Fleiri fréttir

Dynamo Kiev reynir að fá Shevchenko

Samkvæmt heimildum Sky-fréttastofunnar er úkraínska liðið, Dynamo Kiev, í viðræðum við Chelsea en félagið vill kaupa framherjann Andriy Shevchenko.

Á Ísland langbestu stuðningsmennina á EM í Finnlandi?

Heimasíða Knattspyrnusambands Íslands hefur komist að því að það sé samdóma álit allra þeirra sem fylgjast með EM kvennalandsliða í Finnlandi að íslensku stuðningsmennirnir séu þeir langbestu í keppninni. Íslendingar hafa fjölmennt á leiki íslenska liðsins í Tampere og Lahti og haldið uppi frábærri stemmningu í stúkunni svo eftir er tekið.

Markverðirnir þurftu bara að mæta á æfingu í morgun

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, kvennalandsliðsþjálfari gaf útileikmönnum íslenska landsliðsins frí á æfingu liðsins í morgun og það voru því bara markverðirnir og þrír skotmenn sem fóru á æfingasvæðið á meðan hinir sextán leikmenn liðsins fengu frjálsan tíma.

Kjartan Henry lánaður til Falkirk

Kjartan Henry Finnbogason var í dag lánaður til skoska úrvalsdeildarfélagsins Falkirk en hann er samningsbundinn Sandefjord í Noregi.

Fjórir leikmenn til Portsmouth

Portsmouth hefur styrkt leikmannahópinn fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni en fjórir leikmenn gengu til liðs við félagið í dag.

Atletico Madrid segir Heitinga ekki vera á förum

Forráðamenn spænska félagsins Atletico Madrid hafa tekið fyrir það að varnarmaðurinn Johnny Heitinga sé á förum frá félaginu en spænskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að Everton væri búið að leggja fram kauptilboð í landsliðsmanninn hollenska.

Zola vill fá annan framherja til West Ham

Knattspyrnustjórinn Gianfranco Zola hjá West Ham er afar ánægður með að félagið hafi náð að kaupa framherjann Alessandro Diamanti frá Livorno en ítrekar jafnframt að hann vilji kaupa einn annan framherja til viðbótar áður en félagsskiptaglugganum lokar 1. september.

Félagaskipti Sneijder staðfest

Bæði Real Madrid og Inter á Ítalíu hafa staðfest að síðarnefnda félagið hefur fest kaup á Hollendingnum Wesley Sneijder frá Real.

Svíar öruggir í fjórðungsúrslitin

Svíþjóð vann í dag 2-0 sigur á Ítalíu í C-riðli Evrópumeistaramóts kvenna í knattspyrnu sem fer fram í Finnlandi. Um leið tryggði liðið sér sigur í fjórðungsúrslitum mótsins.

Ferguson: Hargreaves er eins og nýr leikmaður fyrir okkur

Knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson hjá Englandsmeisturum Manchester United getur vart beðið eftir því að miðjumaðurinn Owen Hargreaves snúi aftur til æfinga með félaginu en hann hefur verið lengi frá vegna hnémeiðsla.

Evans fer líklega í aðgerð þegar Ferdinand snýr aftur

Varnarmaðurinn Jonny Evans hjá Englandsmeisturum Manchester United er meiddur á kálfa og þarf á aðgerð að halda til þess að fá bót meina sinna en hefur spilað í gegnum sársaukann vegna meiðsla Nemanja Vidic og Rio Ferdinand.

Tottenham vill fá Muntari - Jenas með í skiptunum?

Knattspyrnustjórinn Harry Redknapp hjá Tottenham er sagður í breskum fjölmiðlum í dag mjög áhugasamur um að kaupa Sulley Muntari frá Inter en leikmaðurinn lék undir stjórn Redknapps hjá Portsmouth á sínum tíma.

Brown líklega á leiðinni til Portsmouth

Knattspyrnustjórinn Roberto Martinez hjá Wigan hefur staðfest að miðjumaðurinn Michael Brown sé í samningsviðræðum við Portsmouth eftir að félögin tvö komu sér saman um kaupverð fyrir leikmanninn.

