Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eltihrellir settur í bann Tímabundið nálgunarbann hefur verið sett á 39 ára mann sem hefur elt fyrirsætuna og sjónvarpskonuna Tyru Banks og fjölskyldu hennar á röndum í fjögur ár. 21.10.2010 15:00
Gaf tökuliði 500 úlpur Leikarinn Johnny Depp keypti fimm hundruð vatnsheldar úlpur handa tökuliði myndarinnar Pirates of the Caribbean 4. Tökur hafa staðið yfir í London að undanförnu og þar hefur rok og rigning gert tökuliðinu lífið leitt. Depp vildi sjá til þess að öllum liði vel í kringum sig og pungaði út rúmlega sjö milljónum króna í úlpurnar. 21.10.2010 14:30
Fimmtán þúsund tryggðu sér miða á Frostrósirnar Miðar á tónleika Frostrósa í desember seldust eins og heitar lummur í gær. Salan er töluvert betri en á sama tíma í fyrra. 21.10.2010 14:00
Flowers á heimleið Söngvarinn Brandon Flowers úr The Killers er farinn að sjá fyrir endann á sólótilburðum sínum, í bili að minnsta kosti. Fyrsta sólóplata Flowers, Flamingo, kom út 10. september síðastliðinn og hann er nú á tónleikaferðalagi í Bretlandi. Eftir það taka við nokkrir tónleikar í Bandaríkjunum en svo ætlar söngvarinn að eyða tíma með eiginkonu sinni. Þau eiga von á þriðja barni sínu innan tíðar. 21.10.2010 14:00
Íslensk lögga í erlendri seríu „Hann hefur mikla samúð með Íslendingum og íslenskum málstað í sambandi við hrunið. Hann fær lesendur til að finna til með Íslendingum,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Veröld. 21.10.2010 12:30
Góðir gestir á ástarplötu Belle & Sebastian gaf fyrir skömmu út sína áttundu hljóðversplötu, þar sem góðir gestir koma við sögu. Umfjöllunarefnið er ástin í allri sinn dýrð. Áttunda hljóðversplata skosku poppsveitarinnar Belle & Sebastian, sem nefnist Belle & Sebastian Write About Love, kom út fyrir skömmu. 21.10.2010 12:00
Georg og félagar í nýrri úrklippubók „Þetta er mjög fallegur pakki,“ segir Ragnar Bragason, leikstjóri Nætur-, Dag- og Fangavaktarinnar. 21.10.2010 12:30
Mel Gibson í Timburmönnum tvö Mel Gibson hyggst koma lífi sínu og ferli á réttan kjöl og telur besta ráðið til þess að leika lítið gestahlutverk í kvikmyndinni The Hangover 2. Samkvæmt vefsíðunni Pagesix.com hefur verið gengið frá samningum við Hollywood-stjörnuna og mun Gibson leika húðflúrlistamann í Bangkok. 21.10.2010 11:00
Nirvana-sýning á næsta ári Sýningin Pönkið fært til fjöldans, þar sem rokksveitin Nirvana verður í aðalhlutverki, verður opnuð í heimaborg hennar Seattle í apríl á næsta ári. Sýningin mun standa yfir í tvö ár. 21.10.2010 10:30
Rollingar góðir vinir Þó að Keith Richards úr Rolling Stones segi söngvarann Mick Jagger „óþolandi“ í nýrri sjálfsævisögu sinni, segir gítarleikarinn þá enn vera góða vini. 21.10.2010 10:00
Þú komst í hlaðið setur Íslandsmet á Tónlistanum „Djöfulsins klassi það - á þessum síðustu og verstu," segir stórsöngvarinn Helgi Björnsson þegar blaðamaður tjáir honum að plata hans og Reiðmanna vindanna, Þú komst í hlaðið, hafi eytt síðustu 16 vikum á toppi Tónlistans. 21.10.2010 09:00
Skrifar handrit fyrir Hollywood „Þetta er rómantísk gamanmynd sem er innblásin af áhuga mínum á rómantískum gamanmyndum síðastliðin fimmtán ár." Þetta segir rithöfundurinn Óttar Martin Norðfjörð sem nú situr sveittur í spænsku borginni Sevilla að skrifa kvikmyndahandrit fyrir umboðsskrifstofu í Hollywood. 21.10.2010 08:30
