Fleiri fréttir

Frostrósir slá í gegn

Söngdívurnar sjö sem skipa Frostrósir falla landanum greinilega vel í geð því það eru einungis fimm hundruð miðar eftir á aukatónleika þeirra í Laugardagshöll sem fram fara 10. desember. Upphaflega var gert ráð fyrir að einungis yrði um eina tónleika að ræða en ásóknin var slík að brugðið var á það ráð að bæta við einum tónleikum sem verða fyrr um daginn.

Finnst Ísland frábært land

Raunveruleikaþátturinn ­Ástar­fleyið,­ sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni Sirkus, hefur varla farið fram hjá neinum. Einn þátttakendanna er hinn tvítugi Denis Grbic. Denis kom til Íslands sem flóttamaður árið 1996, þá ellefu ára gamall.

Aftur á svið

Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson verður sýnt bæði á Akureyri og í Reykjavík núna fyrir jólin Það er leikhópurinn Á senunni sem sýnir þessa margrómuðu jólaleiksýningu í Samkomuhúsinu á Akureyri og í Tjarnarbíói í Reykjavík nú fyrir jólin.

Svava opnar svala herrafataverslun

Fyrirtæki Svövu Johansen, NTC, sem rekur meðal annars verslanirnar Gallerí Sautján, Smash og Deres, opnaði um síðustu helgi glænýja herrafataverslun sem ber nafnið Kultur menn. Nýja verslunin er staðsett á Laugavegi 89 við hliðina á Galleri Sautján.

Malt og appelsínstúlkan

Þorgbjörg Erna Mímisdóttir er nafn sem fæstir kannast við. Þrátt fyrir það kannast flestir ef ekki allir landsmenn við hana í sjón, þar sem hún er litla stelpan sé lék svo eftirminnilega í auglýsingunum margfrægu um Egils malt og appelsín fyrir nokkrum árum síðan.

Yosoy

"Þetta getur alveg talist saga fyrir viðkvæma, þótt hún sé kannski ekki endilega fyrir ofurviðkvæma, nokkurs konar fágaður hryllingur," segir Guðrún Eva Minervudóttir um nýútkomna skáldsögu sína Yosoy.

Sjávarskart Herdísar

Herdís Egilsdóttir er sennilega þekktust fyrir skrif sín um ýmsar persónur eins og litla Pappírs Pésa og Skessuna í fjallinu. Hún á þó nóg annað í pokahorninu og hefur til dæmis verið að dunda sér við að hanna dásamlega flotta skartgripi sem hressa upp á hvaða flík sem er.

Syngur Brahms í hádeginu

Hólmfríður Jóhannesdóttir mezzósóran syngur ljóð eftir Johannes Brahms á hádegistónleikum í Listasafni Íslands í dag. Með henni leikur Gerrit Schuil á píanó. "Brahms er svolítið krefjandi og maður þarf að koma með djúpa túlkun til að syngja hann," segir Hólmfríður, sem ætlar að syngja bæði Sígaunaljóðin og fleiri ljóð eftir Brahms.

Roger Moore í miðbænum

Leikarinn sir Roger Moore leit inn á jólakortasölu UNICEF á Laugavegi 42 í gær. Kortasalan var ein fyrsta fjáröflun almennings sem UNICEF fór út í og er enn stór tekjulind samtakanna. Á Íslandi hafa kortin verið seld í nærri 50 ár en Félag íslenskra háskólakvenna hefur séð um söluna í sjálfboðavinnu.

Ilmurinn úr eldhúsinu...

Desember er tími ofgnóttar í mat, drykk, samveru og kærleika. Hvarvetna má skjóta sér inn úr kuldanum og setjast að veisluborði í veitingahúsum landsins. Hér gefur að líta sýnishorn af aðeins fáeinum valkostum þegar kemur að jólahlaðborðum þetta árið.

Faðirvor, móðirvor og jafnréttisbarátta karldýra

Í Dagbók Þráins Bertelssonar er að þessu sinni meðal annars fjallað um hengirúm, hátækni- og lágtæknisjúkrahús og fæðingu hugverka með keisaraskurði. Sagt er frá jafnréttisráðstefnu karlmanna og bænastund........

