Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Klaufaleg lygi og hamingja Auk vestrans True Grit verða þrjár nýjar myndir frumsýndar í bíó á morgun. Just Go with It er gamanmynd með Adam Sandler og Jennifer Aniston í aðalhlutverkum. Sandler leikur lýtalækni sem fellur fyrir mun yngri og sérlega glæsilegri konu. Hann fær aðstoðarkonu sína (Aniston) til að þykjast vera fyrrverandi kona hans til að breiða yfir klaufalega lygi. Lygin um eiginkonuna verður að lygi um að þau eigi tvö börn saman og fljótlega fer allt úr böndunum. 10.2.2011 09:00
600 milljónir fyrir sigurinn Sigurvegarinn í bandarísku hæfileikaþáttunum X Factor fær fimm milljónir dollara í sinn hlut, eða tæpar 600 milljónir króna, á fimm ára tímabili. Framleiðandinn Fox heldur því fram að þetta sé hæsta verðlaunafé í gervallri sjónvarpssögunni. 10.2.2011 07:00
Langafi Elvisar skilur ekkert í nafngiftinni „Íslendingum er að fjölga og nafngiftum fjölgar líka,“ segir Ólafur Daði Helgason, faðir Theodórs Elvisar sem fæddist í desember á síðasta ári. Mannanafnanefnd samþykkti nýlega seinna nafn Theodórs eftir talsvert mas og þras að sögn föðurins. 10.2.2011 07:00
Samdi lag fyrir 100 milljónir „Þetta er í rauninni stærra en að spila á Wembley, þannig séð,“ segir tónlistarmaðurinn Birgir Hilmarsson. Lag hans hljómaði í nýrri auglýsingu farsímafyrirtækisins Motorola sem var sýnd í hálfleik Super Bowl fótboltaleiksins í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Talið er að um 105 milljónir áhorfenda hafi séð auglýsinguna. 10.2.2011 07:00
Nýtt tónlistarmyndband Steed Lord „Við vorum heppin að fá vini til að hjálpa til með förðun, hár og þess háttar. Þetta myndband er algjörlega gert af Steed Lord frá a-ö og við erum mjög stolt af því en um leið einnig alveg gríðalega þakklát þeim sem aðstoðuðu okkur," sagði Svala Björgvinsdóttir. 9.2.2011 14:49
Óútreiknanlegt úrslitakvöld „Það er frábært að fá hann þarna inn. Hann þekkir þetta inn og út og er nörd nördanna,“ segir Guðmundur Gunnarsson, sem verður kynnir í úrslitum Eurovision á laugardagskvöld ásamt Páli Óskari, eins og Fréttablaðið greindi frá í gær. Ragnhildur Steinunn, sem hefur staðið við hlið Guðmundar í undankeppninni, verður erlendis og því ekki með að þessu sinni. 9.2.2011 12:00
París farin að lyfta Partídaman París Hilton er farin að taka hrikalega á því í ræktinni og hefur auk þess tekið mataræðið í gegn eftir hvatningu frá kærastanum, Cy Waits. París, sem er 29 ára, neytir 3.500 kaloría á dag til að eiga næga orku fyrir öll átökin. „París hefur alltaf verið í megrun til að halda vextinum sínum. En síðan hún kynntist Cy er hún heltekin af líkamsrækt,“ segir vinur Parísar. 9.2.2011 11:00
Skipað að sjá eigin myndir Sálfræðingur leikarans Jesse Eisenberg hefur skipað honum að horfa aftur á sínar eigin kvikmyndir því hann þurfi að bera virðingu fyrir starfi sínu. 9.2.2011 10:00
Fjölskyldan með Sin Fang í nýju myndbandi Sin Fang rennir sér um á hjólabretti með heklað skegg í sínu nýjasta tónlistarmyndbandi. Fjölskylda hans hefur veitt honum dygga aðstoð undanfarið. 9.2.2011 07:00
Fann gamla kærastann Breska leikkonan Helen Mirren, sem er gift leikstjóranum Taylor Hackford, var með Frakkland á heilanum þegar hún var yngri. 9.2.2011 07:00
