Fleiri fréttir

Brúðarkjóll valinn fyrir stóra daginn

Raunveruleikasjónvarpsstjarnan Kim Kardashian, 30 ára, sem ætlar að giftast körfuboltastjörnunni Kris Humphries, fékk aðstoð fatahönnuðarins Veru Wang við val á brúðarkjólnum í gær. Kourtney systir Kim var einnig með í för. Eins og myndirnar sýna var leitin að rétta kjólnum tekin upp af starfsmönnum sjónvarspsstöðvarinnar E! sem sér til þess að heimurinn geti fylgst með öllu sem Kardashian fjölskyldan tekst á við. Chelsea Clinton, Ivanka Trump, Jennifer Lopez og Jennifer Aniston hafa allar gift sig í kjólum eftir Veru Wang. Haustlína Veru Wang 2011 .

Leikari kvæntist ólögráða stúlku

Leikarinn Doug Hutchison, sem þekktastur er fyrir leik sinn í kvikmyndinni The Green Mile og sjónvarpsþáttunum Lost og The X-Files, kvæntist á dögunum hinni sextán ára gömlu Courtney Alexis Stodden í Las Vegas. Hutchison er sjálfur fimmtíu og eins árs gamall og ári eldri en tengdamóðir hans.

Aniston með nýtt tattú

Ef meðfylgjandi myndir eru skoðaðar gaumgæfilega má greinilega sjá að leikkonan Jennifer Aniston, 42 ára, er komin með nýtt tattú á hægri fótlegg. Þar hefur nafn hundsins hennar, Norman, sem dó í síðasta mánuði, verið húðflúrað með tengiskrift sem virðingavottur af hennar hálfu við tímann sem þau áttu saman. Þá má einnig sjá Norman í myndaalbúmi og Justin Theroux, nýja kærastann hennar. Fyrrverandi eiginmaður hennar Brad Pitt hafði samband þegar hann frétti af fráfalli Norman.

Gátu ekki beðið lengur

Stjörnuparið Daniel Craig og Rachel Weisz giftu sig um helgina. Fréttirnir komu flestum á óvart enda hefur parið einungis verið saman í nokkra mánuði og ekki er ár liðið frá því að leikkonan skildi við leikstjórann Darren Aronofsky.

Cars 2 beint á toppinn

Teiknimyndin Cars 2 frá Pixar fór beint á toppinn yfir vinsælustu myndirnar vestanhafs um síðustu helgi. Þrátt fyrir það sögðu gagnrýnendur myndina þá verstu úr herbúðum Pixar frá upphafi. Myndin náði inn 68 milljónum dala í kassann á fyrstu þremur dögum sínum, eða tæpum átta milljörðum króna. Hún er tólfta myndin frá Pixar í röð sem fer á toppinn í Norður-Ameríku, síðan fyrsta myndin Toy Story kom út árið 1995. Í öðru sæti yfir vinsælustu myndirnar lenti Bad Teacher með Cameron Diaz í aðalhlutverki.

Fámennt en góðmennt í Galtalæk

„Við erum alls ekki ánægðir með þetta en svona gerist stundum," segir Alexander Kárason, einn aðstandenda tónlistar-og jaðarsportshátíðar sem fram fór í Galtalæk um helgina, en gestafjöldi hátíðarinnar var langt undir væntingum.

Prinsessan toppar sjálfa sig í kjólavali

Vihljálmur prins og prinsessan hans, Kate Middleton, mættu á Wimbledon-tennismótið í dag sem fram fer í London eins og sjá má á meðfylgjandi myndunum. Prinsessan var klædd í hvítan Moraiah kjól frá Temperley London á mótinu. Þá má sjá Kate ómótstæðilega í dökkbláum hnepptum kjól þegar hún heiðraði írska hermenn með Villa sínum á laugardaginn var.

Getur ekki hætt að monta sig af Aniston

Leikkonan Jennifer Aniston og kærasti hennar, leikarinn og handritshöfundurinn Justin Theroux, sáust saman opinberlega í fyrsta sinn á MTV kvikmyndaverðlaunum sem fram fóru í byrjun júní. Parið virðist afskaplega ástfangið og hyggjast ættleiða hund saman.

