Fleiri
Fréttamaður með skáldsögu 20.11.2005 11:00 Sirkus sækir fram Fjölmiðlafjölskyldan Sirkus ætlar að færa út kvíarnar á næstu dögum. Hún hefur hleypt af stokkunum heimasíðu á vefslóðinni Sirkus.tv þar sem notendur geta búið til sinn eigin Sirkus-heim. 20.11.2005 09:30 Kirkjan má ekki víkja sér undan ábyrgð 20.11.2005 08:00 Nylon tekur Rolling Stones lag Stelpurnar í Nylon fagna útkomu nýjustu afurðar sinnar, Góðir hlutir, í Loftkastalanum klukkan fjögur í dag. Sveitin hefur á rúmu ári eignast stóran aðdáendahóp og platan náði nýverið efsta sæti tónlistans og platan er uppseld hjá útgefanda. 19.11.2005 13:00 Keypti Ono textann? Orðrómur er uppi um að Yoko Ono, ekkja Bítilsins fyrrverandi Johns Lennon, hafi keypt handskrifaðan texta lagsins Give Peache a Chance á uppboði fyrir tæpar 27 milljónir króna. Textinn var skrifaður aftan á umslag á meðan John Lennon og Yoko Ono lágu saman uppi í rúmi í vikutíma á hótelinu Queen Elizabeth í Kanada árið 1969 til að mótmæla Víetnamstríðinu. Textinn hafði týnst en kom í leitirnar á uppboðinu. 19.11.2005 11:00 Roger Moore til landsins á vegum UNICEF Stórleikarinn Roger Moore kemur til Íslands þann 1. desember á vegum UNICEF. Hann er velgjörðarsendiherra Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Moore ætlar að vera viðstaddur undirskrift styrktarsamninga UNICEF á Íslandi við stórfyrirtæki, en þetta verður nánar tilkynnt 1. desember. 19.11.2005 10:23 15 þúsund manns á kvikmyndahátíð Alls sóttu 15.500 manns kvikmyndahátíðina Októberbíófest sem hófst 26. október. Hátíðin fékk mjög góðar viðtökur hjá áhorfendum, erlendum gestum og gagnrýnendum. 19.11.2005 10:00 Skröggur í íslenskri baðstofu Leikfélagið Hugleikur frumsýnir í kvöld Jólaævintýri Hugleiks. Um er að ræða leikgerð á Jólaævintýri Dickens sem er fyrir löngu orðið sígilt. Þetta er fyrsta íslenska leikgerðin á þessari sögu, sem hefur verið vinsælt viðfangsefni leikhússfólks síðan hún kom út árið 1843. Þetta er jafnframt viðamesta uppfærsla Hugleiks síðan söngleikurinn Kolrassa sló í gegn 2002. 19.11.2005 08:00 Alþjóðleg tónlistarkeppni Hin alþjóðlega tónlistarkeppni "The global battle of the bands" fer þessa dagana fram í Hellinum, tónleikasal Félags Tónlistarþróunarmiðstöðvar. 19.11.2005 06:00 Sjá næstu 50 fréttir
Aðeins fyrir karla fyrir utan Vigdísi "Við vonumst til þess að fylla salinn af körlum," segir Árni Magnússon félagsmálaráðherra, sem boðar til karlaráðstefnu um jafnréttismál í Salnum í Kópavogi á morgun. Einungis karlar fá að taka til máls á ráðstefnunni, með einni undantekningu þó því Vigdís Finnbogadóttir ávarpar ráðstefnuna og situr hana sem heiðursgestur og verndari. 30.11.2005 14:00
Útgáfutónleikar Megasukks í kvöld Útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Megasukk verða haldnir í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld klukkan 22.00. Tilefnið er útgáfa fyrstu plötu sveitarinnar, Hús datt. 30.11.2005 13:00
Friðriks Karlsson gítarleikari eftirsóttur í Bretlandi Friðrik Karlsson gítarleikari úr Messóforte lék inn á tvær vinsælustu plötur í Bretlandi síðustu vikuna. Það var með söngsveitunum Westlife og Il divo. 30.11.2005 08:58
Flottar Fordstelpur Síðasta laugardag kepptu fjórtán gullfallegar stúlkur í Fordkeppninni sem haldin var í Loftkastalanum. Keppnin hefur þótt vera stökkpallur ungra stúlkna inn í fyrirsætuheiminn enda hafa margar þeirra sem sigrað hafa á árum áður komist langt í bransanum. 30.11.2005 06:00
Damien Rice til Íslands Írski tónlistarmaðurinn Damien Rice hefur samþykkt að koma fram á tónleikum í Laugardalshöll 7. janúar til eflingar náttúruvernd á Íslandi. Með honum í för verður söngkonan Lisa Hannigan sem hefur sungið mikið með honum í gegnum árin. Áður höfðu stór nöfn á borð við Björk, Damon Albarn, Sigur Rós, Hjálma, Ham, Múm, Egó og Gostigital staðfest komu sína. Hópurinn kallar sig nú Hætta! 30.11.2005 05:00
Útgáfutónleikar Skítamórals Hljómsveitin Skítamórall heldur útgáfutónleika í Íslensku óperunni fimmtudaginn 1. desember í tilefni af útkomu plötunnar "Má ég sjá". Þetta er fyrsta plata Skítamórals í sex ár og hefur hún m.a. að geyma lögin Ástin dugir, Hvers vegna?, Má ég sjá og Hún, sem hefur notið mikilla vinsælda undanfarið. 29.11.2005 16:00
Tónleikar til eflingar náttúruvernd Miðasala á tónleika til eflingar náttúruvernd á Íslandi hefst á fimmtudag. Tónleikarnir verða haldnir í Laugardalshöll þann 7. janúar. Þar koma fram Björk, Damon Albarn, Sigur Rós, Hjálmar, Ham, Trabant, Magga Stína, Múm, Rass, KK, Zeena Parkins, Ghostigital og Egó, og einnig verða þar óvæntar uppákomur. 29.11.2005 15:00
Kraumar í Tilraunaeldhúsinu "Við erum svolítið að segja í þessari sýningu að list er skemmtileg. Hún er ekki flókin gáta til þess að leysa og maður á að finna til og finna fyrir henni," segir Kristín Björk Kristjánsdóttir, öðru nafni Kira Kira, sem nú hefur starfrækt Tilraunaeldhúsið í sjö ár ásamt félögum sínum Jóhanni Jóhannssyni og Hilmari Jenssyni. Þessar vikurnar stendur yfir sýning Tilraunaeldhússins í Nýlistasafninu. 29.11.2005 13:00
Feigðarflan í Grænu húsi Bókaforlagið Græna húsið heldur sína fyrstu útgáfuhátíð með pomp og prakt á Súfistanum í kvöld og verða þar þrjár fyrstu bækur forlagsins kynntar. "Það hefur verið draumur í nokkurn tíma hjá okkur hjónunum að stofna eigið forlag," segir Rúnar Helgi Vignisson, rithöfundur og annar eigandi Græna hússins. 29.11.2005 11:00
Hápunktur hátíðar Í kvöld er komið að hápunkti listahátíðarinnar Tónað inn í aðventuna, sem nú stendur yfir í Neskirkju í Vesturbæ Reykjavíkur. Á tónleikum kvöldsins, sem jafnframt eru þeir næst síðustu á dagskrá hátíðarinnar, flytja þeir Martin Frewer fiðluleikari, Steingrímur Þórhallsson organisti og Dean Ferrel kontrabassaleikari Rosenkranz-sónöturnar eftir H.I. Franz von Biber, tónskáld sem spókaði sig hér á jörðu á árunum 1644 til 1704. 29.11.2005 10:00
Mest aðsókn á Harry Potter Kvikmyndin Harry Potter og eldbikarinn var sú aðsóknarmesta í Bandaríkjunum um síðustu helgi, sem var þakkargjörðarhelgi þar í landi. Alls halaði myndin inn tæplega þrjá og hálfan milljarð en myndin Walk the Line, sem er byggð á ævi sveitasöngvarans Johnnys Cash, halaði inn rúmlega 1,2 milljarða. 29.11.2005 09:00
Kom aldrei hingað vegna Bond - myndarinnar Enski leikarinn sir Roger Moore er væntanlegur hingað til lands á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Verður leikarinn viðstaddur undirritun styrktarsamnings þriggja fyrirtækja sem vilja leggja sitt af mörkum til að bæta líf barna í þróunarlöndum. Ekki verður afhjúpað hvaða fyrirtæki er um að ræða fyrr en á fundinum en Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, sagði verkefnið vera eitt það stærsta sem samtökin hér á landi hefðu tekið þátt í. 29.11.2005 06:00
