Fleiri fréttir

Jodie hjálpar Mel Gibson

Jodie Foster hyggst ekki yfirgefa sinn gamla vin, Mel Gibson, líkt og flestar Hollywood-stjörnur hafa gert. Jodie og Gibson leika saman í The Beaver sem enn hefur ekki verið frumsýnd en Jodie segir í samtali við tímaritið More að þetta sé ein kraftmesta og áhrifamesta frammistaða Gibsons í langan tíma.

Einfaldari útgáfa af Jónsa í Höllinni

„Sviðsmyndin hefur verið einfölduð aðeins en það er bara af praktískum ástæðum. Hún var náttúrulega svolítið stór og þung í umfangi sem er ekki þægilegt þegar menn eru að ferðast um heiminn,“ segir Kári Sturluson tónleikahaldari. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær ætlar Jónsi að ljúka heimstónleikaferð sinni hér á Íslandi 29. desember næstkomandi í Laugardalshöll.

Paris náði fram dómsátt

Paris Hilton mætti fyrir dómara í Las Vegas og játaði að hafa haft í fórum sínum nokkur grömm af kókaíni. Paris fékk skilorðsbundinn dóm í ár og var gert að sinna samfélagsskyldu. Samkvæmt Radar-Online.com hefur Paris þegar haft samband við lækninn sinn og óskað eftir að komast í samtalsmeðferð hjá honum.

Strengir úti í mýri

Tónleikaröðin „Klassík í Vatnsmýrinni“ hefur göngu sína í Norræna húsinu í kvöld þegar þær Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Elísabet Waage hörpuleikari leika verk eftir Louis Spohr, Jórunni Viðar og Béla Bartók. Auk þess frumflytja þær nýtt verk eftir Þuríði Jónsdóttur.

Hjálmar verður Einar blaðamaður

„Ég reikna með Hjálmari í hlutverkið,“ segir Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri. Hann er að fara af stað með Tíma nornarinnar, fjögurra þátta sjónvarpsseríu sem byggir á samnefndri sögu Árna Þórarinssonar. Hjálmar, sem Friðrik minnist á, er Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næstbesta-flokksins í Kópavogi. Hjálmar hefur reyndar leikið þetta hlutverk áður, var Einar blaðamaður þegar Útvarpsleikhúsið flutti leikritið fyrir rúmu ári. Friðrik, sem var nýkominn af æfingu þegar Fréttablaðið náði tali af honum, reiknaði með að fara í tökur í lok þessa mánaðar eða byrjun þess næsta. „Þetta verður páskasprengjan á RÚV.“

Arte mætir á RIFF

Fransk/þýska menningarsjónvarpsstöðin Arte, sem milljónir manna víðs vegar um Evrópu horfa á, ætlar að gera þátt um Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst á fimmtudaginn. „Þetta er rosalega góð auglýsing fyrir Reykjavík og hátíðina,“ segir Hrönn Marinósdóttir hjá RIFF. Marc Wolfenberger, sem er leikstjóri myndarinnar Oil Rocks – City sem verður sýnd á hátíðinni, tekur upp þáttinn fyrir Arte ásamt íslenska tökumanninum Jóni Björgvinssyni en báðir starfa þeir hjá stöðinni.

Plantar fræjum í fjölda erlendra heimildarmynda

„Það eru forréttindi að fá að taka þátt í þessari miklu vakningarbylgju um stöðu upplýsingafrelsis,“ segir þingkonan Birgitta Jónsdóttir. Hún kemur fram í nýrri heimildarmynd sem bandaríska kvikmyndagerðarkonan Judith Ehrlich er með í undirbúningi. Ehrlich er annar af leikstjórum heimildarmyndarinnar The Most Dangerous Man In America sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrr á árinu og verður sýnd á Riff-kvikmyndahátíðinni í Reykjavík.

Valdataka húmorsins

Húmor og samfélagsleg áhrif hans verða í brennidepli á málþingi í Hafnarborg á laugardag. Að sögn Kristins Schram þjóðfræðings getur húmor leikið lykilhlutverk í valdabaráttu og stjórnmálum, eins og uppgangur Besta flokksins sýni.

