Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vestri og Víkingur mætast í Vesturbænum Snjóblásarar, gröfur og bænir um betri tíð dugðu ekki til að Torfnesvöllur á Ísafirði, Olísvöllurinn eins og hann heitir í dag, yrði tilbúinn fyrir komu nýkrýndra Íslandsmeistara Víkings á laugardaginn. 29.9.2021 15:09
Blikar fá tvær nýjar í Meistaradeildina Breiðablik hefur bætt við sig tveimur leikmönnum fyrir komandi stórleiki í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Félagið nýtti undanþáguheimildir til félagaskipta enda félagaskiptaglugginn lokaður á Íslandi. 29.9.2021 14:13
Pepsi Max tölur: Guy Smit bjargaði tvöfalt fleiri mörkum en sá næstbesti Nýliðar Leiknis héldu sæti sínu í Pepsi Max deild karla í sumar og það er ekki síst þökk sé hetjudáðum hollenska markvarðarins Guy Smit. Tölfræðin sýnir þetta svart á hvítu. 29.9.2021 13:30
Þór/KA lætur þjálfarateymið fara Stjórn Þórs/KA hefur ákveðið að skipta um þjálfara hjá liðinu og venslaliðinu Hömrunum. 29.9.2021 09:15
Guðlaugur hættur eftir fall Þróttar úr Lengjudeildinni Guðlaugur Baldursson mun ekki stýra Þrótti Reykjavík í 2. deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð. Hann tók við liðinu síðasta haust en tókst ekki að afstýra hinu óumflýjanlega, eftir tvö ár þar sem Þróttur lifði á lyginni þá féll liðið niður um deild. 28.9.2021 23:01
Pepsi Max tölur: KR-ingar spiluðu 150 mínútur af uppbótatíma í sumar KR-ingar áttu þann leikmann í Pepsi Max deild karla sem spilaði flestar mínútur í sumar og voru það lið sem spilaði flestar mínútur í deildinni af viðbættum þeim tíma sem dómarnir bættu við. 28.9.2021 15:00
Auglýsa eftir snjóblásurum en spila líklega í boði liðs sem vill að þeir tapi „Hvað eru til margir snjóblásarar hér í bænum?“ Svo spyr Samúel Samúelsson í stjórn Vestra en Vestfirðingar ætla að reyna allt sem þeir geta til að geta spilað á Ísafirði um helgina, gegn Íslandsmeisturum Víkings í Mjólkurbikarnum. 28.9.2021 12:30
Óvissa um framtíð Hannesar og Valsmenn svara ekki Landsliðsmarkvörðurinn fyrrverandi Hannes Þór Halldórsson gæti verið á förum frá Val þrátt fyrir að eiga enn eftir eitt ár af samningi sínum við félagið. 28.9.2021 11:31
Segir lágstemmdan lokafögnuð faraldrinum að kenna Stjórn knattspyrnudeildar Vals ákvað að halda ekki hefðbundið lokahóf að afloknu keppnistímabili um helgina. Óánægja er með þá ákvörðun í röðum Íslandsmeistara félagsins í kvennaflokki. Framkvæmdastjóri Vals þvertekur fyrir að ákvörðunin hafi verið tekin vegna ófullnægjandi árangurs karlaliðsins. 28.9.2021 08:31
Pablo Punyed vonast til að geta verið lengi í Víkinni Um helgina varð Pablo Punyed Íslandsmeistari í knattspyrnu ásamt liðsfélögum sínum í Víking, en hann hefur nú unnið stóran titil með fjórum mismunandi félögum frá því að hann kom til Íslands árið 2012. Pablo var í stuttu spjalli við Stöð 2 og fór stuttlega yfir tímabilið, veru sína á Íslandi, og bikarkeppnina sem framundan er. 27.9.2021 19:30
Frá Hong Kong í Þorpið Þorlákur Árnason hefur verið ráðinn nýr þjálfari karlaliðs Þórs í fótbolta til næstu þriggja ára. Hann tekur við liðinu af Orra Frey Hjaltalín sem stýrði Þór til 9. sætis í næstefstu deild í sumar. 27.9.2021 16:45
Aðeins eitt lið í deildinni á næsta ári sem hefur ekki orðið Íslandsmeistari Næsta sumar verða ellefu Íslandsmeistarafélög í fyrsta sinn í sögu efstu deildar karla en þetta var ljós eftir úrslit helgarinnar. 27.9.2021 14:00
Fjórða félagið sem vinnur langþráðan stóran titil eftir að Pablo mætir á svæðið Salvadorinn Pablo Punyed er mikill sigurvegari en það hefur hann sýnt og sannað ítrekað í íslenska fótboltanum. Hann varð Íslandsmeistari með Víkingum í lokaumferð Pepsi Max deild karla á laugardaginn. 27.9.2021 13:00
Óljóst hvort Ólafur verði áfram með FH Það kemur í ljós á næstu dögum hver þjálfar FH í Pepsi Max-deild karla á næsta tímabili. 27.9.2021 12:01
Víkingar eru óvæntustu Íslandsmeistararnir í sögunni Víkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn um helgina og settu um leið nýtt met. Aldrei hefur Íslandsmeisturum verið spáð lakara gengi fyrir tímabilið. 27.9.2021 10:00
Nikolaj Hansen og Agla María valin best í Pepsi Max deildunum Leikmenn, þjálfarar og forráðamenn félaganna sem leika í Pepsi Max deildum karla og kvenna kusu bestu leikmenn deildanna tveggja. Verðlaunin voru afhent í Pepsi Max Stúkunni í gærkvöldi fyrir hönd KSÍ. 26.9.2021 11:15
Sjáðu mörkin, fagnaðarlætin og þegar Víkingar hófu bikarinn á loft Víkingur Reykjavík varð í gær Íslandsmeistari í knattspyrnu í fyrsta skipti í 30 ár eftir 2-0 sigur gegn Leikni í lokaumferð Pepsi Max deildar karla. 26.9.2021 08:01
Alsæla í Fossvogi: „Búin að bíða drullulengi eftir þessu“ Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í Fossvoginum þegar Víkingur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu í fyrsta sinn í 30 ár. Stuðningsmenn líktu sigrinum við alsælu og sögðu erfiða þrjá áratugi að baki. 25.9.2021 20:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Víkingur R. - Leiknir R. 2-0| Víkingur Reykjavík Íslandsmeistari 2021 Víkingur vann Leikni 2-0. Markahæsti leikmaður mótsins Nikolaj Hansen gerði fyrsta markið og lagði upp það seinna.Víkingur Reykjavík er Íslandsmeistari árið 2021. Þetta var sjötti Íslandsmeistaratitil Víkings og sá fyrsti í 30 ár. 25.9.2021 18:31
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - ÍA 2-3 | Skagamenn snéru taflinu við og bæði lið halda sér uppi Skagamenn náðu á ótrúlegan hátt að bjarga sér frá falli í háspennu leik við heimamenn í Keflavík í dag. Lokatölur voru 2-3 eftir að Keflavík leiddi 2-0 þegar rúmar 20 mínútur voru eftir. Bæði lið náðu að halda sæti sínu í deildinni, eftir að HK tapaði fyrir Breiðablik á sama tíma. 25.9.2021 18:31
Umfjöllun og viðtöl: KA - FH 2-2 | KA-menn misstu af þriðja sætinu KA-menn misstu af þriðja sætinu þegar að liðið gerði 2-2 jafntefli gegn FH á Greifavellinum í lokaumferð Pepsi MAx deildar karla í dag. 25.9.2021 17:53
Umfjöllun: Stjarnan - KR 0-2 | KR-ingar tryggðu sér þriðja sætið og eiga enn von á Evrópusæti Stjörnumenn fengu KR-inga í heimsókn í Garðabæinn í dag í lokaleik sínum í Pepsi-Max deild karla. KR-ingar tryggðu sér 3.sæti í deildinni með 2-0 sigri sem gæti gefið Evrópusæti ef Víkingur R. vinnur Mjólkurbikarinn. 25.9.2021 17:44
