Fleiri fréttir

Á Icerave segja allir VÁ

Kanilkvöld er yfirskrift nýrra mánaðarlegra danstónlistarkvölda. Annað Kanilkvöldið verður haldið á morgun á Faktorý. Sigurður Arent skipuleggjandi hefur ekki áhyggjur af brjáluðu Icesave-fólki.

Smekkfullt hjá Steinda Jr.

Steindi Jr. og Ágúst Bent héldu partý í Gyllta salnum á Hótel Borg í gærkvöldi í tilefni af frumsýningu þáttaseríunnar Steindinn okkar II sem sýnd er á fimmtudagskvöldum á Stöð 2. Smekkfullt var á Borginni og allir í góðum gír eins og sjá má á myndunum.

Who Knew á Hróarskeldu

Sumarið er tími tónlistarhátíðanna og það vita strákarnir í hljómsveitinni Who Knew. Þeir koma fram víða í Evrópu í sumar þar á meðal á Hróarskelduhátíðinni víðfrægu.

Foo Fighters endurfædd

Dave Grohl og félagar í Foo Fighters senda frá sér plötuna Wasting Light í næstu viku. Platan er mikið rokk og mikið ról, enda tekin upp af manninum sem tók upp Nevermind með Nirvana.

Móðir náttúra á túr

Heimurinn er á hraðleið til helvítis og hvað gera þá allir heilvita ökuþórar? Jú, þeir skella upp kappakstursbrautum á brennandi rústum siðmenningarinnar og keppa síðan sín á milli um hver sé tæpastur á geði. Þetta er í raun plottið í Motorstorm Apocalypse.

Van Damme var útskúfaður frá Hollywood

Belgíska bardagahetjan Jean-Claude Van Damme hefur upplýst að kvikmyndaverin í Hollywood hafi meðvitað lokað á hann vegna launakrafna hans. Van Damme varð að hætta kvikmyndaleik eftir tíunda áratuginn þar sem engin hlutverk voru í boði fyrir hann. Leikarinn hafði skýringar á reiðum höndum í breskum sjónvarpsþætti á dögunum. "Þeir úthýstu mér eftir að ég setti fram of háar launakröfur. Eftir Time Cop fékk ég tilboð um að gera þrjár kvikmyndir og átti að fá tólf milljónir dala fyrir hverja mynd. Mér fannst það skammarlegt, ég vildi tuttugu milljónir dala á hverja mynd eins og Jim Carrey fékk.“ Eftir það hættu kvikmyndaverin að hringja og Van Damme segist sjá eftir öllu saman. "Ég var ekki með sjálfum mér og mér urðu á mikil mistök.“

Öryggismál sett á oddinn í Eurovision

"Það sem hefur komið mér hvað mest á óvart er hvað Þjóðverjarnir eru rólegir, þeir eru ekkert yfir sig stífir á reglum,“ segir Jónatan Garðarsson, fararstjóri íslenska Eurovision-hópsins.

Nýtt nef - nýtt lag

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá glænýtt tónlistarmyndband söngkonunnar Britney Spears, 29 ára, af nýju plötunni hennar Femme Fatale, við lagið Till The World Ends. Nefið á Britney og breytingarnar sem hafa orðið á því í gegnum tíðina virðist ekki síður vera heitt umræðuefni í slúðurmiðlum vestan hafs eins og tónlistin hennar en nefið má skoða í myndasafni fyrir og eftir breytingar. Burtséð frá nefinu samdi Britney umrætt lag í samvinnu við söngkonuna Ke$ha.

Stórstjörnur í Vesalingamynd

Robert Downey Jr. og Sean Penn eru meðal þeirra sem orðaðir eru við aðalhlutverkin í næstu kvikmynd Toms Hooper, Vesalingunum eða Les Miserables, sem byggð er á samnefndri bók Victors Hugo. Um er að ræða söngvamynd en leikverkið hefur verið sett upp hér á landi, meðal annars í Þjóðleikhúsinu. Hooper sópaði til sín Óskarsverðlaunum á síðustu hátíð með kvikmynd sinni The King‘s Speech og virðist geta valið úr leikurum fyrir sína næstu mynd. Vesalingarnir eru byggðir á sögu Victors Hugo og var sagan síðast kvikmynduð 1998 með þá Liam Neeson og Geoffrey Rush í aðalhlutverkum.

Endurgerðar ofurhetjur

Hollywood virðist aldrei fá nóg af ofurhetjum og framleiðir grimmt af kvikmyndum um skikkjuklædd hreystimenni sem lumbra á þrjótum og bjarga sætum stelpum úr lífsháska. Þrjár ofurhetjur virðast hins vegar eiga eilíft líf.