Sér eftir að hafa hlegið í nektarsenu

Robbie Williams viðurkennir að hann móðgaði áströlsku söngkonuna Kylie Minogue með því að hlæja að henni þegar hún afklæddi sig fyrir framan hann.

Hefur fyrir því að vera góð mamma

Leikkonan Katherine Heigl, 31 árs, segir að eiginmaður hennar, Josh Kelley, hafi myndað tengsl við ættleidda dóttur þeirra, sem er 20 mánaða gömul, á undan henni. Katherina segist hafa tekið þá ákvörðun að hætta að leika í sjónvarpsseríunni Grey’s Anatomy því hún vildi eyða meiri tíma með dóttur þeirra, Naleigh. Fyrsta sem Naleigh sagði var Dada. Hún kallaði síðan alla Dada eftir það," sagði Katherine í viðtalii við InStyle tímaritið. Katherine ákvað eftir að hún eignaðist Naleigh að vinna aðeins þrjá mánuði á ári til að geta verið meira heima með barninu. Naleigh lærði fljótlega að orðin mamma og koss væri náskyld. Þegar hún sagði mamma setti hún stút á munninn og gerði kossahljóð," sagði Katherine. Ég fékk gríðarlega mikið samviskubit yfir því að ég fór frá henni og byrjaði að vinna aftur en á sama tíma elska ég það sem ég geri. Ég þarf virkilega að hafa fyrir því að verða góð mamma. Ég viðurkenni það alveg."

Áherslubreyting eftir að hún varð mamma

Söngkonan Gwen Stefani segir að það sé þess virði að bíða eftir nýrri plötu hljómsveitarinnar No Doubt. Hljómsveitin gaf síðast út plötu árið 2001 en síðan þá hefur Gwen unnið að sólóferli og hannað fatnað sem ber yfirskriftina L.A.M.B..

Hætt að fela nýja kærastann

Breska leikkonan Kate Winslet, 34 ára, hefur nú loksins látið sjá sig á opinberum vettvangi með nýja kærastanum Louis Dowler. Katie skildi við leikstjórann Sam Mendes, 45 ára, fyrr á þessu ári og núna er hún ástfangin upp fyrir haus, að sögn vina hennar, af fyrirsætunni Louis, sem er einnig 34 ára. Louis og Kate hafa lagt sig fram við að halda sambandinu fjarri fjölmiðlum en í gærkvöldi á kvikmyndahátíði sem fram fór á Spáni leiddist parið og lét vel að hvort öðru. Kate geislaði af ánægju að sögn viðstaddra klædd í glæsilegan síðkjól sem var eins og sérsniðinn á hana. Kate var gift Sam í sjö ár og saman eiga þau 6 ára gamlan son, Joe. Katie eignaðist Miu, 9 ára, með fyrsta eiginmanni sínum, Jim Threapleton.

Ein af útvöldum á A-lista Calvin Klein

Leikkonan Katie Holmes, sem varð heimsþekkt fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Dawson Creek, er í dag ein áhrifamesta kona heims þegar kemur að tísku. Hún er segist vera yfir sig hrifin af einfaldleikanum sem einkennir fatnað frá Calvin Klein. Katie og yfirhönnuður kvennalínu Calvin Klien, Francisco Costa, eru mikilir vinir en þau kynntust áður en hún féll fyrir eiginmanni sínum, leikaranum Tom Cruise. Ég elska Calvin Klein og mig langar í allt sem þeir eru með fyrir næsta ár. Ég er sérstakleag hrifin af einfaldleikanum. Litirnir eru mér líka að skapi," sagði leikkonan. Katie er á svokölluðum A-lista af stjörnum sem býðst að sitja á fremsta bekk á Calcin Klein sýningunum. Þá má einnig nefna Julianne Moore, Kerry Washington og Isabel Lucas.

Sonur Beckham hjóna hannar gleraugnalínu

David og Victoria Beckham styðja son sinn, Romeo sem er 8 ára, og ákvörðun hans, sem er að hanna eigin sólgleraugnalínu fyrir krakka á hans aldri.

