn Carine Roitfeld og Mario Testino stíleseruðu myndasyrpuna sem sýnir dívuna í glænýju ljósi.

Jessica Alba í röndóttu

Leikkona Jessica Alba, 30 ára, stillti sér upp á rauða dreglinum klædd í blússu og röndótta peysu. "Þegar þú ert örugg með þig getur þú gert all - meira að segja þegar þú hefur ekki hugmynd um hvað þú ætlar þér að gera," lét Jessica hafa eftir sér. Þá má einnig sjá hana ásamt dóttur sinni, Honor, í Beverly Hills.

Charlies-stúlkur djarfar í væntanlegu myndbandi

"Söguþráðurinn á eftir að koma áhorfendum á óvart,“ segir Steinunn Camilla sem ásamt þeim Klöru og Ölmu skipa hljómsveitina The Charlies. Stúlkurnar tóku upp fyrsta myndband sitt í Los Angeles á dögunum.

Okkar karakter mun fyndnari

"Hann var að öllum líkindum að stela þessu af okkur,“ segir Dóri DNA. Einræðisherra hans í væntanlegu gamanþáttunum Mið-Íslandi er ótrúlega líkur einræðisherranum sem Sacha Baron Cohen túlkar í sinni nýjustu gamanmynd , The Dictator, og gerði mikinn óskunda fyrir Óskarsathöfnina á sunnudaginn.

Garner og Affleck eignuðust son

Leikarahjónin Jennifer Garner og Ben Affleck eignuðust sitt þriðja barn í vikunni en fyrir eiga þau þriggja og sex ára dætur. Í þetta sinn eignuðust hjónin dreng og heilsast móður og barni vel að söng fjölmiðla vestanhafs. Fæðingin fór fram á spítala í Santa Monica. Affleck og Garner kynntust árið 2003 við tökur á myndinni Daredevil og gengu upp að altarinu árið 2005.

Sjá næstu 50 fréttir