Fleiri fréttir

Yoko Ono boðar heimsfrið í Höfða

“Það var engin tilviljun sem réði því að við fæddumst á þessum tíma, heldur var okkur ætlað ákveðið verkefni. Og því verkefni er ekki enn lokið. Ég veit að John verður með okkur í anda þennan dag, 9.október, í Reykjavík og ég hlakka til að sjá ykkur og samgleðjast með ykkur á þessum spennandi degi. STRÍÐINU ER LOKIÐ, sé það þinn vilji. Ég elska ykkur.” – yoko ono

Hrannar sigraði í Ráðhúsinu

Hrannar Baldursson sigraði á Ráðhússkákmótinu, sem haldið var í tilefni af Alþjóða geðheilbrigðisdeginum. 40 keppendur á öllum aldri tóku þátt í mótinu sem heppnaðist stórvel. Karl Jóhanns Þorsteins og Stefán Bergsson lentu í 2.-3. sæti, en sá síðarnefndi var í fararbroddi fram í síðustu umferð, þegar hann tapaði fyrir Hrannari.

Fordrekaður Íslendingur fær misskiptingu í æð

Hljómsveitin Sigur Rós hélt fyrir tveimur vikum síðan til Svasílands þar sem þeir félagar kynntu sér hjálparstarf UNICEF og lögðu sitt af mörkum í baráttunni gegn alnæmi. Kvikmyndagerðarkonan Silja Hauksdóttir var með í för og festi þessa ótrúlegu för á mynd en væntanlega verður sjónvarpsþáttur um ferð Sigur Rósar sýndur á Stöð 2 1. desember sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn alnæmi.

Með flottustu leggina í bransanum

Fergie úr hljómsveitinni Black Eyed Peas varð þess heiðurs aðnjótandi fyrir helgi að leggir hennar voru valdir þeir flottustu í skemmtanabransanum. Hin 31 árs Fergie, sem gaf nýverið út fyrstu sólóplötu sína, skaut fjölmörgum stórstjörnum ref fyrir rass í kosningunni, sem fór fram á vefsíðu Sky.

Eva slösuð

Eva Longoria slasaðist á tökustað Aðþrengdra eiginkvenna á fimmtudaginn. Eva var á leið út úr hjólhýsi sínu þegar hún missti fótanna með þeim afleiðingum að rifbein hennar mörðust illa. Hún var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar en var komin aftur á tökustað og í vinnu innan örfárra klukkutíma.

Gaultier fagnar 30 árum í bransanum

Franski tískuhönnuðurinn og frumkvöðullinn Jean Paul Gaultier fagnar 30 ára hönnunarafmæli sínu á þessu ári. Þessum tímamótum gerði Gaultier skil áður en tískusýning hans fyrir vor/sumar 2007 hófst á tískuvikunni í París á dögunum.

Hleranamál Kidman

Ástralski ljósmyndarinn Jamie Fawcett mætir fyrir rétt í næsta mánuði en hann hefur verið kærður fyrir að hafa sett upp hlerunarbúnað við heimili leikkonunnar Nicole Kidman í Sidney í Ástralíu.

Danir áhugasamir um upptökur hér

Í Danmörku er hafinn undirbúningur fyrir stórmyndina Valhallen Rising sem fjallar um landafundi víkinganna í Ameríku. Eins og flestir ættu að vita var það hin íslenski Leifur Eiríksson sem fann Ameríku og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa borist nokkrar fyrirspurnir frá frændum vorum í Danmörku til kvikmyndafyrirtækja hér á landi og eins og einn orðaði það þá „væri það í hæsta máta óvenjulegt ef hluti myndarinnar yrði ekki tekin upp hér á landi.“

Býr til teiknimyndir

George Lucas, leikstjóri Stjörnustríðsmyndanna, er að búa til teiknimyndaseríuna Clone Wars sem er væntanleg í sjónvarp á næsta ári. Teiknimyndin gerist á þeim tíma þegar lýðveldið á í borgarastyrjöld gegn aðskilnaðarsinnum sem lúta stjórn greifans Dooku.

