Fleiri fréttir

Benedikt bíður eftir símtali frá Hollywood

"Þetta er djobb fyrir íslenskan leikara, það er að segja ef það verður íslenskur útrásarvíkingur í þessari mynd eins og þeirri dönsku,“ segir Benedikt Erlingsson. Mitchell Hurwitz, skapari gamanþáttanna Arrested Development, hefur keypt endurgerðarréttinn að kvikmyndinni Direktören for det hele eftir Lars von Trier.

Rosaleg stórkarlamúsík

Rokkararnir í Ham lofa rosalegum tónleikum á Nasa á föstudagskvöld. Upptökur á fyrstu „alvöru“ Ham-plötunni hefjast í næsta mánuði.

Glamúrpartýið sem allir eru að tala um

Fyrirsæturnar Hildur Líf og Linda Ýr segja frá glamúrpartýinu sem þær standa fyrir á skemmtistaðnum Replay Grensásvegi næsta Laugardag. Partýið, sem allir eru að tala um, er opið öllum. Ýmis skemmtiatriði verða á boðstólnum og fjöldi vinninga að sama skapi fyrir gesti. Þá er hægt að panta svokölluð VIP borð á staðnum fyrir umrætt kvöld.

Dylan svaraði ekki Simon

Paul Simon reyndi að fá gamla félaga sinn Bob Dylan til að syngja með sér á nýjustu plötu sinni en án árangurs. Simon var ekki sáttur við að Dylan skyldi ekki svara erindi sínu.

Friðrika brákuð eftir bílslys

„Þetta er alveg skelfilegt fyrir manneskju eins og mig sem er hlæjandi allan sólarhringinn,“ segir sjónvarpskonan Friðrika Hjördís Geirsdóttir, best þekkt sem Rikka. Hún getur ekki hlegið án þess að finna til því á fimmtudaginn var hún farþegi í bíl sem lenti í árekstri og þar brákaði hún bringubeinið.

Nýtt ólátapar í fæðingu

Líkur sækir líkan heim, segir máltækið, og það virðist eiga við söngkonuna Rihönnu og írska leikarann Colin Farrell, sem samkvæmt The Sun eru farin að stinga saman nefjum.

Sex bönd berjast

Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle verður haldin á Sódómu Reykjavík laugardaginn 5. mars. Sex hljómsveitir berjast þar um laust sæti í alþjóðlegri lokakeppni sem verður haldin á tónlistarhátíðinni Wacken Open Air í Þýskalandi.

Sigmar hættur sem Eurovision-þulur

„Ástæðurnar fyrir þessari ákvörðun minni nú eru tvær; annars vegar hef ég nóg á minni könnu og hins vegar fannst mér kominn tími til að hleypa öðrum að,“ segir Sigmar Guðmundsson, sem hefur ákveðið að segja skilið við Eurovision eftir að hafa lýst þessari vinsælu söngvakeppni í fimm ár í Sjónvarpinu.

Skrítinn kór af Skólavörðustíg til Hollywood

"Atli bróðir fann sérkennileg hljóðfæri úti um allt Skotland fyrir þessa mynd og skrítinn kór á Skólavörðustígnum,“ segir Karl Örvarsson tónlistarmaður. Söngur Karlakórsins Alþýðu hljómar í Hollywood-kvikmyndinni The Eagle en tónskáldið Atli Örvarsson, sem hefur verið búsettur í Bandaríkjunum, semur einmitt tónlistina við hana. Meðal þeirra sem skipa kórinn Alþýðu auk Kalla Örvars eru veitingamennirnir Kormákur Geirharðsson og Skjöldur Sigurjónsson, að ógleymdum Karli Th. Birgissyni, nýráðnum ritstjóra Eyjunnar.

Vill banna fóstureyðingar

Justin Bieber hefur hneykslað marga í Ameríku með yfirlýsingum sínum um fóstureyðingar og ameríska heilbrigðiskerfið. Íslenskir aðdáendur hans flykkjast í bíó um helgina.

Afslappaðir Eurovision-farar

"Ég hélt í fyrstu að þetta yrði afslappað, bara fjögurra daga ferð til Düsseldorf, en nei; þetta eru tvær vikur og nánast hver einasti dagur þéttbókaður,“ segir Hreimur Örn Heimisson, einn sexmenninganna sem flytja Eurovision-lagið í ár, Aftur heim.

Heiðar Austmann í gjörningi Ragga Kjartans

"Þarna mætast vissulega andstæðir heimar en það er á margan hátt tímabært. Að fólk deili með sér í stað þess að deila," segir Ragnar Ísleifur Bragason, einn aðstandenda Leikhúss listamanna.

Konunglegur niðurskurður

Stóra málið í Bretlandi er án nokkurs vafa að 1.900 manns fengu um helgina boðskort í brúðkaup þessa áratugar, hjá þeim Kate Middleton og Vilhjálmi Bretaprins.