Ásdís Rán pollróleg þrátt fyrir Facebook-vesen

Það gerðist ekkert! Þetta virkar bara þannig að ef það er reportað nógu mikið út af myndunum mínum eða prófílnum þá er honum eytt á endanum ásamt fansíðunni sem er tengd við prófílinn minn, svarar Ásdís Rán fyrirsæta spurð hvað í ósköpunum kom fyrir Facebooksíðuna hennar en henni var eytt á Facebook um helgina. Ég var löngu buin að taka út allar myndir sem teljast yfir siðgæðisreglum FB en samt sem áður þá er hægt að reporta líka myndir sem fólki finnst of ögrandi og þegar þessi basic hópur 'á móti Ásdísi Rán' hefur ekkert betra að gera þá níðast þeir á Facebookinu mínu og reporta allt, segir Ásdís. Þetta er í annað skiptið sem ég missi öll tengslin min og auðvitað aðdáendur líka sem skiptu hátt í 10.000 svo þetta er alltaf frekar svekkjandi að fólk geti mögulega haft svona áhrif. En flestir vita hvar er hægt að ná í mig á email eða asdisran.com og ég er buin að stofna nýjan reikning á Facebook sem ég auðvitað held gangandi til að geta verið í sambandi við famelíu og fólk milli landa á sem auveldastan hátt," segir Ásdís Aðdáendasíða Ásdísar á Facebook

Nevermind í nýrri útgáfu

Viðhafnarútgáfa af Nevermind með Nirvana kemur út 19. september, 20 árum eftir að upphaflega platan kom út. Fjórir geisladiskar og einn mynddiskur fylgja með pakkanum. Þar verða áður óútgefin lög, B-hliðalög, tónleikaupptökur og fleira góðgæti.

Reynir við Ameríku

„Þetta er mjög spennandi. Næsta rökræna skref hjá mér er að prófa Ameríku,“ segir auglýsingaleikstjórinn Þórhallur Sævarsson. Hann hefur samið við hið virta bandaríska framleiðslufyrirtæki Madheart og ætlar að starfa fyrir það á næstunni. Þórhallur hefur á sjö ára ferli sínum unnið mestmegnis í Evrópu og gert auglýsingar fyrir Skoda, Philips, McDonald"s, Vodafone, Coca-Cola og fleiri þekkt fyrirtæki.

Sigurjón skrifar hryllingsmynd

„Ég ætla ekki að gefa neitt nákvæmt upp en get þó sagt að þetta er lítil hrollvekja. Ég er að þróa hana og hún er á mjög viðkvæmu en spennandi stigi um þessar mundir,“ segir Sigurjón Kjartansson, handritshöfundur. Hann fékk nýverið handritastyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands fyrir kvikmyndina Stúlkan og djöfullinn.

Madonna kann að velja þá maður

Madonna, 52 ára, og franski hip-hop dansarinn Brahim Zaibat, 24 ára, áttu saman rómantíska helgi í París þrátt fyrir að vera nýhætt saman en þau enduðu níu mánaða ástarsamband í maí síðastliðnum. Madonna deyr ekki ráðalaus, þrátt fyrir 28 ára aldursmun, en hún virðist hafa náð að lokka unglambið með sér til Parísar með góðum árangri. Á meðfylgjandi myndum má meðal annars sjá þau yfirgefa Ritz hótelið þar í borg.

Góð stemning hjá Kraumi

Tónlistasjóðurinn Kraumur blés til mikillar veislu á gistiheimilinu Kex við Skúlagötu á fimmtudaginn. Kippi Kanínus og Dikta léku fyrir gesti og gangandi. Starfsemi Kraums var nýverið tryggð til ársins 2013 en á þeim þremur árum sem hann hefur verið starfræktur hefur sjóðurinn stutt við 90 verkefni, bæði listamanna og hljómsveita. Nýr framkvæmdarstjóri hefur jafnframt tekið til starfa en eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu þá hefur Jóhann Ágúst Jóhannsson verið ráðinn til að gegna því starfi í stað Eldars Ástþórssonar. Eldar mun þó áfram vera viðloðandi sjóðinn því hann hefur tekið sæti í stjórn hans.-fgg

Díva í gær - ósköp venjuleg mamma í dag

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá leik- og söngkonuna Jennifer Lopez, 41 árs, með tvíburana sína Max og Emme, 3 ára, síðasta laugardag í Disneylandi í Kaliforníu. Þá má sjá myndir af dívunni þar sem hún er uppstríluð. Takið eftir hvað það fer Jennifer vel að leika mömmuhlutverkið.