Stal Bond bílnum

Að leika þrjótinn í Bond-mynd getur verið skemmtilegt en það kostar líka að þú færð ekki jafn flottar græjur og leyniþjónustumaðurinn. Mads Mikkelsen lét það ekki aftra sér.

Með nýjan þátt á ABC

Leikarinn William Shatner mun stjórna spurningaþættinum Show Me the Money fyrir bandarísku sjónvarpsstöðina ABC. Í þættinum svara þátttakendur ýmsum spurningum í þeirri von að vinna milljónir króna. Einnig eiga þeir á hættu að tapa því sem þeir hafa unnið sér inn. Sjö þættir verða teknir upp til að byrja með.

Lék aðalhlutverkið í Bollywood-mynd

Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir hefur verið að gera það gott sem fyrirsæta á Indlandi þar sem hún starfar fyrir Eskimo. Sigga hefur varla undan að sinna verkefnum sem hafa verið allt frá litlum auglýsingum upp í leik í stórum Bollywood myndum og tónlistarmyndböndum.

Leynd hvílir yfir aðventulagi Baggalúts

„Við ætlum að gefa út jólaplötu, þetta verður safnplata með aðventu- og jólalögum síðustu ára auk nýrra jólalaga,“ segir Guðmundur Pálsson, einn meðlima Baggalúts, sem vill annars gefa lítið upp um innihald plötunnar. Hann segir málið á viðkvæmu stigi og ekki hafi enn verið gengið frá samningi um útgáfu.

Önnur plata Killers

Önnur plata bandarísku rokksveitarinnar The Killers, Sam"s Town, er komin út. Var hún tekin upp í New Palm Studios í heimaborg sveitarinnar í Las Vegas.

Hættur sem kynnir

Gamanleikarinn Stephen Fry er hættur sem kynnir bresku Bafta-kvikmyndaverðlaunanna. Fry hefur verið kynnir undanfarin sex ár við mjög góðan orðstír.

Hamskipti í Hammersmith

Bresku blöðin eru tekin að birta umsagnir um sviðsetningu Vesturports á Hamskiptunum eftir Kafka. Verkið hóf göngu sína með forsýningum í Lyric-leikhúsinu í Hammersmith , en samstarfsmaður Gísla Arnar Garðarssonar sem leikur og leikstýrir, David Farr, er leikhússtjóri þar.

Á gjörgæslu vegna fæðuóþols

Litli strákurinn minn byrjaði að fá magakveisu níu mánaða. Þá byrjaði ég að gefa honum sojajógúrt og graut. Hafði bara fengið brjóstamjólk, ávexti og grænmeti fram að því. Honum leið skelfilega, kúkaði blóði og grenjaði marga tíma á dag. Fór með hann til læknis en þeir fundu ekkert. Leitaði ráða hjá Möttu. Hann var þá með glútenóþol og sojaóþol.

Frá Hippókratesi til Matthildar

Í dag hafa fjölmargir bæst í hóp þeirra sem starfa í anda náttúrulækningastefnunnar og sinna heildrænni heilsufræði. Matthildur Þorláksdóttir náttúrulæknir er þeirra á meðal en hún rekur náttúrulækningastofu og matstofu í Grafarvogi.

Segir fyrir um sjúkdóma

Hugmyndin að tækinu byggir á hinni 5000 ára gömlu kenningu kínverskra lækninga um orkubrautir líkamans. Þannig er að hvert hinna stærstu líffæra á sína orkubraut í báðum hliðum líkamans – þar eru orkubrautir lifrar og galls, hjarta og blóðrásar, ristils og smáþarma, lungna, maga, þvagblöðru og nýrna, milta og briss.

Kraftaverkakonan með tækið

Fæðan er orðin svo mikið unnin hjá okkur - niðursoðin, hreinsuð, klóruð, söltuð, fitusprengd, lituð og sykruð. Svo er verið að auka framleiðsluna og þá eru notuð efni og aðferðir sem hafa áhrif á fæðuna – hormón, eitur og hver veit hvað.

Skákveisla

Á sunnudag verður sannkölluð skákveisla í Ráðhúsi Reykjavíkur. Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslendinga, mætir vöskum hópi í fjöltefli og síðan verður slegið upp hraðskákmóti með veglegum vinningum frá Eddu-útgáfu.