Ætla ekki að hætta að spila lög Jóhanns

"Þetta er bara í sínum farvegi, það er verið að ræða við alla aðila og reyna að greiða úr þessari flækju á vettvangi STEFs þar sem það á heima,“ segir Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365 miðla.

Sveppi fagnar Dressmann

"Þetta er alveg æðislegt því nú get ég bara farið í Dressmann og keypt mér bol,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, sjónvarpsstjarna með meiru. Sverrir er mikill Rolling Stones maður en ekkert síður Stones-bolamaður og gengur helst ekki í neinu öðru.

Afþakkaði stefnumót

Ashton Kutcher upplýsti nýverið að draumastúlka hans hefði eitt sinn verið Jennifer Aniston.

Freistandi að klífa hraun

Leikfangaframleiðandinn Krumma ehf. kynnti nýja vörulínu í Listasafni Reykjavíkur á föstudaginn. Nýja línan kallast Krumma Flow og sækir innblástur sinn til íslenskrar náttúru.

Kertin sem spurðust út

„Þetta gerðist eiginlega bara óvart. Ég bjó til nokkur kerti fyrir sjálfa mig fyrir jólin sem ég skreytti í jólaþema. Vinkonur mínar voru hrifnar af þessu svo ég bjó til nokkur handa þeim og svo fóru vinkonur vinkvenna minna að fá áhuga og þannig gekk þetta koll af kolli," segir Þórdís Þorleifsdóttir sminka.

Íslendingur fékk Grammy fyrir metsölulag með Train

„Þetta er auðvitað draumur fyrir mig, strák frá Tromsö, að vera kominn á þennan stað. Tónlistin er hins vegar þannig að hún fjarlægir öll landmæri og það spyr mig engin hvaðan ég sé. En auðvitað finnst mér ég vera mjög heppinn og raunar ofdekraður að vera vinna með slíku hæfileikafólki," segir Ámundi Björklund, annar helmingur höfundarteymisins Espionage.

Selja föt sín í 500 verslunum um allan heim

Gunnar Hilmarsson, annar eigandi Andersen & Lauth, segir fyrirtækið hafa blásið til sóknar á erlendri grundu undanfarna mánuði. Hann hefur sótt fjölda erlendra sölusýninga það sem af er árinu og segir viðtökurnar hafa verið góðar.

Getum vel við unað

„Maður er bara mjög ánægður, ekkert annað hægt,“ segir Þórir Snær Sigurjónsson, framleiðandi hjá ZikZak. Fyrirtækið var tilnefnt til 31 Eddu í ár og fór heim með ellefu á laugardagskvöldinu, sex fyrir Brim en fimm fyrir The Good Heart.

Myndirnar af Eddunni

Það var mikið um dýrðir í Gamla bíó í gærkvöldi þegar Edduverðlaunin voru afhent. Stemmningin var frábær og skörtuðu allir sínu fínasta pússi.

Ekkert aldurstakmark þegar Amor knýr dyra

Því hefur oft verið fleygt að ástin spyrji ekki um aldur og það má víst til sanns vegar færa hér á Íslandi. Freyr Gígja Gunnarsson skoðaði nokkur af heitustu nýju pörunum og komst að því að fólk kippir sér lítið upp við að áratugur skilji að.

Þriðji áratugurinn settur á svið

Sjónvarpsþættirnir Boardwalk Empire slógu í gegn í Bandaríkjunum á síðasta ári. Steve Buscemi er í aðalhlutverki í þáttunum sem gerast í Atlanta í upphafi þriðja áratugarins. Sigríður Björg Tómasdóttir kynnti sér þættina, sem hefja göngu sína á Stöð 2 í kvöld.

Fjölhæfi fjölmiðlamaðurinn Nilli

Fjölmiðlamaðurinn Nilli hefur vakið mikla athygli fyrir skelegga framkomu sína upp á síðkastið. Hann hlaut þó ekki náð fyrir augum þeirra sem stóðu að vali Sjónvarpsmanns ársins, en hann var valinn í gær. „Ég er búinn að leggja mig allan fram hérna,“ sagði Nilli í samtali við Breka Logason fréttamann.

Þiggur umdeild verðlaun

Breski rithöfundurinn Ian McEwan hefur vakið deilur fyrir að þiggja Jerúsalem-verðlaunin í bókmenntum, sem afhent verða nú um helgina. McEwan var hvattur til að afþakka verðlaunin í mótmælaskyni við hersetu Ísraelsmanna í Palestínu.

Paris Hilton fékk 40 milljóna króna Lexus

Hótelerfinginn Paris Hilton fékk 40 milljóna króna Lexus í afmælisgjöf frá kærastanum sínum á dögunum. Paris varð 30 ára gömul á fimmtudaginn. Eftir því sem norski viðskiptavefurinn e24 greinir frá er bíllinn með V10 vél og 560 hestöfl. Hann nær 325 kílómetra hraða á klukkustund. Bíllinn er einungis til í 500 eintökum um allan heim, en um 20 eintök eru framleidd í hverjum mánuði.

