Fleiri
Er Britney orðin Gyðingur ? 1.2.2007 10:12 Martröð golfarans Tævanskur golfari missti minnið eftir að hitta holu í höggi á golfvelli í Taiwan. Wang sem er fimmtugur var í golfi með vinum sínum í borginni Xinzu þegar þetta gerðist. Vinur Wangs sem var með honum sagði að boltinn hefði flogið og fallið beint ofan í holuna, sem er venjuleg þriggja para hola. Wang var fyrst yfir sig glaður, en þegar vinir hans náðu í boltann og komu til að óska honum til hamingju, fundu þeir hann muldrandi upp á hól: "Af hverju er ég hérna?" 1.2.2007 07:38 Ekki slæmt að vera vinsælust "Það er ekki slæmt að vera vinsælust. Takk kærlega fyrir að kjósa mig það. Takk," sagði tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Lay Low, við afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna í Borgarleikhúsinu í gærkvöld. 1.2.2007 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Tíska fyrir fyrirsætur Fræga fólkið má fara að vara sig. Fyrirsætunni skapmiklu Naomi Campbell finnst leik- og söngkonur vera farnar að troða fyrirsætum um tær og er ekki ánægð með þróunina. Hún segir þær vilja troða sér inn í heim fyrirsætanna og stela af þeim forsíðum tímarita, sem þær eigi ekkert með. 5.2.2007 05:00
Trippaskinn í tísku Eftirspurn eftir sútuðu skinni til skrauts fer vaxandi hér á landi. Sjálfstætt starfandi sútarar eru aftur á móti fáir á Íslandi, reyndar aðeins tveir titlaðir sem slíkir í símaskránni. Fréttablaðið sló á þráðinn til Karls Bjarnason sútara norður á Sauðárkróki. 5.2.2007 03:00
Tom og Katie á tjúttinu Leikarahjónin Tom Cruise og Katie Holms sáust úti á lífinu síðasta laugardagskvöld í Super Bowl partýi á South Beach, Miami. Fjöldinn allur af stórtjörnum var þar saman kominn og skemmti sér í boði Ocean Drive tímaritsins og MarketAmerica.com. Margir frægir tónlistarmenn tóku lagið en þar á meðal voru Fergie úr Black Eyed Peas og Marc Anthony, góðvinur hjónanna, sem tók nokkur lög. Kona hans, Jennifer Lopez, steig líka á svið og tók lagið með honum. 4.2.2007 22:00
Morissette og Reynolds slíta trúlofun Þau eru ekki langlíf ástarsamböndin í Hollywood. Söngkonan Alanis Morissette og leikarinn Ryan Reynolds hafa slitið trúlofun sinni. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem þau hætta saman en þau tilkynntu áður um skilnað í júní síðastliðnum. 4.2.2007 21:00
Beyonce nísk á aurana Beyonce Knowels, ein hæst launaðasta söng- og leikkona skemmtanaiðnaðarins, heldur vel utan um aurana sína. Beyonce leikur í kvikmyndinni Dreamgirls sem frumsýnd var hér á landi síðastliðinn fimmtudag. Samfara kynningu á myndinni ætlar hún að koma nýrri plötu sinni, B-Day, á framfæri í Los Angeles. 4.2.2007 20:00
Kylie Minogue og Olivier Martinez skilin Ástralska söngkonan Kylie Minogue og franski leikarinn Olivier Martinez hafa slitið samvistum eftir fjögurra ára samband. Hefur Olivier staðfest þetta við fjölmiðla. Kylie, sem er 38 ára, greindist með brjóstakrabbamein árið 2005 en hún hefur sagt Olivier hafa staðið sem klett sér við hlið meðan á meðferð stóð. 4.2.2007 18:30