Maðurinn á bak við Palla

Coco Viktorsson á heiðurinn að mörgum af skrautlegustu búningum Páls Óskars Hjálmtýssonar. Skrautlegur klæðaburður er stór hluti af ímynd tónlistarmannsins og setur jafnan skemmtilegt yfirbragð á tónleika hans, enda er sjónarspil ekki síður mikilvægt en hressir tónar.

Live Project sló í gegn - Halda áfram á AK Extreme

Síðasta helgi var viðburðarík fyrir þá sem fylgdust með íslenska vefnum Live Project. Þar birtust yfir fimm hundruð myndir og myndbönd af Reykjavík Fashion Festival, bæði af tískusýningunum sjálfum í Hafnarhúsinu og öðrum viðburðum tengdum hátíðinni.

Reykjavík Music Mess vekur athygli út fyrir landsteina

Átta erlendir blaðamenn hafa boðað komu sína á tónlistarhátíðina Reykjavík Music Mess síðar í mánuðinum. Að sögn Baldvins Esra Einarssonar, eins skipuleggjenda hátíðarinnar, hefur orðið vart við talsverðan áhuga erlendis, bæði hjá fjölmiðlum og tónlistaráhugafólki. Meðal þeirra fjölmiðla sem boðað hafa komu sína hingað eru Mojo, Clash, Uncle Sally‘s, sem að sögn Baldvins er eitt stærsta tónlistarblað Þýskalands, og Byte.fm sem ku vera stærsta netútvarp í Þýskalandi.

Fittar eins og flís við rass

Enn ein gæðaplatan frá Megasi og Senuþjófunum. Kiddi og hinir þjófarnir vita greinilega alveg hvernig á að krydda og kokka Megasarlög til þess að þau komi vel út.

Slær í gegn í norskum kvikmyndum

Ásta Hafþórsdóttir gerir það gott í norska kvikmyndaheiminum. Hún segir meiri peninga í bransanum þar en hér heima og að umhverfið þar sé fjölskylduvænna. "Það er búið að ganga mjög vel síðan ég flutti út en ég held að ég hafi verið á réttum stað á réttum tíma,“ segir Ásta Hafþórsdóttir leikgervahönnuður. Hún flutti til Noregs síðasta sumar þar sem hún hoppaði beint í tökur á sjónvarpsþáttum um sjóræningjann Kaptein Sabeltann fyrir NRK, en hann er rótgróinn karakter í Noregi og á meðal annars skemmtigarð tileinkaðan sér í Kristiansand.

Hangover 2 auðveld

Todd Phillips, maðurinn á bak við The Hangover, segir í samtali við vefsíðuna comingsoon.net að framhaldsmyndin hafi verið ótrúlega auðveld í tökum, allir leikararnir hafi smollið í karakter strax.

Rain Dear tískulínan á koppinn

Fatalínan Rain Dear vakti talsverða athygli gesta á nýafstöðnum HönnunarMars og á Reykjavík Fashion Festival, þar sem hún var frumsýnd. Að baki línunni standa tvær konur – fatahönnuðurinn Heiða Eiríksdóttir og textílhönnuðurinn Þorbjörg Valdimarsdóttir.

Rebekka sest í dómarasætið

"Mér fannst hljóma svo skemmtilega að geta sagt að ég sé að fara að gera þetta – þetta er flott á ferilskránni, að vera dómari,“ segir listakonan Rebekka Guðleifsdóttir. Rebekku var boðið sæti í dómnefnd alþjóðlegu ljósmyndakeppninnar Digital Camera Photographer í ár. Þessi keppni komst í fréttirnar á Íslandi árið 2009 þegar séra Bragi Ingibergsson, sóknarprestur í Hafnarfirði, sigraði með glæsilegri mynd sinni af tveimur hestum. Rebekka verður yfirdómari í flokknum Creative License, en þar leyfa ljósmyndarar sköpunargáfunni að njóta sín. "Þetta er sköpunarglaðasti flokkurinn, ef ég skil þetta rétt,“ segir hún.

Dulmálslykill og drykkjurútur

Að venju er nóg um að vera í íslenskum kvikmyndahúsum um þessar mundir. Fyrst ber að nefna gamanmyndina Your Highness sem skartar Óskarsverðlaunakynninum James Franco og Óskarsverðlaunaleikkonunni Natalie Portman í helstu hlutverkum. Myndin gerist á miðöldum og segir frá tveimur bræðrum sem hyggjast bjarga unnustu annars þeirra úr klóm hættulegs seiðkarls. Myndin hefur fengið afleita dóma og það er ekki beint hægt að segja að Portman fylgi eftir frammistöðu sinni í Black Swan með glæsibrag ef No Strings Attached er tekin með í reikninginn.

