Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dalglish: Leikmenn þurfa að hafa meiri trú á sjálfum sér Kenny Dalglish, nýr stjóri Liverpool, segir að leikmenn þurfi að hafa meiri trú á eigin getu eftir að liðið tapaði fyrir Blackpool í ensku úrvalsdeildinni í gær, 2-1. 13.1.2011 11:15
Bridge lánaður til West Ham Enski bakvörðurinn Wayne Bridge hefur verið lánaður frá Manchester City til West Ham til loka tímabilsins. 13.1.2011 10:45
Sepp Blatter: Spænska deildin er sú besta í heimi Sepp Blatter, forseti FIFA, er þeirrar skoðunar að spænska deildin sé sú besta í heimi og að enska úrvalsdeildin geti lært mikið af kollegum sínum í suðri. Blattar rökstuddi þetta með því að átta leikmenn úr spænsku deildinni voru valdir í úrvalslið ársins hjá FIFA og að Spánn sé heimsmeistari í fótbolta. 12.1.2011 23:45
King gæti þurft að fara í aðgerð vegna nárameiðslanna Ledley King gæti þurft að fara í aðgerð vegna nárameiðsla en meiðsli hafa plagað þennan þrítuga varnarmann nánast allan hans feril. 12.1.2011 23:15
McParland: Ég er búinn að gera mitt Ian McParland, stjórnaði Ipswich í 1-0 sigrinum á Arsenal í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildarbikarnum í kvöld en hann fær ekki tækifæri til að stjórna liðinu í seinni leiknum því þá verður Paul Jewell tekinn við. 12.1.2011 22:36
Arsene Wenger: Það vantaði allan neista í liðið í kvöld Arsene Wenger, stjóri Arsenal, þurfti á horfa upp á sitt lið tapa 0-1 á móti b-deildarliðinu Ipswich í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildarbikarsins. Arsenal fær tækifæri til að bæta fyrir tapiða á heimavelli eftir tæpar tvær vikur. 12.1.2011 22:28
Blackpool vann Liverpool öðru sinni á tímabilinu Nýliðar Blackpool eru með fullt hús á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í vetur eftir 2-1 sigur í leik liðanna á Bloomfield Road í kvöld. Liverpool hefur því tapað tveimur fyrstu leikjum sínum undir stjórn Kenny Dalglish og alls þremur leikjum í röð. 12.1.2011 21:53
Ipswich vann fyrri leikinn á móti Arsenal Enska b-deildarliðið Ipswich vann óvæntan 1-0 sigur á Arsenal í fyrri leik undanúrslitaleik liðanna í enska deildarbikarnum á Portman Road í kvöld. Ipswich hafði tapað 7-0 á móti Chelsea í enska bikarnum um síðustu helgi og er aðeins í 19. sæti í ensku b-deildinni með 8 sigra í fyrstu 24 leikjunum. 12.1.2011 21:39
Bentley kominn til Birmingham Birmingham er búið að fá David Bentley á láni frá Tottenham og mun þessi 26 ára miðjumaður klára tímabilið með liðinu. Bentley tókst ekki að vinna sér fast sæti í liði Tottenham síðan að félagið keypti hann á 15 milljónr punda í júlí 2008. 12.1.2011 20:15
Craig Bellamy handtekinn grunaður um líkamsárás Velski knattspyrnumaðurinn Craig Bellamy er enn á ný kominn í vandræði því hann var handtekinn í dag grunaður um líkamsárás snemma á sunnudagsmorguninn. Tveir menn enduðu á sjúkrahúsi eftir samskipti við Bellamy sem er mikill skaphundur. 12.1.2011 18:15
Pulis bauð í Noble Tony Pulis, stjóri Stoke, hefur boðið West Ham fjórar milljónir punda fyrir miðvallarleikmanninn Mark Noble. 12.1.2011 17:30
Liverpool sagt reiðubúið að greiða 10 milljónir punda fyrir táning Enska blaðið The Guardian heldur því fram í dag að Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, sé byrjaður að horfa til framtíðar og að félagið sé að undirbúa tíu milljóna punda í sautján ára táning, Alex Oxlade-Chamberlain að nafni. 12.1.2011 16:45
Charlie Adam orðaður við Liverpool Liverpool hefur bæst í hóp þeirra liða sem hafa áhuga á að fá miðvallarleikmann Blackpool, hinn skoska Charlie Adam, í sínar raðir samkvæmt heimildum fréttavefs Sky Sports. 12.1.2011 15:45
Vilja að Pearce þjálfi Ólympíulið Breta Knattspyrnusamband Englands vill að Stuart Pearce, þjálfari U-21 landsliðs Englands, verði þjálfari Ólympíuliðs Breta á leikunum í Lundúnum árið 2012. 12.1.2011 14:45