Finnst þér rómantískt að selja brúðkaupið?

Meðfylgjandi má sjá myndir af Kim Kardashian sem var gestadómari ásamt Michael Kors og Ninu Garcia í sjónvarpsþætti þýsku fyrirsætunnar Heidi Klum, Project Runway. Kim undirbýr nú stóra daginn þegar hún játast unnusta sínum körfuboltakappanum Kris Humphries í sumar. Nú stendur Kim í stórræðum við framleiðslufyrirtæki Ryan Seacrest um að sjónvarpa brúðkaupi þeirra í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni E! fyrir væna fúlgu fjár - nema hvað!

Framsóknarkonur á iði

"Ég er áhlaupamanneskja og byrja allt af krafti. Ég er búin að ná þriggja mánaða markmiðinu mínu sem var að missa sjö kíló,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins. Þingkonur flokksins, þær Vigdís, Siv Friðleifsdóttir og Eygló Harðardóttir stunda allar líkamsrækt af kappi um þessar mundir.

Elska hvort annað

Fyrrum kærustuparið Cameron Diaz og Justin Timberlake elska ennþá hvort annað ef marka má viðtal við Timberlake í norska blaðinu Verdens Gang. Diaz og Timberlake leika andspænis hvort öðru í myndinni Bad Teacher en þau voru kærustupar á árunum 2003 -2006.

Nýja sjarmatröllið á skjánum

Reynir Örn Þrastarson byrjaði sem Lottó-þulur í janúar á þessu ári og þykir hafa staðið sig vel í því hlutverki. Hann er fyrirsæta, sölumaður og menntaður matreiðslumaður en slíkt þykir nokkuð óvenjulegur bakgrunnur fyrir fyrirsætustarfið.

Íslenskur hlaupastíll vekur athygli í Englandi

Íslenska fyrirtækið Smart Motion Running býður upp á kennslu í íslenskum hlaupastíl á Englandi. Hlaupastíllinn hefur vakið athygli erlendis og breskir hlaupaþjálfarar hafa sótt námskeið.

Bond genginn út

Kvikmyndaleikarinn Daniel Craig, betur þekktur sem James Bond, og leikkonan Rachel Weisz giftu sig 22. júní síðastliðinn. Athöfnin var persónuleg því einungis voru viðstaddir dóttir Daniels, Ella, 18 ára, sonur Rachel, Henry, 5 ára, og tveir fjölskyldumeðlimir. Í myndasafni má sjá Daniel ásamt fyrrverandi unnustu sinni, Satsuki Mitchell, en þau hættu saman í fyrra eftir 5 ára samband. Þá má einnig sjá Rachel ásamt þáverandi kærasta, Darren Aronofsky, en þau slitu líka 9 ára sambandi í fyrra. Daniel og Rachel leika saman í nýrri kvikmyndinni Dream House sem var mynduð í fyrra. Prinsessuleikur Lífsins. Drögum út fimm heppna á morgun!

Á djamminu eftir sambandsslitin

Elisabetta Canalis, 32 ára, skemmti sér í faðmi vinkvenna sinna í Róm á Ítalíu í gærkvöldi eins og sjá má í myndasafni. Deginum áður var hún mynduð með hundana sína í Mílanó. Fjölmiðlafulltrúi Elísabettu lét hafa eftir sér að sambandsslitin við leikarann George Clooney, 50 ára, væru mjög erfið fyrir Elisabettu og nú ætlar hún að taka sér dágóðan tíma í að jafna sig þar til hún ræðir við fjölmiðla um tilfinningar sínar varðandi þetta mál.

Huga að heildinni

Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona og Silja Úlfarsdóttir einkaþjálfari opna afreksskóla

Frumlegur Grillmarkaður

Veitingastaðurinn Grillmarkaðurinn verður opnaður fyrir matargesti eftir helgi. Matreiðslumeistarinn Hrefna Rósa Sætran á og rekur staðinn og miðað við vinsældir Fiskmarkaðsins má búast við að nýji staðurinn muni einnig slá í gegn.

