Fleiri fréttir

Steinasteinn: Steinflísar og ker

Mikið úrval er af alls kyns steinum til hleðslu og útiflísum fyrir verandir og gangstéttir í mismunandi gerðum og litum í versluninni Steinasteinum sem var opnuð í vor úti við Eyjaslóð í Reykjavík.

Gæludýrahár

Þeir sem eiga gæludýr, hunda eða ketti, kannast flestir við það hvimleiða vandamál að hárin af dýrunum eiga það til að sitja eftir í bólstruðum húsgögnum. Fólk beitir misjöfnum aðferðum við að ná hárunum í burt og hér koma nokkur ráð:

Lou Reed kominn til landsins

Hinn heimsþekkti tónlistarmaður Lou Reed kom til landsins í dag. Hann setti á sig hettu og sólgleraugu þegar hann gekk út úr tollinum í Leifsstöð og fór umkringdur lífvörðum beint upp í sendiferðabíl ásamt fylgdarliði og vildi ekkert tjá sig við fjölmiðla.

Stjörnufans í Keflavík

Stórstjörnurnar Julia Stiles og Forest Whitaker eru komin til landsins, en þau leika bæði í mynd Baltasars Kormáks, A little trip to heaven, sem tökur hefjast á í lok ágúst. Þau komu bæði í áætlunarflugi, Stiles frá New York og Whitaker frá Minneapolis.

Lou Reed á Menningarnótt

Tónlistarmaðurinn Lou Reed er orðinn mjög áhugasamur um land og þjóð og þannig hefur hann lengt ferð sína í báða enda og ætlar að kíkja á Menningarótt í Reykjavík.

Jórunn Viðar með lag á Medulla

"Það er búið að syngja þetta lag sundur og saman og sérstaklega hefur fólk rifið það í sig í Söngskólanum í Reykjavík," segir tónskáldið Jórunn Viðar um lag sitt Vökuró en lagið sem hefur verið sungið af mörgum stórsöngvurum í gegnum tíðina er nú að finna á nýjustu plötu Bjarkar Guðmundsdóttur.

Óvíst að Harry lifi af

Óvíst er hvort að Harry Potter lifir af allar hrakningarnar sem hann lendir í. Þetta segir J. K. Rowling, höfundur bókanna um Harry. Hún kom fram á bókmenntahátíð í Edinborg um helgina og sagði Harry lifa af sjö bækur, en hvort að hann lifði lengur væri alls óvíst. Rowling sagði ekkert um sjöttu bókina, en hún situr nú við skrif hennar.

Hefur slæm áhrif á frammistöðu

Knattspyrnustjarnan David Beckham hefur loks viðurkennt að fjölmiðlaumfjöllun um einkalíf sitt hafi haft slæm áhrif á frammistöðu sína á Evrópumótinu í knattspyrnu. Beckham, sem hingað til hefur kennt þjálfunaraðferðum hjá Real Madrid um slælega frammistöðu sína á Evrópumótinu,

Travis Bickle besta andhetjan

Travis Bickle, persónan sem Robert De Niro lék í myndinni Taxi Driver, hefur verið kosinn besta and-hetja kvikmyndasögunnar. Hann var valinn af lesendum Totol film tímaritsins, segir á veffréttasíðu BBC. Taxi Driver er mynd eftir Martin Scorsese og var De Niro tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir leik sinn í henni.

Stóðst ekki mátið

"Við höfum fengið alveg ótrúlega góðar viðtökur, betri og meiri en við þorðum nokkurn tímann að vona," segir Jóel Briem, nýr verslunarstjóri Spútnik.

Vinna með upptökustjóra Jamiroquai

Breski upptökustjórinn Al Stone er nú staddur hér á landi til þess að vinna með íslenska fönkdýrinu Jagúar. Hann er líklegast þekktastur fyrir vinnu sína á þremur breiðskífum bresku fönksveitarinnar Jamiroquai sem "kötturinn með höttinn", Jay Kay, syngur í.

Amazing Race á Íslandi

Tökulið og keppendur frá Amazing Race sjónvarpsþættinum vinsæla eru komnir til Íslands. Eins og væntanlega flestir vita gengur þátturinn út á það að nokkur pör keppa í eins konar ratleik um heiminn og vinnur það par sem er útsjónarsamast í ferðalögum sínum og fljótast í förum.

Líður vel í Þingholtunum

Uppáhaldshúsið húsið hans Guðjóns Davíðs Karlssonar leiklistarnema, betur þekktur sem Gói, er húsið sem hann býr í á Bergstaðarstrætinu. "Mér finnst húsið mjög notalegt og þar er bara svo gott að vera, úti er góður garður og alltaf sól. Foreldrar mínir búa í þessu húsi og bý ég í kjallaranum og þangað niður kemur alltaf ljómandi góður ilmur úr eldhúsinu.