Endur í vegi framfara

Almenningsgarðar skipa jafnan stóran sess í öllum betri borgum og nægir að nefna Central Park í New York, Hyde Park í London og Frognerpark í Osló því til stuðnings. Með talsverðri víðsýni má kannski kalla Hljómskálagarðinn og Miklatún vísi að slíkum garði en lengra nær það ekki.

Svarti galdur

Svart er í tísku. Ekki bara svart heldur svart í svart. Lög af svörtu; svört föt, svartir skór, svartir skartgripir og aukahlutir. Í vetur er svart líka rómantískt. Efnin eru fljúgandi sjiffon, kósý kasmír, þvegið flauel, pelsar, glitrandi steinar og fallegar blúndur.

Búið að ganga eins og í sögu

Miðasala er hafin á útgáfutónleika Írafárs sem verða haldnir í Austurbæ á laugardag í tilefni útgáfu nýjustu plötu sveitarinnar. Írafár hefur verið í tónleikaferð um Ísland sem hefur gengið afar vel og hefur verið uppselt á nær alla tónleikana tíu. Allur ágóði af tónleikunum rennur til Einstakra barna, sem er stuðningsfélag fjölskyldna barna með sjaldgæfa og alvarlega sjúkdóma.

Sign spilar á SXSW -tónlistarhátíðinni í Texas

Hljómsveitinni Sign hefur verið boðið á SXSW-tónlistarhátíðina í Texas í Bandaríkjunum sem fer fram 15. - 19. mars á næsta ári. Hljómsveitirnar Ske, Ampop og Vinyl spiluðu á sömu hátíð á þessu ári. Sign ætlar að nota tækifærið og fara fyrst í tveggja vikna tónleikaferð um Bandaríkin.

Syngur í Narníu

Kanadíska söngkonan Alanis Morissette er á meðal þeirra listamanna sem eiga lög í stórmyndinni The Chronicles of Narnia: The Lion, the Witch and the Wardrope sem er væntanleg í bíó.

Þrír tenórar í veiðihug

Tenórarnir Gunnar Guð­björnsson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Snorri Wium bjóða upp á létta tónlistarveislu á morgun að hætti stjörnutenóranna þriggja. Þeir vonast til þess að geta með söng sínum laðað fleiri áheyrendur að gnægtabrunni klassískrar tónlistar.

Valdamest í Hollywood

Julia Roberts er valdamesta konan í Hollywood samkvæmt nýrri úttekt Hollywood Reporter. Þessu áorkar hún þrátt fyrir að hún hafi verið utan sviðsljóssins í nokkurn tíma vegna barnauppeldis. Hún er jafnframt eina leikkonan í Hollywood sem getur krafist 20 milljóna dollara fyrir hverja mynd.

Kvöldsögur úr Stóra eplinu

Jólamyndin Noel segir sögu fjögurra ólíkra persóna í stórborginni New York um það leyti sem jólahátíðin er að ganga í garð. Þeir sem þekkja til segja stórborgina engu líka þegar hátíð ljóss og friðar er í hámarki. Bókaútgefandanum Rose gengur allt í haginn í vinnunni en einkalífið er í molum.

Fólkið í kjallaranum og Karitas tilnefndar

Bækurnar Fólkið í kjallaranum eftir Auði Jónsdóttur og Karítas eftir Kristínu Marju Baldursdóttur eru tilefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2006 sem framlag Íslands. Þær eru í hópi tólf norrænna bóka sem fulltrúar norrænu landanna hafa tilnefnt til verðlaunanna.

Sögin snýr aftur

Hryllingsmyndir hafa á undanförnum árum verið ryðja sér til rúms á ný eftir að hafa legið í dvala um nokkurt skeið. Kvikmyndaverin höfðu gleymt því að hryllingsmyndir verða að vera hráar, ódýrar og helst illa leiknar svo þær dragi að sér ákafa fylgismenn þessarar kvikmyndargerðar.

Kenna hvernig á að syngja ljóð

Þeir Kristinn Sigmundsson söngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari halda námskeið í túlkun sönglaga dagana 6. til 9. desember í Salnum í Kópavogi. Gert er ráð fyrir allt að tíu virkum þátttakendum sem fá að njóta leiðsagnar þeirra Kristins og Jónasar í túlkun íslenskra sönglaga og þýskra ljóðasöngva.

