Fleiri fréttir

Upphitunartónleikar fyrir Iceland Airwaves á NASA

Dagskrárbæklingur Iceland Airwaves kemur út á föstudag og af því tilefni verða haldnir upphitunartónleika föstudaginn 5. október á skemmtistaðnum NASA. Hljómsveitirnar Motion Boys, Jan Mayen, Ultra Mega Technobandið Stefán, Bloodgroup og Foreign Monkeys troða upp og opnar húsið 23:00.

Óboðinn gestur hjá Nicholas Cage

Fjörtíu og fimm ára gamall klæðskeri hefur verið ákærður fyrir innbrot á heimili Hollywood leikarans Nicholas Cage aðfararnótt síðastliðins þriðjudags.

Turtildúfur með eins tattú

Þrátt fyrir að breska leikkonan Sienna Miller neiti því staðfastlega að hún og Rhys Ifans séu saman þá virtist annað uppi á teningnum þegar þau sáust koma út af tattústofu í Dublin í gær. Ifans hafði fengið sér svölutattú á hægri úlnliðinn og er það nákvæmlega eins tattú og Miller ber á úlnliði vinstri handar.

Pitt hefur áhyggjur af börnum sínum

Ofurstjarnan Brad Pitt segir paparazzi-ljósmyndara, sem elta hann og fjölskyldu hans á röndum, valda honum hvað mestri gremju í lífinu. Pitt hefur miklar áhyggjur af því hvaða áhrif fjölmiðlaathyglin hafi á börnin hans fjögur og segist oft hugsa um hvað þetta hljóti að vera skrítið fyrir þau.

Affleck: Sambandið við Lopez hafði skaðleg áhrif á feril minn

Hollywoodleikarinn Ben Afflec segir í samtali við tímaritið Details að samband hans við Jennifer Lopez hafi haft skaðleg áhrif á kvikmyndaferil hans. Þau Afflec og Lopez voru saman frá árinu 2002 til 2004 og nutu gríðarlegrar fjölmiðlaathygli á meðan. Þau voru trúlofuð og hafa bæði kennt fjölmiðlum um sambandsslitin.

Moore hrukkótt þrátt fyrir lýtaaðgerðir

Nýjustu myndir af Demi Moore gefa til kynna að hún hafi ekki heimsótt lýtalækninn sinn nýlega. Hin 44 ára leikkona viðurkenndi á dögunum opinberlega að hún hafi eytt um 30 milljónum íslenskra króna í lýtaaðgerðir en eins og meðfylgjandi myndir bera með sér þá spretta hrukkur og augnpokar fram sem aldrei fyrr.

Doherty fær annað tækifæri

Héraðsdómarinn, Davinder Lachhar, ákvað í dag að fresta aðalmeðferð í máli Pete Doherty, söngvara hljómsveitarinnar Babyshambles, og gefa honum með því tækifæri til að vinna bug á eiturlyfjafíkn sinni. En Doherty á mögulega yfir höfði sér fangelsisvist fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot.

Björn seldi Benz-jeppann samstundis

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, er búinn að selja Benz ML 350 jeppann sinn sem var ein af þremur Benz bifreiðum sem hann átti í safninu. Björn er mjög hrifinn af Benz bílum og veitti Vísir því eftirtekt í lok sumars að hann var með þrjá slíka í heimreiðinni hjá sér. Þetta voru jeppi, fólksbíll og auk þess sjálf ráðherrabifreiðin.

Aðsókn á RIFF með besta móti

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík er nú hálfnuð og hefur aðsókn á verið með besta móti. Sætanýting er yfir 80% og ef áfram heldur sem horfir fer hún líklega yfir 20.000 manns sem gerir hátíðina að einum best sótta listviðburði ársins.

Fór í brúnkusprey eftir að hafa misst börnin

Eftir að Britney Spears missti forræðið yfir sonum sínum í gær höfðu fjölskylda hennar og vinir miklar áhyggjur af henni og voru jafnvel hrædd um að hún myndi fara sér að voða. Móðir hennar Lynne reyndi í ofboði að ná í hana til að sjá til þess að hún myndi ekki gera neitt vanhugsað. En Britney kom kannski engum á óvart með viðbrögðum sínum.

Kalli í Pelsinum kaupir eyju

Athafnamaðurinn Karl Steingrímsson, betur þekktur sem Kalli í Pelsinum, hefur fjárfest í eyju á Breiðafirði. Í samtali við Vísi vildi Karl ekki gefa upp nafnið á eyjunni en sagðist lengi hafa haft augastað á Breiðafirðinum.

Britney er í bobba

Dómstóll í Los Angeles úrskurðaði í gær að Kevin Federline, fyrrverandi unnusti Britney Spears, skyldi fá fullt forræði yfir tveimur ungum börnum þeirra. Lífið leikur ekki við Britney þessa dagana því hún var nýlega ákærð fyrir að keyra án ökuréttinda sem gæti kostað hana sex mánaða fangelsi. Þá missti hún fyrir skömmu samning við umboðsskrifstofuna sína.

Britney missir forræðið

Dómari í Los Angeles veitti í kvöld Kevin Federline fullt forræði yfir börnunum tveimur sem hann á með söngkonunni Britney Spears. Britney og Federline hafa allt síðan að þau skildu deilt forræði en stanslaus vandræðagangur á Spears undanfarin misseri leiddi til þess að Federline höfðaði mál til þess að fá fullt forræði yfir börnum sínum.

Stuðmenn vonast til að Ringo Starr renni á hljóðið

Stuðmenn ætla að kalla saman Bítlagæslumennina og slá upp Bítlavöku á Nasa á laugardagskvöld. Þeir vonast til að Ringo Starr renni á hljóðið. Ringo verður gestur Yoko Ono á Íslandi um helgina.

Britney vill vera elt á röndum

Í dagblaðinu Chigago Sun Times í dag er fullyrt að söngkonan Britney Spears sé í stöðugu sambandi við paparazzi ljósmyndara til þess að tryggja að hún sé á forsíðum slúðurblaða í hverri viku.

Bondstjarna fellur frá

Kanadíska leikkonan Lois Maxwell er látin, 80 ára að aldri. Maxwell lék Miss Moneypenny í James Bond myndunum um árabil. Hún lék á móti Sean Connery í fyrstu myndinni, Dr. No, árið 1962 og fór með hlutverk Miss Moneypenny allt til ársins 1985 þegar hún lék í A Wiew To A Kill á móti Roger Moore.

Lohan í frí með föður sínum

Hollywoodstjarnan Linsey Lohan hefur fengið leyfi frá Cirque Lodge meðferðarstofnuninni í Utah til að fara með föður sínum í fimm daga frí. Lohan og faðir hennar Michael Lohan höfðu ekki talað saman í tvö ár þegar hann kom og heimsótti hana í til Utah í lok júlí síðastliðinn.

Sveppatripp Baggalúts

Hljómsveitin Baggalútur mun halda til Skotlands til að taka þátt í árlegri fimm daga sveppahátíð í bænum Aberfoyle þann 18. október næstkomandi. Þessa sömu daga fer Iceland Airwaves hátíðin fram í Reykjavík þar sem allar helstu hljómsveitir Íslands koma fram.

Beyonce hættir við tónleika í Malasíu

Söngkonan Beyonce hefur hætt við fyrirhugaða tónleika í Malasíu einungis nokkrum vikum eftir að kollegi hennar Gwen Stefani féllst á að hylja líkama sinn nánast frá toppi til táar þegar hún hélt tónleika í landinu. Beyonce hefur í staðin ákveðið að halda tónleika í Jakarta í Indónesíu og munu þeir fara fram þann fyrsta nóvember næstkomandi.

Miðar á Spice Girls seldust upp á 38 sekúndum

Miðar á Spice Girls tónleika sem haldnir verða á O2 leikvanginum í London þann 15. desember næstkomandi seldust upp á 38 sekúndum. Tónleikaferð Kryddpíanna hefst í Kanada annan deseber næstkomandi og eru tónleikarnir í London hluti af henni. Vegna gífurlegrar eftirspurnar í Bretlandi hefur verið ákveðið að bæta tveimur tónleikum við þann 16. og 18. desember.

Björgvin Halldórsson með fimm stjörnu tónleika í Köben

Björgvin Halldórsson hefur verið fenginn til að halda tónleika í Cirkus í Kaupmannahöfn á vegum Hótelbókana í Kaupmannahöfn en það fyrirtæki stóð fyrir margrómuðum tónleikum með Stuðmönnum og Sálinni á sama stað í fyrra. Tónleikarnir verða haldnir þann 24. apríl næstkomandi eða á sumardaginn fyrsta.

Faðir Beckhams á batavegi

Faðir David Beckhams er nú á batavegi eftir að hafa fengið hjartaáfall í síðustu viku. Hann er orðinn það hress að hann sagði syni sínum, David, og eiginkonu hans, Victoriu, að fara aftur heim til barna sinna í Los Angeles. Hann tók sig meira að segja til og veifaði þeim bless á bílaplani spítalans.

Glæsibrúðkaup í vændum hjá Richie

Nicole Richie og Joel Madden munu ganga að eiga hvort annað um miðjan mánuðinn. Parið mun ætla að slá upp rausnarlegu brúðkaupi á Laguna Beach í Californiu og fregnir herma að dagsetningin 13. október hafi verið valin.

Letterman reif Paris í sig

Spjallþáttastjórnandinn David Letterman fór allt annað en mjúkum höndum um hótelerfingjann Paris Hilton þegar hún mætti til hans í viðtal í góðri trú á föstudag. Paris var þangað komin til að kynna nýjustu kvikmynd sína, fatalínu og ilmvatn en Letterman bauð hana velkomna með því að spyrja hvernig henni hefði fundist í fangelsinu.

Pamela Anderson á leið í hnapphelduna

Strandvörðurinn fyrrverandi, Pamela Anderson, og Rick Salomon, fyrrverandi kærasti Parisar Hilton, verða brátt gefin saman í hjónaband ef marka má heimildir Reuters fréttastofunnar. Þetta yrði þriðja hjónaband Anderson. Hjónaband hennar og Tommy Lee trommuleikara hljómsveitarinnar Motley Crue endaði með ósköpum árið 1998 eftir þriggja ára hjónaband. Anderson skyldi síðan við seinni eiginmann sinn, Kid Rock á síðasta ári eftir fjögurra mánaða hjónaband.

Sjá næstu 50 fréttir