Fleiri fréttir

Eli er David Hasselhoff Íslands

Hryllingsmyndaleikstjórinn Eli Roth var í viðtali við spjallþáttakónginn Conan O‘Brian á mánudaginn í New York og var spjallið undirlagt af umræðum um Ísland.

Síðustu orð Lennons

Yoko Ono, ekkja Bítilsins Johns Lennon, hefur greint frá því hver síðustu orð hans voru áður en hann var skotinn til bana af Mark Chapman fyrir utan heimili sitt í New York árið 1980. Yoko Ono var við hlið eiginmanns síns þegar hann var myrtur en hún hefur aldrei fyrr tjáð sig um hvað þeim fór á milli áður en hann varð fyrir skotinu.

Ætlar að toppa Elton

"Ég vona bara að sextugspartíið verði ennþá betra," segir Ólafur Ólafsson í Samskipum sem er einn umsvifamesti viðskiptajöfur landsins. Eins og kunnugt er bauð hann Elton John til landsins í janúar þegar hann varð fimmtugur.

Vill breyta nafninu svo Guð þekki sig

Rúmenskur maður, sem tók eftirnafn kjörforeldra sinna þegar hann var ættleiddur vill gamla nafnið sitt aftur svo Guð þekki hann þegar hann deyr. Ég vil fá upprunalega nafnið mitt, Scarlat Pascal, aftur" sagði maðurinn, sem er 78 ára og heitir nú Scarlat Lila.

Féll á prófi í þrítugasta og áttunda sinn

73ja ára indverskur bóndi, sem hafði heitið því að giftast ekki fyrr en hann útskrifaðist úr grunnskóla, féll á prófunum í þrítugasta og áttunda sinn á dögunum.

Teiknimynd um Paris Hilton í vinnslu

Teiknimyndagoðsögnin Stan Lee, sem meðal annars á heiðurinn af Spiderman, Hulk og X-men, er að vinna að teiknimyndaseríu með Paris Hilton í aðalhlutverki. Skrifstofa hans staðfestir þetta í samtali við slúðurdálkahöfundinn Gatecrasher. Ekki hefur verið ákveðið hvenær þáttaröðin verður frumsýnd.

Lýtalæknir heimsótti Hilton

Paris Hilton fékk lýtalækninn sinn í heimsókn daginn sem hún var í stofufangelsi. Maður sem sást koma út af heimili Hilton þann áttunda júní síðastliðinn staðfesti við ljósmyndara X17 tímaritsins að hann væri læknir hennar.

Ólöglegt að ganga með buxurnar á hælunum

Bæjarstjóri í Louisiana sagði í dag að hann muni skrifa undir tillögu bæjarstjórnar um að banna að ganga með buxurnar of neðarlega. Til þess að ná því fram gerir tillagan það ólöglegt að láta sjást í nærbuxur.

Veðjað á ölvunarakstur

Slúðurfíklar geta eiga nú möguleika á því að græða á öllum þeim óþörfu upplýsingum sem þeir hafa viðað að sér um fræga fólkið. Á bodog.com er hægt að veðja um hvaða stjarna verður næst tekin full undir stýri. Lilly Allen er þykir líklegust til þess enda eru hlutföllinn ekki nema 4/1 sem þýðir að fyrir hverja krónu sem veðjað er fær maður fjórar til baka ef maður vinnur.

Rektor hélt að um æfingu væri að ræða

Margir áhorfendur kvöldfrétta RÚV í fyrrakvöld ráku upp stór augu þegar þeir urðu vitni að afar undarlegri hegðun Kristínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands, í beinu sjónvarpsviðtali.