Heidi Klum er besti vinur minn

Tónlistarmaðurinn Seal, 47 ára, segir að hjónaband hans og þýsku ofurfyrirsætunnar Heidi Klum sé frábært af því að þau eru bestu vinir. Seal giftist henni í Mexíkó árið 2005 og í dag ala þau upp fjögur börn saman. Hann segist aldrei hafa verið eins ástfanginn af eiginkonu sinni og núna. Heidi og Seal hafa þann háttinn á að þau endurnýja hjúskaparheitin á hverju ári með fjölskyldu og vinum. Seal segir áríðandi að deila með Heidi hvernig honum líður og hvaða tilfinningar hann ber til hennar. „Ég er gftur og ástfanginn af besta vini mínuml. Við tökumst á við allt í lífinu saman. Við göngum í gegnum sömu vandamál og önnur pör gera en við erum bæði meðvituð um hvað við erum heppin að eiga hvort annað," sagði Seal.

Útgáfutónleikar Rökkurró í kvöld

Til að fagna útgáfu plötunnar Í annan heim heldur hljómsveitin Rökkurró tónleika í Iðnó í kvöld, og verður platan þar leikin i heild sinni.

Púsluðu saman nýrri plötu

Hljómsveitin Amiina gefur út sína aðra plötu, Puzzle, á miðvikudag. Tveir karlkyns meðlimir hafa gengið til liðs við þessa fyrrum stúlknasveit.

Lokatónleikar Jónsa í Höllinni

Tónlistarmaðurinn Jón Þór Birgisson, eða Jónsi úr Sigur Rós, lýkur heimstónleikaferðalagi sínu á Íslandi í Laugardalshöllinni 29. desember. Í byrjun apríl gaf Jónsi út sína fyrstu sólóplötu, Go, sem hefur hlotið lof gagnrýnenda um allan heim. Í kjölfar útgáfu plötunnar lagði Jónsi af stað í metnaðarfulla tónleikaferð um heiminn sem stendur enn yfir. Áður en Jónsi stígur á svið í Laugardalshöllinni mun hann ásamt hljómsveit hafa spilað á einum 99 tónleikum í Norður-Ameríku, Evrópu, Ástralíu og Asíu, þar á meðal tónlistarhátíðunum Coachella, Summer Sonic, Öya, Pukkelpop, Electric Picnic og Bestival.

Áhugi frá bandarískri útgáfu

Hiphop-hljómsveitin Original Melody er í viðræðum við lítið bandarískt útgáfufyrirtæki, Hartke Records, um að það kynni og dreifi nýjustu plötu hennar, Back & Forth, sem kemur út 1. október.

Taka við berstrípuðu leikhúsi

Nýverið var greint frá því að Hafnarfjarðarbær hefði samið við Gaflaraleikhúsið um rekstur leikhúss að Strandgötu 50 í Hafnarfirði sem áður hýsti Hafnarfjarðarleikhúsið. Björk Jakobsdóttir, Gunnar Helgason, Lárus Vilhjálmsson, Gunnar Björn Guðmundsson og Ágústa Skúladóttir koma að Gaflaraleikhúsinu en reiknað er með því að nýja leikhúsið verði opnað um mánaðamótin október-nóvember.

Calvin Klein vill íslenskan strák í auglýsingaherferð

„Við erum að leita að flottum strákum fyrir næstu tískusýningu hönnuðarins Calvins Klein í New York. Sá sem verður valinn kemst á samning hjá okkur og á svo einnig möguleika á því að komast á samning hjá hönnuðinum sjálfum og verða andlit næstu auglýsingaherferðar fyrirtækisins. Þannig að við erum að leita að næstu karlfyrirsætu Calvins Klein,“ segir Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri Elite-umboðsskrifstofunnar á Íslandi.

Miðar fyrir milljón

Ingólfur Þórarinsson, best þekktur sem Ingó Veðurguð, er einn vinsælasti dægurlagasöngvari landsins um þessar mundir. Hljómsveitin hans, Ingó og Veðurguðirnir, troðfylla hvern tónleikastaðinn á fætur öðrum úti á landi og Ingó sjálfur leikur á kassagítar fyrir fullum Óliver á hverjum fimmtudegi. Ekki má heldur gleyma því að Ingólfur leikur með meistaraflokki Selfoss í Pepsí-deildinni og hefur staðið sig með ágætum þótt liðið hafi fallið úr deildinni á sunnudag. Nýjasta rósin í hnappagatið er hins vegar metsala á söngleikinn Buddy Holly þar sem Ingólfur leikur aðalhlutverkið en þrjú þúsund miðar hafa selst síðan forsalan hófst en það ætti að skila nokkrum milljónum í kassann. - fgg

