Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nicole Richie ekki á leið í steininn strax Réttarhöldum yfir raunveruleikaþáttastjörnunni Nicole Richie fyrir að keyra undir áhrifum var í gær frestað til 11. júlí. Richie var handtekin þar sem hún keyrði á röngum vegarhelmingi á hraðbraut í Los Angeles. Lögregla sagði að hún hefði viðurkennt að vera undir áhrifum kannabisefna og verkjalyfsins vicodin. 20.6.2007 11:26
Sólstöðuganga í Hrísey Sólstöðuganga verður farin í Hrísey annað kvöld, fimmtudagskvöldið 21. júní klukkan 20.00. Ferðin er á vegum minjasafnsins á Akureyri. Þorsteinn Þorsteinsson leiðir gönguna og mun segja frá Hrísey fyrr og nú. Allir eru velkomnir í gönguna sem er ókeypis. 20.6.2007 10:51
Visir býður á Die Hard 4.0 í London Berglind Anna er á leiðinni á rauða dregilinn í London að hitta stjörnurnar úr stórmyndinni Die Hard 4.0 á heimsfrumsýningu myndarinnar í dag, miðvikudag. Þar mun hún vera í félagsskap með frægðarfólki eins og Bruce Willis, Timothy Olyphant, Justin Long, Maggie Q, Kevin Smith og fleirum. 20.6.2007 10:50
Ferðamenn fara úr hvalaskoðun í hvalkjötsát „Þeir koma hér til mín og gleypa þetta í sig alveg hreint," segir Kjartan Halldórsson sem rekur veitingastaðinn Sægreifann við Reykjavíkurhöfn. Hann segir það daglegt brauð að erlendir ferðamenn komi til hans að smakka hvalkjöt eftir að hafa farið í hvalaskoðun. „Þeir fara út að skoða hvalina og svo blæs hvalurinn framan í þá og þá koma þeir gráðugir til mín að borða," segir sægreifinn og hlær. 20.6.2007 10:00
Kvæðakonan Camilla á blogginu Steinunn Camilla úr stúlknasveitinni Nylon hefur opnað bloggsíðuna manzana.blog.is sem væri ef til vill ekki til frásögur færandi nema þar sýnir söngkonan hæfileika sína með kveðskap og ljóðagerð. „Ég hef nú skrifað ljóð síðan að ég var níu ára,“ segir Steinunn sem tók bloggið í sína þjónustu í síðustu viku. 20.6.2007 09:30
Fóstran með kærasta Daisy Wright, barnfóstran sem leikarinn Jude Law hélt framhjá með er hann var enn með Siennu Miller, er byrjuð með Maxi Jazz, söngvara Faithless. Wright, sem er 28 ára, og Maxi, sem er nýorðinn fimmtugur, sáust láta vel hvort að öðru á Wireless-hátíðinni sem var haldin í Bretlandi um síðustu helgi. 20.6.2007 07:00
Tiger Woods fjölgar mannkyninu Síðustu misseri hafa verið erfið fyrir Tiger Woods. Hann missti pabba sinn, Earl Woods, á síðasta ári en þeir voru mjög nánir vinir. Þrátt fyrir tap á US-Open um helgina gafst Woods tækifæri til að fagna sínum stærsta sigri á mánudeginum. 20.6.2007 07:00
VR skoðar mál FL Media „Við reiknum með því að fá reikningana frá Rottweiler í dag og þá munum við fara yfir málin,“ segir Ómar Vilhelmsson, framkvæmdarstjóri Flass.net. Fréttablaðið hefur að undanförnu fjallað um meintar vanefndir viðburðarfyrirtækisins FL Media hvað launamál varðar í kjölfar þess að rapphljómsveitin XXX Rottweiler setti upp heimasíðuna oskaraxelskuldarpening.blogspot.com. 20.6.2007 06:30
Konur yfirsnyrtar? Snyrtifræðingur með yfir 20 ára starfsreynslu segir það færast mjög í aukana að konur fari í svokallað Brasilískt vax. Hún segir að staðan sé að breytast þannig að konur treysti sér varla í almenningssturtur lengur nema vel snyrtar. 19.6.2007 20:04
Velgengni Vesturports Leikhópurinn Vesturport hefur slegið í gegn í leikhúsum í Bretlandi eins og hér á landi og ekki má gleyma kvikmyndunum Foreldrar og Börn. Hópurinn undirbýr nú kvikmynd sem byggist á leikritinu Brim en þangað til það gerist heldur vöxturinn í Bretlandi áfram. 19.6.2007 20:02
Át sautján metra af brenninetlu Ellefta heimsmeistarakeppnin í brenninetluáti fór fram í enska smáþorpinu Marshwood á laugardaginn. Keppnin er haldin laugardag fyrir sumarsólstöður ár hvert, og dró í ár að sér keppendur alla leið frá Ástralíu og Rússlandi. 19.6.2007 15:05
