Heilsa

Á gjörgæslu vegna fæðuóþols

Litli rauðhærði drengurinn hennar Valgerðar var með glúten- og
sojaóþol.
Litli rauðhærði drengurinn hennar Valgerðar var með glúten- og sojaóþol.

Valgerður Sverrisdóttir er ein þeirra fjölmörgu sem þakka Matthildi heilsu sína og hamingju. Hér er hennar saga.

Ég varð ófrísk í ágúst 2004. Strax í september var ég byrjuð að æla.

Hélt að þetta yrði bara fyrstu vikurnar en þetta hélt bara áfram alla

meðgönguna. Var látin prófa alls kyns lyf til að stoppa ógleðina. Ekkert

gerðist. Var lögð inn í desember til að fá næringu í æð. Ég ældi stundum

tuttugu sinnum á dag. Læknarnir sendu mig í einhverjar rannsóknir,

en ekkert kom út úr þeim.

Þessi meðganga endaði með tíu daga innlögn á sjúkrahúsi. Próteinið

var farið að hækka hjá mér og blóðþrýstingur. Fæðingin var sett af stað

í 38. viku og gekk hún vel. En þremur dögum eftir fæðingu fór ég að

kippast til, var komin með meðgöngueitrun. Var sett á gjörgæslu í þrjá

daga. Þetta var allt frekar leiðinlegt.

Ég hélt að ógleðin og uppköstin myndu hætta eftir fæðingu, en svo

var aldeilis ekki. Var alltaf í skoðun hjá læknum. Fór í magaspeglun en

ekkert sást. Læknarnir gáfust upp á mér.

Það endaði með því að ég fór til Matthildar og hún greindi hjá mér

mikið fæðuóþol. Það voru sextán fæðutegundir sem hún bað mig að

taka út, og viti menn, ég hætti að æla og líf mitt varð aftur eins og

það átti að vera. Ristillinn í mér var líka orðin stíflaður. Hún setti mig í

colon. Það losaði um ristilinn og kom kerfinu aftur í gang.

Dæmi um fæðu sem ég má ekki borða: Lamba- og svínakjöt. Sykur,

hveiti, ger. Appelsínur, áfengi, kaffi, bananar, vínber. Mygluostar.

Djúpsteiktur matur og fleira. Ef ég passa mig á að borða ekki þessar

fæðutegundir líður mér rosalega vel. Skapið er allt annað og hvernig

mér líður í dag! Fyrir utan það var svo rosalegt hvað ég safnaði á mig

bjúg. Þó að ég hafi ekki borðað neitt á meðgöngunni þyngdist ég

um 21 kíló. Ég var afmynduð af bjúg. Augun sokkin, fæturnir eins og

blöðrur. Eftir að ég breytti mataræðinu missti ég átta kíló í hvelli.

Litli strákurinn minn byrjaði að fá magakveisu níu mánaða. Þá byrjaði

ég að gefa honum sojajógúrt og graut. Hafði bara fengið brjóstamjólk,

ávexti og grænmeti fram að því. Honum leið skelfilega, kúkaði blóði og

grenjaði marga tíma á dag. Fór með hann til læknis en þeir fundu ekkert.

Leitaði ráða hjá Möttu. Hann var þá með glútenóþol og sojaóþol.

Maðurinn minn fór til Möttu núna í ágúst. Hann hefur alltaf verið að

drepast í hálsinum. Hann var eins og gamall karl á hverjum morgni.

Hrækjandi upp úr sér slími og óþvera. Hann hefur alltaf verið svona. Ég

pantaði tíma hjá Möttu og sagði honum að fara. Hann var ekki æstur

fyrst en sér ekki eftir því. Hann var með svo mikla sýrumyndun í líkamanum.

Hún sagði honum að hætta í öllum mjólkurmat og drekka bara

hrísgrjónamjólk í staðin. Ekkert hveiti, sykur og ger. Hann er nýr maður.








×