Íslensk hljómsveit vekur athygli í Austurríki Önnur plata íslensku hljómsveitarinnar Groundfloor, …This Is What"s Left of It, var tekin upp í borginni Salzburg í Austurríki. Þar hefur sveitin vakið athygli að undanförnu á sama tíma og hún er nánast óþekkt hér heima. 9.2.2011 05:00
Allt farið til fjandans í Verzló Verzlunarskóli Íslands setur upp söngleikinn Drauminn í ár en hann er byggður á leikriti Shakespeare um Draum á Jónsmessunótt. Tónlistarþema í söngleiknum er 90's tónlist. Leikstjóri og höfundur er Orri Huginn Ágústsson og Stella Rósenkranz er danshöfundur sýningarinnar. 8.2.2011 19:58
Gaurinn kann að kveikja í kvenfólki Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá bandaríska heilarann Victor McWind, sem hefur 25 ára reynslu í heilun, en hann heldur heilunarnámskeið fyrir Íslendinga í Jógastúdío hjá Ágústu og Drífu sem hefst í lok mars. Að námskeiðinu loknu fá nemendur réttindi til að starfa sem heilarar. Kennt verður um helgar, frá föstudegi til sunnudags. Farið verður tvisvar út úr bænum og helgarnar þá lengdar. Þar fá nemendur tíma til að sökkva sér í efnið og vinna náið saman og kynnast hópnum vel. Halló gott kynlíf (viðtal við Ágústu og Drífu jógakennara) . 8.2.2011 18:38
Var bara ýkt sætum konum boðið? Meðfylgjandi myndir voru teknar í indversku dömuboði á föstudaginn þar sem stórglæsilegar konur komu saman og snæddu brot af því besta er í boði á matseðli nýja veitingastaðarins Gandhi í Pósthússtræti. Þá fengu allar dömurnar að bragða dísætar cupcakes frá Friðriku Hjördísi Geirsdóttur og að loknum fordrykknum tók við veisla fyrir augu og bragðlauka en á Gandhi er suður indversk matreiðsla í hávegum höfð. Tilgangur kvöldsins var að leiða saman skemmtilegar konur og færa þær inn í kryddaða indverska heima að sögn skipuleggjenda. Athafnakonan Yesmine Olsson þeytti skífum og fyrirsætur frá Elite sýndu Dim sokkabuxur frá París en sýningarstúlkurnar voru farðaðar með Make Up Store snyrtivörum. 8.2.2011 11:00
Soirées-kvöld í Þjóðleikhúskjallaranum Listamennirnir Snorri Ásmundsson, Ragnar Ísleifur Bragason, Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ingibjörg Magnadóttir, Ragnar Kjartansson, Saga Sigurðardóttir, Margrét Bjarnadóttir, og fleiri óvæntir gestir munu setja upp ný verk í Þjóðleikhúskjallaranum í febrúar, mars og apríl. Kynnir verður Ármann Reynisson. Fyrsta sýningin hefst klukkan níu í kvöld. 8.2.2011 10:54
Booka Shade á aðdáendahátíð EVE Dansdúettinn Booka Shade kemur fram á árlegri aðdáendahátíð CCP í Laugardalshöll 26. mars. Hátíðin hefur verið haldin frá árinu 2002, en hana sækja hundruð erlendra spilara tölvuleiksins EVE Online, blaðamanna og fólks sem starfar í skapandi iðnaði víða um heim. 8.2.2011 10:00
Dávaldurinn á hvíta tjaldið á næsta ári Kvikmynd byggð á einni vinsælustu skáldsögu síðasta árs, Dávaldinum, er í undirbúningi. Leikstjóri verður Svíinn Lasse Hallström sem á að baki myndir á borð við Mit liv som hund, What"s Eating Gilbert Grape og Chocolat. 8.2.2011 09:30
Jukk og Skot fara til Japan Plöturnar Jukk með Prins Póló og Skot með Benna Hemm Hemm koma út í Japan hjá japanska útgáfufyrirtækinu Afterhours í apríl. Kimi Records, útgáfufélag Prinspóló og Benna Hemm Hemm, framseldi útgáfuréttindin á plötunum til Japans á dögunum. Afterhours, sem er þekkt fyrirtæki á sviði jaðarútgáfu, hefur einnig gefið út tónlist Kríu Brekkan, Bills Callahan og Mice Parade. Íslensku flytjendurnir fljúga til Japans á næstu mánuðum til að kynna afurðir sínar enn frekar. Plötur þeirra koma síðan út í Evrópu og Bandaríkjunum í apríl og maí. 8.2.2011 09:00
Duttlungar hermanna Heimildarmyndin Checkpoint verður sýnd í Reykjavíkurakademíunni í kvöld klukkan átta. Samstarfsmaður leikstjórans, Ron Rotem, mun taka þátt í umræðum að sýningu lokinni en Mannfræðifélagið stendur fyrir sýningunni. 8.2.2011 09:43
Aðdáendur Justins Bieber herja á fjölskyldu Enn á ný komast brjálaðir aðdáendur Justins Bieber í fréttirnar. Nú töldu þeir sig hafa fundið símanúmer söngvarans, en það reyndist vera númer hjá venjulegri fjölskyldu í New York. 8.2.2011 07:30
Útgefandi lærir íslensku í HÍ Útgefandinn og tónlistarmaðurinn Óttar Felix Hauksson hefur í mörg horn að líta. Auk þess að skipuleggja stórtónleika í tilefni sjötugsafmælis Bobs Dylan í Hörpunni eins og Fréttablaðið greindi nýlega frá, stundar hann fullt nám í íslensku við Háskóla Íslands. 7.2.2011 20:00
Gefa út raftónlist TomTom Records hefur verið sett á laggirnar og mun hún sérhæfa sig í íslenskri raftónlist. 7.2.2011 18:00
Bíddu voru allir að ulla upp í alla um helgina? Mefðylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari Superman.is um helgina á veitingahúsunum Prikið, Sódóma, Hressó og Hvíta Perlan. Þá má sjá x-form súludansara sýna listir sínar í Kópavogi og Sloggi-stelpurnar 2010 í Icelimmó á föstudagskvöldið. Eins og sjá má á myndunum ulluðu áberandi margar súlkur upp í hvor aðra um helgina eins og ekkert væri sjálfsagðara. 7.2.2011 14:04
Svona færðu helköttaða handleggi Ester Júlía Olgeirsdóttir Zumba kennari í World Class veit hvað þarf til að komast í hörkuform og fá helköttaða handleggi. „Aðalmálið er að næra sig rétt, hreyfa sig sex sinnum í viku, vera duglegur að mæta og fara eftir ráðum þjálfarans..." sagði Ester meðal annars í miðjum Zimba tíma með keppendum í fegurðarsamkeppni ungfrú Reykjavík 2011. Sjá má viðtalið við Ester í meðfylgjandi myndskeiði. 7.2.2011 12:53
Skálað fyrir HM Þorsteinn J. Vilhjálmsson og aðrir sem komu að umfjöllun Stöðvar 2 Sports um HM í handbolta gerðu sér glaðan dag í myndveri stöðvarinnar á föstudag. Góð stemning var meðal viðstaddra enda þótti umfjöllunin einstaklega vel heppnuð. 7.2.2011 00:01
Lára Rúnars slær í gegn í Hollandi Frammistaða tónlistarkonunnar Láru Rúnarsdóttur á Eurosonic í Hollandi er sögð einn af hápunktum hátíðarinnar á síðu breska tónlistartímaritsins Clash. 7.2.2011 12:00
Kronkron og Kalda í Köben Tískuvikan í Kaupmannahöfn er nú að renna sitt skeið á enda. Sölusýningin CPH Vision er hluti af tískuvikunni og hefur íslensk hönnun vakið mikla athygli þar að þessu sinni. 7.2.2011 10:23
Tónlist við skuggamyndir Helmingur hljómsveitarinnar Amiinu er á leiðinni til Ástralíu þar sem spiluð verður tónlist við skuggamyndir þýskrar listakonu. 7.2.2011 00:01