Beggja blands að vera í fremstu víglínu Hinn ástsæli lagahöfundur Magnús Þór Sigmundsson heldur útgáfutónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld í tilefni af útkomu plötunnar Hljóð er nóttin. Magnús Þór Sigmundsson hefur unnið sér sess sem einn ástsælasti lagahöfundur þjóðarinnar og samið lög sem greipt hafa sig inn í hug og hjörtu jafnt eldri sem yngri kynslóða Íslendinga. 29.11.2005 06:00
Nýjar bækur JPV útgáfa hefur sent frá sér fjórar nýjar bækur. Meðal þeirra er stórvirkið Jörðin sem er samstarfsverkefni Smithsonianstofnunarinnar í Bandaríkjunum og bókaútgáfunnar Dorling Kindersley. 28.11.2005 22:00
Koma jólabjórsins er karnival Dana Nú er tími jólabjórsins upprunninn og íslenskir sem erlendir bjórframleiðendur að stilla fram jólaöli ársins. Í Danmörku er rótgróin hefð fyrir jólabjór og mikið um dýrðir honum tengt. Rithöfundurinn Jón Kalman Stefánsson bjó þrjú ár í Danaveldi og kynntist þeirri stemningu vel. 28.11.2005 17:30
Jólin fundin Það hafa líklega margir velt því fyrir sér í sívaxandi mæli í gegnum árin hvert þau hafi eiginlega farið. Skrumið og neyslubrjálæðið yfirgengilegra með hverju árinu sem líður. Sjálf jólin löngu týnd. Leitin að jólunum er ferð í tvennum skilningi; ferð á milli ólíkra sagnasviða í Þjóðleikhúsinu og ferð í gegnum tímann. 28.11.2005 17:00
Simon Cowell stýrir framtíðinni Þegar um það bil mánuður er í að fimmta tímabil American Idol byrji eru sögusagnir í gangi um að hinn miður geðþekki dómari, Simon Cowell, verði ekki með þegar þættirnir hefjast að nýju. Samkvæmt dagblaðinu New York Times er samningaviðræðum við Cowell enn ekki lokið og hafa framleiðendur þáttanna áhyggjur af því að Simon muni þráast við að semja. 28.11.2005 13:00
Stálinu stappað í íslenska karlmenn Einleikur Auðuns Blöndal, Typpatal, í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar, snýst eins og nafnið gefur til kynna um typpi og allt sem tengist þeim. Einleikurinn var saminn af Richard Herring sem mótvægi við hinum vinsælu Píkusögum. Er hann byggður á könnun sem höfundurinn gerði á netinu og var beint jafnt til karla og kvenna. 28.11.2005 10:00
Forsetafrúin kveikti ljósin Kveikt var á ljósunum á jólatré Kringlunnar í gær og var það Dorrit Moussaieff forsetafrú sem tendraði ljósin. Hin árlega pakkasöfnun til styrktar Fjölskylduhjálp og Mæðrastyrksnefnd hófst við sama tækifæri. Landsmenn eru hvattir til að leggja pakka undir tréð. 28.11.2005 07:15
Aukin afþreying í farsímum Og Vodafone kynnti á föstudag nýja þjónustu fyrir farsímanotendur sem gerir þeim kleift að spila tölvuleiki, sækja fréttir og nálgast aðra afþreyingu í gegnum símann sinn í mun meira magni og betri gæðum en áður hefur þekkst. Þjónustan sem nefnist Vodalive! var fyrst kynnt í Bretlandi árið 2002. 28.11.2005 07:00
Karlar gráta allt of sjaldan Mikið mæðir á starfsmönnum kirkjunnar á aðventunni og Hreggviður Hreggviðsson, kirkjuvörður, meðhjálpari og útfararstjóri Borgarneskirkju hlakkar til desemberdaganna þegar fólk skilur asa jólaundirbúningsins eftir á kirkjutröppunum og sækir í friðinn innandyra. Hann segir mennina breytast á þessum árstíma. 27.11.2005 11:00