Ljónakjöt er hættulega gott

„Ljónakjöt er hættulega gott, það kom mér mjög á óvart,“ segir veiðimaðurinn Páll Reynisson, sem hefur opnað nýjan sýningar­sal í Veiðisafninu á Stokkseyri með uppstoppuðum ljónum, sebrahestum og hreintörfum. „Ég hef borðað antilópur, gíraffa og seli og ísbirni. Ég hef borðað bæði mjög góðan og mjög vondan ísbjörn, það fer eftir því hvernig hann er matreiddur.“

Kalt og hvasst á toppnum

Nýjar og glæsilegar íbúðir verða afhentar í haust í Skuggahverfinu við Vatnsstíg en það er 101 Skuggahverfi sem byggir þær. Nýlega var opnað fyrir tilboð í 2. áfanga og þar vekur athygli að toppíbúðin við Vatnsstíg 16 er talin kosta litlar 220 milljónir. Íbúðin er á tveimur á hæðum, er rúmir 310 fermetrar á tveimur hæðum, með þakgarð og er í ríflega 54 metra hæð. Og hinn heppni íbúi verður ekki svikinn af útsýninu sem nær eins langt og augað eygir.

Kevin Spacey orðinn leiður á Hollywood

Hollywoodleikarinn Kevin Spacey er orðinn þreyttur á því að leika í kvikmyndum. Í samtali við London Tonight sagði hann að hann nyti sín vel sem listrænn leikstjóri í Gamla Viktoríuleikhúsinu í Lundúnum. Hann hefur starfað þar síðan 2003.

Britney í bleikum nærbuxum

Á meðan Kevin Federline hleður niður börnum þá flassar Britney Spears ljósmyndara í gríð og erg. Fyrr í vikunni birtust myndir af henni með annað brjóstið danglandi út úr kjólnum og stuttu síðar veifaði hún rassinum framan í paparassana.

Engin Bermúdaskál hjá Sarkozy, hann er bindindismaður

Belgíski fréttamaðurinn sem gaf í skyn að Nicolas Sarkozy hefði verið drukkinn á G8 fundinum hefur nú beðist afsökunar á ummælunum. Eric Boever sagði í inngangi að Sarkozy hefði greinilega drukkið annað en bara vatn og sýndi svo bút af fundinum.

Vinir Jen hafa áhyggjur af nýja kærastanum

Nýji gæjinn hennar Jennifer Aniston er enginn Brad Pitt. Að minnsta kosti finnst vinum leikkonunnar það ekki, ein þeir hafa áhyggjur af því að Paul Sculfor sé ekki allur þar sem hann er séður.

K-Fed pabbi í fimmta sinn

Kevin Federline er að verða pabbi aftur.Shar Jackson, sem K-Fed yfirgaf kasólétta að öðru barni þeirra fyrir Britney Spears, er gengin sjö vikur með þriðja barn þeirra skötuhjúa. Federline náði að barna Spears tvisvar á þeim tveimur árum sem þau voru gift. Jackson segir í samtali við Star tímaritið að hún voni að barnið verði til þess að sameina fjölskylduna á ný.

Umboðsskrifstofan losar sig við Paris Hilton

Það á ekki af Paris Hilton að ganga. Michael Donkis, talsmaður ,,The Endeavor" umboðsskrifstofunnar sagði að þeir hefðu losað sig við stjörnuna, en vildi ekki tjá sig frekar um málið.

Dóttir O.J. Simpson mætir fyrir rétt

Dóttur O.J. Simpson, hefur verið gert að mæta fyrir rétt. Fjölskylda Ron Goldmans, sem var myrtur ásamt fyrrum eiginkonu Simpson, reynir nú að fá öllum eintökum af bókinni "If I did it" eytt. Í þeirri bók lýsir Simpson því hvernig hann hefði borið sig að ef hann hefði myrt fyrrum eiginkonu sína og Goldman. Dóttir Simpsons er sögð vera yfirmaður fyrirtækisins sem á réttinn að bókinni.

Scorsese með Laxness á náttborðinu

Bíófrömuðurinn Árni Samúelsson í Sambíóum var viðstaddur sérstaka frumsýningu heimildarmyndarinnar Shine a Light eftir Martin Scorsese í New York á mánudagskvöldinu. Þar fylgir leikstjórinn goðsagnakenndi rokkgoðunum í Rolling Stones eftir en allar helstu stórstjörnur Hollywood voru viðstaddar.

Paris fékk kvíðaköst

Nokkrir fjölmiðlar í Bandaríkjunum birtu í gær fréttir þess efnis að Paris Hilton þjáist af athyglisbrest, sem valdi heiftarlegum kvíðaköstum og þess vegna hafi henni verið veitt leyfi til að yfirgefa fangelsið eftir aðeins þriggja daga dvöl í síðustu viku. Sem kunnugt er var henni komið aftur fyrir á bak við lás og slá aðeins fá­einum klukkustundum síðar. Í millitíðinni mun hún hins vegar hafa fengið rétta meðferð við meininu, sem veldur því að hún unir sér nú ágætlega innan fangelsismúranna.

Rassskellingum sýndur áhugi

Eva Hauksdóttir í Nornabúðinni birti smáauglýsingu í Fréttablaðinu á föstudaginn sem vakti mikla athygli. Þar auglýsti hún eftir stæðilegum mönnum til að rassskella samráðsmenn olíufélaganna og gátu áhugasamir sent henni póst á eva@nornabudin.is. Eva hafði fengið mikil viðbrögð við auglýsingunni þegar Fréttablaðið náði tali af henni í veðurblíðunni en viðurkenndi að fáum hefði verið alvara.

Fjölrammungar Hugleiks

Bókin Ókei bæ! lítur helst út eins og vinaleg barnabók en þegar betur er að gáð er hér á ferðinni nýjasta sagnasafn Hugleiks Dagssonar. Bókin er í stærra broti en fyrri bækur höfundarins en sögurnar eru einnig flestar lengri en þó er um sama sagnastíl Hugleiks að ræða sem flestir hljóta nú að kannast við.

Fastagestir ekki kátir

Heilsuræktarkóngurinn Björn Leifsson á í viðræðum við Reykjavíkurborg um hugsanlegan möguleika þess að byggja líkamsræktarstöð og 25 metra laug við Vesturbæjarlaugina.

Til heiðurs Patró

Hljómsveitin Þorpararnir hefur gefið út sína fyrstu plötu sem nefnist Þorpið: Ólíkir molar úr sömu skál. Meðlimir sveitarinnar eru brottfluttir Patreksfirðingar og vilja þeir með plötunni heiðra bernskubyggð sína. Þrír þeirra búa á höfuðborgarsvæðinu og þrír til viðbótar á Akureyri.

Ólíkleg sviksemi ömmu

Ólánsamur ungur maður var nýlega handtekinn í Þýskalandi fyrir að reyna að versla með fölsuðum seðli. Í frétt vefútgáfu dagblaðsins Der Spiegel kemur fram að pilturinn hafi orðið hvumsa því seðillinn var kominn frá ömmu stráksa sem sendi honum hann í tilefni þess að hann kláraði vorprófin.

Erfitt fyrir Bruce Willis

Leikarinn Bruce Willis segir að mikið hafi reynt á sig við gerð hasarmyndarinnar Die Hard 4.0. „Fyrir ári síðan þegar við byrjuðum að taka upp myndina var áhættuþátturinn mjög hár. Það eru miklar líkur á mistökum við gerð myndar eins og þessarar en þetta fór allt á besta veg,“ sagði Willis sem er 52 ára.

Hommarnir hefja leik í kvöld

„Það er komin mikil tilhlökkun í hópinn. Það verður gott að geta spilað reglulega til að undirbúa sig sem best fyrir HM í haust,“ segir Hafsteinn Þórólfsson, leikmaður og talsmaður Strákafélagsins Styrmis, sem nánast eingöngu er skipað samkynhneigðum leikmönnum.

Lífvörður Lohan sagði upp af öryggisástæðum

Fyrrverandi lífvörður Lindsay Lohan hefur nú tekið það að sér að upplýsa heiminn um það nákvæmlega hversu langt leidd stjarnan unga var áður en hún fór í meðferð. Lífvörðurinn, hinn 48 ára Lee Weaver vann fyrir Lohan í tvö ár segist hafa hætt vegna þess að starfið væri of hættulegt.