Stefnir í drullubað á Glastonbury Gangi spár eftir verður rigning á Glastonbury hátíðinni í ár. ,,Vikan verður vætusöm, svo þetta verður sami drullupytturinn og venjulega" sagði veðurfræðingurinn Stewart Wortley við BBC. Upphafsmaður hátíðarinnar, Michael Eavis mun opna hlið landareignar sinnar í Somerset fyrir hátíðargestum á miðvikudag en hátíðin sjálf stendur frá föstudegi til sunnudags. 19.6.2007 12:20
Þriðja barn Juliu Roberts kemur í heiminn Julia Roberts eignaðist þriðja barn sitt og eiginmannsins Danny Moder í Los Angeles í gær. Barnið, 15 marka drengur, fær nafnið Henry Daniel. Talsmaður fjölskyldunnar sagði að móður og barni heilsaðist vel. 19.6.2007 10:49
Enginn lítill K-Fed á leiðinni Shar Jackson, fyrrverandi kærasta og barnsmóðir Kevin Federline er æf yfir sögusögnum um að hún gangi með þriðja barn þeirra skötuhjúa.Hún hyggst nú kæra Star tímaritið sem sagði fyrst frá hinni meintu þungun og vitnaði í vini Jackson sögunni til stuðnings. 19.6.2007 10:00
Fyrrverandi starfsmenn Flass.net íhuga lögsókn „Þeir skulda mér 350 þúsund krónur með dráttarvöxtum," segir Carmen Jóhannesdóttir fyrrverandi viðburðastjóri hjá FL Media, sem á og rekur útvarpsstöðina og viðburðafyrirtækið Flass.net. 19.6.2007 10:00
Hreiðurgerð í þvottahúsi Maríuerlur hafa hreiðrað um sig í þvottahúsi einu í Norðlingaholti og búa sig nú undir að koma fjórum ungum á legg. Evu Dögg Sigurgeirsdóttur brá í brún þegar hún sá þessa leynigesti sem höfðu komið sér vel fyrir á meðan hún var í burtu. 19.6.2007 09:30
Motion Boys hitar upp fyrir The Rapture Íslenska rafpoppsveitin Motion Boys mun hita upp á hljómleikum danspönkararanna The Rapture á NASA við Austurvöll þann 26. júní. Motion Boys hafa vakið mikla athygli undanfarið, ekki síst í krafti lagsins „Hold me closer to your heart". Sveitin hefur aðeins sent frá sér tvö lög til þessa (hið fyrra, „Waiting to happen" naut einnig mikillar hylli fyrr í vetur), en gagnrýnendur, poppspekingar og tónlistarunnendur bíða fyrstu breiðskífu þeirra af mikilli eftirvæntingu. 19.6.2007 09:20
Spiluðu golf á toppi Eyrarfjalls „Þetta voru klárlega þær öfgafyllstu og dramatískustu aðstæður sem ég hef spilað við,“ segir kylfingurinn Gunnlaugur Jónasson sem tók þátt í skemmtilegri tilraun sem nokkrir golfáhugamenn gerðu á toppi Eyrarfjalls á Vestfjörðum í vikunni. 19.6.2007 09:15
Bærinn málaður bleikur Kvenréttindadagurinn er í dag og að því tilefni munu konur fagna um allt land enda var það á þessum degi árið 1915 sem konur fengu kosningarétt. Þeir sem styðja jafnrétti eru hvattir til að sýna stuðning í verki með því að gera eitthvað bleikt í dag. Hvort sem það er að klæðast einhverju bleiku, flagga einhverju bleiku eða jafnvel borða eitthvað bleikt. 19.6.2007 09:00
Bæjarstjórafrú býður bakkelsi Kaffi Edinborg er nýtt kaffihús sem opnaði á Ísafirði fyrir um tveimur vikum. Það er Helga Vala Helgadóttir bæjarstjórafrú á Bolungarvík sem hefur tekið við rekstri þess og segir viðtökurnar hafa farið fram úr öllum hennar væntingum. 19.6.2007 08:00
Paul Potts ætlar í tannréttingar fyrir sigurlaunin Símasölumaðurinn Paul Potts frá Wales bar sigur úr býtum í Britain"s got talent raunveruleikaþættinum í Bretlandi sem lauk á sunnudagskvöldið. Hinn 36 ára gamli Potts sló í gegn með flutningi sínum á Nessun Dorma fyrr í þáttaröðinni sem hann síðan endurflutti í sjálfum lokaþættinum. 19.6.2007 06:45
Oprah er valdamesta stjarnan Spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey er valdamesta manneskjan í skemmtanaiðnaðinum samkvæmt bandaríska fjármálatímaritinu Forbes. 19.6.2007 04:00