Strax komnar í jólaskapið

Hundrað og sextíu konur ætla að syngja jólalög frá ýmsum heimshornum í Langholtskirkju í kvöld. Þar er á ferðinni kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur ásamt Ragnheiði Gröndal og valinkunnum hljóðfæraleikurum.

Rólegur og ferskur

Andrúmsloftið er blandað rólegum undirtón og snert af ferskleika sem maður verður var við um leið og gengið er inn. Litur veggjanna setur tóninn fyrir þá ímynd sem staðurinn býður upp á. Dökkfjólubláir veggirnir og dimm birtan ásamt kertum í tugatali gefur fyrirheit um rómantískar og afslappaðar stundir.

Hugmyndin kviknaði í Hogwart-skólanum

Í kvöld hefst nýtt jóladagatal á Stöð 2 sem ber heitið Galdrabókin. Leikstjóri þess er Inga Lísa Middleton og höfundur tónlistar er Margrét Örnólfsdóttir en gefinn verður út geisladiskur með tónlistinni. Þá verður auðvitað gefið út dagatal en það verður að borðspili þegar síðasti glugginn hefur verið opnaður 24.desember og ætti því að stytta yngstu kynslóðinni stundirnar þegar hún bíður eftir jólunum.

Orðabók veltir Arnaldi

Stóra orðabókin um íslenska málnotkun, eftir Jón Hilmar Jónsson, trónir nú á toppi aðallista sölubóka hjá Pennanum, Máli og menningu og Eymundsson og hefur þar með velt sjálfum Arnaldi Indriðasyni sem er kominn í annað sætið með Vetrarborgina. Arnaldur heldur hins vegar sínu á sölulista innbundinna skáldverka og er í fyrsta sætinu þar.

Boltabullur á Bretlandi

Fótboltabullur hafa sem betur fer ekki náð hingað til lands að einhverju marki. Þetta er hins vegar vandamál sem lengi hefur loðað við ensku knattspyrnuna en úrvalsdeildin hefur barist ötullega gagnvart þessum hópi sem enn eru þó með lífsmarki í neðri deildunum.

Þekkt gáfumenni meðal þátttakenda í Meistaranum

Á annan í jólum byrjar nýr spurningaþáttur á Stöð 2 sem ber heitið Meistarinn. Þar mun Logi Bergman Eiðsson leita logandi ljósi að "gáfaðasta" manni Íslands. Nýverið fóru fram próf á fjórum stöðum um land allt og tóku alls 250 manns þátt þar af 190 á stórhöfuðborgarsvæðinu.

Fagrar sellóperlur

"Þetta er ofboðslega falleg tónlist," segir Antonia Hevesi píanóleikaru um nokkrar sellóperlur sem Gunnar Kvaran ætlar að flytja ásamt henni á hádegistónleikum í Hafnarborg á morgun.

Filmuvélar hættar að seljast

Á tiltölulega skömmum tíma hafa stafrænar myndavélar náð yfirburðum á ljósmyndamarkaðnum á kostnað véla sem í þarf að þræða filmu. Sala á filmuvélum hefur svo að segja stöðvast. "Það er eiginlega engin sala í filmuvélum. Það eru kannski einstaka ferðamenn sem kaupa þær á sumrin," segir Ólafur Steinarssonar, framkvæmdastjóri Hans Petersen.

Beaujolais Nouveau 2005 komið í vínbúðir

Fyrsti söludagur á Beaujolais Nouveau í Frakklandi var í síðustu viku. Þá hófst kapphlaup um allan heim hjá söluaðilum til að koma víninu sem allra fyrst til vínunnenda.

Ekkert að hafa fyrir sálina

Þingeyri við Dýrafjörð kúrir værðarlega undir gráyrjóttu Sandafellinu, þegar við Sigurður Þór Salvarsson og Gunnar V. Andrésson ökum niður af Gemlufallsheiðinni milli Önundafjarðar og Dýrafjarðar. Það er því sem næst alskýjað; hæglætisveður og drungaleg skammdegisskíman endurkastast af sléttum haffletinum.

Sjá næstu 50 fréttir