Submarino verðlaunuð Danski leikstjórinn Thomas Vinterberg, handritshöfundurinn Tobias Lindholm og framleiðandinn Morten Kaufmann hljóta hin eftirsóttu kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir myndina Submarino. 21.10.2010 08:00
Óttar á leið til Kína Óttar Guðnason kvikmyndatökumaður segir að vinnan við Inhale hafi verið stíf enda myndin gerð á aðeins 29 dögum. Hann segir jafnframt sig langa til að gera mynd á íslensku. 21.10.2010 07:30
Tom Cruise rænir leikara af Jóni Atla „Þetta er bara svona, maður verður að taka þessu," segir Jón Atli Jónasson, leikskáld og leikstjóri. Jón Atli er að leggja lokahönd á leiksýninguna Mojito sem hann leikstýrir og skrifar sjálfur og verður frumsýnd í Tjarnarbíói á næstunni. 21.10.2010 07:00
Barnaflækjur í bíóhúsum Þeir sem hafa gaman af flóknum fjölskyldumynstrum og barneignum ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í kvikmyndahúsum borgarinnar því tvær myndir, The Kids Are Alright og The Switch, verða frumsýndar um helgina. 21.10.2010 06:30
Vill fá launin sín Óskarsverðlaunahafinn Adrien Brody stendur nú í miklu stappi við ítalska kvikmyndaframleiðendur og reynir að fá lögbann á hryllingsmyndina Giallo. 21.10.2010 06:00
Söngur og leikur á Kjarvalsstöðum - myndband Listasafn Reykjavíkur og Skotturnar, regnhlífasamtök kvennahreyfingarinnar á Íslandi hafa ruglað saman reitum og skipulagt dagskrárveislu sem hefur verið nokkurs konar upptaktur fyrir kvennafrídaginn 25. október. 20.10.2010 17:44
Borða, biðja, elska námskeið - myndband Borða biðja elska námskeið með Eddu Björgvins og Bjargeyju Aðalsteinsdóttur er framundan 26. október næstkomandu. Um er að ræða námskeið sem gengur út að efla jákvæðni andlega og líkamlega. Á Léttbylgjunni er í gangi leikur fyrir hópa sem geta skráð sig og átt kost á því að sækja umrætt námskeið, fá glæsilegan málsverð auk þess sem allur hópurinn fær bókina og boðsmiða á myndina sem allar konur verða að sjá. Borðum, biðjum og elskum með Maður lifandi og Eddu Björgvins. 20.10.2010 16:15
Eins og múmía í ræktinni Kelly Osbourne segist hafa litið út eins og múmía þegar hún mætti í líkamsræktarstöð í Japan á dögunum þar sem hún þurfti að hylgja öll húðflúrin sem hún er með á líkama sínum. Kelly var á ferðinni í Japan þar sem hún fylgdi föður sínum, Ozzy, sem hélt tónleika þar í landi. Í Japan þykir óvirðing að sýna húðflúrin á líkamsræktarstöðum þannig að Kelly þurfti að vefja utan um sig sárabönd því líkami hennar er nánast allur þakinn í húðflúrum. Ég leit út eins og múmía en það var mjög fyndið. Sem betur fer eru ekki speglar í japönskum líkamsræktarstöðvum þannig að ég þurfti ekki að horfa upp á mig líta svona út," sagði Kelly í viðtali við Closer tímaritið. 20.10.2010 14:30
Paris vill börn Paris Hilton ætlar að eignast börn því þannig telur hún sig geta fundið tilgang í lífinu. Paris er á föstu með næturklúbbeiganda, Cy Waits, sem á 7 ára gamla dóttur frá fyrra sambandi, en Paris hefur eytt töluverðum tíma með honum og stúlkunni sem hefur kennt hótelerfingjanum hvað skiptir raunverulega máli í lífinu. Við gerum venjulega hluti saman eins og að slaka á og undirbúa stepuna fyrir skólann," sagði Paris sem er að kynnast nýjum áherslum í lífinu með Cy og dóttur hans sem er orðin góð vinkona Parisar. Ég nýt þess að vera í kringum þau og ég held að ég vilji eignast börn því þau gefa lífinu gildi. Ég ætla að eignast nokkur börn á því leikur enginn vafi," sagði Paris. 20.10.2010 13:30