Nær uppselt á tónleika Sigur Rósar Nærri uppselt er á tónleika Sigur Rósar í Laugardalshöll annað kvöld, en hljómsveitin hefur ekki spilað hér á landi í þrjú ár. 26.11.2005 21:49
Læknadóp, Evran og tíkin Sara Í Kompási annað kvöld, sunnudag 27. nóvember verður fjallað um læknadóp og sýnt fram á hve auðvelt er að nálgast pillurnar sem ganga kaupum og sölum á götunni. Þá verður ítarleg fréttaskýring um Evruna og loks fylgir Kompás tíkinni Söru í keisaraskurð á dýraspítalann í Víðidal. 26.11.2005 15:54
Vodafone live Og Vodafone hefur tekið í notkun nýja virðisaukandi þjónustu sem nefnist Vodafone live! Um er að ræða efnisveitu sem tryggir viðskiptavinum Og Vodafone nýjan afþreyingarheim í GSM símann. Hún gerir notendum mögulegt að að spila hágæða tölvuleiki, sækja fréttir og upplýsingar, ná í skjámyndir og tónlist eða eiga samskipti við aðra Vodafone live! notendur. 26.11.2005 14:22
Seljum óveður og myrkur Íslendingar eiga að selja óveðrið og myrkrið til að fá ferðamenn um vetrartímann, segir ráðgjafi í ferðaþjónustu. Bent er á hið ótrúlega afrek Finna, sem tekst að fá þrjár milljónir ferðamanna árlega til Lapplands, Norðan Heimskautsbaugs, og flesta um hávetur. 25.11.2005 23:22
Hvetur þjóðir heims til að styðja hjálparstarfið Kvikmyndastjarnan Angelina Jolie er á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan og hvetur þjóðir heims til að styðja hjálparstarfið þar. 25.11.2005 23:15
216 lög í forkeppni fyrir Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva Alls bárust 216 lög til Sjónvarpsins í tengslum við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Það eru um tvisvar sinnum fleiri lög en bárust í keppnina á síðasta ári. 25.11.2005 15:15
Gengi krónunnar er allt að drepa Rétt áður en ekið er út úr Vík í Mýrdal til austurs er komið að reisulegu húsi sem hýsir prjónaverksmiðjuna Víkurprjón ásamt meðfylgjandi verslun. Þarna hefur Þórir Kjartansson látið prjónana eða öllu heldur prjónavélarnar ganga í aldarfjórðung og verið máttarstoð í atvinnulífi Víkurbúa. 25.11.2005 10:30
Við rætur eldfjallsins Vík í Mýrdal er syðsti byggðakjarni landsins. Og um leið ein syðsta byggðin; það verður vart sunnar komist því bærinn stendur bókstaflega á fjörukambinum þar sem öldur Atlantshafsins lemja landið uppstyttulítið dag og nótt. 25.11.2005 05:00
Verstu kaupin: Keypti óætt Nunnunammi Tómas R. Einarsson tónlistarmaður segir frá sínum verstu kaupum. "Eitt sinn þegar ég var í sunnudagsgöngutúr með fjölskyldunni á Sevilla á Spáni rak ég augun í nunnur sem voru að selja kökur og góðgæti við klaustur eitt þar í borg. Ég keypti þó nokkuð af þessu nunnunammi, sem leit afskaplega girnilega út." 24.11.2005 06:00
Austurbæjarskóli sigraði í Skrekki Austurbæjarskóli fékk fyrstu verðlaun í Skrekki, hæfileikakeppni grunnskólana, sem fram fór í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Mikil stemming var á úrslitakvöldinu og atriðin voru glæsileg að vanda. 23.11.2005 10:00
Aftur til fortíðar? Símar spila mörg og ólík og ný hlutverk í lífi okkar, nú er svo komið að settur hefur verið á markað sími sem ekki hægt að gera annað og meira með en að hringja, svara og senda og lesa SMS. 21.11.2005 18:04