Fengu loks sigurlaunin í Popppunkti

„Það er svona þegar verðlaunin eru ekki prentuð á pappír og afhent strax. Þá vill þetta oft fara á flakk milli skrifborða en við erum búnir að leysa þetta núna,“ segir Felix Bergsson, spyrill í Popppunkti. Síðasti þáttur sumarsins í spurningakeppni tónlistarmanna var á laugardaginn þegar Skriðjöklar og Lights on the Highway öttu kappi í úrslitum. Lights on the Highway fór með sigur af hólmi. Athygli vakti þegar Guðmundur Svafarsson, liðsmaður Ljótu hálfvitanna, mætti til að krýna arftaka sína að þá lét hann þau orð falla að sigurvegararnir ættu ekki að vera of glaðir; það hefði reynst þrautin þyngri að innheimta vinningana frá því á síðasta ári.

Vinsælli en Aniston

Leikkonan Blake Lively, 23 ára, vildi ólm líkjast leikkonunni Jennifer Aniston. Hún vildi alveg eins hár og Jennifer. Blake, sem fer með hlutverk Serenu í sjónvarpsþáttunum Gossip Girl, er fyrirmynd óteljandi stúlkna um heim allan og nú biðja þær um Blake-klippingu á hárgreiðslustofunum í stað þess að vilja vera eins og Jennifer Aniston. Ég man þegar ég var krakki vilid ég vera með eins hár og Jennifer," sagði Blake. Þetta er náttúrulega alveg ótrúlegt! Ég las einhversstaðar að nú væri hárið á mér vinsælla á stofunum en hárið á Jennifer. Það er vissulega ánægjulegt en skrýtið," sagði Blake.

Súpermódelin standa saman

Þýska ofurfyrirsætan Claudia Schiffer hefur upplifað vægast sagt skrýtna hluti í gegnum tíðina. Eitt sinn var undirfötunum hennar stolið af aðdáanda. Claudia sem var á hátindi ferils síns fyrir tuttugu árum ásamt vinkonum sínumí módelbransanum, Helenu Christensen, Cindy Crawford og Naomi Campbell.

Búin að fá nóg af tali um vaxtarlag

Ástralska ofurfyrirsætan Elle Macpherson, 47 ára, er búin að fá sig fullsadda á umræðunni um vaxtarlag kvennanna sem eru í módelbransanum. Elle, sem er dómari í sjónvarpsseríunni Britain’s Next Top Model, hefur verið upptekin við að velja konur sem vilja mæta í þáttinn og keppa um að verða fyrirsætur. Spurð út í vaxtarlag kvennanna sem virðast allar vera nákvæmlega eins og þá í grennra lagi svaraði Elle: Ó guð ég er svo þreytt á að tala um þetta endalaust! Veistu hvað ég hef séð allar útgáfur af konum í þessum bransa. Allt frá Raquel Welch til Kate Moss og hver ein og einast er fallegar það skiptir engu hvernig þær eru í vextinum."

Múm og 101-elítan í Kraká

Hljómsveitin múm spilaði á einni stærstu tónlistarhátíð Póllands, Sacrum Profanum, í Kraká um síðustu helgi ásamt hópi íslenskra tónlistarmanna. Þrjú þúsund manns voru í salnum og voru tónleikarnir teknir upp. Þeir þóttu heppnast mjög vel enda verða þeir gefnir út á mynddiski á næsta ári.

Leynifélagið á skjáinn

„Við erum ekki að sjónvarpsvæða útvarpsþáttinn Leynifélagið en við verðum sömu karakterar og í útvarpinu,“ segir Kristín Eva Þórhallsdóttir. Hún og Brynhildur Björnsdóttir hafa um árabil stjórnað barna-og unglingaþættinum Leynifélagið á Rás 1 við miklar vinsældir. Og nú munu þær stjórna morgunsjónvarpi barnanna á laugardagsmorgnum milli átta og tíu. „Þa

Leitar örvæntingarfull að ástinni

Kelly Osbourne, sem hætti með unnustanum, fyrirsætunni Luke Worrall, í júlí síðastliðnum, finnst eins og hún sé að breytast í Bridget Jones, sem Renée Zellweger lék eftirminnilega í samnefndum kvikmyndum, því hún er ófullnægð og leitar örvæntingafull að hinni einu sönnu ást. Kelly heldur því fram að Luke hélt framhjá henni og nú sé hún opin fyrir því að kynnast karlmönnum. „Þegar ég horfi á Bridget Jones þá átta ég mig á því að ég er í raun og veru hún!" skrifaði Kelly á Twitter síðuna sína.

