Fleiri fréttir

Leikur á móti Joely Richardson í London

"Þetta er ægilegt drama," segir leikarinn Guðmundur Ingi Þorvaldsson. Guðmundur Ingi fer með hlutverk ókunnuga mannsins í leikritinu The Lady from the Sea eftir Henrik Ibsen sem var frumsýnt í Rose-leikhúsinu í London í vikunni. Á meðal mótleikara Guðmundar eru Malcolm Storry og Joely Richardson, en hún er þekkt fyrir leik sinn í þáttunum Nip/Tuck og The Tudors. "Hún er æðisleg," segir Guðmundur. "Fólk er alltaf að bíða eftir að ég segi sögur af henni sem einhverri prímadonnu, en hún er bara frábær. Yndisleg manneskja."

Osbourne mæðgur í verslunarleiðangri

Sharon Osbourne og dóttir hennar, Kelly Osbourne, voru saman í verslunarleiðangri í Beverly Hills í gærdag. Eins og sjá má í myndasafni eru mæðgurnar óhræddar við að lita á sér hárið en Sharon er með rautt hár og Kelly með fjólugrátt.

Í hljóðver í næstu viku

Rokkararnir í The Vaccines með bassaleikarann Árna Hjörvar innanborðs ætla í hljóðver í næstu viku til að taka upp sína aðra plötu. Upptökurnar fara fram í Belgíu og upptökustjóri verður Ethan Johns sem hefur unnið með Kings of Leon og Ryan Adams.

Vill fá tónlistarfólk til að hlæja

Vilhelm Anton Jónsson, betur þekktur sem Villi naglbítur, verður kynnir við afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna sem fara fram í Hörpunni í kvöld. Hann vonast til þess að geta fengið fólk til að hlæja en leggur mesta áherslu á að vera ekki of lengi uppi á sviði í hvert sinn.

Leikur ástkonu Ólafs Darra

"Ég sagði við stelpurnar í búðinni að þær yrðu að bjarga sér án mín fram í apríl,“ segir María Birta Bjarnadóttir, leikkona og eigandi verslunarinnar Manía, en hún hefur tekið að sér að leika annað aðalhlutverkanna í íslensku myndinni XL.

Dugleg að setja myndir af sér á Twitter

Pamela Anderson, 43 ára, var mynduð á LAX flugvellinum í gærdag. Hún hefur verið dugleg að setja myndir af sjálfri sér á Twitter síðuna sína. "Ég hef aldrei haldið því fram að ég sé leikkona. Ég hef búið til vörumerki sem er ég sjálf,“ sagði Pamela. Twitter-myndirnar má skoða í meðfylgjandi myndasafni.

Stillt upp í Airwaves 2012

Tilkynnt hefur verið um fyrstu tíu flytjendurna sem koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem verður haldin í haust. Í erlendu deildinni eru það breska gítarsveitin Django Django, 80's tyggjópoppsveitin Friends frá Brooklyn, breska þjóðlagaskotna indísveitin Daughter og dimma elektrótvíeykið Exitmusic frá Brooklyn.

Kolfinna valin best í London

Fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir bar sigur úr býtum í netkosningu vefsíðunnar Style.com um val á best klæddu fyrirsætu tískuvikunnar í London. Valið stóð á milli tíu fyrirsæta en Kolfinna hlaut alls 42 prósent atkvæða og hreppti þar með fyrsta sætið í netkosningunum.

Giftu sig í leyni

Sá orðrómur fór af stað á Óskarnum að leikkonan Natalie Portman og Benjamin Millepied væru búin að pússa sig saman...

Rauðar varir eru málið

Rauður varalitur hefur verið afar áberandi hjá stjörnunum á rauða dreglinum undanfarið.

Mila Kunis er með´etta

Leikkonan Mila Kunis, 28 ára, yfirgaf veitinghúsið Caviar Kaspia í París í Frakklandi í gærdag...

Clooney keyrði Bennett

„Ég var bílstjórinn hans þegar ég var 19 ára,“ sagði George Clooney við kærustu sína Stacy Keibler þegar hún kynnti hann fyrir Tony Bennett á Óskarsverðlaunahátíðinni síðastliðinn sunnudag.

