Fleiri fréttir

Appleton: Liverpool hefur spurst fyrir um Ince

Michael Appleton, knattspyrnustjóri Blackpool, segir að Liverpool hafi spurst fyrir um kantmanninn Thomas Ince. Ekki hafi þó verið gengið frá neinu samkomulagi varðandi félagaskipti hans.

Bradford mætir Aston Villa í undanúrslitum

Í kvöld var dregið í undanúrslit ensku bikarkeppninnar. Chelsea, sem sló Leeds út í kvöld, mætir Swansea. Í hinum undanúrslitaleiknum mætir D-deildarlið Bradford City úrvalsdeildarliði Aston Villa.

Chelsea valtaði yfir Leeds í seinni hálfleik

Chelsea er komið áfram í enska deildarbikarnum eftir 1-5 sigur á Leeds. Chelsea var undir í hálfleik en reif sig upp í þeim síðari og hreinlega pakkaði neðrideildarliðinu saman.

Sturridge á leiðinni til Liverpool

Breskir fjölmiðlar greina frá því kvöld að framherjinn Daniel Sturridge sé á leiðinni frá Chelsea til Liverpool í janúar. Hermt er að búið sé að ganga frá öllu og að Liverpool greiði 12 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Kári og félagar komust áfram í bikarnum

Kári Árnason og félagar í D-deildarliði Rotherham komust í kvöld áfram í ensku bikarkeppninni með frekar óvæntum sigri á C-deildarliði Notts County á útivelli.

Charlie Adam eldri bráðkvaddur

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Charlie Adam varð bráðkvaddur að heimili sínu í Dundee um helgina. Adam var fimmtíu ára.

Sunnudagsmessan: Umræða um QPR - Eiður Smári orðaður við félagið

Harry Redknapp tók nýverið við liði QPR í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Liðið landaði sínum fyrsta sigri um s.l. helgi og var staða liðsins rædd í Sunnudagsmesunni á Stöð 2 sport 2. Guðmundur Benediktsson ræddi þau mál við Hjörvar Hafliðason og Bjarna Guðjónsson.

McDermott: Ekki afskrifa Reading

Brian McDermott, knattspyrnustjóri Reading, telur að liðið eigi enn möguleika á að bjarga sér frá falli. Reading tapaði 5-2 á heimavelli gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi en tapið var það sjötta í röð.

Cazorla með þrennu í stórsigri Arsenal

Arsenal fór úr áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar upp í það fimmta í kvöld er liðið vann öruggan sigur, 2-5, á arfaslöku liði Reading.

Balotelli í mál við Manchester City

Mario Balotelli virðist vera gera allt sem í sínu valdi stendur til að losna frá Manchester City því hann hefur höfðað mál gegn félaginu fyrir að hafa sektað hann um tveggja vikna laun.

Cahill: Hefði ekki dugað til að slá dóttur mína niður

Gary Cahill varnarmaður Chelsea var allt annað en ánægður með Emerson leikmann Corinthians eftir leik liðanna í úrslitum Heimsmeistarakeppni félagsliða í morgun. Cahill fékk rautt spjald fyrir að sparka til Emerson undir lok leiksins.

Wilshere hyggst framlengja við Arsenal

Fréttir úr herbúðum Arsenal herma að enski miðvallarleikmaðurinn Jack Wilshere muni framlengja samning sinn við félagið á næstu tveimur vikum.

Markalaust á The Hawthorns

West Brom og West Ham gerðu markalaust jafntefli á heimavelli West Brom í síðdegis leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sir Alex: Ég kaupi engan í janúar

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, ætlar ekki að styrkja leikmannahópinn sinn þegar félagsskiptaglugginn opnar í næsta mánuði. Hann staðfesti þetta í viðtali við Mail on Sunday.

Leikmenn Tottenham fóru í keppni um besta piparkökuhúsið

Nokkrir leikmenn Tottenham voru í jólaskapi á dögunum þeir ákváðu að taka þátt í keppni um besta piparkökuhúsið en okkar maður Gylfi Þór Sigurðsson var þó hvergi sjáanlegur í þessari skemmtilegu keppni. Tottenham birti myndband með keppninni inn á Youtube-síðu félagsins.