Beckham myndi ekki spila gegn United Harry Redknapp, stjóri Tottenham, útilokar að David Beckham muni spila með liðinu gegn Manchester United um næstu helgi þó svo að Beckham fengi heimild til að spila með Tottenham fyrir þann tíma. 12.1.2011 14:15
Ferguson tekur öðru sinni við Peterborough Darren Ferguson var í dag endurráðinn knattspyrnustjóri enska B-deilarliðsins Peterborough aðeins fjórtán mánuðum eftir hann hætti hjá félaginu. 12.1.2011 12:30
Balotelli frá í mánuð Mario Balotelli verður frá keppni með Manchester City næsta mánuðinn þar sem hann er meiddur á hné. 12.1.2011 09:45
Tottenham búið að semja við Pienaar - kemur líklega ekki fyrr en í sumar Tottenham er búið að semja við Suður-Afríkumanninn Steven Pienaar sem hefur spilað undanfarin þrjú ár með Everton. Internazionale og Atlético Madrid voru líka áhugasöm um leikmanninn sem kemur líklega á frjálsri sölu næsta sumar. 11.1.2011 23:45
Wenger ætlar að kaupa nýjan miðvörð í janúar Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist ætla að kaupa nýjan miðvörð til félagsins eftir að í ljós kom að Thomas Vermaelen verður enn lengur frá vegna meiðsla. Vermaelen hefur ekki leikið með Arsenal síðan 28. ágúst en hann meiddist á hásin í landsleik með Belgum. 11.1.2011 22:15
Avram Grant: Leikmennirnir mínir gáfust ekki upp Avram Grant, stjóri West Ham, var ánægður með 2-1 sigur liðsins á Birmingham í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildarbikarsins í kvöld en leikurinn fór fram á heimavelli liðsins á Upton Park. 11.1.2011 22:01
Tíu West Ham menn unnu fyrri leikinn á móti Birmingham Carlton Cole kom inn á sem varamaður og tryggði West Ham 2-1 sigur á Birmingham í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildarbikarnum á Upton Park í kvöld. West Ham tókst að tryggja sér sigurinn þrátt fyrir að vera aðeins með tíu menn inn á vellinum síðasta hálftímann í leiknum. 11.1.2011 21:38
Shaun Wright-Phillips á leiðinni á láni til Fulham Shaun Wright-Phillips er líklega á leiðinni til Fulham frá Manchester City en félögin eru að reyna að semja um sex mánaða lánsamning. Wright-Phillips myndi hitta fyrir Mark Hughes hjá Fulham en Hughes var áður stjóri hans hjá bæði Blackburn og Manchester City. 11.1.2011 21:15
Dzeko: Flestir í Manchester halda með Manchester City Edin Dzeko, nýi leikmaðurinn í herbúðum Manchester City, er búinn að slá í gegn hjá stuðningmönnum félagsins þrátt fyrir að hann sé ekki búinn að spila eina einustu mínútu í búningi félagsins. Dzeko skaut nefnilega á nágrannanna í United í blaðamannafundi í dag. 11.1.2011 20:45
Lampard mun aldrei ná sér að fullu af meiðslunum Frank Lampard, leikmaður Chelsea, er aftur farinn að spila með liðinu eftir að hafa misst úr fjóra mánuði vegna meiðsla en segist þó að hann muni aldrei ná sér að fullu. Lampard skoraði tvö mörk í stórsigri Chelsea á Ipswich í bikarnum um síðustu helgi. 11.1.2011 19:00
Miklar líkur á því að Wayne Bridge verði lánaður til West Ham Wayne Bridge er á leiðinni í læknisskoðun hjá West Ham og það stendir orðið fátt í vegi fyrir því að Manchester Citu láni bakvörðurinn til London út tímabilið. Bridge hefur fengið fá tækifæri hjá City-liðinu hjá Roberto Mancini. 11.1.2011 16:30
Leikmannasamtökin hafa áhyggjur af kærunni á Babel Gordon Taylor, formaður leikmannasamtakanna í Englandi, segir að leikmenn verði að fá að hafa málfrelsi og möguleika á því að geta tjáð sig á samskiptasíðum. Taylor tjáði sig um kæru enska sambandsins á Liverpool-manninum Ryan Babel sem birti mynd af dómaranum Howard Webb á twitter-síðu sinni eftir bikartapið á sunnudaginn. 11.1.2011 15:00
Laird var kýldur af afbrýðisömum kærasta Nú er búið að finna ástæðuna fyrir því af hverju Scott Laird, leikmaður Stevenage, var kýldur af stuðningsmanni liðsins eftir frækinn sigur liðsins á Newcastle í bikarnum. 11.1.2011 13:00
Juventus sýnir Torres áhuga Þó svo Fernando Torres sé í lélegu formi hafa menn ekki misst trúna á honum. Juventus er núna að gera sér vonir um að geta keypt hann frá Liverpool næsta sumar. 11.1.2011 12:30