Gremja í The Strokes

Julian Casablancas, söngvari The Strokes, segir gremju hafa verið í hljómsveitinni við upptökur á nýju plötunni, Angles.

Vafi á faðerni sonar Owens Wilson

Leikarinn Owen Wilson eignaðist sitt fyrsta barn fyrir mánuði ásamt kærustu sinni, Jade Duell. Fyrrverandi kærasti Duell vill þó meina að barnið gæti allt eins verið hans.

Klingir í pyngjum poppara

Tilkynnt var í gær hverjir hefðu hlotið laun úr launasjóðum listamanna. Nafntogaðir rithöfundar og frægir popparar eru meðal þeirra sem fengu eitthvað fyrir sinn snúð.

Frændur semja lag

Eins og fram kom í Fréttablaðinu í vikunni er önnur sólóplata tónlistarmannsins Daníels Ágústs væntanleg í byrjun mars.

Í faðmi fræga fólksins

Enginn vinningshafanna veit fyrirfram hver vinnur því það á að koma á óvart og þannig vil ég líka njóta þess," segir Hera Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Eddunnar sem verður sýnd í beinni útsendingu frá Íslensku óperunni á Stöð 2 og hér á Vísi í kvöld.

Fagna áttunda barni Rods Stewart

"Þetta er mikil hátíðarstund. Það er aldrei of mikið af litlum Roddurum í heiminum,“ segir útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson, formaður Rodway, sem er annar tveggja aðdáendaklúbba söngvarans Rods Stewart á Íslandi.

Skjárinn sniðgengur Edduna

Ein stærsta sjónvarpsstöð landsins, Skjár einn, hyggst sniðganga Eddu-verðlaunin og halda eigið hóf á skemmtistaðnum Esju við Austurstræti en verðlaunaafhendingin verður í beinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi.

Draumalandið verðlaunað

Heimildarmyndin Draumalandið vann á dögunum hin eftirsóttu Cinema Politica áhorfendaverðlaun. Kosningin fór fram á netinu og hægt var að kjósa milli tíu mest dreifðu mynda síðasta árs innan kanadísku samtakanna Cinema Politica sem sýna pólitískar myndir víða um heim.

Sunna fær góða dóma í Austurríki

Djasspíanóleikarinn Sunna Gunnlaugsdóttir fær góða dóma í austur­ríska tímaritinu Concerto fyrir plötu sína The Dream, sem var nýlega tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna.

Brestir í sambandi Halle Berry

Leikkonan Halle Berry hefur átt vingott við mótleikara sinn, hinn franska Olivier Martinez, undanfarna mánuði. Sambandið virðist þó standa völtum fótum vegna vandamála sem fylgja harðri forræðisdeilu sem Berry á í við barnsföður sinn, Gabriel Aubry.

Aldrei fleiri umsóknir

Alls bárust 233 umsóknir í umsóknarferli Kraums tónlistar­sjóðs sem lauk í síðustu viku. Aldrei fyrr hafa jafn margar umsóknir borist í umsóknarferli sjóðsins en á síðasta ári voru þær 193 talsins. Flestar umsóknirnar sem bárust núna eru frá hljómsveitum og listamönnum sem sækja um stuðning og samstarf fyrir margvísleg verkefni sín á árinu. Má þar nefna tónleikahald, kynningu á verkum, lagasmíðar og plötugerð. Frá því að Kraumur hóf starfsemi sína hafa yfir áttatíu flytjendur hlotið stuðning, þar á meðal Mugison, Bang Gang og Dikta.

Selma tekur kántríið alla leið

Nýr söngheimur opnaðist Selmu Björnsdóttur söngkonu þegar hún fór að æfa kántrísöngtækni. Á laugardagskvöld treður hún upp með hljómsveit sinni, Miðnæturkúrekunum, í kántríveislu á Græna hattinum á Akureyri. Bæði tekur bandið lög af plötunni Alla leið til Texas sem kom út fyrir jólin og svo þekkta kántríslagara.

Nýr Frikki Weiss snýr heim

Friðrik Weisshappel opnar Laundromat Café í Austur­stræti laugardaginn 5. mars. Hann er þroskaðri en hann var fyrir sjö árum þegar hann hélt í víking til Danmerkur.

Stelpuslagur í nýja Britney-myndbandinu

"Það er mér sönn ánægja að kynna nýja myndbandið mitt við lagið Hold It Against Me. Ég vona að þið fílið það jafnvel og ég. Ef ekki þá tek ég kung fu-spark á ykkur eins og ég geri við stelpuna í myndbandinu,“ skrifaði poppprinsessan Britney Spears á Twitter-síðu sína í gærkvöldi.

Pinetop Perkins elsti sigurvegarinn

Bandaríski blúsarinn Pinetop Perkins varð elsti Grammy-verðlaunahafi sögunnar þegar hann tók á móti verðlaununum á sunnudag fyrir plötuna Joined at the Hip: Pinetop Perkins & Willie „Big Eyes“ Smith.

Sjá næstu 50 fréttir