Adel Taarabt: Mikil gleði

Adel Taarabt skoraði bæði mörk Queens Park Rangers í 2-1 sigri á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag en þetta var fyrsti sigur liðsins á tímabilinu. Taarabt og félagar fögnuðu vel í leikslok.

Ferguson: Við vorum frábærir í klukkutíma

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sá sína menn vinna 3-1 sigur á Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í dag og ná aftur sex stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.

Íslendingaliðin töpuðu bæði í ensku b-deildinni

Þetta var ekki góður dagur fyrir Íslendingaliðin í ensku b-deildinni því Cardiff City og Wolves töpuðu bæði í leikjum sínum í dag. Cardiff er samt áfram á toppnum þar sem að Crystal Palace missti niður tveggja marka forystu í sínum leik.

Mancini: Við hefðum getað skorað sex eða sjö mörk

Roberto Mancini, stjóri Manchester City, var ánægður með sína menn eftir 3-1 útisigur á Newcastle í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. City minnkaði með því forskot Manchester United á toppnum í þrjú stig.

QPR vann sinn fyrsta leik á tímabilinu - öll úrslitin í enska

Queens Park Rangers vann sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu og komst upp úr botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur á Fulham í dag. Adel Taarabt skoraði bæði mörk QPR í leiknum sem færðu Harry Redknapp sinn fyrsta sigur sem stjóri liðsins.

Manchester United vann og náði aftur sex stiga forskoti

Manchester United náði aftur sex stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á Sunderland á Old Trafford í dag. Nágrannarnir höfðu minnkað forystuna í þrjú stig með sigri á Newcastle fyrr í dag.

Aston Villa með þrjú mörk og þrjú stig frá Anfield

Aston Villa bætti stöðu síðan í botnbaráttunni með því að vinna frábæran 3-1 sigur á Liverpool á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í dag. Liverpool-menn voru enn á ný seinheppnir á báðum endum vallarins og vildu fá að minnsta kosti tvær vítaspyrnur auk fjölda færa sem nýttust ekki.

Reina: Ég á vonandi mín bestu ár eftir hjá Liverpool

Pepe Reina, markvörður Liverpool, missti úr sjö leiki í byrjun tímabilsins vegna meiðsla en hefur verið að spila vel að undanförnu. Reina er nú búinn að halda fjórum sinnum hreinu í síðustu sjö leikjum.

Manchester City nú bara þremur stigum á eftir United

Manchester City minnkaði forskot nágrannanna í Manchester United á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í þrjú stig með því að vinna sannfærandi 3-1 sigur á Newcastle á St. James Park í hádegisleiknum í enska í dag.

Stefni á að setja eitt með skalla

Gylfi Þór Sigurðsson mætir sínum gömlu félögum úr Swansea í enska boltanum um helgina. Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri liðsins, virðist hafa trölltrú á íslenska landsliðsmanninum þegar kemur að skallatækni hans í vítateignum.

Nemanja Vidic aftur með United um helgina

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, staðfesti það á blaðamannafundi í dag að serbneski miðvörðurinn Nemanja Vidic verði í leikmannahópi hans á móti Sunderland í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Gareth Barry fékk eins leiks bann og sekt

Gareth Barry ætlar ekki að áfrýja úrskurði aganefndar enska knattspyrnusambandsins en hann þarf að taka út leikbann þegar Manchester City mætir Newcastle á útivelli um helgina í ensku úrvalsdeildinni. Enski landsliðsmaðurinn var dæmdur í eins leiks bann vegna orða sem hann lét falla við Mark Clattenburg dómara eftir 3-2 tap Manchester City gegn Manchester United s.l. sunnudag.

Allt botnfrosið í samskiptum Wenger og Bould

Það er mótvindur í herbúðum enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal þessa dagana. Liðið féll úr keppni gegn D-liði Bradford í deildabikarnum í þessari viku og samskipti Arsene Wenger knattspyrnustjóra og aðstoðarþjálfarans Steve Bould eru ekki upp á það allra besta. Stewart Robson, fyrrum leikmaður Arsenal, gagnrýndi Wenger harkalega í gær og sagði liðið á rangri leið undir stjórn Wenger.

Sjá næstu 50 fréttir