Britney verðmerkt Söngdívan fallandi, Britney Spears, lét sig ekki vanta á tískuvikuna í New York um helgina. Britney var sérstakur gestur hönnuðarins Kimoru Lee Simmons, á sýningu Baby Phat. Var Britney íklædd svörtum kjól en það var ekki kjóllinn sem vakti mesta athygli. 4.2.2007 17:01
Vill helming eigna Tomi Rae Hynie, ekkja James Brown, hefur höfðað mál þar sem hún óskar eftir helmingi eigna sálargoðsagnarinnar. 4.2.2007 16:00
Skilnaður opinber Skilnaður kynbombunnar Pamelu Anderson og söngvarans Kid Rock er genginn í gegn. Pamela og Kid Rock, sem heitir réttu nafni Robert Ritchie, sóttu um skilnaðinn í nóvember í fyrra eftir aðeins fjögurra mánaða hjónaband. 4.2.2007 15:00
Óvíst hvort Washington haldi áfram Framtíð Isaiah Washington í þættinum Gray‘s Anatomy er enn óráðin eftir að hann kallaði mótleikara sinn T.R. Knight „hommatitt“ í tvígang. Leikarinn reynir nú hvað hann getur til að komast aftur í náðina hjá framleiðendum þáttanna og hefur leitað sér hjálpar. 4.2.2007 14:30
Ómar gleymdi engum koltvísýringi “Það sem ég hafði um mengunina að segja var klippt út úr Kastljósinu,” segir Ómar Ragnarsson hugsjónamaður með meiru. Fréttablaðið greindi nýverið frá því að verulega umdeildar eru hugmyndir Ómars, sem hann boðaði í Kastljósinu í vikunni, um endurreisn rúntsins gamla sem ganga út á að gera umferð sem kennd er við rúntinn, niður Laugaveg og um Austurstræti, að tvístefnu. 4.2.2007 14:00
Lohan fælir fíklana frá Lindsay Lohan er ekki vinsæl meðal annarra íbúa á Wonderland meðferðarheimilinu þar sem hún hefur dvalist að undanförnu. Leikkonan skráði sig sjálf inn á meðferðarheimilið 17. janúar síðastliðinn, þar sem henni fannst tími til kominn að takast á við drykkjuvandamál sín. 4.2.2007 13:00
Kronika ekki sama og Kronikan Nemendur og kennarar eru ekki sáttir við að nýtt vikurit hafi fengið sama nafn og skólablaðið þeirra. 4.2.2007 12:30
Greiddi 150 þúsund krónur fyrir kaffistofuútvarp „Það er mikið óréttlæti í þessari gjaldtöku og ég mun grípa til aðgerða. Hvað það verður skal hins vegar ósagt látið,“ segir Einar Hallgrímsson, verslunareigandi í Vestmannaeyjum. Dómur féll nýverið í héraðsdómi Suðurlands þar sem Einari var gert að greiða hundrað og fimmtíu þúsund krónur í málskostnað vegna máls sem STEF höfðaði á hendur honum vegna ógreiddra krafa. 4.2.2007 12:00
Finnur fyrir kaldri hönd dauðans „Ég hef vitað af þessu í dágóðan tíma, þannig þetta kemur ekkert aftan að mér, segir Þorsteinn Guðmundsson leikari, spaugari og rithöfundur sem fagnar fertugasafmæli í dag. 4.2.2007 11:30
Fékk hjálp frá pabba Garðar Thór Cortes söng á heljarinnar kynningarfundi á Il Bottaccio í London á fimmtudagskvöld. Til stóð að kynningin yrði haldin um miðjan janúar en var frestað sökum veikinda stórtenórsins. 4.2.2007 11:00
Eignaðist tvíbura Leikarinn Patrick Dempsey og eiginkona hans Jillian Dempsey hafa eignast tvíbura. Fæddust þeir síðastliðinn fimmtudag í Los Angeles og hafa fengið nöfnin Darby Galen og Sullivan Patrick. 4.2.2007 10:30
CoBrA-málari gefur Danski málarinn Carl-Henning Pedersen, sem var einn þeirra sem tóku virkan þátt í CoBrA-hreyfingunni, gaf í vikunni fjörutíu verk til Listasafns danska ríkisins. Verkin er frá löngu tímabili, síðari hluta sjötta áratugarins til þess níunda. Carl-Henning er fjörgamall, fæddur 1913. 4.2.2007 10:00