Keppendur ungfrú Reykjavík í ræktinni Fegurðardrottning Reykjavíkur 2011 verður krýnd með mikilli viðhöfn 25. febrúar næstkomandi á veitingahúsinu Broadway þar sem fegurstu fljóð höfuðborgarsvæðisins keppa um þessa eftirsóttu nafnbót. Eins og meðfylgjandi myndir sýna tóku keppendur ærlega á því í World Class í Laugum í dag. Frábær stemning ríkir í hópnum sem er áberandi hraustlegur og fagur á að líta. Þá má einnig sjá þegar stúlkurnar teygðu vel úr sér og dönsuðu við taktfasta tónlist í Zumba tíma. 6.2.2011 18:02
James Cameron launahæstur Leikstjórinn James Cameron var langlaunahæstur í Hollywood á síðasta ári með tæpa þrjátíu milljarða króna í tekjur. Ástæðan er fyrst og fremst gríðarlegar vinsældir ævintýramyndarinnar Avatar sem hann leikstýrði og framleiddi. 6.2.2011 13:00
Félagar með nýja plötu Tónlistarmennirnir Epic Rain og Beatmakin Troopa gefa á þriðjudaginn út sína fyrstu plötu saman. Hún nefnist Campfire Rumors og kemur út á vegum útgáfufyrirtækisins 3angle Productions sem er í þeirra eigu. Þeir félagar hafa um árin unnið saman að ýmsum verkefnum, bæði staðið fyrir tónleikum og gefið út tónlist. 6.2.2011 12:00
Sóknarprestur hissa á hamingjuþætti „Ég er ekki sár og ekki reiður, þetta er bara skrýtið. Það er svo langt síðan ég byrjaði með þetta,“ segir séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju. 6.2.2011 12:00
Feta í fótspor Jimi Hendrix Fjórir Skagamenn spila uppáhaldslög sín með Jimi Hendrix á tónleikum á Sódómu næsta fimmtudagskvöld. Þetta eru fyrstu stóru tónleikar drengjanna. 6.2.2011 11:00
Mikið rétt þetta var samkoma fallega fólksins Meðfylgjandi myndir voru teknar á Fordkepnninni sem fram fór í Hafnarhúsinu í gærkvöldi. Það var Kolbrún Ýr Sturludóttir sem sigraði, Kolfinna Kristófersdóttir landaði öðru sæti og Hildur Holgersdóttir því þriðja. Sóley Kristjánsdóttir sá um að kynna keppnina og hljómsveitirnar Feldberg, Sykur og Kiriyama Family spiluðu tónlistina. 5.2.2011 22:12
Hefur áhuga á illmenninu Spænski leikarinn Javier Bardem hefur átt í viðræðum um að leika vonda karlinn í næstu James Bond mynd. Bardem hitti leikstjórann Sam Mendes á dögunum og heillaðist af hlutverkinu. „Ég er mikill aðdáandi James Bond myndanna,“ sagði hinn 41 árs gamli Bardem. „Þegar ég var lítill horfði ég á Sean Connery leika James Bond. Hver hefði trúað því að ég yrði í einni slíkri mynd?“ 23. Bond-myndin er væntanleg í bíó 9. nóvember á næsta ári. Þar verður Daniel Craig á sínum stað í hlutverki 007. 5.2.2011 15:00
Upphandleggurinn er 42 sentimetrar að ummáli Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson undirbýr sig nú af krafti fyrir hlutverk sitt sem hrottinn Tóti úr bókinni Svartur á leik en tökur á myndinni hefjast 1. mars. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Stefáns Mána sem kom út fyrir sex árum en hitt aðalhlutverkið verður í höndum Þorvaldar Davíðs Kristjánssonar. Hann mun leika Stebba sækó. 5.2.2011 13:00
Stjórnaði í gegnum Skype Hljómsveitin Thin Jim notaði Skype við strengjaupptökur á sinni fyrstu plötu sem er væntanleg í mars. Ég er ekki viss um að þetta hafi verið gert áður, allavega ekki á Íslandi,“ segir Jökull Jörgensen úr kántrípoppsveitinni Thin Jim. Hún lauk upptökum á sinni fyrstu stóru plötu um síðustu helgi hjá Benzin-bræðrum í Sýrlandi. 5.2.2011 12:00