Óþarfi að hafa lesið Tolkien

Það er ekki hægt að þræta fyrir það að í Bioware-flokknum eru snillingar þegar kemur að því að búa til góða RPG-tölvuleiki sem skarta spennandi sögu, endalausum möguleikum í spilun og heillandi heimi sem leikmenn geta gleymt sér í tímunum saman. Það þarf ekki að gera annað en að líta á titla á borð við Mass Effect og Dragon Age Origins til að sannfærast um að Bioware kann sitt fag.

Spánverjar taka íslenskum töskum fagnandi

Fyrir um ári síðan stofnaði Elín Bjarnadóttir fyrirtækið Mar designs í spænska bænum Castalla. Hún hannar og framleiðir handtöskur úr íslensku fiskiroði og hafa þær vakið nokkra athygli á svæðinu. Elín hefur selt þær í verslunum í Castalla og kynnt fyrir ferðamönnum á Alicante.

Finnst mjög gaman að vera fyrir framan myndavélina

Magdalena Sara Leifsdóttir bar sigur úr býtum í Elite-fyrirsætukeppninni. Fyrirsætustarfið heillar en hún getur ekki farið í unglingavinnuna í sumar vegna frjókornaofnæmis. „Þetta var alveg æðislegt upplifun og auðvitað mjög gaman að vinna þessa keppni," segir Magdalena Sara Leifsdóttir en hún vann Elite-fyrirsætukeppnina sem fór fram í Hafnarhúsinu um síðustu helgi.

Björk hafnar Glee

Ryan Murphy, skapari sjónvarpsþáttanna Glee, reyndi að fá að nota tónlist Bjarkar Guðmundsdóttur í þáttunum. Björk hafnaði beiðninni. Þetta kemur fram á vef Hollywood Reporter.

Hljómsveitin Agent Fresco kemur fram á Hróarskeldu

"Hróarskelda er búin að vera í uppáhaldi ógeðslega lengi. Ég hef farið fimm eða sex sinnum á hátíðina,“ segir Arnór Dan Arnarson, söngvari hljómsveitarinnar Agent Fresco. Agent Fresco kemur fram á Hróarskelduhátíðinni sem fer fram í Danmörku 30. júní til 3. júlí. Hljómsveitin er enn sem komið er sú eina frá Íslandi sem hefur verið bókuð á hátíðina í ár, en í fyrra komu hljómsveitirnar FM Belfast og Sólstafir þar fram og árið þar áður voru Hjaltalín og Kira Kira fulltrúar íslensku þjóðarinnar á þessari stærstu tónlistarhátíð Danmerkur.

Fórnarlamb Galliano kemur honum til varnar

Hönnuðurinn John Galliano var á dögunum handtekinn fyrir ill ummæli í garð annarra gesta á veitingahúsi einu í París. Réttað verður yfir Galliano einhvern tímann á milli apríl og júní og verði hann fundinn sekur um kynþáttafordóma getur hann átt yfir höfði sér sex mánaða fangelsisvist auk peningasektar.

Ég er ekki orðinn skíthæll

Steindi Jr. hefur ríka ástæðu til að vera stressaður. 7. apríl verður önnur þáttaröð Steindans okkar frumsýnd á Stöð 2. Hann byrjaði að skrifa þáttaröðina fyrir átta mánuðum ásamt samstarfsmönnum sínum Ágústi Bent og Magnúsi Leifssyni, en sá síðarnefndi slóst í hópinn fyrir nýju þáttaröðina eftir að hafa komið með góðar hugmyndir í fyrstu þáttaröðina.

Ekkert leiðinlegt lag

The Strokes er mikilvægasta hljómsveit síðustu ára. Engin hljómsveit sem var stofnuð um eða eftir aldamót hefur haft jafn mikil áhrif á tónlistarheiminn og The Strokes hafði með fyrstu plötunni sinni, Is This it. The Strokes er líka mjög stöðug hljómsveit; gaf út þrjár plötur á árunum 2001 til 2006 – allar góðar – og nú er sú fjórða komin út.

Tískuhjartað slær í takt

Innan tískuheimsins má finna fjölda fjölskyldufyrirtækja. Sum eru rótgróin og önnur ný af nálinni en þau eiga það öll sameiginlegt að þar koma fjölskyldur saman í nafni tískunnar. Hér má einnig finna slík fjölskyldufyrirtæki og fékk Föstudagur Fréttablaðsins að kynnast þeim betur.

Ríkir ekki jafnrétti í grafískri hönnun

Tímaritið Mæna er unnið af nemendum á þriðja ári í grafískri hönnun við LHÍ og kom önnur útgáfa þess út í kringum HönnunarMars. Í tímaritinu er meðal annars fjallað um þátt kvenna í grafískri hönnun þar sem konur eru hlutgerðar og hlutir kvengerðir.

Nolan fær ekki nóg af Batman

Aðdáendur Bruce Wayne og hliðarsjálfs hans, Batman, geta tekið gleði sína á ný, því leikstjórinn Christopher Nolan hyggst ekki yfirgefa riddara næturinnar jafn snögglega og gefið hafði verið í skyn. Nolan er nú að undirbúa sig fyrir þriðju myndina um Batman en hinar tvær, Batman Begins og Dark Knight, hafa notið feikilega mikillar hylli meðal gagnrýnenda og áhorfenda. Nolan hafði lýst því yfir að þetta yrði hans síðasta mynd um þrotlausa baráttu Batman við þrjóta Gotham-borgar og það er allt satt og rétt.

Sveinn Andri og Kristrún Ösp innsigla ástina á Facebook

Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson, sem oft var talinn á meðal heitustu piparsveina landsins, er genginn út. Á Facebook síðu hans segir að hann sé nú í sambandi við fyrirsætuna Kristrúnu Ösp Barkardóttur. Á Facebook síðu hennar er sömu sögu að segja.

Liam í fatahönnunarstríð

Breski ólátabelgurinn Liam Gallagher, fyrrverandi söngvari Oasis, er þekktur fyrir allt annað en að liggja á skoðunum sínum um menn og málefni. Hann hefur nú sent Jay Z-tóninn fyrir fatalínuna hans.

Til Los Angeles á fund Charlies

"Við erum að fara að heimsækja Charlies-stelpurnar, sem við erum búnir að vera að vinna með,“ segir Pálmi Ragnar Ásgeirsson úr upptökustjórateyminu StopWaitGo.

Dömurnar djömmuðu síðustu helgi

Meðfylgjandi myndir voru teknar síðustu helgi á veitingastöðunum Vestur, sem var áður Glaumbar, Risið, Hressó, Hvíta Perlan og Bjarni Fel. Eins og myndirnar, sem Sveinbi ljósmyndari Superman.is tók, sýna voru dömurnar í djammstuði.

Finnar kaupa óséðan Heimsendi

Finnska ríkissjónvarpið YLE hefur keypt sýningarréttinn á sjónvarpsþáttunum Heimsendi án þess að hafa séð svo mikið sem einn þátt. Leikstjórinn Ragnar Bragason vinnur nú að handriti þáttanna ásamt Pétri Jóhanni Sigfússyni, Jörundi Ragnarssyni og Jóhanni Ævari Grímssyni.

Hvetur mig til dáða

"Þetta hefur mikla þýðingu fyrir mig og hvetur mann til dáða,“ segir Ragnheiður Gestsdóttir, sem hlaut Sögusteininn, barnabók Ibby, sem afhent voru á Íslandi í fjórða sinn um helgina.

Fyrirlestraröð Sequences hefst í dag

Myndlistarhátíðin Sequences býður upp á daglega fyrirlestra í samstarfi við Listaháskóla Íslands, frá og með deginum í dag til 7. apríl. Fyrirlestrarnir verða haldnir í mynlistardeild Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91, í stofu 024, klukkan 13 til 15.

Sá allra besti í bransanum

Fatahönnuðurinn Riccardo Tisci hefur fært tískuhúsið Givenchy í nýjar hæðir með þunglyndislegri og látlausri hönnun sinni sem slegið hefur í gegn. Tisci tók við af Julien Macdonald sem yfirhönnuður Givenchy árið 2005 og hefur síðan þá bætt hægt og rólega við aðdáendahóp sinn, sem nú inniheldur einstaklinga á borð við Nicole Richie, Kate Moss, Florence Welch og Carine Roitfeld.

Floyd-liðar spila saman

Roger Waters, fyrrum liðsmaður Pink Floyd, ætlar að spila lag með hljómsveit sinni ásamt fyrrum félaga sínum úr bandinu, David Gilmore á tónleikum síðar á þessu ári.

Frjálsleg túlkun á þjóðsögu

Nýtt íslenskt dansverk var frumsýnt í Tjarnabíói um helgina. Verkið nefnist Gibbla og er samstarfsverkefni sjö listamanna úr ólíkum listgreinum sem tvinna saman dans, tónlist og kvikmyndagerð í eina samræmda heild.

Með blústónlist í blóðinu

Vasti Jackson verður á meðal gesta á Blúshátíð í Reykjavík sem verður haldin í áttunda sinn 16. til 21. apríl. Hann segir blúsinn vera í blóðinu, enda ólst hann upp í Mississippi. Jackson stígur á svið á Hilton-hótelinu 21. apríl. Hann er flinkur gítarleikari og afburða blússöngvari og er þekktur fyrir að ná góðum tengslum við áhorfendur á tónleikum.

Sjá næstu 50 fréttir