Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kokkteilkvartett í góðu grúvi Lára Rúnarsdóttir syngur í nýju „kokkteilbandi“ sem ber heitið Kvartett Jakobs Smára Magnússonar. Vignir Guðjónsson fékk að vita meira um málið. 10.7.2007 01:15
Paris lærir leik Paris er farin að sækja kennslu í leiklist hjá einkakennaranum Ivana Chubbuck. Hvort kennslan er strax farin að skila árangri skal látið ósagt, en leikstjórinn Brett Ratner hefur lýsti því yfir að hann hafi mikinn áhuga á að vinna með Paris í næstu verkefnum sínum. 10.7.2007 01:00
Vinna myndir og tóna Slefberi nefnist einn af hinum skapandi sumarhópum Hins Hússins. Hópinn skipa þau Logi Leó Gunnarsson, Birna Björnsdóttir og Helena Aðalsteinsdóttir. 10.7.2007 00:45
Vonlaus endurkoma Þessi endurkomuplata Manchester-sveitarinnar Happy Mondays er hennar fyrsta plata með nýju efni síðan Yes Please kom út fyrir 15 árum. Sveitin hefur verið að byrja og hætta af og til síðan hún hætti fyrst árið 1993. Í dag eru söngvarinn og textasmiðurinn Shaun Ryder, dansarinn Bez og trommuleikarinn Gaz Whelan þeir einu sem voru í hljómsveitinni þegar hún var upp á sitt besta. 10.7.2007 00:30
Þakklátir staðarhöldurum í Breiðavík „Við erum þeim hjónum alveg ótrúlega þakklátir og móttökurnar hafa verið bæði hlýlegar og yndislegar,“ segir Egill Helgi Kristinsson, sem situr í stjórn Breiðavíkursamtakanna. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær eru Íslendingar tregir við að ferðast til Breiðavíkur eftir að upp komst um illa meðferð á unglingsdrengjum þar á 6., .7. og 8. áratugnum. Framar í blaðinu má síðan sjá umfjöllun um heimasíðu sem samtökin hafa stofnað á vefslóðinni breidavikursamtok.is. 10.7.2007 00:15
Nýtt viðmið í íslenskri tónlistarmyndbandagerð Það er búið að setja nýtt viðmið í íslenskum tónlistarmyndböndum segja Páll Óskar Hjálmtýsson og Hannes Þór Halldórsson, sem undanfarna mánuði hafa unnið að einhverju dýrasta myndbandi sem gert hefur verið á Íslandi. 9.7.2007 20:15
Avril Lagvine ósátt við ásakanir Kanadíska söngkonan Avril Lavigne bregst harðlega við ásökunum á hendur sér um að hún skreyti tónsmíðar sínar lagstúfum og textabrotum úr annarra smiðju. Segir söngkonan fullyrðingar þessar alrangar og íhugar að leita réttar síns vegna málsins. 9.7.2007 18:47
Prince rekinn af sviði Tónleikar poppgoðsins Prince í Minneapolice á sunnudaginn urðu heldur endaslepptir því leyfilegum opnunartíma staðarins var lokið. Skipuleggjendur tónleikanna reyndu allt til að fá lagana verði til að gera undantekningu í þetta skipti en allt kom fyrir ekki. 9.7.2007 16:48
Potter aðdáendur skora á Rowling Þúsundir aðdáenda Harry Potter bókanna hafa sett nafn sitt á bænaskrá sem ætlað er að hvetja höfundinn J.K. Rowling til að halda skrifum sínum áfram. Sjöunda bókin um galdrastrákinn sívinsæla er væntanleg. Rowling hefur fullyrt að í þeirri bók taki ævintýrið um Harry skýran endi og að hún verði sú síðasta í flokknum. 9.7.2007 14:10
Paris og Lindsay grafa stríðsöxina Paris Hilton mætti í 21 árs afmæli Lindsay Lohan á Malibu-ströndinni um helgina. Breska blaðið The Sun greindi frá þessu í gær. Þetta þykir tíðindum sæta enda ekki langt síðan glamúrgellurnar voru svarnir óvinir. 9.7.2007 10:15
Fólk feimið við Breiðavík „Stemningin er alltaf góð en það mætti vera meira af Íslendingum,“ segir Keran Stueland Ólason, staðarhaldari í Breiðavík, en hann rekur þar gistiheimili ásamt konu sinni, Birnu Mjöll Atladóttur. Að sögn Kerans finna þau mikinn mun á milli ára hvað heimsóknir Íslendinga varðar og er skýringarnar einna helst að finna í Breiðavíkurmálinu. 9.7.2007 10:00