Bobby Brown óttast Osama

Söngvarinn geðþekki, Bobby Brown, óttast um líf sitt eftir að hann komst að því að Osama Bin Laden vildi myrða hann og giftast Whitney Houston. Skötuhjúin Brown og Houston eru reyndar skilin eftir 17 ára stormasamt samband, en söngvarinn er enn sannfærður um að Bin Laden vilji sig feigan.

Amy Winehouse lemur manninn sinn

Sálarsöngkonan drykkfellda Amy Winehouse verður ofbeldishneigð við of mikla áfengisneyslu og ræðst oft á splunkunýjan eiginmann sinn Blake Fielder-Civil. Söngkonan viðurkennir að hún verði oft árásargjörn og segist nota nýja manninn sem boxpúða.

George Michael langar í demantahauskúpu

George Michael og kærastinn hans, Kenny Gross eru að spá í að kaupa sex milljarða hauskúpu eftir listamanninn Damien Hirst. Verkið, sem nefnist ,,For the Love Of God" er afsteypa úr platínu af hauskúpu frá átjándu öld.

Eltingarleikur við Vatnabuffalóa endar í árekstri

Skoski stjörnukokkurinn Gordon Ramsey var á dögunum staddur á vatnabuffalóabúgarði í Skotlandi þar sem hann hugðist búa til mozzarellaost úr buffalóamjólk. Atriðið átti að vera hluti af sjónvarpsþætti Ramseys á Channel 4 ,,The F-word"

Scorsese les Laxness og langar til Íslands

Sérstök frumsýning á heimildarmynd Martin Scorseses ,,Shine A Light" um Rolling Stones var haldin í New York í gær. Árni Samúelsson forstjóri Sambíóanna var viðstaddur og náði tali af leikstjóranum í eftir sýninguna.

Síðasti þáttur Sopranos sýndur í Bandaríkjunum

,,Hvað kemur fyrir Tony" var spurningin sem brann á áhorfendum þegar síðasti þáttur sjónvarpsþáttaseríunnar vinsælu var sýndur í Bandaríkjunum á sunnudagskvöldið. Eftir átta ár, 86 þætti, og ótal barsmíðar og morð hefur mafíuforinginn og sósíópatinn Tony Soprano öðlast sérstakan sess í hjörtum áhorfenda. ,,Persónan hefur dýpt sem er sjaldséð í mafíuforingjum, svo okkur langar að vita hvað kemur fyrir hann, alveg eins og okkur langar að vita hvað kemur fyrir Ralph frænda." sagði handritshöfundurinn Paul Chicklet við BBC.

Eddie Murphy skikkaður í faðernispróf

Eddy Murphy þarf í dag að mæta fyrir rétt og gefa DNA sýni til að skera úr um hvort hann er faðir barns kryddpíunnar Mel B. Murphy hefur staðfastlega neitað því að vera faðir barnsins, hinnar tveggja mánaða gömlu Angel, og ekki viljað taka faðernispróf til að sanna mál sitt.

Madeleine Svíaprinsessa 25 ára í dag

Madeleine Svíaprinsessa verður 25 ára í dag. Prinsessan fagnar afmælinu í faðmi fjölskyldunnar í Drottningsholms höllinni í Stokkhólmi. Samkvæmt hefð verður boðið upp á heimabakaða jarðarberjaköku og Viktoría prinsessa syngur fyrir systur sína. Búist er við að samkvæmið verði rólegt, en prinsessan, sem hefur verið uppnefnd ,,partýprinsessan" hefur samkvæmt heimildum expressen.se skipulagt risaveislu í lok sumars. Hana heldur hún með bestu vinkonu sinni, sem líka er 25 ára og hafa þær boðið vel völdum hópi fyrirmenna í ,,50" ára afmæli sitt.

Quentin Tarantino leikur í Sukiyaki-vestra

Spagettívestrar eru alþekkir, en Sukiyaki - eftir þjóðarrétti japana - vestrar kannski minna. Quentin Tarantino ætlar að vera með í að breyta því , en hann leikur í japanski endurgerð af spagettívestraklassíkinni Django frá 1966.

Sjá næstu 50 fréttir