Erfið og ströng megrun Leikarinn Hugh Jackman, 42 ára, segist þurfa að leggja sig allan fram við að fylgja eftir ströngu mataræði sem felst í því að borða nokkrar kjúklingabringur og örfá hrísgrjón daglega fyrir hlutverk sitt í myndinni X-Men Origins: Wolverine 2 sem kemur út árið 2011. Hugh æfir eins og skepna alla daga og heldur sig við mataræði sem á að koma honum í gott líkamlegt form á skömmum tíma. Allt draslfæði er úti og próteininntakan hefur aukist. Ég æfi mikið og borða oft og mér finnst það erfitt. Fjórar kjúklingabringur klukkan 10:30 á morgnana með hrísgrjónum og gufusoðnu brokkolí verður leiðigjarnt til lengdar." 20.10.2010 11:30
Katy Perry gæsuð - myndir Söngkonan Katy Perry, 25 ára, sem er nú stödd á Indlandi ásamt verðandi eiginmanni sínum, Russell Brand, markaðssetur nú eigið ilmvatn líkt og stórstjörnur á borð við Kylie Minogue, Söruh Jessicu Parker og Jennifer Aniston. Katy segir að nýja ilmvatnið hennar láti konur mjálma af vellíðan þegar þær nota það. Ilmvatnið sem kallast Purr verður sett á heimsmarkað í nóvember. Ég er í skýjunum yfir ilmvatninu. Loksins get ég kynnt mig í flöskum," sagði Katy. Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru á skemmtistað í Las Vegas af söngkonunni Rihönnu og Katy þegar sú síðarnefnda var gæsuð. 20.10.2010 10:30
Ástþór áfram í erlendri lagakeppni „Þetta kom mér rosalega á óvart,“ segir rapparinn Ástþór Óðinn. 20.10.2010 09:30
Geir Haarde klipptur út Heimildarmyndin Inside Job eftir Charles Ferguson verður frumsýnd hér á landi byrjun nóvember. Myndin fjallar um efnahagshrunið sem reið yfir heimsbyggðina. Í samtali við Fréttablaðið segist Ferguson vonast til að myndin varpi ljósi á hvað í raun og veru gerðist í aðdraganda fjármálahamfaranna. 20.10.2010 09:00
Jackass beint á toppinn Grallararnir í Jackass með Johnny Knoxville í fararbroddi áttu aðsóknarmestu myndina vestanhafs um síðustu helgi. Jackass 3D halaði inn fimmtíu milljónum dollara í aðsóknartekjur og skákaði þar The Social Network sem hafði setið á toppnum í nokkurn tíma. 20.10.2010 08:30
Stórskotalið reynir við Þór „Þetta er heill her af karlmönnum og hver öðrum betri,“ segir Óskar Jónasson leikstjóri, en raddprufur fyrir íslensku útgáfuna af teiknimyndinni Þór standa nú yfir í upptökuverinu Upptekið. Meðal hlutverka sem verið er að prófa í eru Þór og Mjölnir, hamarinn víðfrægi. 20.10.2010 08:00
Vaktargengið hefur vinnu að nýjum þáttum án Jóns Gnarr „Við Jörundur og Ævar erum byrjaðir á sjónvarpsseríu sem á að taka upp í vor. Hún heitir Heimsendir, hvorki meira né minna," segir Ragnar Bragason leikstjóri. 20.10.2010 07:00
Vill tíu milljónir fyrir Ágætis byrjun „Tíu milljónir er tala sem myndi skipta mig máli. Tvær milljónir breyta ekki lífi mínu," segir Gotti Bernhöft, sem teiknaði frægar myndir í umslagið fyrir Ágætis byrjun, aðra plötu Sigur Rósar. 20.10.2010 06:00
Ekki spyrja um væntanlegt brúðkaup - myndir Á meðfylgjandi myndum má sjá söngkonuna Rihönnu taka upp auglýsingu fyrir So Kodak auglýsingaherferðina en söngkonan hefur tilkynnt að hún er alls ekki tilbúin að giftast Matt Kemp unnusta sínum. Ég er ekki tilbúin að giftast strax. Það er alls ekkert í pípunum. Ég er bara tuttugu og tveggja ára gömul!" sagði Rihanna sem er búin að fá sig fullsadda á spurningum um væntanlegt brúðkaup eða hvort hún ætli ekki að giftast Matt. Undanfarið hef ég heyrt orðið brúðkaup sirka fjögurhundruð sinnum og nei ég er ekki tilbúin að ganga í heilagt hjónaband." 19.10.2010 17:00