Fer með aðalhlutverkið í Axlar-Birni hjá Vesturporti

"Þetta verður rosalega skemmtilegt. Ég er búinn að vera að spá í þetta í smá tíma að það væri gaman að fara á leiksvið aftur. Ég hef verið að skoða bisnessplön alltof lengi,“ segir Helgi Björnsson.

Ný sirkussýning leitar til raunveruleikaþáttanna

„Það er svo mikið lýðræði innan hópsins að við eigum öll heiðurinn að hugmyndinni á bak við sýninguna,“ segir Katla Þórarinsdóttir, einn aðstandenda Sirkus Íslands sem frumsýna nýja fjölskyldusýningu í Tjarnarbíói þann 1.júlí.

Brúðkaupi aflýst

Mótorhjólasmiðurinn Jesse James og húðflúrarinn frægi Kat Von D eru hætt saman og þar af leiðandi er brúðkaupi þeirra aflýst.

Á tónlistahátíð með Streets

Íslenska hljómsveitin Retro Stefson kom fram á tónlistarhátíðinni INmusic sem fram fór dagana 21. og 22. júní í Zagreb í Krótaíu. Á hátíðinni spiluðu tæplega 30 hljómsveitir en þar má meðal annars nefna stóru böndin Arcade Fire, Jamiroquai, Cypress Hill, The Streets og Grinderman, hljómsveit Nick Cave.

Vandræðagemsi Lindsay Lohan

Það er skammt stórra högga á milli hjá leikkonunni Lindsay Lohan en aðeins mánuði eftir að hún var dæmd í stofufangelsi fyrir skartgripastuld hefur hún verið kærð á ný.

Tvífari Brad Pitt

Leikarinn Brad Pitt, 47 ára, er um þessar mundir upptekinn á Möltu við tökur á uppvakningar kvikmyndinni World War Z. Meðfylgjandi má sjá manninn sem sér um að leika áhættuatriðin hans Brad í myndinni og ef vel er skoðað er hann ekkert svo ósvipaður Brad. Þá má sjá Brad á rauða dreglinum með Angelinu Jolie og með Pax syni þeirra á tökustað. Burtséð frá því er Brad óheimilt að koma til Kína vegna hlutverks hans í myndinni Seven Years in Tibet.

Með rassinn í röntgen

Kim Kardashian hefur nú farið í röntgenmyndatöku með sinn heimsfræga rass, til þess að sýna heiminum að þar sé engar ígræðslur að finna. Það voru systur hennar, Kourtney og Khloe, sem mönuðu hana í myndatökunua en Kim hefur oft þurft að hlusta á sögur um að rass hennar sé ekki ekta.

Ætlar þú ekki örugglega á Þjóðhátíð í Eyjum?

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær á N1 við Hringbraut þegar forsalan á Þjóðhátíð í Eyjum hófst formlega. Þjónustustöðvar N1 um land allt selja miða á þjóðhátíð í ár og af því tilefni var fagnað á N1 þar sem Friðrik Dór og Blaz Roca tóku lagið fyriir nærstadda. Þeir fóru á kostum eins og vanalega.

Helgi Björns er svo með´etta

Stappfullt var í Eldborg í Hörpu á 17. júní á tónleikum Helga Björns og gesta. Uppselt var á tónleikana viku eftir að miðasala hófst enda eftirvæntingin mikil að fá að heyra þessa tónlist þar sem ólíku meistararnir leiddu saman hesta sína. Selja varð í sæti bak við sviðið og hefur sætanýting salarins aldrei verið fullnýtt þar fyrr. Þegar fjölmennast var á sviðinu voru áttatíu manns að flytja tónlist: karlakór, strengjasveit, rokkhljómsveit, og söngstjörnur. Svo rafmögnuð varð stemningin að þegar gestgjafinn Helgi Björns var að fara að syngja lagið Brennið þið vitar, ....varð brunakerfinu nóg boðið og hóf einnig upp raust sína. Stærsti kór landsins söng sig svo inn í bjarta sumarnóttina, þegar samtals 1623 gestir tónleikanna stóðu upp og sungu saman þjóðsönginn. Sjá myndir frá tónleikunum í meðfylgjandi myndasafni.