Pilluglas Presley selt Pilluglas sem kóngurinn sjálfur Elvis Presley notaði seldist á tæpar 164 þúsund krónur í Bandaríkjunum. Gullhúðuð byssa sem var einnig í eigu Presleys seldist jafnframt á 1,8 milljónir króna. 19.6.2007 03:00
Bjartari dagar barnshafandi fíkils Fylgst hefur verið með sögu Evu Rutar Bragadóttur undanfarna daga í Íslandi í dag. Eva er eiturlyfjafíkill sem komst að því fyrir fjórum vikum að hún bæri barn undir belti og hætti því neyslu, komin 20 vikur á leið. 18.6.2007 20:23
Frjósamir Síberíutígrar 84 síberíutígrisunga hafa fæðst á ræktunarstöð í norðaustur-Kína síðan í mars. Síberíutígrar eru ein sjaldgæfasta dýrategund í heimi. Liu Dan, starfsmaður Hengdaohezi rækunarstöðvarinnar sagði við Xinhua fréttastöðina að ungunum heilsaðist vel. Hann bætti við að þrettán kvendýr til viðbótar væru ungafullar og að þær myndu eiga á bilinu 20-30 unga fyrir október. 18.6.2007 14:48
Magnaður dráttur Flestum finnst okkur mikið til þess koma að sjá kraftajötna draga flutningabíl. Jaja Stone frá Jakarta í Indónesíu þykir það líklega ekki, því hér sést hann draga trukk - með typpinu. Stone sýndi svo ekki varð um villst að hann hefði kraft í kögglum, þegar hann dró tæplega níu tonna þungan trukkinn 50 metra með limnum. 18.6.2007 13:16
Bumban á Nicole Richie næst á mynd Vangaveltur slúðurblaðanna um meinta óléttu ofurmjónunnar Nicole Richie hafa nú fengið byr undir báða vængi. Nýjustu myndirnar af ofurmjónunni Richie sýna það sem virðist vera nokkuð áberandi kúla undir þunnum bómullarkjól. 18.6.2007 11:56
Pilluglas kóngsins á 160 þúsund Þrátt fyrir að þrjátíu ár séu liðin frá því að Elvis Presley lést á hann sér enn dygga aðdáendur. Glas utan af lyfseðilsskyldum ofnæmispillum kóngsins var selt á ríflega 160 þúsund krónur á Julien sumaruppboðinu í Bevery Hills á laugardaginn. 18.6.2007 10:17
Hinn íslenski Moe Breiðholtið býður nú upp á nýjan bar sem ber kunnuglegt nafn eða Moe‘s bar. Aðdáendur Simpsons þáttanna ættu að kannast við nafnið en barinn í Simpsons heitir einmitt Moe‘s. Hinn íslenski Moe Breiðholtsins heitir Hjalti Ragnarsson og tók nýverið við rekstri barsins. 18.6.2007 02:00
Henson flengdi hommana Strákafélagið Styrmir, fyrsta samkynhneigða knattspyrnufélagið á Íslandi, beið lægri hlut fyrir Henson í fyrsta opinbera leik sínum hér á landi á miðvikudag. Lokatölur urðu 9-1 en þrátt fyrir stórt tap skemmtu leikmenn Styrmis sér konunglega, bæði innan vallar og utan. Myndirnar tala sínu máli. 18.6.2007 01:45
Mömmur mega loks taka þátt í Ungfrú Spánn Stjórn fegurðarsamkeppninnar Ungfrú Spánn hefur tekið út ákvæði í reglum keppninnar sem kveður svo á að mæðrum sé óheimilt að taka þátt. 17.6.2007 16:27
Hasselhoff hafði betur í réttarsalnum Strandvörðurinn David Hasselhoff endurheimti á dögunum forræði yfir dætrum sínum eftir langa og stranga forsjárdeilu við fyrrum eiginkonu sína. David og kona hans fyrrum Pamela Bach höfðu áður deilt forræði yfir táningsstúlkum þeirra Hayley og Taylor-Ann. 17.6.2007 15:11
Íslenskir veitingastaðir of dýrir býður upp á allt of dýra veitingastaði að mati bandarísks blaðamanns sem ferðaðist nýlega um landið. Jonathan Finer skrifaði um reynslu sína á vefsíðu Miami Herald og sagði Reykjavík bjóða upp á þá dýrustu veitingastaði sem hann hefði nokkurn tíma séð. Viðmiðin voru borgir sem hann hafði nýlega heimsótt eins og Hong Kong, Tokyo, Dubai, New York og London. 17.6.2007 02:15
Með fullt hús af brúðum „Ég hefði orðið að flytja út fyrir rest. Núna kemst ég fyrir heima hjá mér,“ segir Helga Ingólfsdóttir, þroskaþjálfari sem gaf nýlega Byggðasafninu í Reykjanesbæ brúðusafnið sitt. Helga átti orðið tæplega tvö hundruð brúður þannig að þetta er vegleg gjöf til safnsins. 17.6.2007 02:00