Eiginkonan fyrirgaf framhjáhaldið Take That söngvarinn Mark Owen, 38 ára, hefur ákveðið að horfa fram á veginn með konunni sinni Emmu Ferguson en hann viðukenndi fyrr á þessu ári í fjölmiðlum að hafa haldið framhjá henni þó nokkuð mörgum sinnum. Emma fyrirgaf honum og þau ætla að rækta sambandið framvegis og vera saman það sem eftir er. Mark, sem á börnin Elwood, 4 ára og 23 mánaða gamlan Willow með Emmu lét hafa eftir sér: Ég þrái fátt annað en að við eldumst saman. Ég dýrka hana (Emmu). Tilfinningarnar eru til staðar." 19.10.2010 16:00
Árlegt Bleikt boð framundan - myndir Krabbameinsfélagið stendur fyrir Bleika boðinu sem er skemmtikvöld föstudaginn 22. október í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík, þar sem 1000 konur koma saman. Tilgangurinn er að eiga góða og skemmtilega kvöldstund saman ásamt því að hvetja til árvekni gegn krabbameinum hjá konum. Dagskráin er að mótast þessa dagana en húsið verður opnað kl. 20:00 og lokað kl. 23:30. Ýmsir skemmtilegir dagskrárliðir verða í Bleika boðinu svo sem tónlistaratriði, dans og tískusýning. Svo verður fjáröflun til styrktar Krabbameinsfélaginu í formi happdrættis. Boðið er ókeypis og verður auglýst m.a. á Facebook. Konum verður boðið að sækja um miða á www.bleikabodid.is og getur hver og ein kona pantað sér 2 miða. Meðfylgjandi eru myndir úr Bleika boðinu í fyrra, sem haldið var í Hafnarhúsinu – þær eru allar teknar af Kristínu Þorgeirsdóttur, ljósmyndara. 19.10.2010 15:00
Lady Gaga búin að finna draumprinsinn Ástarsamband Lady Gaga og Luc Carl var staðfest og blessað á formlegan máta í síðustu viku. Um var að ræða rómantíska athöfn sem haldin var á eyjunni Grete síðla kvölds undir fullu tungli. Parið játaðist hvort öðru í návist vina. Haft er eftir heimildarmanni sem var viðstaddur athöfnina: Þetta var fyrsta skref þeirra í átt að heilögu hjónabandi. Þau voru bæði uppáklædd og lásu upp falleg hátíðleg loforð til hvors annars í viðurvist bestu vina þeirra." Parið skiptist á hringum og borðaði síðan saman á pínkulitlum veitingastað á eyjunni. Lady Gaga var klædd í hvítan síðkjól og Luc í hvítan jakka og silfraðar sebramunstraðar buxur. Lady Gaga er sögð hafa uppgötvað hvað hún þarfnaðist Luc mikið þegar afi hennar, Joseph Germanotta, féll frá. Það var góð áminning til hennar hvað lífið er stutt þegar afi hennar dó. Hún vill aldrei missa Luc og staðfesti þess vegna ást sína á honum," sagð umræddur heimildarmaður. 19.10.2010 14:00
Vill láta koma sér á óvart Leikkonan Rachel McAdams, 33 ára, og mótleikari hennar í myndinni Midnight in Paris, Michael Sheen eiga í ástarsambandi en hún segist stundum vera of vinaleg við mótleikara sína. Rachel átti í löngu ástarsambandi við leikarann Ryan Gosling eftir að þau léku saman í myndinni The Notebook. Vanaleg tengist ég mótleikara mínum tilfinningalega á settinu. Ég er ekki feimin og ég er með sjálfstraust sem ég nota hiklaust í vinnunni en ég er yfirleitt allt of vinaleg og það kemur mér oftar en ekki í vandræði," sagði Rachel. Það er engin ein týpa af karlmönnum sem ég laðast sérstaklega að en ég vil láta koma mér á óvart," sagði hún. 19.10.2010 13:15
Annað barn á leiðinni Súpermódelið Eva Herzigova, 37 ára, er gengin fjóra mánuði með sitt annað barn með ítalska unnusta hennar Gregorio Marsiaj. Eva og Gregoria hafa verið saman síðan árið 2001 og saman eiga þau þriggja ára son, George. Ég er í yndislegu sambandi. Ég verð að viðurkenna að þegar ég var ólétt af George hugsaði ég: Vá hann fær ekki nóg af mér!" sagði Eva. Greg hefur stutt mig dyggilega á meðgöngunni með fallegum orðum og innilegheitum," sagði Eva. 19.10.2010 12:15