Umfjöllun: Breiðablik - HK 3-0 | HK fallið úr efstu deild eftir sannfærandi sigur Breiðabliks Blikar stóðu sína plikt og lögðu granna sína í HK 3-0 í síðustu umferð deildarinnar fyrr í dag og með því hafa HK-ingar lokið veru sinni í efstu deild í þetta sinn. Skagamenn unnu Keflvíkinga og tryggðu veru sína í efstu deild þar sem HK tapaði.Umfjöllun og viðtöl síðar. 25.9.2021 17:05
Rúnar Kristinsson: Við viljum vinna bikar á hverju einasta ári KR-ingar unnu 0-2 sigur á Stjörnunni í Garðabæ í lokaleik þeirra í Pepsi-Max deild karla. Með sigrinum og öðrum úrslitum í dag náðu KR-ingar 3.sætinu í deildinni og eiga því veika von á því að komast í Evrópukeppni á næsta ári. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var ánægður í leikslok. 25.9.2021 16:54
Úrslit: Fylkir - Valur 0-6 | Valssigur í leik sem skipti litlu Valur vann Fylki í leik sem skipti litlu máli í lokaumferð Pepsi Max deildarinnar í dag. 25.9.2021 16:15
Lokaumferð deildarinnar: Íslandsmeistarar krýndir, mögulegt Evrópusæti í boði og hvaða lið fellur? Sjaldan eða aldrei hefur verið eins mikil spenna fyrir lokaumferð efstu deildar karla í fótbolta og er í dag. Klukkan 16.00 í dag verður ljóst hvaða lið er Íslandsmeistari í knattspyrnu karla árið 2021 sem og hvaða lið mun fylgja Fylki niður í Lengjudeildina. 25.9.2021 08:00
Arnar um stórleik dagsins: „Þetta er bara móðir allra leikja“ „Það hefur gengið mjög vel eftir að við náðum okkur niður eftir KR-leikinn, það var svona tveir dagar og svefnlausar nætur eftir það,“ sagði Arnar Gunnlaugsson aðspurður hvernig vikan hefði verið hjá Víkingum sem spila sinn stærsta leik í að minnsta kosti 30 ár í dag. 25.9.2021 07:01
Óskar Hrafn og Halldór framlengja í Kópavoginum Óskar Hrafn Þorvaldsson og Halldór Árnason hafa framlengt samninga sína við Breiðablik. Eru þeir nú samningsbundnir næstu fjögur árin. Þetta kemur fram á vef Breiðabliks. 24.9.2021 23:02
Segja Hermann líklegastan til að taka við ÍBV Talið er að Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson sé líklegastur til að taka við ÍBV en liðið mun leika í Pepsi Max deild karla í fótbolta sumarið 2022. 24.9.2021 22:00
Jafntefli í lokaleik Lengjudeildar Kórdrengir misstu frá sér tveggja marka forystu á Ísafirði er liðið gerði 3-3 jafntefli við Vestra í lokaleik tímabilsins í Lengjudeild karla. Um var að ræða frestaðan leik og því var þetta síðasti leikur deildarinnar áður en haldið er í frí. 24.9.2021 18:16
Breiðablik og HK án mikilvægra leikmanna í Kópavogsslagnum Breiðablik og HK verða án mikilvægra leikmanna í Kópavogsslagnum í lokaumferð Pepsi Max-deildar karla á morgun. 24.9.2021 17:01
Fimmta sinn í sögu tólf liða deildar sem titillinn vinnst í lokaumferðinni Úrslitin ráðast í Pepsi Max deild karla í lokaumferðinni á morgun en það er ekki á hverju ári sem Íslandsmeistaratitilinn vinnst ekki fyrr en í síðasta leik. 24.9.2021 15:31
Arnar áfram með KA Arnar Grétarsson og KA hafa komist að samkomulagi um að hann stýri liðinu áfram á næsta tímabili. 24.9.2021 15:18