Victoria í Ugly Betty Aðstandendur bandaríska gamansþáttarins Ugly Betty hafa gengið frá samningum við kryddpíuna Victoriu Beckham um að hún leiki í tveimur þáttum í næstu seríu þáttaraðarinnar. 9.7.2007 09:45
Styttist í endurkomu Kristjáns Jóhannssonar „Ég get ekki uppljóstrað hvenær það verður, en þetta verður fyrr en seinna á þessu ári,“ segir óperusöngvarinn Kristján Jóhannsson. Hann hyggst snúa aftur til Íslands og halda tónleika hér á landi en það yrðu þeir fyrstu eftir að mikið fjölmiðlafár varð í kringum góðgerðatónleika Ólafs M. Magnússonar árið 2004 en þar var Kristján sagður taka óeðlilega há laun fyrir að koma fram. 9.7.2007 09:45
Treystir ljónum betur en fólki Kevin Richardson er nýjasta stjarnan í dýralífsþáttagerð og hefur verið nefndur næsti Steve Irwin. Hann hefur einstakt lag á ljónum og getur fengið villtustu karldýrin til að leika við sig. 9.7.2007 09:30
PlayStation 3 lækkar í verði Japanski tækniframleiðandinn Sony hefur lækkað verð á nýjustu PlayStation 3 leikjatölvunni (PS3) í Bandaríkjunum um 17 prósent með það fyrir augum að auka sölu á tölvunni. Þetta jafngildir því að verðið lækkar um 100 bandaríkjadali, rúmar sex þúsund íslenskar krónur og kostar tölvan nú 500 dali út úr búð í Bandaríkjunum, eða 30.500 íslenskar krónur. 9.7.2007 09:16
Rándýr hauskúpa Myndlistarmaðurinn Damien Hirst opnaði í byrjun júnímánaðar sýningu þar sem hann sýnir dýrasta listaverk sem hefur verið búið til. Verkið er hauskúpa í fullri stærð úr títaníum alþakin demöntum. Á hauskúpunni eru 8601 demantar sem eru samtals 1106,18 karöt. 9.7.2007 09:00
Kate hættir hjá undirfatafyrirtæki Kate Moss mun ekki endurnýja samning sinn sem andlit undirfatafyrirtækisins Agent Provocateur en hann rennur út í ágúst. Ofurfyrirsætan hefur setið fyrir á fjölda myndum fyrir fyrirtækið og auk þess myndböndum í anda Lísu í Undralandi. Vefsíða fyrirtækisins hrundi þegar fyrstu myndböndin voru sett á netið vegna fjölda fólks sem reyndi að skoða þau. 9.7.2007 08:00
Þakklát Armani Leikkonan Michelle Pfeiffer segist eiga margt að þakka hönnuðinum Giorgio Armani en hann bauðst til þess að klæða hana upp þegar hún var að leika í myndinni Scarface árið 1983. 9.7.2007 07:45
Nikótíntyggjóið er ómissandi Níu leikarar útskrifuðust frá Listaháskóla Íslands fyrir skemmstu og er ábyggilega ekki langt að bíða þar til andlit þeirra verða Íslendingum að góðu kunn. Á næstu dögum munu þessir nýjustu leikarar landsins sitja fyrir svörum hjá Fréttablaðinu, hver í sínu lagi. Í dag er það Hallgrímur Ólafsson sem situr fyrir svörum. 9.7.2007 07:30
Hrófatildur í Hyde Park Breska blaðið Observer greindi frá því í fyrri viku að að fyrirhugaður skáli Ólafs Elíassonar og norska arkitektsins Ketils Thorsen við Serpentine-galleríið í London yrði ekki reistur sökum þess að þeir hefðu ekki staðist skilafrest á teikningum. 9.7.2007 07:00
Fjölskylduerjur fræga fólksins Ástalíf Hollywoodstjarnanna einkennist oftar en ekki af miklum sviptivindum. Það eru þó ekki bara ástarsamböndin sem eru brokkgeng í Hollywood, því oftar en ekki einkennir sama kergja sambönd foreldra og barna. 9.7.2007 06:30
Traveling Wilburys: Collection - fjórar stjörnur Á The Traveling Wilburys Collection eru báðar plötur hljómsveitarinnar, nokkur aukalög og DVD diskur með þeim fimm myndböndum sem hún gerði og heimildarmynd um tilurð og sögu sveitarinnar. Semsagt allt það sem skiptir máli í einum pakka. 9.7.2007 06:15
Tónleikar í Sigurjónssafni Árlegir sumartónleikar Listasafns Sigurjóns hófu göngu sína sumarið 1989. Tónleikaröðin þótti kærkomin viðbót við menningarlífið í borginni því framan af voru þetta einu reglulegu tónlistarviðburðir á sumrin í Reykjavík. 9.7.2007 06:00
Birta byggir sumarhús í Hvalfirði Birta Björnsdóttir, fatahönnuður í Júníform og eiginmaður hennar hafa fest kaup á lóð í Hvalfirði og áforma að reisa þar sumarbústað. Birta vakti mikla athygli fyrr á árinu, eftir að Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir klæddist fötum frá henni sem kynnir í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Í kjölfarið rauk eftirspurn eftir fötum frá Birtu upp úr öllu valdi og búðin tæmdist á örfáum dögum. 9.7.2007 06:00
Undarleg árátta fólks að þurfa að segja mér hvað hundurinn er ljótur „Mér finnst hún fallega ljót," segir Sigríður Jónsdóttir hundaeigandi um tíkina Foxy sem er tæplega eins árs. „Eiginlega finnst mér hún ótrúlega sæt. Hún er mikill karakter, alltaf glöð og fólk sér mjög fljótlega í gegnum ljótleikann," segir Sigríður og hlær. 8.7.2007 12:30
Dungen: Tio bitar - tvær stjörnur Dungen er hljómsveit (í raun verk eins manns, Gustav Ejstes) frá Stokkhólmi í Svíþjóð. Sveitin hefur sent frá sér nokkrar skífur en síðasta plata, Ta det lungt, sló í gegn meðal tónlistarspekúlanta víða um heim og hróður hennar barst víða. 8.7.2007 12:00
Potts gefur út plötu Paul Potts, símasölumaðurinn sem nýlega vann hug og hjörtu heimsbyggðarinnar með frammistöðu sinni í þáttunum Britain"s got talent, hefur lokið við upptökur á sinni fyrstu plötu og er hún væntanleg í verslanir í næstu viku. 8.7.2007 11:30
Logi Ólafs kaupir sér afdrep í sveitinni „Það má segja að það sé gamall draumur minn að verða bóndi. Nú er ég kominn hálfa leið,“ segir Logi Ólafsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari og núverandi íþróttakennari og fótboltaskýrandi. Logi hefur keypt jörðina Arnarhól í Flóahreppi en eftir því sem fram kemur á vef Suðurlands er um að ræða 130 hektara lands auk bæjarstæðis. Uppsett verð voru 90 milljónir króna. 8.7.2007 11:00
Innblástur frá málurum Tískuhúsið Christian Dior fagnar þessa dagana sextíu ára afmæli sínu og John Galliano, yfirhönnuður þess, fagnar því einnig að tíu ár eru síðan hann tók við hjá Dior. 8.7.2007 10:30
Friðurinn úti Friðurinn á griðastað fræga fólksins í bænum St. Michaels í Maryland, virðist vera úti. Þegar varaforsetinn Dick Cheney keypti sér hús bænum fyrir tveimur árum lét hann banna þyrluflug á svæðinu. Þannig ættu papparazzi-ljósmyndarar erfiðar um vik í eltingaleiknum við hann. Húseignir í St. Michaels urðu því afar eftirsóttar hjá stjörnunum í Hollywood. 8.7.2007 10:00
Einfari sem vinnur neðanjarðar Mexíkóski auðkýfingurinn Carlos Slim Helu, sem nýlega skaust fram úr Bill Gates á lista ríkustu manna veraldar, er um margt sérstakur maður. Hann notar ekki tölvu, starfar að mestu í gluggalausu neðanjarðarbyrgi í heimalandi sínu og þykir afar harður í horn að taka. 8.7.2007 09:00
Meira en milljarður dala í lagfæringar á X-Box 360 Vandræði Microsoft tengd X-Box 360 leikjatölvunni eru hvergi nærri á enda en nú segist fyrirtækið þurfa að eyða minnst einum milljarði bandaríkjadala í að lagfæra alvarlega galla í vélbúnaði tölvunnar. Þá var sala á vélinni langt undir væntingum á síðasta fjárhagstímabili. 7.7.2007 17:22
Metfjöldi í Heimaklettsgöngu Um 70 manns eru nú í árlegri göngu á Heimaklett og hafa aldrei verið fleiri í einu. Gangan er hluti af Goslokahátíð sem stendur yfir nú um helgina í Vestmannaeyjum. Þar er þess minnst að 34 ár eru liðin frá eldgosinu í Heimaey. 7.7.2007 15:35
Eva Longoria giftir sig Desperate Housewives stjarnan Eva Longoria giftist Tony Parker, unnusta sínum, í borgaralegri athöfn í París í gær. Parið ætlar svo að gifta sig aftur fljótlega, í það skiptið í kirkju. 7.7.2007 11:37
Landvernd efnir til ljósmyndasamkeppni Landvernd efnir til ljósmyndakeppni undir yfirskriftinni „Augnablik í eldfjallagarði“. Í eldfjallagarðinum, frá Reykjanesi að Þinvallavatni, er að finna fjölbreytilegt myndefni allt frá fjörum, brimi og sjávarklettum upp í hverasvæði, gíga og hrauntraðir í hálendislandslagi. Þemu keppninnar eru hverir, jarðmyndanir og náttúruperlur. Í dómnefnd keppninnar sitja ljósmyndararnir Ellert Grétarsson og Oddgeir Karlsson auk fulltrúa Landverndar sem er Guðrún Tryggvadóttir myndlistakona. Skilafrestur mynda er 10. ágúst. 7.7.2007 11:30
Vill semja fyrir Beyoncé „Ég fékk styrk frá Menningarsjóði Glitnis og er með tvö lög í farvatninu," segir Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi. Nýlega stóð Icefusion.com og Hótel Glymur fyrir merkilegum vinnudögum í Hvalfirðinum þar sem margir af fremstu lagasmiðum þjóðarinnar hittu fyrir virta erlenda starfsbræður sína. 7.7.2007 11:30
Britney með meðferðarfulltrúanum Sú saga gengur nú fjöllum hærra að Britney Spears sé kominn með nýjann kærasta og sá sé enginn annar en sjálfur meðferðarfulltrúinn hennar, 38 ára gamall fasteignabraskari að nafni John Sundahl. Eins og kunnugt er snéri söngkonan til baka úr áfengismeðferð í mars síðastliðnum og hefur síðan þá unnið markvisst í sínum málum, með aðstoð 12 spora kerfisins og Sundahl. 7.7.2007 11:00
Eiður Smári kom eiginkonunni á óvart Eiður Smári Guðjohnsen gerði sér lítið fyrir og hélt óvænta afmælisveislu fyrir konuna sína, Ragnhildi Sveinsdóttur, síðastliðið fimmtudagskvöld. Ragnhildur verður þrítug á morgun, 8. júlí, en Eiður tók forskot á sæluna og efndi til veislu í garðinum við heimili þeirra í Fossvogi. 7.7.2007 10:30
Johnsen-ættin gerir sér glaðan dag Ættarmót njóta mikilla vinsælda meðal Íslendinga og á hverju sumri flykkjast hundruð landsmanna út á land til að hitta fjarskylda og nærskylda ættingja sína. Í Vestmannaeyjum kemur ein ætt saman um helgina sem er þekkt fyrir mikið stuð. 7.7.2007 10:00
Kate Middleton er framtíðardrottning Bretlands Bretar geta tekið gleði sína á ný því að framtíðarkonungsefni landsins er aftur komið á fast. Ekki er þó ný drottning komin í höllina því Vilhjálmur og Kate Middleton hafa tekið saman á ný. 7.7.2007 09:45
Hermikrákan Victoria Kate Moss er „trendsettari" eins og flestir vita en fæstir vita það þó jafnvel og Victoria Beckham sem er alls ekki þekkt fyrir sjálfstæðar tískuákvarðanir. 7.7.2007 09:00
McCartney og Mills verða nágrannar Sir Paul McCartney og Heather Mills stefna að því að verða nágrannar. Þetta kom fram á erlendum slúðurvefjum í gær. Samkvæmt þeim hyggst Mills kaupa sér hús nærri villu Pauls í East Sussex. 7.7.2007 08:45
Hjónabandserjur Hjónaband Juliu Roberts og Danny Moder er í uppnámi þessa dagana. Álit Roberts á fjölskyldu eiginmannsins hefur aldrei verið hátt, en systir Danny, Jyl, hefur átt við áfengisvandamál að stríða í mörg ár. 7.7.2007 08:30
Hettupeysur Klöru uppseldar Klara Ósk Elíasdóttir hefur setið sveitt við sauma undanfarnar vikur. Hettupeysur eftir Klöru, sem flestir þekkja sem söngkonu í Nylon, eru til sölu í búðinni Fígúru á Skólavörðustíg, sem var opnuð í lok maí. Velgengni þeirra hefur verið slík að Klara annar ekki eftirspurn. 7.7.2007 08:00
Slátur með tónleika í Aminu Í kvöld verða tónleikar í galleríinu Aminu í Ingólfsstræti. Þar er félagsskapurinn Slátur á ferð: Samtökin eru eldri en margan grunar en skammstöfunin stendur fyrir Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík. 7.7.2007 07:30