Allir í startholunum fyrir Slóð fiðrildanna

Eins og greint var frá í Fréttablaðinu fyrir nokkru frestuðust tökur á stórmyndinni A Journey Home vegna handritavandamála en myndin er byggð á skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Þær sögur gengu fjöllum hærra að aðalleikkona myndarinnar, Óskarsverðlaunahafinn Jennifer Connelly, væri ósátt við handritið en það segir Kristinn Þórðarson hjá Saga Film, sem framleiðir myndina, vera fjarri sanni.

Deilt á réttarkerfið með konfekti og kærleika

Rithöfundurinn og athafnamaðurinn Ármann Reynisson sendir frá sér sína sjöttu vinjettubók um þessar mundir. Vinjettur eru örstuttar, myndrænar frásagnir og spruttu upp sem bókmenntaform í Frakklandi á 17. öld. Ármann hefur rutt þessari gömlu bókmenntagrein braut í íslenskum bókmenntum og undirtektir lesenda hafa verið það góðar að hann kynnir nú til sögunnar vinjettu munaðarvörulínu sem hann tengir beint við skáldverk sín.

Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Út er komin hjá Bjarti ljóðabókin Guðlausir menn - Hulgleiðingar um jökulvatn og ást eftir Ingunni Snædal. Ingunn hlaut á miðvikudaginn bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmunssonar fyrir handrit að bókinni.Dómnefndin valdi handrit Ingunnar úr fjörutíuogníu innsendum handritum og Bjartur fagnar þessari viðurkenningu á verkum skáldsins.

Eignaðist stelpu

Leikkonan unga Maggie Gyllenhaal eignaðist sitt fyrsta barn á dögunum rúmum tveimur vikum fyrir tímann. Barnið var stelpa og heitir hún Ramona. Barnsfaðir Gyllenhaal er leikarinn Peter Saarsgard en þau opinberuðu trúlofun sína í apríl.

Fádæma vinsældir, fræðsla og fjör

Í Landnámssetrið í Borgarnesi sækir fólk á öllum aldri sér fræðslu og skemmtun af ýmsum toga. Langvinsælust er þó leiksýningin Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson. Uppselt er á allar sýningar í október og lýkur þeim þá á þessu ári, þar sem Benedikt hverfur til annarra verkefna. Hann vinnur nú sem leikstjóri í Borgarleikhúsinu og að kvikmynd eftir eigin handriti.

Heilbrigt fólk þarf ekki á listinni að halda

Rússneski kvikmyndaleikstjórinn Aleksandr Sokurov á að baki ófá meistaraverkin en hann hóf feril sinn fyrir margt löngu í gömlu Sovétríkjunum. Hann er einn gesta á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík og notar heimsóknina meðal annars til að skoða sig um á Íslandi og leita að tökustöðum.

Tónar við hafið

Aðrir tónleikar í tónleikaröðinni "Tónar við hafið" verða í Þorlákshöfn miðvikudaginn 11. október. Á tónleikunum flytur jazzsveitin Póstberarnir tónlist Megasar í jazzútsetningum meðlima Póstbandsins.

Meðlimur Daft Punk þeytir skífum

Thomas Bangalter úr frönsku hljómsveitinni Daft Punk kemur fram á Nasa á laugardagskvöld, ásamt Jack Schidt og DJ Lazer.

Óður til ástarinnar

Hljómsveitin Skakkamanage hefur gefið út sína fyrstu plötu. Nefnist hún Lab of Love og kemur út á vegum Smekkleysu.

Capone áfram á XFM 919

Stjórnendur eins umdeildasta morgunþáttar íslensks útvarps í dag, Andri Freyr Viðarsson og Búi Bendsten, skrifuðu á dögunum undir nýjan samning við Íslenska Útvarpsfélagið ehf. og stýra því þætti sínum, Capone, á XFM 919 um ókomna tíð.

Sign fær góða dóma

Rokkhljómsveitin Sign fær góða dóma fyrir tónleika sína í Birmingham í nýjasta tölublaði tónlistartímaritsins virta Kerrang!

