Fimmta sinn í sögu tólf liða deildar sem titillinn vinnst í lokaumferðinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. september 2021 15:31 Valsmenn eru síðasta liðið til að vinna Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferðinni en hér fagna Valsarar sigri sínum árið 2018. Vísir/Bára Dröfn Úrslitin ráðast í Pepsi Max deild karla í lokaumferðinni á morgun en það er ekki á hverju ári sem Íslandsmeistaratitilinn vinnst ekki fyrr en í síðasta leik.
Þetta verður aðeins í fimmta sinn í fjórtán ára sögu tólf liða deildar þar sem við vitum ekki hver verður Íslandsmeistari fyrr en eftir lokaumferðina. Árin 2018, 2014, 2010 og 2008 réðust úrslitin einnig í lokaumferð úrvalsdeildarinnar. Síðast gerðist þetta fyrir þremur árum, haustið 2018, þegar Valsmenn voru með tveggja stiga forystu á Breiðablik fyrir lokaumferðina en fengu þá langneðsta lið deildarinnar í heimsókn. Valur vann öruggan 4-1 sigur á Keflavík í lokaleiknum eftir að hafa komist í 3-0 á fyrstu tuttugu mínútunum. Fjórum árum fyrr fengum við ótrúlegan úrslitaleik á milli FH og Stjörnunnar um Íslandsmeistaratitilinn í Kaplakrika 4. október 2014. FH var á heimavelli, nægði jafntefli og FH-ingum tókst að jafna metin eftir að Stjarnan komst yfir í fyrri hálfleik. Ólafur Karl Finsen fékk síðan umdeilt víti í uppbótartíma og skoraði úr því sigurmarkið í leiknum og markið sem tryggði Stjörnunni Íslandsmeistaratitilinn. Breiðablik tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferðinni 2010 en þrjú lið áttu þá möguleika á að vinna titilinn. Breiðablik var með eins stigs forskot á ÍBV og tveggja stiga forskot á FH. Það nægði Blikum að gera markalaust jafntefli á útivelli á móti Stjörnunni því ÍBV tapaði á sama tíma 4-1 í Keflavík og þrátt fyrir 3-0 sigur FH á Fram í Laugardalnum þá náðu FH-ingar ekki að vinna upp markamuninn sem Blikar höfðu á þá. Blikar urðu því Íslandsmeistarar á markatölu. Á fyrsta tímabili tólf liða deildar, árið 2008, þá réðust einnig úrslitin í lokaumferðinni. Keflavík var með tveggja stiga forskot á FH fyrir lokaumferðina og nægði sigur á Fram á heimavelli til þess að tryggja sér titilinn í fyrsta sinn í 35 ár. Keflavík komst í 1-0 í leiknum en tapaði síðan leiknum 2-1 þar sem Hjálmar Þórarinsson skoraði sigurmark Fram tíu mínútum fyrir leikslok. FH vann á sama tíma 2-0 sigur á Fylki í Árbæ og tryggði sér með því Íslandsmeistaratitilinn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira