Fleiri
Litríkur kokkteill Kimbabwe er skemmtilegasta plata ársins hingað til. 28.10.2010 09:46 Lausn fundin á Hobbitanum Íbúar Nýja-Sjálands önduðu margir hverjar léttar í gær þegar forsætisráðherra landsins, John Key, tilkynnti að samningar hefðu náðst milli ríkisstjórnarinnar og kvikmyndafyrirtækisins Warner Bros. Það er því ljóst að tökur á tveimur myndum upp úr Hobbitanum, forleiknum að Hringadróttinssögu, geta hafist í febrúar á næsta ári eins og ráðgert hafði verið. 28.10.2010 09:30 Kristján eldaði fyrir gestina sína „Mamma gaf okkur gjarnan þorsk eða ýsu í bakaðri karrísósu og þaðan er fyrirmyndin komin,“ segir Kristján Jóhannsson, óperusöngvari og kennari með meiru. Í gær kom út ævisaga Kristjáns, skráð af Þórunni Sigurðardóttur, og af því tilefni bauð tenórinn vinum og velunnurum í alvöru veislu á La Primavera. 28.10.2010 09:00 Zach Galifianakis í Prúðuleikarana Leikarinn með flókna nafnið, Zach Galifianakis, er sagður eiga í viðræðum við fyrirtæki Jims Henson um að gera kvikmynd með Prúðuleikurunum ásamt Jason Segel. Myndinni hefur enn ekki verið gefið nafn en samkvæmt Empire Online gengur hún undir hinu hógværa nafni The Greatest Muppet Movie Ever Made. Chris Cooper, Amy Adams og Rashida Jones hafa þegar samþykkt að leika í myndinni en ný brúða verður kynnt til leiks í myndinni, Walter. Söguþráðurinn er á þá leið að Segel og Walter reyna að hafa uppi á gamla genginu og fá það til að aðstoða við að bjarga gömlu kvikmyndaveri sem á að rífa. 28.10.2010 08:15 Jónsi og McCartney töpuðu Ryan Bingham og T-Bone Burnett áttu besta frumsamda lagið sem var samið fyrir kvikmynd á verðlaunahátíðinni World Soundtrack Awards sem var haldin í Belgíu. Lagið nefnist The Weary Kind og er úr myndinni Crazy Heart með Jeff Bridges í Óskarsverðlaunahlutverki. 28.10.2010 08:00 Ísland fær samþykki frá Hollywood Ísland hefur verið tekið af svörtum lista tryggingarfélaga sem sérhæfa sig í að tryggja kvikmyndagerð utan Ameríku. Ísland lenti á þessum lista þegar eldgosið í Eyjafjallajökli stóð sem hæst og flugsamgöngur um allan heim röskuðust. Fulltrúi stórfyrirtækisins Warner Bros. gerði úttekt á nokkrum atriðum hér á landi sökum þess að fyrirtækið leitar nú að tökustað fyrir stórmynd sem það hyggst framleiða og kemur Ísland til greina sem mögulegur tökustaður. 28.10.2010 07:30 Sjá næstu 50 fréttir
Nú ertu dónalegur David Beckham (myndband) David Beckham, 35 ára, fór í nudd þar sem upptökuvél hafði verið komið fyrir á nuddstofunni og Ellen sagði David nákvæmlega hvað hann ætti að segja og gera. David biður nuddarann meðal annars að kalla sig Ricky, að nota eingöngu þumlana við nuddið og að syngja fyrir hann. Sjá myndbandið hér. 1.11.2010 10:59
Jolie ósátt við Brad Bandaríska leikkonan Angelina Jolie á að hafa brugðist ókvæða við þegar hún frétti af því að sambýlismaður hennar, Brad Pitt, hafði hringt í leikkonuna Courteney Cox í kjölfar frétta af skilnaði hennar. 1.11.2010 13:00
Íslendingar verða að láta af fordómunum „Mér finnst þetta bara frábært og hver er ég að dæma stúlkur sem vilja koma sér á framfæri með því að taka þátt í fyrirsætukeppni?“ spyr Haffi Haff en hann er titlaður listrænn stjórnandi í fyrirsætukeppni vefritsins Samúels, Samúelstúlkan 2010. Keppnin hefur verið milli tannana á fólki síðan hún fór í loftið, meðal annars sökum þess hversu fáklæddar og ögrandi keppendurnir eru á myndunum inn á vefsíðu Samúels. 1.11.2010 12:00
Í myndbandi eftir frægan teiknara „Ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri svona stórt verkefni,“ segir Þórhildur Þorkelsdóttir, tískubloggari, sem var fengin til að leika í myndbandi í sumar sem síðar var sýnt á stóru tískuvikunum í New York og London. „Þegar myndbandið var frumsýnt var haldið heljarinnar frumsýningarpartí á Soho Grand í New York og um 300 gestum boðið,“ segir Þórhildur. 1.11.2010 11:00
Hrósar Rapace Hollywood leikarinn Robert Downey Jr sparar ekki lofyrðin um sænsku leikkonuna Noomi Rapace en þau leika saman í myndinni Sherlock Holmes 2. Downey Jr segir Rapace vera yndislega persónu, frábæra leikkonu og fagmann fram í fingurgóma. 1.11.2010 10:00
Ástæða skilnaðarins Er lesbíski plötusnúðurinn Samantha Ronson ástæða hjónaskilnaðar söngkonunnar Christinu Aguilera? Þetta er nýjasta kjaftasagan í Hollywood en Aguilera á að hafa átt vingott við Ronson um hríð og lesbískar hneigðir hennar verið ástæðan fyrir endalokum hjónabandsins. Aguilera skildi við dansarann Jason Bratman á dögunum, eftir fimm ára hjónaband en þau eiga saman tveggja ára son. 1.11.2010 08:00
Kærustupar í Kópavogi sópar að sér meistaratitlum „Núna tekur bara venjulega lífið við,“ segir Ásdís Guðmundsdóttir sem á dögunum varð Evrópumeistari í hópfimleikum ásamt liði sínu Gerplu. 1.11.2010 07:00
Biturt gjald draumanna Mögnuð og listilega stíluð skáldsaga sem vekur spurningar og lifir lengi í huga lesandans. 1.11.2010 07:00
Á pólinn með þýskum stjörnum „Við erum að vinna með fyrirtæki sem heitir Extreme World Races og gerðum meðal annars vinsæla þáttaröð fyrir BBC fyrir tveimur árum sem gerðist líka á Suðurpólnum. Og þannig kom þetta verkefni inná borð hjá okkur,“ segir Aron Reynisson hjá Arctic Trucks. 1.11.2010 06:00
Skírði eftir Mandela Söngkonan Celine Dion, sem eignaðist tvíburadrengi fyrir viku, og eiginmaður hennar Rene Angelil hafa ákveðið að skíra þá Eddy og Nelson eftir upptökustjóranum Eddy Marnay og fyrrverandi forseta Suður-Afríku, Nelson Mandela, sem þau hittu fyrir tveimur árum. 31.10.2010 11:45
Missti af brúðkaupinu Söngkonunni Rihönnu fannst afar leiðinlegt að missa af brúðkaupi stjörnuparsins Katy Perry og Russells Brand sem var haldið á Indlandi fyrir skömmu. Hún var stödd í New York til að kynna nýjustu plötu sína Loud og komst ekki í burtu. 31.10.2010 17:00
Siglufjörður kemst inn á þúsundir þýskra heimila „Þetta kom mér skemmtilega á óvart. Ég er í sjöunda himni með þetta,“ segir glæpasagnahöfundurinn Ragnar Jónasson. 31.10.2010 14:00
Óskarsverðlaunahafi veðjar á Sigur Rós „Við höfum kannski ekki verið tregir, ef við höfum góða tilfinningu fyrir verkefninu þá leyfum við það, annars ekki. Þarna var þetta bara Danny Boyle og það nægði – allavega fyrir mitt leyti,“ segir Georg Holm, bassaleikari íslensku hljómsveitarinnar Sigur Rós. 31.10.2010 09:00
Bókin um Bigga Hér er vináttu og fræðum fléttað listilega saman. Þröstur Helgason varpar skýru ljósi á list Birgis Andréssonar í íslensku og alþjóðlegu samhengi og dregur upp innilega mynd af þeim einstaka manni sem hann hafði að geyma. 31.10.2010 07:00
Hjólandi stjarna Leikarinn og hjartaknúsarinn Robert Pattison nýtir sinn frítíma á tökustað til að hjóla á nýju hjóli sem hann var að fjárfesta í. Hjólamennska ku vera nýtt áhugamál hjá vampírudrengnum og kostaði hjólið litlar 200.000 íslenskar krónur. Íbúar í Louisiana, þar sem upptökur fara nú fram á fjórðu Twilight-myndinni, segjast sjá Pattison hjóla um alla borg og að hann taki hjólreiðarnar greinilega alvarlega. 30.10.2010 21:15
Heilari hjálpar fólki að láta draumana rætast Áhugi Hildar Halldóru Karlsdóttur á andlegum málefnum kviknaði fyrir 35 árum. Síðustu 20 ár hefur hún markvisst unnið að því að afla sér þekkingar á því sviði m.a. á námskeiðum hjá Soniu Choquette og Doreen Virtue. Hildur segir okkur frá námskeiði sem hún er að fara af stað með og hvernig hún heilar fólk. „Nú er ég að fara af stað með námskeið 2. desember fyrir þá sem vilja skoða hvað það er sem stendur í vegi fyrir þeim sem vilja láta draumana rætast," sagði Hildur. „Ég tengi mig æðri orku og ég er eins konar millistykki í heiluninni og síðan leggst fólk á bekkinn hjá mér..." sagði hún beðin um að útskýra hvernig heilun virkar. Facebooksíða Hildar heilara. Sjá upplýsingar um námskeiðið hér. 30.10.2010 14:00
Spaugstofan kann sko að halda partý Meðfylgjandi myndir voru teknar í húsnæði Saga film í gærkvöldi þar sem Spaugstofan fagnaði 25 farsælum starfsferli. Eins og myndirnar sýna greinilega ríkti frábær stemning á meðal Spaugstofumanna, vina og samstarfsfélaga þeirra í gegnum tíðina. Geestir fengu að sjá gamla Spaugstofuþætti sem kitluðu hláturtaugarnar svo sannarlega. 30.10.2010 09:51
Matstofa Bjarna snæðings stoppuð „Þeir komu hingað í fyrradag [miðvikudag] og stoppuðu hjá mér framkvæmdirnar og sögðu að ég mætti ekki halda áfram. Ég var að stækka hjá mér klósettin,“ segir Bjarni Geir Alfreðsson, betur þekktur sem Bjarni „snæðingur“ á BSÍ. 30.10.2010 16:45
Treysta á Baltasar og Tom Hanks Kvikmynd Baltasars Kormáks, Contraband, er í hópi þeirra níu mynda sem framleiðslufyrirtækið Universal hefur sett í sérstakan forgang fyrir árið 2012. Myndirnar eru sagðar í hópi metnaðarfyllstu verkefna Universal það árið en þetta kemur fram á vefsíðunni deadline.com. 30.10.2010 13:30
Hjaltalín og kammersveit Hjaltalín heldur tónleika í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri föstudaginn 5. nóvember ásamt stórri kammersveit undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Samtals verða hátt í fjörutíu manns á sviðinu, þar á meðal nokkrir úr Sinfóníuhljómsveit Íslands. 30.10.2010 11:15
Ég hef greinilega tekið brauðmola frá svöngu fólki „Á löngum rithöfundarferli hef ég öðlast þykkan skráp. Þar fyrir utan hef ég auðvitað breitt og sterkt bak. En mér er nóg boðið þegar klíka rithöfunda segir að vinir, lesendur og stuðningsmenn mínir séu með mismikið á milli eyrnanna. Að þeir séu heimskir,“ segir Egill „Gillzenegger“ Einarsson rithöfundur. 30.10.2010 09:00
Heillandi hatur Það er óvenjulegt að sækja heim sýningu þar sem helstu hughrifin eru hatur, áhorfandinn virðist jafnvel óvelkominn, ítrekanir um að snerta ekki listaverkin fá óhugnanlegan undirtón. Þetta kemur á óvart og markar listamanninum sérstöðu. 30.10.2010 08:00
Öfundssjúk Lohan Leikkonan Lindsay Lohan óttast að hún muni missa plötusnúðinn Samönthu Ronson í fangið á annari konu á meðan hún dvelur inni á meðferðarstofnun næstu tvo mánuðina. Sögusagnir um ástarsamband Ronson og söngkonunnar Christinu Aguilera hafa verið háværar upp á síðkastið. „Þetta er að gera Lindsay brjálaða,“ var haft eftir ónefndum heimildarmanni. 30.10.2010 06:00
Konukvöld í Blómaval Meðfylgjandi myndir voru teknar á árlegu konukvöldi í Blómaval Skútuvogi í gærkvöldi. Hátt í tvö þúsund kátar konur voru saman komnar sem hlýddu meðal annars á Helga Björns söngvara og sáu tískusýningar á fatnaði og skarti fra Volcano, Evuklæðum og Gallerí Dunga. Þá fengu konurnar allar glaðninga. 29.10.2010 13:30
Íslenskt hugvit á bak við handklæði Í meðfylgjandi myndskeiði sýna vöruhönnuðurnir Friðgerður Guðmundsdóttir og Kristín Birna Bjarnadóttir, sem skipa hönnunarfyrirtækið GERIST, Reykjavíkurhandklæðið þeirra sem vann 1. verðlaun í samkeppni um minjagrip á vegum Reykjavíkurborgar og Hönnunarmiðstöðvar Íslands 2010. Reykjavíkurhandklæðið er hannað útfrá gömlu heitu pottunum í Laugardalslauginni. Facebooksíða Gerist. 29.10.2010 11:00
Troðfullt á heilsustaðnum Happ Troðfullt var út úr dyrum af glöðum gestum í opnunarteiti á veitingastaðnum Happ á Höfðatorgi í gærkvöldi. Eigendur staðarins, Þórdís Sigurðardóttir og Lukka Pálsdóttir, buðu gestum upp á dýrindis hollusturétti sem samanstóðu meðal annars af jólamatseðil Happ. Skoða má myndir úr veislunni í meðfylgjandi myndasafni. 29.10.2010 07:15
Guðrún Ögmunds á tímamótum Guðrún Ögmundsdóttir hafði tvöfalda ástæðu til að fagna í Iðnó síðasta föstudagskvöld. Þar komu vinir og ættingjar hennar saman bæði til að fagna sextugsafmæli hennar og útgáfu ævisögu hennar. 29.10.2010 00:01
Ragnar ræðir vaktirnar á mánudag Ragnar Bragason kvikmyndagerðarmaður ræðir á mánudaginn kemur um tilurð sjónvarpsþáttanna Næturvaktin, Dagvaktin og Fangavaktin í Háskólabíói klukkan 12. 29.10.2010 14:07
Ævisaga Jónínu prentuð í risaupplagi „Mér hefur fundist þessi markaður vera staðnaður. Vöruhúsabisness. Þessu viljum við breyta,“ segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1. Fyrirtækið blandar sér í slaginn um jólabækurnar þetta árið og hefur keypt dreifingarrétt á tveimur bókum; ævisögu Jónínu Benediktsdóttur sem Sena gefur út og bók sem Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum viðskiptaráðherra, skrifar í samvinnu við Karl Th. Birgisson, sem gefur bókina jafnframt út. 29.10.2010 10:00
Gibson var ekki rekinn Leikarinn Mel Gibson var ekki rekinn úr myndinni The Hangover 2. Þetta fullyrðir leikstjórinn Todd Phillips. Gibson átti að leika hlutverk sem húðflúrari en Liam Neeson var fenginn í hans stað. Því var haldið fram að aðrir leikarar myndarinnar hefðu krafist þess að Gibson yrði rekinn vegna persónulegra vandamála hans en Phillips vísar því á bug. 29.10.2010 09:15
264 blaðsíður með Hjálmum Í dag kemur út 264 síðna bók með safni ljósmynda frá ferli hljómsveitarinnar Hjálma. Myndirnar eru allar eftir ljósmyndarann Guðmund Frey Vigfússon, eða Gúnda. 29.10.2010 08:00
Beyoncé er nútíma Pink Floyd Poppsveitin Bermuda undirbýr tónleika til heiðurs söngkonunni Beyoncé Knowles og hljómsveitinni Destiny"s Child sem verða á Spot 4. nóvember. Allir helstu smellir þeirra verða fluttir, þar á meðal Single Ladies, Crazy in Love og Say My Name. 29.10.2010 07:45
Allt sem prýða má einn krimma Árni spinnur trúverðuga en margslungna fléttu um leið og hann varpar ljósi á samtíma okkar á óvæntan og hrollvekjandi hátt. 29.10.2010 07:00
Laufléttir kjúklingaréttir Tanya L. Williamsdóttir og Áslaug Ósk Hinriksdóttir eru meðal fjölmargra kvenna sem sendu okkur laufléttar kjúklingauppskriftir á Facebook síðu Lífsins. 29.10.2010 06:00
Batman þrjú verður í tvívídd Leikstjóranum Christopher Nolan hefur tekist hið ómögulega. Hann hefur sannfært yfirmenn Warner Bros. um að gera þriðju myndina um Bruce Wayne og Leðurblökumanninn í tvívídd. 29.10.2010 06:00
Talar um leggöngin sín til að fá athygli Breska fyrirsætan Katie Price, eða Jordan, kynnti nýja bók eftir hana sem ber heitið You Only Live Once eða Þú lifir bara einu sinni í London í gærdag. Eins og myndirnar sýna stillti fyrirsætan sér upp í ýmsu stellingum með bókina í hönd. Hún virðist vinna markvisst að því að hneyksla en hún segist vera með nýja aðgerð á prjónunum. Hún ætlar að láta þrengja leggöng sín. „Þegar ég er búin mun ég vera eins og nunna," segir fyrirsætan í viðtali við Sunday Magazine. „Eftir að hafa fætt þrjú börn finn ég virkilegan mun," segir hún. Jordan á börnin Harvey Daniel, með fótboltamanninum Dwight Yorke, og Junior Savva og Prinxess Tiáamii með söngvaranum Peter Andre. 28.10.2010 17:01
Rífur af sér fötin og klippir burt hárið Elísabet Jónsdótir og Stefanía frá Forval kynntu nýjan Ilm sem var að koma á íslenskan markað frá Jean Paul Gaultier á Bleika kvöldinu sem haldið var á vegum Krabbameinsfélagsins í Háskólanum í Reykjavík. Hér má sjá auglýsingu ilmsins Madam þar sem fyrirsætan bókstaflega rífur utan af sér fötin og klippir af sér hárið. 28.10.2010 13:30
Lambakjöts búrborgari Sauðkindin er til margra hluta nytsamleg og fullt búr gómsætra munnbita eins og upplifa má í þessum lambakjötsborgara þar sem punkturinn yfir i-ið er sauðaostur. 28.10.2010 10:31
Kristmundur Axel með nýtt lag „Þetta er mjög gott lag, svo vonandi gengur þetta upp hjá okkur,“ segir Kristmundur Axel Kristmundsson sem frumflutti lagið „Það birtir alltaf til“ á tónlistarstöðinni FM 957 í gær. Kristmundur Axel sló í gegn í Söngkeppni framhaldsskólanna síðasta vor þegar hann rappaði lag um pabba sinn. 28.10.2010 10:00
Lausn fundin á Hobbitanum Íbúar Nýja-Sjálands önduðu margir hverjar léttar í gær þegar forsætisráðherra landsins, John Key, tilkynnti að samningar hefðu náðst milli ríkisstjórnarinnar og kvikmyndafyrirtækisins Warner Bros. Það er því ljóst að tökur á tveimur myndum upp úr Hobbitanum, forleiknum að Hringadróttinssögu, geta hafist í febrúar á næsta ári eins og ráðgert hafði verið. 28.10.2010 09:30
Kristján eldaði fyrir gestina sína „Mamma gaf okkur gjarnan þorsk eða ýsu í bakaðri karrísósu og þaðan er fyrirmyndin komin,“ segir Kristján Jóhannsson, óperusöngvari og kennari með meiru. Í gær kom út ævisaga Kristjáns, skráð af Þórunni Sigurðardóttur, og af því tilefni bauð tenórinn vinum og velunnurum í alvöru veislu á La Primavera. 28.10.2010 09:00
Zach Galifianakis í Prúðuleikarana Leikarinn með flókna nafnið, Zach Galifianakis, er sagður eiga í viðræðum við fyrirtæki Jims Henson um að gera kvikmynd með Prúðuleikurunum ásamt Jason Segel. Myndinni hefur enn ekki verið gefið nafn en samkvæmt Empire Online gengur hún undir hinu hógværa nafni The Greatest Muppet Movie Ever Made. Chris Cooper, Amy Adams og Rashida Jones hafa þegar samþykkt að leika í myndinni en ný brúða verður kynnt til leiks í myndinni, Walter. Söguþráðurinn er á þá leið að Segel og Walter reyna að hafa uppi á gamla genginu og fá það til að aðstoða við að bjarga gömlu kvikmyndaveri sem á að rífa. 28.10.2010 08:15
Jónsi og McCartney töpuðu Ryan Bingham og T-Bone Burnett áttu besta frumsamda lagið sem var samið fyrir kvikmynd á verðlaunahátíðinni World Soundtrack Awards sem var haldin í Belgíu. Lagið nefnist The Weary Kind og er úr myndinni Crazy Heart með Jeff Bridges í Óskarsverðlaunahlutverki. 28.10.2010 08:00
Ísland fær samþykki frá Hollywood Ísland hefur verið tekið af svörtum lista tryggingarfélaga sem sérhæfa sig í að tryggja kvikmyndagerð utan Ameríku. Ísland lenti á þessum lista þegar eldgosið í Eyjafjallajökli stóð sem hæst og flugsamgöngur um allan heim röskuðust. Fulltrúi stórfyrirtækisins Warner Bros. gerði úttekt á nokkrum atriðum hér á landi sökum þess að fyrirtækið leitar nú að tökustað fyrir stórmynd sem það hyggst framleiða og kemur Ísland til greina sem mögulegur tökustaður. 28.10.2010 07:30