Plöturnar rokseljast Rokkdúettinn The White Stripes hefur flogið upp vinsældalista eftir að hann tilkynnti að hann væri hættur störfum. Samkvæmt vefsíðunni Amazon hefur salan á tónleikaplötunni og heimildarmyndinni Under Great White Northern Lights aukist um 2.644 prósent. Platan er í öðru sæti á lista vefsíðunnar Movers & Shakers sem tekur saman hæstu sölutölurnar. Aðrar plötur sveitarinnar sem komast á topp tíu á sama lista eru White Blood Cells og Elephant, sem hefur að geyma hið vinsæla Seven Nation Army. 5.2.2011 16:00
Vitnisburður um þrautseigju íslenskra listamanna Ráðgert er að fimm binda yfirlitsrit um íslenska listasögu komi út með haustinu. Fjórtán höfundar taka þátt í ritun verksins, sem Forlagið gefur út í samvinnu við Listasafn Íslands. Yfirlitsritið Íslensk listasaga, sem væntanlegt er í haust, spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar og verður um 1.500 síður í stóru broti. Fjögurra ára vinna liggur að baki útgáfunni. 5.2.2011 11:00
Nafn Torres plokkað í burtu Liverpool-treyjur með númeri og nafni Fernando Torres hafa undanfarin ár verið þær vinsælustu á meðal fótboltaaðdáenda bæði hér heima og erlendis. Snögg breyting hefur orðið á því eftir að framherjinn gekk til liðs við Chelsea. 5.2.2011 11:00
Nýtt efni frá Fleet Foxes Önnur plata hljómsveitarinnar Fleet Foxes nefnist Helplessness Blues og kemur út 29. apríl hjá Sub Pop útgáfunni í Seattle. Upptökustjóri var Phil Ek sem hefur unnið með sveitum á borð við Band of Horses, The Shins og Les Savy Fav. Fyrsta plata Fleet Foxes sem kom út fyrir þremur árum hlaut mjög góðar viðtökur og lenti ofarlega á mörgum árslistum. Hægt er að hlusta á fyrsta smáskífulag nýju plötunnar, titillagið Helplessness Blues, á heimasíðu Fleet Foxes. 5.2.2011 11:00
Gillz gladdist á English Pub Egill „Gillzenegger“ Einarsson bauð vinum og samstarfsmönnum til veislu á English Pub. Þar var nýjum sjónvarpsþáttum hans, Mannasiðum Gillz, fagnað með stæl. 5.2.2011 11:00
Danir hrifnir af Ofsa Einars Kára Einar Kárason fær lofsamlega dóma í Weekendavisen í Danmörku fyrir bók sína Ofsa. Víkingar fornaldar þjáðust víst af aðskilnaðarkvíða og ástleysi. „Þetta er mjög skemmtilegt og hann sér alls konar hluti sem mér hafði ekki dottið í hug, eins og að það hafi verið eitthvað freudískt við það að skríða ofan í sýrukar og vera bjargað af konu,“ segir Einar Kárason rithöfundur. 5.2.2011 10:00
Þóra Einarsdóttir syngur í Garðabæ Þóra Einarsdóttir sópran er í aðalhlutverki á fyrstu tónleikum menningar- og safnanefndar Garðabæjar á þessu ári. Hún kemur fram ásamt Gerrit Schuil píanóleikara sem einnig er listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar sem hófst síðastliðið haust. Á efnisskránni eru verk eftir Gabriel Fauré, Jón Ásgeirsson, Tsjaíkovskí, Nikolaí Rimskí-Korsakov og Rakhmaninov. 5.2.2011 08:00
Ofviðrið blæs út Borgarleikhúsinu hefur verið boðið að sýna Ofviðrið í Þjóðleikhúsi Litháens á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Vilníus í september næstkomandi. Þjóðleikhús Litháens er stærsta leikhús landsins. Leikstjóri Ofviðrisins, Oskaras Koršunovas, er Lithái en á dögunum fékk sýningin góða dóma í Lietuvos rytas, stærsta dagblaði Litháens. 5.2.2011 06:00