Hot Spring er komið í loftið Icelandair í samstarfi við Tonlist.is hefur gefið út geisladiskinn Hot Spring, vol. I, sem inniheldur tónlist íslenskra tónlistarmanna. Icelandair hefur í áratugi stutt við íslenskt tónlistarlíf, til dæmis Músíktilraunir, Iceland Airwaves og Reykjavík Loftbrú. Ekki síður er Icelandair stolt af því að leika íslenska tónlist í samstarfi við Tónlist.is í vélum sínum en ástæðan fyrir útgáfu Hot Spring er að farþegar Icelandair spyrja mikið um hvernig sé hægt að nálgast tónlistina sem leikin er í vélunum þegar fólk kemur um borð. Diskinn verður hægt að fá um borð í vélum Icelandair og í helstu hljómplötuverslunum á Íslandi, auk þess sem hægt er að hlaða honum niður á Tónlist.is og icelandicmusic.com. Þeir sem kaupa diskinn fá einnig 30 daga aðgang að Tónlist.is/ icelandicmusic.com 19.10.2010 10:00
Gerir draumasamning við stórfyrirtækið Universal „Það er komið endanlegt grænt ljós á myndina, ég flyt út á sunnudag og verð í New Orleans og Panama næsta hálfa árið. Vonandi geta konan og börnin komið og verið eitthvað með mér úti. Ég fæ smá jólafrí og klára þá síðustu tökurnar af Djúpinu," segir Baltasar Kormákur kvikmyndaleikstjóri. 19.10.2010 09:00
Litli vinurinn skaddaður Kvikmyndin Jackass 3D var frumsýnd um helgina. Að því tilefni hefur Johnny Knoxville, forsprakki hópsins, upplýst að litli vinurinn hans í suðri hafi komið illa út úr hamaganginum við framleiðslu Jackass-myndanna. 19.10.2010 08:00
Norræn tónleikaröð á Íslandi Norska poppsveitin Datarock kemur fram á tónleikaröðinni Direkt, sem fer fram í Reykjavík dagana 4.-6. nóvember. Tónleikaröðin er hluti af norrænu listahátíðinni Ting, sem er haldin í tilefni af afhendingu Norrænu menningarverðlaunanna í tónlist í Reykjavík. 19.10.2010 07:00
Nýtt fríblað um heilsu Nýtt fríblað, Heilsan, er komið á markað. Tímaritið tekur fyrir alls kyns hreyfingu sem í boði er á líkamsræktarstöðvum og hvernig við getum rifið okkur upp úr sófanum og byrjað að hlaupa og hvaða líkamsræktaræfingar er gott að gera heima við. „Við hjá Heilsunni ákváðum að gera létt og fjölbreytt tímarit um heilsu og ýmis málefni tengd henni. Við eigum það nefnilega held ég flest til að gleyma okkur í amstri dagsins og fela okkur á bakvið þá afsökun að við höfum ekki tíma fyrir okkur sjálf“ segir Halldóra Anna Hagalín, ritstjóri. Tímaritið Heilsan mun koma út annan hvern mánuð og vera frítt blað sem dreift verður í allar helstu verslanir á landinu og líkamsræktarstöðvar. 18.10.2010 18:45
Boðið í vinsælan sjónvarpsþátt Eftir fréttir hérlendis í síðustu viku um nýja íslenska ilminn EFJ Eyjafjallajökull by Gyðja hafa fréttir af ilmvatninu farið sem eldur í sinu í fjölmiðlum víða um heim og virðist áhugin erlendis vera mikill fyrir þessu konsepti Gyðju að blanda vatni úr í Eyjafjallajökli við hágæða ilmvatn og vefja hraunmola úr gosinu utan um ilmvatnsglasið. „Við hjá Gyðju erum vægast sagt hissa á allri þessari athygli núna strax í byrjun því við erum ekkert farin að markaðsetja ilminn á erlendri grundu," svaraði Sigrún spurð út í athyglina sem ætlar engan endi að taka. Hinir ýmsu erlendu fréttamiðlar sem dæmi AFP höfðu samband við forsvarsmenn Gyðju til að óska eftir viðtali og ítarlegri upplýsingum um ilminn og tengls hans við eldgosið. Í kjölfarið fór svo greinar um ilminn að birtast í erlendum miðlum. Einnig hafa viðtöl við Sigrúnu Lilju birst í prentmiðlum erlendis um ilmvatnið þar sem farið er nánar út í hvað