Moore gagnrýnir hótel í Kína

Fyrrverandi James Bond leikarinn, Sir Roger Moore, segir að hóteleigendur og skólar í Peking, ættu að skammast sín fyrir að taka ekki á móti 72 kínverskum börnum sem eru með alnæmi. Börnin voru að sækja þriggja daga sumarbúðir á vegum UNICEF

Pink með flottasta sjóið á Íslandi

"Pink mætti til landsins í gærdag og fór þá beint upp á hótel til að slappa af og safna kröftum fyrir tónleikana í kvöld," segir Lilja Björk Jensen starfsmaður hjá L Promotion, fyrirtækinu sem flytur söngkonuna Pink til landsins, en sem kunnugt er verður Pink með tónleika í Laugardalshöllinni í kvöld.

McGregor í vísindaskáldsögu

Ewan McGregor mun að öllum líkindum fara með aðalhlutverkið í kvikmyndinni The Island. Um vísindaskáldsögu er að ræða sem verður leikstýrt af Michael Bay. Hann hefur áður leikstýrt stórmyndum á borð við Pearl Harbour og Armageddon.

Kravitz mesti hjartaknúsarinn

Tónlistarmaðurinn Lenny Kravitz hefur verið kjörinn mesti hjartaknúsarinn í Hollywood. Kravitz, sem er fertugur, hefur verið orðaður við margar stórstjörnur í gegnum tíðina, meðal annars Nicole Kidman, Kylie Minogue, Madonnu, Vanessu Paradis og Naomi Campell.

Friðrik Óperudraugnum

Friðrik Karlsson, fyrrum gítarleikari Mezzoforte, hefur lagt sitt að mörkum til að gera kvikmyndina The Phantom of the Opera að veruleika. Hann sér um gítarleikinn í kvikmyndinni en Friðrik hefur verið búsettur í London síðustu árin og tekist að koma ár sinni vel fyrir borð þar í landi

Söngvarinn Rick James látinn

Bandaríski tónlistarmaðurinn Rick James lést í gær, 56 ára. Hann var þekktastur fyrir lagið "Super Freak", sem sló í gegn árið 1981. Rick James lést í svefni á heimili sínu, að því er virðist af eðlilegum orsökum.

Nicholas Cage í Keflavík

Bandaríski kvikmyndaleikarinn Nicholas Cage sást á Keflavíkurflugvelli fyrir skömmu. Á vef Víkurfrétta kemur fram að einkaþota leikarans hafi millilent til að taka eldsneyti og mat á leiðinni frá Ítalíu til Bandaríkjanna.

Skaust á toppinn eftir skotárás

Rapparinn 50 Cent heldur tónleika í Laugardalshöll á miðvikudag. Í raun heitir hann Curtis Jackson og fæddist inn í harðsvírað eiturlyfjahverfi Queens í New York fyrir 26 árum. Föðurlaus ólst hann upp hjá fátækri móður, tileinkaði sér reglur götunnar og fann fljótt út hvað yrði hans undankomuleið.

Jamie eldar jólamat á Vatnajökli

Sjónvarpskokkurinn frægi, Jamie Oliver, kom til landsins í fyrradag ásamt fjölmennu fylgdarliði en tilefni ferðarinnar er að elda jólamat fyrir ástralska tímaritið Delicious.

Voldemort holdi klæddur

Breski leikarinn Ralph Fiennes hefur hreppt hlutverk Lord Voldemort í næstu Harry Potter mynd. Tökur eru hafnar á þessari fjórðu mynd um galdrastrákinn og nefnist hún Harry Potter og eldbikarinn.

Dansað í eldhúsinu

"Uppáhaldsstaðurinn minn í íbúðinni er eldhúsið. Það er bjart og stórt og hér er mikið eldað, bæði af mér og öðrum og drukkið rauðvín. Svo er það skrifstofa Kramhússins líka og hér sitjum við kennararnir og spjöllum saman um Kramhúsið og hvað er á döfinni hjá okkur og hér fæðast og þróast hugmyndir sem tengjast Kramhúsinu," segir Hafdís Árnadóttir, eigandi Kramhússins.

Gamlir hlutir í nýjum búningi

Margir eru mjög nýtnir og kunna vel að endurnýta gamalt heimilisdót en aðrir eiga í meiri erfiðleikum með að sjá gamla hluti í nýjum búningi.

Merking litanna

Nú þegar margir hverjir nota fríið sitt í að mála er rétt að gefa því gaum hvaða merkingu litirnir hafa og hvaða áhrif þeir eru sagðir hafa á skapsferli okkar. Við ætlum því í komandi blöðum að rekja aðeins merkingu litanna og byrjum á rauðum.