Forsala miða hafin á Harry Potter Forsala miða á Harry Potter og eldbikarinn hófst í dag. Myndin verður frumsýnd 25. nóvember næstkomandi í Sambíóunum í Álfabakka, Kringlunni, Keflavík og Akureyri. Þá verður myndin einnig frumsýnd í Háskólabíói, Selfossbíói og Ísafjarðarbíói. Myndin hefur slegið í gegn en hún var frumsýnd í Bandaríkjunum um síðustu helgi. 21.11.2005 14:59
Tuttugu ára afmæli fagnað Spaugstofan hélt upp á tuttugu ára starfsafmæli sitt í gær en hún hefur skemmt landsmönnum síðan 1985. Bauð hún af því tilefni velunnurum sínum til veislu í Þjóðleikhúskjallaranum. Mátti þar sjá marga af helstu ráðamönnum þjóðarinnar sem oftar en ekki hafa fengið á sig spaugilega mynd í greiningu þeirra Spaugstofumanna á málefnum líðandi stundar. 21.11.2005 06:00
Ötull tals-maður barna Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítalans, hlýtur viðurkenningu Barnaheilla fyrir sérstakt framlag í þágu barna og réttinda þeirra. Ólafur er fjórði aðilinn sem fær þessa viðurkenningu en áður hafa Barnahús, Hringurinn og Velferðarsjóður barna á Íslandi hlotið hana. 21.11.2005 06:00
Ein skemmtilegasta tónleikasveitin Rokkdúettinn The White Stripes, sem heldur tónleika í Laugardagshöll á sunnudagskvöld, þykir ein skemmtilegasta tónleikasveit samtímans. 20.11.2005 14:00
Sirkus sækir fram Fjölmiðlafjölskyldan Sirkus ætlar að færa út kvíarnar á næstu dögum. Hún hefur hleypt af stokkunum heimasíðu á vefslóðinni Sirkus.tv þar sem notendur geta búið til sinn eigin Sirkus-heim. 20.11.2005 09:30
Nylon tekur Rolling Stones lag Stelpurnar í Nylon fagna útkomu nýjustu afurðar sinnar, Góðir hlutir, í Loftkastalanum klukkan fjögur í dag. Sveitin hefur á rúmu ári eignast stóran aðdáendahóp og platan náði nýverið efsta sæti tónlistans og platan er uppseld hjá útgefanda. 19.11.2005 13:00
Keypti Ono textann? Orðrómur er uppi um að Yoko Ono, ekkja Bítilsins fyrrverandi Johns Lennon, hafi keypt handskrifaðan texta lagsins Give Peache a Chance á uppboði fyrir tæpar 27 milljónir króna. Textinn var skrifaður aftan á umslag á meðan John Lennon og Yoko Ono lágu saman uppi í rúmi í vikutíma á hótelinu Queen Elizabeth í Kanada árið 1969 til að mótmæla Víetnamstríðinu. Textinn hafði týnst en kom í leitirnar á uppboðinu. 19.11.2005 11:00
Roger Moore til landsins á vegum UNICEF Stórleikarinn Roger Moore kemur til Íslands þann 1. desember á vegum UNICEF. Hann er velgjörðarsendiherra Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Moore ætlar að vera viðstaddur undirskrift styrktarsamninga UNICEF á Íslandi við stórfyrirtæki, en þetta verður nánar tilkynnt 1. desember. 19.11.2005 10:23
15 þúsund manns á kvikmyndahátíð Alls sóttu 15.500 manns kvikmyndahátíðina Októberbíófest sem hófst 26. október. Hátíðin fékk mjög góðar viðtökur hjá áhorfendum, erlendum gestum og gagnrýnendum. 19.11.2005 10:00
Skröggur í íslenskri baðstofu Leikfélagið Hugleikur frumsýnir í kvöld Jólaævintýri Hugleiks. Um er að ræða leikgerð á Jólaævintýri Dickens sem er fyrir löngu orðið sígilt. Þetta er fyrsta íslenska leikgerðin á þessari sögu, sem hefur verið vinsælt viðfangsefni leikhússfólks síðan hún kom út árið 1843. Þetta er jafnframt viðamesta uppfærsla Hugleiks síðan söngleikurinn Kolrassa sló í gegn 2002. 19.11.2005 08:00
Alþjóðleg tónlistarkeppni Hin alþjóðlega tónlistarkeppni "The global battle of the bands" fer þessa dagana fram í Hellinum, tónleikasal Félags Tónlistarþróunarmiðstöðvar. 19.11.2005 06:00