Fleiri fréttir

Viðar og Ronaldo í baráttunni um gullskó Evrópu

Viðar Örn Kjartansson og Cristiano Ronaldo eru báðir meðal þriggja hæstu á listanum yfir markahæstu leikmenn Evrópu á tímabilinu 2014-15 en sigurvegarinn hlýtur að launum Gullskó Evrópu.

Stjóri Gylfa alveg búinn að fá sig full saddan

Garry Monk, knattspyrnustjóri Swansea City, er alveg búinn að fá nóg af slæmum ákvörðunum dómara í leikjum liðsins að undanförnu og hann hefur nú óskað eftir fundi með Mike Riley, yfirmanni dómara í ensku úrvalsdeildinni.

Klas Ingesson dó í nótt

Klas Ingesson, fyrrum landsliðsmaður Svía og þjálfari sænska liðsins Elfsborg, lést í nótt eftir baráttu við krabbamein. Þetta kemur fram í sænskum fjölmiðlum.

Clattenburg mátti ekki keyra einn á Ed Sheeran tónleika eftir leik

Mark Clattenburg, einn besti dómari ensku úrvalsdeildarinnar, fær ekki að dæma um komandi helgi eftir að hafa brotið reglur enska knattspyrnusambandsins eftir leik West Brom og Crystal Palace um síðustu helgi. Þetta kemur fram í enskum miðlum í morgun.

Þrjú karlalið vildu frá Elísabetu sem þjálfara

Elísabet Gunnarsdóttir er búin að gera nýjan samning við sænska liðið Kristianstad og mun þjálfa liðið næstu þrjú árin eins og hún hefur gert frá árinu 2009. Elísabet segir frá því í viðtali við Morgunblaðið í dag að þrjú karlalið hafi sóst eftir starfskröftum hennar.

Sif ólétt og verður lítið með á árinu 2015

Sif Atladóttir verður ekki með íslenska landsliðinu í fótbolta á næstu mánuðum en miðvörðurinn snjalli á von á sínu fyrsta barni. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í morgun.

Fyrrum FIFA-dómari heldur tónleika á Akureyri

Jóhannes Valgeirsson, fyrrum milliríkjadómari og dómari í þrettán ár í úrvalsdeild karla, er kominn á fullt í tónlistinni og ætlar að halda tónleika á Backpackers á Akureyri í næsta mánuði.

Messan: Hvað var Rafael litli að gera á Drogba?

Guðmundur Benediktsson og félagar hans í Messunni fóru yfir níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær og Hjörvar Hafliðason rifjaði meðal annars upp gamalt mark hjá Didier Drogba.

Haukur Heiðar að semja við AIK í Svíþjóð

Sænski fréttamiðillinn FotbollDirekt hefur heimildir fyrir því að sænska úrvalsdeildarfélagið AIK sé mjög nálægt því að semja við íslenska bakvörðinn Hauk Heiðar Hauksson, sem hefur gert það gott hjá KR-liðinu síðustu ár.

Messan: Gylfi heldur áfram að gefa og gefa

Guðmundur Benediktsson og félagar hans í Messunni fóru yfir níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær og auðvitað kom okkar maður, Gylfi Þór Sigurðsson, þar við sögu.

Kemur Rooney meiddur úr banninu?

Wayne Rooney er sloppinn úr þriggja leikja banni en svo gæti samt farið að fyrirliði Manchester United geti ekki verið með í Manchester-borgarslagnum um næstu helgi.

Zidane dæmdur í þriggja mánaða bann

Franska fótboltagoðsögnin Zinedine Zidane er farinn að þjálfa hjá Real Madrid en það byrjar ekki vel því kappinn hefur verið dæmdur í þriggja mánaða bann af spænska knattspyrnusambandinu.

Lagerbäck fær ekki sæti meðal bestu þjálfara heims 2014

Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska landsliðsins í fótbolta, er ekki meðal þeirra tíu þjálfara sem eru tilnefndir sem bestu þjálfarar heims fyrir árið 2014 þrátt fyrir að hafa gert frábæra hluti með "Strákana okkar" í ár.

Þetta eru 23 bestu fótboltamenn heims 2014

Cristiano Ronaldo og Lionel Messi eru að sjálfsögðu á listanum yfir þá 23 knattspyrnumenn sem eru tilnefndir til Gullbolta FIFA árið 2014 en annarhvor þeirra hefur unnið þessi verðlaun undanfarin fimm ár.

Van Gaal vill ekki segja hver horfði ekki á El Clasico

Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að sautján af átján manna hópi liðsins fyrir leikinn á móti Chelsea í gær hafi horft saman á leik Real Madrid og Barcelona á laugardaginn.

Romario spáir því að Neymar bæti met Pele

Neymar, framherji Barcelona og Brasilíu, hefur raðað inn mörkum með félagsliði og landsliði að undanförnu og nú er hann farinn að nálgast eitt virtasta met í brasilíska fótboltanum.

Sjá næstu 50 fréttir