„Væri ekkert leiðinlegur dagur ef ég yrði Íslandsmeistari og kæmist inn á þing“ Gísli Eyjólfsson verður í þeirri erfiðu stöðu að þurfa að fylgjast með samherjum sínum í Breiðabliki úr stúkunni í lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar. Morgundagurinn verður viðburðarríkur fyrir Gísla en hann er einnig í framboði til Alþingis þótt hann sé ekki beint í baráttusæti. 24.9.2021 14:45
Víkingar hafa aldrei unnið Leiknismenn í efstu deild Víkingur verður Íslandsmeistari í knattspyrnu á morgun ef liðið vinnur lokaleik sinn á móti Leikni. Það hafa Víkingar þó aldrei afrekað áður í sögunni í deild þeirra bestu. 24.9.2021 14:16
Bikarinn verður miðja vegu á milli Víkinnar og Smárans Íslandsmeistarabikarinn fer annað hvort á loft á Víkingsvelli eða Kópavogsvelli. Á meðan leikjunum í lokaumferðinni í Pepsi Max-deild karla verður bikarinn í vörslu starfsmanns KSÍ á miðlægum stað. 24.9.2021 14:00
Fyrirliði Leiknis stoppaður af Blikum á förnum vegi Fyrirliði Leiknis er uppalinn hjá Breiðabliki og er vel meðvitaður um að hans gamla félags þarf á hjálp Leiknismanna að halda til verða Íslandsmeistari. 24.9.2021 12:01
Fjölnismenn leituðu ekki langt yfir skammt Fjölnismenn hafa ráðið nýjan þjálfara til að stýra karlaliði félagsins í fótbolta, eftir að Ásmundur Arnarsson hætti fyrr í þessum mánuði. 24.9.2021 11:24
Víkingar munu skanna hraðprófskóðann við innganginn á morgun Það er búist við troðfullri Vík á morgun þegar Víkingar geta tryggt sér fyrsta Íslandsmeistaratitil sinn í þrjátíu ár. 24.9.2021 11:01
Helga býður sig fram í stjórn KSÍ Helga Helgadóttir, íþróttastjóri knattspyrnudeildar Hauka og þjálfari, hefur ákveðið að sækjast eftir kjöri í stjórn Knattspyrnusambands Íslands á sérstöku aukaþingi sem haldið verður eftir rúma viku. 24.9.2021 09:30
ÍBV yfirgefur Lengjudeildina með sigri Grótta tók á móti ÍBV í lokaumferð Lengjudeildar karla í dag. Sigurður Arnar Magnússon tryggði Eyjamönnum 3-2 sigur þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka eftir að liðið hafði lent 2-1 undir. 23.9.2021 19:30
Ætlar að hætta sem formaður Knd. Fram verði hann kosinn í stjórn KSÍ Framarar eru komnir aftur upp í Pepsi Max deild karla í fótbolta eftir frábært tímabil í Lengjudeildinni í sumar en formaðurinn er nú á krossgötum. 23.9.2021 11:01
Halldór Orri spilar kveðjuleik sinn á laugardaginn Stjarnan tekur á móti KR í 22. og síðustu umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta á laugardaginn og þar mun einn maður eiga hug og hjörtu stuðningmanna Stjörnunnar. 23.9.2021 10:30
Þrjú hundruð miðar á Víkingsleikinn fara í sölu klukkan ellefu Víkingar geta orðið Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í þrjátíu ár um næstu helgi og miklu fleiri vilja komast á leikinn en miðar í boði. Víkingar tóku upp hraðpróf til að geta fjölgað áhorfendum upp í 1500 manns. 22.9.2021 09:30
Víkingar nýta hraðpróf og fjölga áhorfendum Víkingar munu geta tekið á móti 1.500 fullorðnum áhorfendum auk barna á laugardaginn, þegar þeir gætu mögulega orðið Íslandsmeistarar í fótbolta karla í fyrsta sinn í þrjátíu ár. 21.9.2021 13:54