Lífið

Jolie ósátt við Brad

Angelina Jolie er ósátt við að Brad Pitt hringi í gamlar vinkonur.
Nordicphtos/getty
Angelina Jolie er ósátt við að Brad Pitt hringi í gamlar vinkonur. Nordicphtos/getty
Bandaríska leikkonan Angelina Jolie á að hafa brugðist ókvæða við þegar hún frétti af því að sambýlismaður hennar, Brad Pitt, hafði hringt í leikkonuna Courteney Cox í kjölfar frétta af skilnaði hennar.

Cox er sem kunnugt er besta vinkona fyrrum eiginkonu Pitts, leikkonunnar Jennifer Aniston, og taldi Jolie óviðeigandi að Pitt væri að púkka upp á vini fyrrum eiginkonunnar. „Angelina hélt að Brad væri að nota skilnað Cox til þess eins að ná sambandi við Jennifer aftur,“ var haft eftir heimildarmanni.

„Þegar Brad heyrði af skilnaði Courteney þá fannst honum ekkert sjálfsagðara en að hringja í sína gömlu vinkonu og sýna henni stuðning á þessum erfiðu tímum. Mistök hans voru að nefna þetta við Angelinu og hann varð orðlaus þegar hann sá hvernig hún brást við.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×