Finnbogi heillar Þjóðverjana

„Það hafa einhverjar dyr opnast þarna í Þýskalandi,“ segir leikarinn Finnbogi Þorkell Jónsson, en hann fór með hlutverk í þýskri heimildarmynd um vísindamanninn Alfred Wegener. Myndin verður sýnd í þýska ríkissjónvarpinu von bráðar en leikarinn Stefán Hallur Stefánsson fer einnig með hlutverk í myndinni.

Skjálfandi Galliano

Réttarhöldin yfir tískuhönnuðinum John Galliano eru hafin í París. Hann var ákærður vegna niðrandi ummæla í garð gyðinga á opinberum vettvangi. Svar hans við ákærunni er einfalt, hann man hreinlega ekkert eftir atvikinu.

Íslenskur tökumaður í grænlenskri hryllingsmynd

"Þetta var þvílíkt ævintýri. Það kom mér á óvart hve margir Grænlendingar eru virkilega hæfileikaríkir án þess að hafa "professional“ reynslu,“ segir Freyr Líndal Sævarsson.

Viltu vinna frítt prinsessu dagkrem?

Kvittaðu á Facebooksíðu Lífsins og deildu síðunni ef þú vilt vinna litað dagkrem frá Bobbi Brown eins og Kate Middleton hertogynjan af Cambridge, sem skoða má í myndasafni, notar. Fimm vinningshafar sem kvitta/deila fá litað dagkrem frá Bobbi Brown sem gefur húðinni létta og fullkomna þekju en leyfa húðinni jafnframt að skína í gegn eins og hjá prinsessunni. Þá verður húðliturinn jafnari. Þetta eru gel-krem sem innihalda öflug andoxunarefni sem verja húðina gegn utanaðkomandi áreiti og við geislum sólar með SPF 15. Kremin koma í 8 litum hvort sem er með eða án olíu. Starfsfólk Bobbi Brown í Hagkaup Smáralind mun aðstoða vinningshafana sem verða dregnir út mánudaginn 27. júní, að velja rétt dagkrem.

Mel Gibson byrjaður með strippara (hvað næst?)

Ástralski vandræðagemsinn, leikarinn Mel Gibson, sem hefur hefur verið stanslaust í fréttum vegna heimilisofbeldis, drykkjuskapar og and-gyðinlegra ummæla svo fátt eitt sé nefnt er byrjaður með 25 ára gömlum grískum strippara, Stellu Mouzi. Sjá má Stellu við störf í myndasafni og sjálfan Mel ásamt vinkonu sinni, leikkonunni Jodie Foster, þar sem þau kynna kvikmyndina The Beaver. Mel fer með aðalhlutverk í myndinni og Jodie bæði leikstýrir og leikur aðalhlutverkið.

Draumur rætist með smelli

"Við erum bara ósköp venjulegar stelpur sem höfum brennandi áhuga á tónlist,“ segir Ragnhildur Jónasdóttir, en hún og vinkona hennar, Margrét Rán, gáfu nýverið út sumarsmellinn "Það er komið sumar“.

Taka tvö hjá Caribou

Kanadíska hjómsveitin Caribou ætlar að gera aðra tilraun til að koma hingað til lands í næstu viku. Tónleikar með sveitinni eru fyrirhugaðir á Nasa 28. júní.

Aniston fær stjörnu

Leikkonan Jennifer Aniston fær stjörnu á frægðarstéttina í Hollywood á komandi ári. Aniston, sem hóf ferilinn sem Rachel í Friends, hefur gengið vel að landa hlutverkum í rómantískum gamanmyndum frá því að Friends-ævintýrinu lauk og þykir kominn tími til að gefa henni stjörnu í stéttina frægu.

Aftur í samskiptum

Rihanna og fyrrum kærasti hennar, söngvarinn Chris Brown, endurnýjuðu vinskap sinn á samskiptasíðunni Twitter fyrir stuttu. Nú halda aðdáendur söngkonunnar að þau hafi tekið aftur saman, en Rihanna sleit sambandi þeirra í byrjun árs 2009 eftir að Brown lagði hendur á hana.

Semja handrit að hrollvekju

Leikstjórinn Gaukur Úlfarsson og rithöfundurinn Óttar M. Norðfjörð eru að semja kvikmyndahandrit að hrollvekju sem Gaukur ætlar að leikstýra.

Sjá næstu 50 fréttir