Eignuðust dreng

Leikarahjónin Jennifer Garner og Ben Affleck eignuðust þriðja barnið sitt. Í þetta sinn var það drengur en fyrir eiga þau stúlkurnar Violet, 6 ára, og Seraphinu, 3 ára.

Sölvi Tryggva tók inn nauðgunarlyf

„Mér leið furðulega daginn eftir, með hroll í líkamanum og allur rosa skrítinn. Á vissan hátt var eins og ég væri þunnur,“ segir fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason sem tók inn töflu af samheitalyfi Rohypnol á dögunum í rannsóknarskyni fyrir þátt sinn Málið, en næsti þáttur fjallar um nauðgunarlyf.

Leðurklædd Miranda Kerr með krúttið

Ástralska ofurfyrirsætan Miranda, 28 ára, og sonur hennar Flynn, 13 mánaða voru mynduð á ferðalagi í gær. Miranda, sem er eiginkona breska leikarans Orlando Bloom, lét hafa eftirfarandi eftir sér: Rós getur aldrei orðið sólblóm og sólblóm getur aldrei orðið rós. Ég vil hvetja allar konur til að vera ánægðar með það sem þær hafa. Þær ættur að aðhylla eigin kosti og þá staðreynd að þær eru einstakar.

Óþekkjanleg Katy Perry

Söngkonan Katy Perry, 27 ára, er óþekkjanleg á forsíðu tímaritsins Interview eins og sjá má á meðfylgjandi myndum...

Uma Thurman ólétt á fimmtugsaldri

Hin stórglæsilega Uma Thurman sem gerði garðinn frægan í myndinni Kill Bill, á von á barni með unnusta sínum til fimm ára, Arpad Busson.

Niðurlútur Johnny Depp

Leikarinn Johnny Depp, 48 ára, yfirgaf íbúð í New York í fylgd lífvarða í gærdag. Eins og sjá má á myndunum var leikarinn með hatt á höfði og sólgleraugu á nefinu. „Mitt mottó er að njóta ferðarinnar á meðan á henni stendur,“ lét Johnny hafa eftir sér.

Eva María stendur fyrir hlaupi til styrktar einstökum börnum

"Ég fékk martröð í nótt og dreymdi að ég hafði óvart farið á djamm og misst af hlaupinu,“ segir Eva María Jónsdóttir sem stendur fyrir hlaupi til styrktar einstökum börnum á morgun miðvikudag sem er alþjóðlegur dagur barna með sjaldgæfa sjúkdóma....

Angelina, tengdó og tvíburarnir

Angelina Jolie, 36 ára, tengdamóðir hennar og tvíburarnir Knox og Vivienne,3 ára nutu samverunnar í Beverly Hills í Kaliforníu í gærdag...

Aka um Pólland á gömlum Polo

"Þetta verður frekar mikil törn,“ segir Snorri Helgason sem er nýbyrjaður á tveggja vikna tónleikaferðalagi um Pólland. Þar spilar hann á hverju kvöldi fyrir heimamenn.

Ívar Guðmunds í gifsi

Ég brotnaði ekki heldur sleit sinarfestingu í vinstri tvíhöfða í fjölmiðlamótinu í nóvember, svarar Ívar Guðmundsson útvarpsmaður Bylgjunnar sem er í gifsi eins og sjá má á meðfylgjandi mynd...

Auglýsingafólkið fagnaði í Hörpu

Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, voru afhent í Hörpu á dögunum. Auglýsingastofurnar Jónsson og Le"macks, Ennemm og Fíton hlutu flest verðlaun eða þrjá lúðra hver. Næstar komu auglýsingastofurnar Hvíta húsið, Íslenska og E&Co með tvenn verðlaun hver. H:N markaðssamkipti og Saga Events hlutu einn lúður hvor. Mikið var um dýrðir og ljósmyndari Fréttablaðsins leit við.

Dísæt Cameron Diaz í kjól eftir Victoriu

Leikkonan Cameron Diaz, 39 ára, var klædd í appelsínugulan kjól eftir Victoriu Beckham í Vanity Fair teitinu sem haldið var eftir Óskarinn í gærkvöldi...