Móðgaði ritstjórann

Ný bók Tims Gunn, sem gerði garðinn frægan í sjónvarpsþáttunum Project Runway, hefur reitt Önnu Wintour, ritstjóra bandaríska Vogue, til reiði. Í bókinni segir Gunn frá því þegar hann sá lífverði Wintour bera hana niður tröppur eftir eina tískusýninguna. Samkvæmt Gunn varð Wintour ævareið vegna ummæla hans en hann segist þó ekki kvíða því að hitta hana aftur á næstunni.

Æðislegar áheyrnarprufur

Áheyrnarprufur fyrir nýjasta myndband Haffa Haff voru haldnar á Austur á dögunum. Óskað var eftir myndarlegum körlum í prufurnar og þeir létu sig ekki vanta.

Stór plötusnúðakeppni haldin

Plötusnúðakeppni verður haldin á Nasa laugardaginn 25. september. Þar verður keppt í tveimur aldurshópum, fyrir 12 til 20 ára og 20 til 40 ára. „Okkur finnst senan hérna á Íslandi vera svo lokuð. Við viljum fá að sjá hvað krakkarnir eru að gera í kjallaranum heima hjá sér,“ segir Andrés Bertelsen, sem skipuleggur keppnina ásamt Pétri Kristófer Oddssyni.

Ráðleggur fólki að hætta að kaupa föt

Breski fatahönnuðurinn Vivienne Westwood ráðleggur aðdáendum sínum að hætta að versla föt næstu sex mánuði. „Ekki kaupa föt í hálft ár. Endurnýtið fötin ykkar", sagði Vivienne í viðtali á Sky sjónvarpsstöðinni. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Vivienne ráðleggur fólki að endurnýta fötin sín. Hún leggur ríka áherslu á að umhverfið sé mikilvægara en að eltast við nýjustu tísku. „Veljið vandlega hvað þið eyðið peningunum ykkar í og kaupið minna af fötum," sagði hún jafnframt.

Íþróttamenn léleg fjárfesting

Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian og fyrrverandi kærasti hennar, Miles Austin, hættu saman af því þau höfðu hvorug tíma til að rækta sambandið. Kim byrjaði með íþróttakappanum Miles Austin fyrr á þessu ári stuttu eftir að hún hætti með öðrum íþróttamanni, Reggie Bush. Nú hefur Kim bundið enda á sambandið við Miles því þau eru bæði of upptekin til að láta það ganga upp. „Þau slitu sambandinu í síðustu viku," sagði heimildarmaður sem er náinn vinur Kim. „Þau tóku ákvörðunina í sameiningu. Ástæðan var of lítill tími og þéttskipuð dagskrá hjá þeim báðum. Hún ætti að ná sér í viðskiptajöfur því íþróttamenn eru ekki góð langtímafjárfesting fyrir konu eins og Kim," sagði vinur hennar.

Leikur Freddie Mercury

Leikarinn Sascha Baron Cohen hefur tekið að sér að leika söngvarann Freddie Mercury í nýrri mynd sem fer í tökur eftir áramót. Freddie Mercury. sem var söngvari hljómsveitarinnar Queen lifði dramatísku lífi en hann dó úr Aids árið 1991. Cohen er hvað þekktastur fyrir að leika í karakterana Borat og Bruno og eru framleiðendur myndarinnar fullvissir um að hann fara að kostum sem söngvarinn heimsfrægi.

María Sigrún Hilmarsdóttir: Þetta er einstakur maður

Fréttakonan María Sigrún Hilmarsdóttir er um þessar mundir að vinna að heimildarmynd um hinn landskunna göngugarp Reyni Pétur Ingvarsson, en aldarfjórðungur er liðinn frá því að hann gekk svo eftirminnilega hringinn í kring um landið.