Sló Paris í andlitið

Hótelerfingin Paris Hilton á ekki sjö dagana sæla þessa stundina. Á miðvikudaginn var hún slegin í andlitið af fyrrverandi eiginkonu trommarans Travis Barker en sögusagnir hafa verið uppi um að Hilton og Barker eigi í ástarsambandi. Fyrrverandi eiginkona Barkers heitir Shanna Moakler og er Playboy-fyrirsæta og fyrrverandi fegurðardrottning.

Duran sátt við Justin

Poppsveitin Duran Duran þurfti að breyta upptökuaðferðum sínum til muna til að halda í við þá Justin Timberlake og Timbaland sem aðstoða sveitina við gerð nýrrar plötu.

Tekur upp Brynjólfsmessu

Brynjólfsmessa, sem er tónverk eftir Gunnar Þórðarson, verður tekið upp í Grafarvogskirkju dagana 17. og 18. október og síðan gefin út á plötu í nóvember.

Týndur strákur frá Súdan

Von er á nýrri bók eftir bandaríska rithöfundinn Dave Eggers sem byggir á lífi ungs flóttamanns frá Súdan. Bókin ber heitið What is the What en aðalpersóna hennar, Valentino Achak Deng, tók þátt í ritun hennar með því að veita höfundinum innsýn í baráttu sína og ferðalag frá stríðshrjáðu heimalandi til Bandaríkjanna.

Upp á yfirborðið

Aðgangur að nýrri tónlist hefur aldrei verið greiðari heldur en nú. Hún flæðir yfir mann á MySpace og tónlistarfjölmiðlar keppast við að hampa nýjum hetjum árið um kring. Framboðið er mikið og þess vegna stundum erfitt að átta sig. Trausti Júlíusson staldraði við þrjár sveitir sem eru ólíkar, en eiga það sameiginlegt að standa upp úr fjöldanum.

Úr Rottweiler í chihuahua

Sést hefur til Erps Eyvindarsonar, sem oft er kenndur við Rottweiler hundana, á rölti um götur borgarinnar með chihuahua-hund upp á arminn. Sá orðstír fer af rottweiler-hundum að þeir séu einna grimmastir hunda og árásargjarnir með eindæmum.

Þjóðarsálin í reiðhöllinni

Leikarar, fimleikafólk og kraftajötnar leiða saman hesta sína, í bókstaflegum skilningi, í reiðhöll Gusts á sunnudag þegar hin risavaxna karnivalsýning Þjóðarsálin verður frumsýnd.

Vandræðalegt slys

Keith Richards, gítarleikari The Rolling Stones, segist einungis hafa setið á trjábol en ekki verið að klifra upp í pálmatré þegar hann datt á hausinn í fríi á Fiji-eyjum í apríl. Þurfti hann að gangast undir heilaaðgerð í framhaldinu og fyrir vikið þurfti að fresta tónleikaferð Stones um Evrópu í sumar.

Var ekki með Carter

Ashlee Simpson segist hafa hlegið hátt og snjallt þegar hún las frásögn Nicks Carter, söngvara Backstreet Boys, en söngvarinn lýsti því yfir í samtali við PageSix.com að hann hefði sofið hjá Simpson á meðan hann var með Paris Hilton.

Ætlar ekki að ættleiða

Talsmaður söngkonunnar Madonnu segir ekkert hæft í þeim orðrómi að hún ætli að ættleiða eins árs gamlan dreng frá Malaví í Afríku. Samt sem áður er hún ekkert pirruð yfir fréttunum því þær veki athygli á vandamál barna í þessu fátæka ríki.

Nördarnir slógu í gegn

Rúmlega sjö þúsund manns mættu á Laugardalsvöll í gær til að berja leikmenn KF Nörd og Íslandsmeistarana í FH augum. Gríðarleg stemning myndaðist á vellinum og þurfti að seinka leiknum um stundarfjórðung á meðan fólk streymdi að.

Þjóðþekktir á tískupallinum

Það voru þjóðþekktir einstaklingar sem létu ljós sitt skína á tískupallinum í gærkvöldi á góðgerðakvöldi Debenhams. Ágóði kvöldsins rann til styrktar Krabbameinsfélags Íslands og söfnuðust 2,6 milljónir króna.

Sjá næstu 50 fréttir