Í anda bistróstaða frá New York

„Þetta verður mjög skemmtilegur staður,“ segir Sigurgísli Bjarnason. Boðið verður upp á snafsa, smurbrauð og klassískan bistrómat á nýjum veitingastað, Snaps, sem opnar á Óðinstorgi á næstunni þar sem áður var Brauðbær. „Staðurinn er búinn að taka rosalegum breytingum,“ segir Sigurgísli, sem rekur einnig veitingastaðinn Nings. Meðeigandi hans að Snaps er kokkurinn Stefán Melsteð sem starfaði áður á Hotel d"Anglaterre í Kaupmannahöfn.

Óskarinn - Eftirpartýið

Gleðin hélt svo sannarlega áfram að Óskarnum loknum er stjörnurnar mættu í Vanity Fair eftirpartýið í nótt.

Prometheus með betri þrívídd en Avatar

Benedict Wong, sem leikur Ravel í spennumyndinni Prometheus, er mjög spenntur fyrir útkomunni. "Ef þú varst hrifinn af þrívíddinni í Avatar þá verðurðu enn hrifnari af þrívíddinni í þessari mynd. Hún er í sérflokki,“ sagði Wong. "Þeir notuðu RED-myndavélar og tæknimennirnir voru mjög spenntir fyrir þeim.“

Átti tvo vini í skóla

Hin 19 ára gamla söng- og leikkona Selena Gomez virðist svo sannarlega hafa heiminn að fótum sér. Ekki nóg með að hún sé falleg, klár, hæfileikarík og að því er virðist, fullkomin, heldur er hún líka kærastan hans Justin Bieber. Hún segist þó aldrei hafa verið vinsæl í skóla og ekki hafa haft mikið sjálfstraust.

Frægar konur etja kappi á knattspyrnuvellinum

"Við lítum á þetta sem gleðihátíð sem við viljum gera að árlegum viðburði til styrktar góðum málefnum,“ segir Rakel Garðarsdóttir framkvæmdastjóri Vesturports og skipuleggjandi góðgerðarknattspyrnuleiks sem fram fer í mars.

Tónleikar Sigur Rósar lokahnykkurinn í Póllandi

Jónsi og félagar í Sigur Rós spila tvívegis á pólsku tónlistarhátíðinni Sacrum Profanum dagana 16. og 17. september. Kronos-strengjakvartettinn frá Bandaríkjunum stígur á einnig á aðalsviðið með Sigur Rós og verða tónleikarnir lokahnykkurinn á tíu ára afmæli hátíðarinnar.

Jennifer Lopez stórglæsileg

Leikkonan Jennifer Lopez, 42 ára, var klædd í vinrauðan fleginn Zuhair Murad síðkjól í eftirpartý Vanity Fair tímaritsins sem haldið var eftir Óskarinn...

Missti ösku Kim Jong-Il yfir Seacrest á rauða dreglinum

Leikarinn Sacha Baron Cohen hellti ösku Kim Jong-Il yfir einn frægasta kynni veraldar, Ryan Seacrest, þegar hann ræddi við hann á rauða dreglinum. Cohen mætti í gervi einræðisherrans, en kvikmynd um einræðisherrann verður frumsýnd von bráðar. Einræðisherrann var með krús fulla af ösku sem hann sagði vera ösku Kim Jong-Il á rauða dreglinum, og sagði að það hefði verið síðasta ósk hins nýlátna einræðisherra Norður-Kóreu að fá að ganga rauða dregilinn - en Kim Jong-Il var mikill kvikmyndaáhugamaður.

Jolie og Pitt slógu í gegn á rauða dreglinum

Það ætlaði allt um koll að keyra þegar stjörnuparið Angelina Jolie og Brad Pitt gekk inn rauða dregillinn á Óskarsverðlaunahátíðinni í Kodak leikhúsinu í Kaliforníu fyrr í kvöld.

Þarna var sko fjör

Brynjur og Útlagar, félög leikara sem lært hafa erlendis, héldu síðbúna Þorragleði um helgina í leikhúsinu Norðurpólnum á Seltjarnarnesi...

Sjá næstu 50 fréttir