Gyðja stendur fyrir, framtíðaráform, fylgihluti Gyðju úr íslenska roðinu, ilminn og konseptið við Eyjafjallajökul, eldgosið og áhrif þess í dag á íslendinga og jafnvel hvernig við íslendingar höfum það núna í kreppunni og hvert stefnan er með Gyðju. Sigrúnu Lilju var boðið í vinsælan árlegan sjónvarpsþátt í desember næstkomandi hjá stæstu sjónvarpsstöð Þýskalands, Sat 1, þar sem farið verður yfir hápunkta ársins 2010 í heimsfréttum. Eyjafjallajökull er sjálfsögðu þar á meðal og vilja forsvarsmenn þáttarins bjóða Sigrúnu að koma í þáttinn og fjalla um um ilmvatnið. „Verkefnið hefur farið vel af stað á erlendri grundu þrátt fyrir að ekki hafi ennþá verið hafist handa á markaðsetningunni. Ilmvatnið er nú strax að fá meiri athygli heldur en hægt var að þora að vona sem lofar góðu fyrir framhaldið," sagði Sigrún Lilja. 18.10.2010 16:45
Mel Gibson í The Hangover 2 Leikarinn Mel Gibson hefur landað hlutverki í væntanlegri kvikmynd The Hangover 2. Sagan segir að Mel vonar að almenningsálitið lagist í kjölfarið líkt og hjá Mike Tyson eftir að hann birtist í The Hangover sem hann sjálfur. Hollywood stjarnan hefur átt erfitt undanfarið þegar kemur að ástamálum hans en hann skildi nýverið við rússnesku söngkonuna Oksönu Grigorieva sem fæddi honum dótturina, Luciu, fyrir ellefu mánuðum. Söngkonan heldur því fram að Mel hafi beitt hana líkamlegu og andlegu ofbeldi. Hún hefur kært Mel fyrir að kýla sig í andlitið með þeim afleiðingum að tönn losnaði en hann neitar því staðfastlega. Í kjölfarið á skilnaðinum sem allur heimurinn fylgdist með hætti umboðsmaður Mel til margra ára að starfa fyrir hann og nú er Mel staðráðinn í að láta hlutina ganga upp þegar kemur að leiklistinni. 18.10.2010 14:45
Harry Potter stjarna vinnualki - myndir Breska leikkonan Emma Watson, 20 ára, sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni vill skemmta sér í meira mæli og njóta lífsins en hún vinnur eins og skepna þó ung sé að árum. Harry Potter stjarnan sem stundar nám í enskum bókmenntum viðurkenni að hún vill fjör eins og fólk á hennar aldri. „Ég vil skemmta mér meira eins og aðrir krakkar á mínum aldrei. Ég er alltaf að vinna. Ég er vinnualki. Höfuðið á mér þarf á hvíld að halda," sagði hún. „Einn daginn er ég í tökum og hinn er ég í skólanum. Svo er ég heima og daginn eftir er ég kannski að hanna föt. Það er enginn dagur venjulegur sem ég upplifi. Ég vil lifa eðlilegu lífi og ég vil hafa það gaman." 18.10.2010 13:30
Nældi sér í afslappaðan náunga - myndir Leikkonan Mischa Barton, 24 ára, er loksins búin að finna manninn sem kætir hjarta hennar. Sá heppni er breski plötusnúðurinn Ali Love. Mischa elskar að vera í návist nýja kærastans því hann kemur fram við hana af virðingu og hugar vel að henni þrátt fyrir frægðina. Ali er afslappaður náungi að sögn Mischu og hún kann að meta það í fari hans. Hann er ótrúlegur. Svo almennilegur og hlýr en ég vorkenni honum þegar ljósmyndararnir elta okkur. Hann er svo kúl náungi," sagði Mischa í viðtali við breska OK! tímaritið. Meðfylgjandi myndir voru teknar af parinu á tískuvikunni í Mílanó. 18.10.2010 12:15
Tobba komin á heilsuhælið í Hveragerði „Ég er í rauninni að fylgja ákveðinni hefð sem hefur skapast í kringum mín skrif en þegar ég vann hinar tvær bækurnar mínar dvaldi ég á tímabili á heilsuhælinu í Hveragerði,“ segir Þorbjörg Marinósdóttir, kynningarfulltrúi og rithöfundur, en hún er þessa dagana í eins konar fríi og vinnuferð í Hveragerði. 18.10.2010 07:30