Löng nótt framundan hjá mörgum „Við ætlum að hittast nokkrir á Players og horfa á leikinn,“ segir Brynjar Freyr Halldórsson, einn fárra Íslendinga sem hefur tekið ástfóstri við bandaríska fótboltann en í nótt verður hinn árlegi Super Bowl eða Ofur Skál. Um er að ræða stærsta íþróttaviðburðinn þar vestra en að þessu sinni eigast við Chicago Bears og Indianapolis Colts í Miami. Billy Joel syngur þjóðsönginn og sjálfur Prince spilar í hálfleik. 4.2.2007 09:00
Sienna svaf hjá Hayden Sögusagnir um að Sienna Miller og Hayden Christensen hafi notið ásta fyrir framan myndavélarnar í myndinni „Factory Girl“ virðast vera sannar. Dagblaðið New York Daily News sagði frá þessu á vefsíðu sinni í dag. 2.2.2007 17:43
París er best í bólinu Joe Francis heitir maður sem hefur auðgast ótæplega á klámiðnaðinum vestur í Ameríku. Hann er nokkuð frægur í þeim bransa, og kannski frægastur fyrir að hafa verið í nánu sambandi við París Hilton á myndbandi sem hálfur heimurinn hefur líklega séð. Eftir því sem Joe segir sjálfur er París ekki eina frægðargellan sem hann hefur tekið til lagnaðar. Hún er þó sú langbesta. 2.2.2007 12:38
Sjónarsviptir að Bítinu Morgunþátturinn Ísland í bítið rann skeið sitt á enda í morgun með síðustu sjónvarpsútsendingu morgunhananna Sirrýar og Heimis. Þátturinn heldur áfram í útvarpi sem Í bítið á Bylgjunni, en tæplega 1400 þættir fóru í loftið á rúmum sjö árum á Stöð 2. Heimir Karlsson hefur verið annar stjórnanda Íslands í bítið í rúm þrjú ár, lengst allra þáttarstjórnanda. 2.2.2007 10:10
Stefnir í alvöru fangelsi Bandaríki leikarinn Lane Garrison á yfir höfði sér alvarlegar ákærur, eftir að lögreglan upplýsti að hann hefði bæði verið undir áhrifum eiturlyfja og áfengism, þegar hann ók Landrover jeppa sínum á tré í byrjun desember. Sautján ára piltur lét lífið í slysinu, en auk þess voru í jeppanum tvær fimmtán ára stúlkur, sem slösuðust mikið. 1.2.2007 11:00
Tyra fékk bónorð í beinni Fyrirsætan Tyra Banks er ýmsu vön, en það kom henni þó á óvart að fá bónorð í beinni sjónvarpsútsendingu. Og það frá ættarhöfðingja í Nígeríu. Tyra var í spjallþætti Larrys King og þau voru að tala um holdarfar stjörnunnar, sem hefur verið eitthvað til umræðu í fjölmiðlum vestra undanfarið. 1.2.2007 10:45
Martröð golfarans Tævanskur golfari missti minnið eftir að hitta holu í höggi á golfvelli í Taiwan. Wang sem er fimmtugur var í golfi með vinum sínum í borginni Xinzu þegar þetta gerðist. Vinur Wangs sem var með honum sagði að boltinn hefði flogið og fallið beint ofan í holuna, sem er venjuleg þriggja para hola. Wang var fyrst yfir sig glaður, en þegar vinir hans náðu í boltann og komu til að óska honum til hamingju, fundu þeir hann muldrandi upp á hól: "Af hverju er ég hérna?" 1.2.2007 07:38
Ekki slæmt að vera vinsælust "Það er ekki slæmt að vera vinsælust. Takk kærlega fyrir að kjósa mig það. Takk," sagði tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Lay Low, við afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna í Borgarleikhúsinu í gærkvöld. 1.2.2007 00:01