Bentley missir ökuréttindin í eitt ár

Vængmaðurinn David Bentley hjá Tottenham hefur loks fengið refsingu fyrir glæfraakstur sinn um miðjan ágúst þegar hann klessukeyrði Porsche bifreið sína á ljósastaur í Hertfordshire á Englandi.

Chelsea með risakauptilboð í Ribery?

Sögusagnir herma að enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea sé búið að leggja fram 65 milljón evra kauptilboð í vængmanninn eftirsótta Franck Ribery hjá Bayern München en leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við stærstu félög Evrópu í allt sumar.

Ferguson spáir enskum yfirráðum í Meistaradeildinni

Knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson hjá Englandsmeisturum Manchester United reiknar fastlega með því að ensku félögin fjögur sem taka þátt í Meistaradeildinni á þessu keppnistímabili eigi eftir að ná góðum árangri líkt og síðustu ár.

Diamanti genginn í raðir West Ham

Leit knattspyrnustjórans Gianfranco Zola hjá West Ham eftir nýjum framherja hefur loksins borið árangur en Lundúnafélagið hefur staðfest félagsskipti Ítalans Alessandro Diamanti frá Livorno.

Margrét Lára: Við eigum heima hérna á EM

Margrét Lára Viðarsdóttir er búin að vera í mjög strangri gæslu á Evrópumótinu og hefur því fengið úr litlu að moða. Hún segir frammistöðu liðsins á móti Noregi hafa átt skilið stig.

Robben á leið til Bayern

Bayern München og Real Madrid hafa komist að samkomulagi um kaupverð á Hollendingnum Arjen Robben, leikmanni Real. Það er talið vera um 22 milljónir punda.

Tvö Íslendingalið áfram

Fjölmargir Íslendingar voru í eldlínunni með liðum sínum í Evrópudeildinni í knatttspyrnu í kvöld. Tvö Íslendingalið komust áfram.

Erna Björk: Vantaði herslumuninn

Erna Björk Sigurðardóttir sagði það afar svekkjandi að hafa ekki náð að klára leikinn gegn Noregi almennilega í kvöld.

Sigur dugði ekki Aston Villa

Aston Villa er úr leik í Evrópudeildinni þrátt fyrir 2-1 sigur á Rapíd Vín á heimavelli í kvöld. Austurríska liðið vann 1-0 sigur á heimavelli í fyrri leik liðanna og komst áfram á fleiri útivallarmörkum.

Sigurður Ragnar: Ánægður með liðið

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari íslenska liðsins, sagðist vera ánægður með sitt lið eftir að það tapaði naumlega fyrir Noregi, 1-0, á EM í Finnlandi í dag.

Everton búið að finna eftirmann fyrir Lescott?

Flest virðist benda til þess að varnarmaðurinn Sylvain Distin sé á förum frá Portsmouth til Everton en stjórnarformaðurinn Peter Storrie hjá Portsmouth hefur staðfest að leikmaðurinn vilji yfirgefa Fratton Park.

Umfjöllun: Ísland úr leik á EM

Íslenska landsliðið í knattspyrnu er úr leik á Evrópumeistaramótinu í Finnlandi eftir að liðið tapaði fyrir Noregi í kvöld, 1-0.

Stelpurnar fá innblástur frá handboltalandsliðinu - úr leik ef þær tapa

Íslenska kvennalandsliðið er nýmætt til leiks á Lahden-leikvanginn í Lahti og þegar hópurinn gekk framhjá blaðamannaaðstöðunni þá hljómaði söngur karlahandboltalandsliðsins, "Við gerum okkar besta",í græjunum sem stelpurnar eru með sér. Þær sækja því innblástur til karlalandsliðsins í handbolta fyrir leikinn á móti Norðmönnum í kvöld.

Katrín: Það var engin ein að klikka á móti Frökkum

Katrín Jónsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, er sannfærð að Ísland sé með betra lið en Noregur en þjóðirnar mætast í Lahti í dag í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í Finnlandi. Hún segir að liðið sé búið að vinna sig út úr vonbrigðum Frakkaleiksins.

Sjá næstu 50 fréttir