Draumur að spila með Parade

Rokksveitin Who Knew er á leiðinni í tónleikaferð um Þýskaland og Sviss til að fylgja eftir sinni fyrstu plötu, Bits and Pieces of a Major Spectacle, sem kom út í vor.

Kominn með nýja kærustu

Leikarinn Liam Neeson er kominn með nýja kærustu, átján mánuðum eftir að eiginkona hans Natasha Richardson lést í skíðaslysi. Kærastan heitir Freya St. Johnston, starfar sem upplýsingafulltrúi og er tveggja barna móðir.

Giftur en elskar að daðra

Ástralski leikarinn Simon Baker elskar að daðra við mótleikkonur sínar en passar alltaf að fara ekki yfir strikið. Simon, sem fer með aðalhlutverkið í bandarísku sjónvarpsþáttaröðinni The Mentalis og lék eftirminnilegan daðrara í myndinni The Devil Wears Prada, nýtur þess að leika á móti kynþokkafullum leikkonum. Mér finnst gaman að daðra. Hverjum finnst leiðinlegt að daðra? Eiginkona mín daðrar líka. Svo lengi sem við förum hvorugt yfir strikið er það í fínu lagi," sagði Simon. Við erum að spá fyrir heppnum lesendum Lífsins núna! Hér á Facecook.

Dauðfegin að vera hætt að djamma

Breska söngkonan Lily Allen segist fegin að hún sé hætt að drekka vegna þess að hún hafi áttað sig á því hversu leiðinleg hún væri drukkin. Lily, sem er 25 ára gömul, er ólétt af sínu fyrsta barni. Faðir barnsins er kærasti hennar, Sam Cooper.

Nýtur þess að kvelja leikarana sína

Leikstjórinn magnaði, Danny Boyle, nýtur þess að kvelja leikara sína þegar hann leikstýrir þeim. Þannig rak hann hjartaknúsarann James Franco í 50 daga útilegu ásamt myndatökumanni.

Myndar á ótrúlegum stöðum

Franski kvikmyndagerðamaðurinn Vincent Moon hefur vakið mikla athygli fyrir tónlistarmyndbönd sín. En Moon þessi myndar þekktar sveitir á meðan þær leika tónlist sína á óhefðbundnum stöðum líkt og almenningssalernum eða götuhornum og nefnist verkefnið Take-Away Shows.

Íhugaði alvarlega að fá sér ný brjóst

Leikkonan Julianne Moore, 49 ára, íhugaði alvarlega að láta stækka á sér brjóstin en óttaðist aðgerðina, hætti við og tókin brjóstin á sér í sátt. Julianne er óhrædd að tala gegn lýtaaðgerðum en viðurkennir að hún hafði lengi vel velt því fyrir sér hvort hún ætti að fara í brjóstastækkun. Ég er mannleg eins og aðrir. Ég pældi lengi í því hvort ég ætti að láta stækka á mér brjóstin en síðan ákvað ég að gera það ekki því brjóstastækkurnaraðgerð er risastór og hættuleg," sagði Julianne. Svo skil ég ekki af hverju fólk lætur setja bótox í andlitið á sér. Það lætur fólk alls ekki líta betur út. Það lítur skringilega út eftir að efninu er sprautað í það. Eigum við ekki frekar að sætta okkur við útlit okkar og hver við erum í raun og veru?"

Erfiða tímabilið hjá Jóni Gnarr: ógnaði Frímanni með haglabyssu

„Þátturinn með Jóni er tekinn upp í janúar 2009, löngu áður en hugmyndin að Besta flokknum er farin að gera vart við sig. Jón hefur sjálfur sagt að þetta hafi verið mjög erfiður tími í hans lífi og þetta er eiginlega týndi mánuðurinn hans Jóns,“ segir Gunnar Hansson leikari.

Söng fyrir páfann

Söngkonan Susan Boyle uppfyllti sinn æðsta draum þegar hún söng fyrir sjálfan Benedikt páfa síðastliðinn fimmtudag en hann er í opinberri heimsókn í Bretlandi þessa dagana. Boyle er strangtrúaður kaþólikki og varð svo um þegar hún fékk að vita að hún hefði verið valin til að syngja fyrir sjálfann

Sjá næstu 50 fréttir