Liverpool og Tottenham á eftir Suarez Þó svo hann bíti andstæðinga þá er úrúgvæski framherjinn Luis Suarez hjá Ajax afar eftirsóttur. Bæði Tottenham og Liverpool hafa áhuga á að næla í kappann. 11.1.2011 11:15
Spurs á eftir Phil Neville Harry Redknapp, stjóri Tottenham, kemur stöðugt á óvart og nú hefur það kvisast út að hann sé ekki bara að reyna að fá David Beckham heldur einnig fyrrum félaga Beckham hjá Man. Utd, Phil Neville. 11.1.2011 10:30
Brottrekstur Hodgson hefur ekki áhrif á leikmannakaup Það er ekki ókeypis að reka knattspyrnustjóra. Liverpool var að losa sig við einn slíkan eftir stuttan tíma í starfi en starfslokasamningurinn við Roy Hodgson mun ekki hafa áhrif á þá peninga sem félagið ætlaði að nota á leikmannamarkaðnum. 11.1.2011 10:00
Juventus hefur áhuga á Babel Juventus hefur góða reynslu af því að nýta leikmenn sem Liverpool getur ekki notað. Alberto Aquilani hefur blómstrað hjá liðinu síðan hann kom þangað frá Liverpool. 10.1.2011 23:45
Viðbjóðsleg hegðun hjá Diouf El-Hadji Diouf, leikmaður Blackburn, varð sér enn eina ferðina til skammar um helgina er Blackburn mætti QPR í bikarkeppninni. 10.1.2011 21:15
Enska sambandið búið að kæra Ryan Babel Ryan Babel, leikmaður Liverpool, varð í kvöld fyrsti leikmaðurinn í sögunni til þess að fara fyrir aganefnd enska knattspyrnusambandsins fyrir skrif inn á Twitter-síðu. Babel hefur frest til fimmtudags til að svara kærunni. 10.1.2011 20:00
Maradona: Ég er með tilboð frá ensku félagi Diego Maradona heldur því fram að hann sé búinn að fá tilboð um að gerast stjóri hjá ensku félagi. Maradona segist vera á leiðinni til Englands í næsta mánuði til þess að ræða hugsanlegan samning. 10.1.2011 17:30
Jewell tekur við af Keane Forráðamenn Ipswich voru ekki lengi að finna arftaka Roy Keane sem þeir ráku fyrir helgi. Félagið réð í dag Paul Jewell í hans stað. 10.1.2011 15:30
Henry þjálfar framherja Arsenal Thierry Henry er í guðatölu hjá stuðningsmönnum Arsenal og þeir glöddust er hann kom aftur til æfinga hjá félaginu í dag. Hann mun æfa með liðinu næstu daga svo hann fari til Bandaríkjanna í góðu formi. 10.1.2011 15:00
Dalglish ætlar að koma Torres í gang Hinn nýráðni stjóri Liverpool, Kenny Dalglish, segist ætla að hjálpa framherjanum Fernando Torres við að finna sitt fyrra form. 10.1.2011 14:00
Allt í góðu milli Houllier og Pires Gerard Houllier, stjóri Aston Villa, segir að það sé allt í góðu milli sín og Robert Pires. Leikmaðurinn er mjög ósáttur við hversu lítið hann hefur fengið að spila og er óhræddur að tjá sig um það. 10.1.2011 13:00
Clarke ráðinn til Liverpool Liverpool tilkynnti í dag að það hefði ráðið Steve Clarke í þjálfarateymi félagsins. Clarke er þaulvanur kappi sem var áður hjá Chelsea, Newcastle og West Ham. 10.1.2011 12:30
Beckham gæti enn spilað með Spurs Það er ekki enn útilokað að David Beckham spili með Tottenham eftir allt saman. Hann hefur þegar samþykkt að æfa með félaginu til 10. febrúar. 10.1.2011 11:15
Rooney hugsanlega með gegn Spurs Wayne Rooney gat ekki leikið með Man. Utd gegn Liverpool eins og vonast var til. Hann er þó á fínum batavegi og gæti spilað gegn Tottenham sem er næsti leikur toppliðsins. 10.1.2011 10:30
Wenger gæti verslað varnarmann Arsene Wenger, stjóri Arsenal, gæti rifið upp veskið í mánuðinum ef meiðsli Sebastian Squillaci eru alvarleg en það gæti skýrst í dag hvort hann hefði meiðst illa í leiknum gegn Leeds. 10.1.2011 10:00
Maradona orðaður við Fulham Diego Armando Maradona hefur iðulega verið orðaður við þjálfarastöðu á Englandi síðustu vikur. Nú segist kappinn vera kominn með tilboð frá Englandi og hann ætlar að ferðast til Englands í næsta mánuði til viðræðna. 10.1.2011 09:30
Babel setti mynd af Webb í United-búningi á Twitter-síðuna sína Enska knattspyrnusambandið mun rannsaka atvik sem kom upp í dag en þá setti Ryan Babel, leikmaður Liverpool, umdeilda mynd á Twitter-síðuna sína. 9.1.2011 22:23