Schwarzenegger laminn sem barn

Leikarinn góðkunni og núverandi ríkisstjóri Kaliforníu, Arnold Schwarzenegger, segir föður sinn hafa lagt á sig hendur þegar hann var lítill strákur. Í viðtali við tímaritið <em>Fortune</em> segir Arnold að í dag myndi meðferðin á honum flokkast undir misnotkun enda hafi oft verið rifið í hárið á honum og hann barinn með belti.

Létu lúta eikarparketið

Hjónin Pétur Gautur Svavarsson myndlistarmaður og Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt hafa undanfarið látið pússa upp eikarparketið á gólfinu í gamla steinhúsinu í Hafnarfirði sem þau festu kaup á nýlega.

Ný verslun í Garðabæ

Hjónin Böðvar Friðriksson og Íris Aðalsteinsdóttir opnuðu nýverið verslunina Garden Signature í 200 fermetra sýningarsal í Garðabæ. Verslunin er sérverslun með garðhúsgögn frá Danmörku og Hollandi.

Íslenskasta þakefnið

Langalgengasta þakefni á Íslandi í gegnum tíðina er bárujárn, enda ekkert sem þolir íslenska veðráttu jafn vel. Erlendir ferðamenn hafa löngum undrast alla þá litadýrð sem hér blasir við á þökum landsmanna.

Framkvæmdir heima við

Margur færist of mikið í fang þegar kemur að framkvæmdum heima við. Oft er það þrjóska sem ýtir fólki í að gera hlutina sjálft frekar en að ráða fagmenn til að vinna verkið. Sumir eru aftur á móti færir að gera alla vinnu sjálfir en þá er mikilvægt að þekkja sín takmörk. Gott er að hafa eftirfarandi í huga.

Erfiðleikar við fjármögnun

Allir geta lent í erfiðleikum með fjármálin og fjármögnun íbúðarhúsnæðis. Ef óvænt atvik koma upp sem breyta upphaflegum forsendum er mikilvægt að leita strax aðstoðar áður en vanskil hlaðast upp.

Fyrsta útboð íbúðabréfa

Fyrsta útboði á íbúðabréfum Íbúðalánasjóðs er lokið. Bréfin voru seld erlendum fjárfestum í lokuðu útboði. Íbúðabréf HFF 150644 voru boðin út í lokuðu útboði fyrir fimm milljarða króna að markaðsvirði.

Að heiman

Þegar haldið er í frí er gott að skilja við húsið sitt þannig að fólk haldi að einhver búi í því. Þá reyna innbrotsþjófar og aðrir óæskilegir gestir síður að brjótast inn. Margt er hægt að gera til að láta fólk halda að einhver sé í húsinu þínu og um að gera að kynna sér það.

Bjólfskviða kvikmynduð á Íslandi

Tökur á kvikmynd sem byggist á Bjólfskviðu hefjast á Suðausturlandi í þessum mánuði. Þetta ku vera í fyrsta sinn sem þessum breska menningararfi er breytt í bíómynd. Kvikmyndin verður sú langdýrasta sem gerð hefur verið hér á landi.

Vinnur neysluvatn úr þvagi

Bandarískir hermenn í Írak og Afganistan geta slökkt þorsta sinn með eigin þvagi eða annarra. Þeim hefur verið fenginn lítill poki sem síar og hreinsar vatn. Vökvann má sækja í rotþrær og salernisskálar

Ný metsölumynd Shymalan

Leikstjórinn M Night Shymalan, sem hefur leikstýrt myndum á borð við Sixth Sense, Unbreakable og Signs, hefur enn á ný gert mynd sem trónir efst á listum yfir vinsælar bíómyndir í Bandaríkjunum. Myndin heitir The Village og gerist á 19. öld.

Móna Lísa forrík, fimm barna móðir

Fyrirsætan Mona Lisa, sem prýðir samnefnt málverk Leónardós Da Vincis, var forrík, fimm barna móðir. Breska dagblaðið, The Daily Telegraph, greinir frá því í dag að ítalskur sérfræðingur hafi fundið sannanir fyrir raunverulegum bakgrunni Monu Lisu

Þjóðverjar kunna ekki að slaka á

Þjóðverjar kunna ekki að slaka á og eru spenntir löngu eftir að þeir koma heim úr vinnunni. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var í íþróttaháskólanum í Cologne og birt í tímaritinu Vital í dag.

Victoria Beckham versti dansarinn

Victoria Beckham er versti dansari poppsögunnar. Svo segja í öllu falli niðurstöður breskrar könnunar sem gerð var í tengslum við nýja veruleikasjónvarpsþætti þar sem leitað er að góðum dönsurum á meðal almennings.

Jagúar bílasýning í Lundúnum

Jagúar-bílasýning var opnuð í Lundúnum í dag. Þar gefst mönnum kostur á að sjá gamla sem nýja Jagúarbíla sem notið hafa mikillar hylli frá því svokölluð E-gerð kom á markað árið 1961.

Sjá næstu 50 fréttir