Alþjóðahúsið fékk hjálp úr óvæntri átt „Við höfum verið að bíða eftir iðnaðarmönnum í nokkurn tíma en þarna fengum við 20 menn sem allir eru þaulvanir. Það munar um minna,“ segir Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahússins, en í fyrradag fengu menn þar á bæ góða hjálp við hin ýmsu iðnaðarstörf frá bandarískum og þýskum viðhaldsmönnum. Viðhaldsmennirnir eru hluti af áhöfn varðskipa sem nú liggja við Reykjavíkurhöfn og vildu þeir endilega láta gott af sér leiða á meðan þeir væru í heimsókn á Íslandi. 17.6.2007 01:30
Símasölumaður og sex ára stúlka vekja heimsathygli Paul Potts, 36 ára gamall símasölumaður frá Wales, og hinn 6 ára gamla Connie Talbot frá Englandi, gerðu Simon Cowell orðlausan með frammistöðu sinni í breskum raunveruleikaþætti í vikunni. 17.6.2007 01:00
Dóra er aðstoðarkona fjallkonunnar Gullsmiðurinn Dóra Jónsdóttir hefur undanfarin ár séð um að klæða íslensku fjallkonuna í þjóðbúninginn fyrir ræðu hennar á Austurvelli á 17. júní. 17.6.2007 00:30
Rod Steward gengur aftur í það heilaga Rokksöngvarinn og Íslandsvinurinn Rod Steward gekk í það heilaga í dag með fyrirsætunni Penny Lancaster. Brúðkaupið fór fram á sveitasetri við Ligurianströnd á Ítalíu en Rod og Penny hafa verið par frá árinu 1998. Athöfnin var látlaus en auk brúðhjónanna voru aðeins foreldrar brúðarinnar viðstaddir. 16.6.2007 15:58
Syngur fyrir Kínverja Helga Dýrfinna Magnúsdóttir, 23 ára gömul Kópavogsmær, tekur þátt í Miss Tourism í ár. Keppnin fer fram í Kína og leggur Helga uppí langferðina í byrjun júlí. 16.6.2007 03:00
Allsber skúringakarl með milljón á mánuði? Hvað gerir þú ef að nekt og heimilisstörf eru í uppáhaldi hjá þér? Þú getur farið að fordæmi Mark Lothian, þá hættirðu í starfi sem gefur 400 þúsund af sér mánaðarlega og gerist ræstitæknir. Nakinn ræstitæknir. 15.6.2007 16:48
Osama strítt 16 ára fyrirmyndarnemandi við Tottenville framhaldsskólann á Staten Island segist hafa verið lagður í einelti af kennurum sínum í tvö ár fyrir nafnið sitt. Hann var orðinn svo þunglyndur að hann reyndi sjálfsvíg. Drengurinn heitir Osama Al-Najjar, og deilir þar með fornafni með hryðjuverkamanninum fræga. 15.6.2007 16:37
Mæður mega keppa í fegurð Fegurðarsamkeppnin Ungrú Spánn hefur breytt reglum sínum á þann hátt að nú leyfist mæðrum að taka þátt. Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að Ungfrú Cantabria, Angela Bustillo, var svipt titlinum þegar upp komst að hún ætti lítinn son. 15.6.2007 16:00
Er Katie Holmes einhleyp? Eru brestir í sambandi ofurparsins Tom Cruise og Katie Holmes? Þessari mynd náði Tmz af dömunni í labbitúr á tökustað nýrrar myndar sinnar, ,,Mad Money" Græni hringurinn er tákn einhleypra, og hefur fjöldi stjarna eins og Naomi Campbell, Juliett Lewis og Bachelorstjarnan Jen Schefft sést með hann á hægri hendi. 15.6.2007 15:33
Fóðraði slöngu á hvolpi Maður sem að húðaði þriggja vikna gamlan hvolp í matarolíu og gaf Boa slöngunni sinni að borða var í gær dæmdur í 90 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. 15.6.2007 14:37
Ert þú á leið til Írak? Fyrir þá sem hyggja á sumarleyfi í Afghanistan, Írak, eða Súdan ættu að næla sér í eintak af ferðahandbók Roberts Young Pelton - ,,The worlds most dangerous places" Í staðinn fyrir að útskýra hvaða hótel býr yfir huggulegusta sundlaugargarðinum, eða hvar besti sjávarréttaveitingastaðurinn sé, kennir bókin manni nauðsynlega hluti, eins og hvað á að gera sé manni rænt, og hvernig á að höndla jarðsprengjur og minniháttar hryðjuverkaárásir. 15.6.2007 13:44
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning