Fleiri fréttir

Allt sem einhverju skiptir

Ást, kynlíf, dauði, guð og allt hitt sem skiptir máli er viðfangsefni gjörningaleikhúsverks Ingibjargar Magnadóttur og Kristínar Eiríksdóttur sem sanna hið fornkveðna að fæstir eru spámenn í eigin föðurlandi.

Arctic Monkeys bar af á Brit

Brit-verðlaunin voru afhent í London í fyrrakvöld. Arctic Monkeys var sigurvegari kvöldsins með tvenn stærstu verðlaunin.

Britney í heitum leik

Britney Spears virðist ekkert ætla að hægja á ferðinni með drykkju sinni og lífernið er að verða villtara og villtara með hverjum deginum. Breska götublaðið The Sun birti myndir af söngkonunni í annarlegu ástandi á New York Club One þar sem hún skellti nokkrum velvöldum tekíla-staupum í sig.

Feitur hljómur Kaiser Chiefs

Leeds-sveitin Kaiser Chiefs hefur átt mikilli velgengni að fagna frá því að fyrsta platan hennar Employment kom út fyrir tveimur árum. 26. febrúar kemur önnur platan hennar, Yours Truly, Angry Mob, í verslanir. Trausti Júlíusson hlustaði á gripinn.

Jude Law á skautum í Laugardal

„Hann kom mér fyrir sjónir eins og venjulegur maður í fríi með börnunum sínum,“ segir June Clark í Skautahöllinni í Laugardal sem tók á móti stórleikaranum Jude Law á þriðjudag. Jude Law eyddi um klukkustund á svellinu í Laugardal með börnum sínum þremur og barnfóstru, en eins og Fréttablaðið hefur greint frá er hann hér í vikulöngu fríi.

Risaklámráðstefna í Reykjavík

Dagana 7. til 11. mars verður haldin í Reykjavík mikil klámráðstefna en 150 manns eru á leið til landsins þar sem þeir munu ræða eitt og annað sem við kemur klámbransanum. Og skemmta sér í rækilega.

Franska aldan á leiðinni

Efnt var til fundar í Ráðherrabústaðnum í gær þar sem franska menningarveislan Pourquoi pas? var kynnt. Sú þrettán vikna franska veisla hefst í næstu viku og eiga landsmenn á góðu von; hingað munu streyma listamenn, fræðimenn og aðrir andans menn til að gleðja og fræða um flest það sem franskt er, hvort sem það tengist menningu, matargerð, trúisma eða viðskiptum.

Hjálpar Mel Gibson að gera kvikmynd um Fischer

„Ég hef verið að reyna að koma á sambandi Mels Gibson og Bobby Fischer í tengslum við fyrirhugaða mynd um Fischer og sögu hans. Gibson er áhugasamur um að framleiða slíka mynd og ég hef sagt Bobby að ég muni skrifa útlínur á eina síðu fyrir hann. Hver veit nema Mel heimsæki Fischer til Íslands fljótlega,“ segir Raul Rodriguez.

J-Lo heiðruð af Amnesty International

Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa heiðrað leik- og söngkonuna Jennifer Lopez vegna nýjustu kvikmyndar hennar, Border-town.

Lager Indriða til sölu

Lager Indriða klæðskera, heitins, er á leið til landsins frá Kaupmannahöfn og verður til sölu í tvær vikur, frá næstkomandi sunnudegi til 3. mars, í Saltfélaginu við Grandagarð 2.

Lífið og fjörið á Akureyri

Mikil tíðindi berast að norðan frá Leikfélagi Akureyrar: Magnús Geir Þórðarson hefur verið ráðinn áfram sem leikhússtjóri og mun sitja á friðarstóli allt til 2010.

Óperan opnar dyrnar

Nú um helgina halda óperuhús um alla Evrópu upp á fjögurra alda óperuhefð undir yfirskriftinni Óperudagar Evrópu og hér á Fróni gefst áhugasömum tónlistarunnendum tækifæri á að kynna sér starfsemi Íslensku óperunnar.

Robbie þakkað fyrir

Fyrrum félagar Robbie Williams í strákasveitinni Take That hafa óskað Robbie alls hins besta í meðferðinni sem hann skráði sig í á dögunum og vonast til að hann jafni sig sem allra fyrst.

Sigur Rós til verndar Varmá

Baráttu- og styrktartónleikar undir yfirskriftinni Lifi Álafoss! verða haldnir í BaseCamp-verinu í Héðinshúsinu á sunnudagskvöld. Fram koma Sigur Rós, Bogomil Font & Flís, Pétur Ben, Amiina og Benni Hemm Hemm. Húsið verður opnað klukkan 20.00 og er takmarkaður miðafjöldi.

Skáldið Jón Laxdal

Ljóðskáldið Jón Laxdal Halldórsson er ef til vill betur þekkt fyrir myndlist sína en skáldskap en á því verður gerð bragarbót í kvöld. Norður á Akureyri eru haldin bókmenntakvöld á vegum menningarsmiðjunnar Populus Tremula en smiðja sú starfar í Listagilinu þar í bæ.

Sungið í Smáralind

Miðasala er hafin á brekkusöng sem fer fram í Vetrargarðinum í Smáralind á laugardagskvöld. Brekkusöngurinn stendur yfir frá klukkan 20.30 til 23.30 og kemur þar eingöngu fram listafólk frá Vestmannaeyjum.

Tekur upp á ensku

Hljómsveitin Mammút er byrjuð að taka upp nýja plötu sem verður alfarið sungin á ensku. Er hún væntanleg á markað síðar á þessu ári.

Hið smávægilega

„Næstum því ekki neitt, það er ekki ekki neitt“ er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í Nýlistasafninu á morgun í tengslum við franska menningarvorið – Pourquoi pas? Að frumkvæði sendiráðsins var ákveðið að setja upp sýningu og tengjast galleríi sem fatahönnuðurinn og framleiðandinn Agnes B eða agnes b setti af stað fyrir tveimur áratugum rúmum í Frakklandi.

Týndi trúlofunarhringnum í Smáralind

Katrín Ósk Vilhjálmsdóttir, unnusta Gylfa Víðissonar keppanda í X-Faktor, vaknaði upp við vondan draum í Vetrargarði Smáralindar á föstudaginn fyrir viku. Katrín var þar stödd til að styðja við bakið á sínum manni þegar hún veitti því athygli að trúlofunarhringurinn sem Gylfi gaf henni um jólin var horfin af baugfingri hennar.

Veiðisögur Bubba koma út í haust

„Ekki er einu sinni kominn titill á bókina. Svo skammt er þetta á veg komið. En vinnuheitið er Veiðisögur Bubba,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri JPV útgáfu.

Völundarhús Pans - fimm stjörnur

Strax í sinni fyrstu mynd, Cronos frá árinu 1993, sýndi mexíkóski leikstjórinn Guillermo del Toro að hann er kvikmyndagerðarmaður með sérstaka og áhugaverða sýn. Þrátt fyrir glappaskotið Mimic árið 1997 hefur honum gengið ágætlega í Hollywood en nýtur sín þó óneitanlega betur á móðurmálinu, eins og Hornsteinn djöfulsins (El Espinazo del diablo) frá 2001 og nú Völundarhús Pans ber glögglega vitni um.

Pink á sýrutrippi á McDonald’s

Það virðist ótrúlegt en satt, að 10% af bandarísku þjóðinni hefur starfað fyrir hamborgarakeðjuna McDonalds’s, samkvæmt heimildum America Online. Fréttasíðan hefur tekið saman tíu frægustu starfsmenn keðjunnar fyrr og síðar en meðal þeirra eru leikkonan Sharon Stone, skemmtikrafturinn Jay Leno og söngkonurnar Shania Twain og Pink.

Eminem hvatti Kim til sjálfsmorðstilraunar

Rapparinn Eminem hefur í mörg ár átt í stormasömu sambandi við æskuást sína, Kim Mathers. Eru þau tvígift og -skilin og hafa því gengið í gegn um súrt og sætt saman. Nú hefur Kim viðurkennt að hún hafi reynt að fyrirfara sér vegna framferðis Eminem í hennar garð.

Dalton í Pakkhúsinu á Selfossi

Hljómsveitin Dalton mun spila í Pakkhúsinu, Selfossi, föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveitin spilar fjölbreytta og skemmtilega tónlist sem er blanda af funk, soul, rokki og róli í bland við íslenska tónlist.

Ég fékk mitt

OJ Simpson segir að hann hafi fengið borgað, jafnvel þótt umdeild bók hans um morðin á fyrrverandi eiginkonu hans og kærasta hennar, hafi aldrei komið út. Bókin hét: "Eg ég hefði gert það, hefði ég gert það svona." Simpson segir í viðtali við dagblað í Flórída að hann hefði sagt útgefandanum að hann vonaði að bókin yrði aldrei gefin út.

Dóttir Trumps lítt hrifin af París Hilton

Ivanka Trump, dóttir mógúlsins, Dónalds, brást reið við þegar reynt var að líkja henni við París Hilton. Hún sagði, ákveðið, að þær væru ekki um neitt líkar. Hún hefði alltaf þurft að vinna fyrir þeim peningum sem hún hefði fengið, og væri orðin hundleið á að verið væri að bera þær saman.

Air spilar á Íslandi

Franski poppdúettinn Air er á meðal þeirra sem munu spila á frönsku menningarhátíðinni Pourquoi Pas? sem verður haldin hérlendis frá 22. febrúar til 12. maí.

Beyonce á baðfötum

Myndir af söngkonunni BeyoncéKnowles prýða baðfataútgáfu tímaritsins Sports Illustratied fyrir árið 2007. Einnig eru í tímaritinu myndir af þekktum nöfnum úr tónlistarheiminum á borð við Kanye West, Aerosmith og Gnarls Barkley við hlið léttklæddra fegurðardísa.

Bollur í bílförmum

Bolludagurinn gengur í garð á mánudag og eru margir eflaust farnir að huga að bollubakstri. Þeir sem ekki baka þurfa þó ekki að sitja uppi bollulausir, því bakarar landsins hafa brett upp ermarnar og framleiða kræsingarnar á færibandi.

Hattur og Fattsdóttir

Þóra Karitas Árnadóttir stígur fyrstu skref sín á leiklistarbrautinni hjá Leikfélagi Akureyrar, en sporin þau liggja ansi nálægt fótsporum föður hennar, Árna Blandon. Þóra er aðstoðarmaður leikstjórans Kjartans Ragnarssonar, en hann og Árni gerðu garðinn frægan sem Hattur og Fattur hér á árum áður.

Hin hliðin á sögunni

Myndin Letters from Iwo Jima í leikstjórn Clint Eastwood verður frumsýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi á föstudagskvöld. Um er að ræða systurmynd Flags of our Fathers og voru þær báðar teknar hér á landi eins og þekkt er orðið.

Hneyksli skekur grunnskóla

Græna ljósið frumsýnir spennutryllinn Notes on a Scandal, með Cate Blanchett og Judi Dench í aðalhlutverki, annað kvöld. Dench fer með hlutverk Barböru Covett, einmana kennslukonu sem stjórnar nemendum sínum með járnaga.

Kristján Þorvalds og Tommi ríða á vaðið

„Það kom mér stórkostlega á óvart hversu margir vildu vera með. Þeir virðast miklu fleiri trúbadorarnir sem vilja koma út úr skápnum en við þorðum að vona,“ segir Friðrik Indriðason, blaðamaður og einn helsti skipuleggjandi Stóru trúbadorkeppninnar, sem hefst á Sportbarnum við Hverfisgötu í kvöld.

Lecter finnur til lystar sinnar

Siðfágaðasta mannæta fyrr og síðar, dr. Hannibal Lecter, mætir í kvikmyndahús hér á landi annað kvöld þegar Hannibal Rising verður frumsýnd.

Melaband á meginlandi

Sinfóníuhljómsveit Íslands er á ferðalagi um meginland Evrópu og hefur vakið stormandi lukku í tónleikahúsum í Þýskalandi á síðustu dögum. Hljómsveitin mun leika á átta tónleikum á tveimur vikum og hefur þegar haldið tvenna tónleika í Þýskalandi.

Múlinn steðjar af stað

Vetrardagskrá djassklúbbsins Múlans hefst á ný á Domo Bar í kvöld en sextán tónleikar eru fyrirhugaðir þar á næstunni. Múlinn er samstarfsverkefni Félags íslenskra hljómlistarmanna og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á helsta djassgeggjara þjóðarinnar, Jóni Múla Árnasyni, sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.

Skrattakollur á mótorfáki

Hasarmyndin Ghost Rider, með Nicholas Cage í aðalhlutverki verður frumsýnd hér á landi annað kvöld – á sama tíma og í Bandaríkjunum. Myndin byggir á samnefndum teiknimyndasögum um mótorhjólakappann Johnny Blaze, sem getur orðið býsna heitt í hamsi.

Terem-kvartettinn snýr aftur

Hinn eftirsótti Terem-kvartett heldur tónleika í Salnum í kvöld en þeir rússnesku snillingar hafa hlotið nafnbótina þjóðargersemi Rússlands hjá gagnrýnendum auk þess að fá blessun frá páfa og móður Theresu. Uppselt er á tónleikana í kvöld en vegna frábærrar aðsóknar hefur aukatónleikum verið bætt við á sama tíma annað kvöld.

Notalegt reggíkvöld

Reggíkvöld verður haldið á Café Kulture við Hverfisgötu í kvöld í tilefni þess að hinn 6. febrúar síðastliðinn voru 62 ár liðin síðan goðsögnin Bob Marley fæddist.

Ólögleg Siv er ekkert sár

„Ég er rífandi stolt af nafni mínu, er fædd og skírð upp á norska vísu í Nordstrandkyrkje,“ segir Björg Siv Juhlin Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, þegar hún er spurð um nýlegan úrskurð mannanafnanefndar um að nafnið Siv samræmist ekki íslenskri hefð. „Ég fæ vonandi að komast aftur inn í landið,“ bætti Siv við en ráðherra var staddur í Brussel þegar Fréttablaðið ræddi við hana.

Ummæli safnstjóra metin á tvær milljónir króna

„Þetta verður það sama og með geirfuglinn sem var boðinn upp úti í London á sínum tíma. Það fór fram söfnun og uppboðshaldarinn úti vissi upp á krónu hvað safnaðist og fuglinn fór á það,“ segir Tryggvi Páll Friðriksson í Gallerí Fold og einn helsti uppboðshaldari Íslands.

Dæmdur sekur

Leikarinn Omar Sharif hefur fengið skilorðsbundinn dóm og verið gert að sækja reiðistjórnunarnámskeið eftir að hann játaði sig sekan um að hafa ráðist á bílastæðavörð.

Sjá næstu 50 fréttir