Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Við þurfum að eiga toppleik til þess að láta draumana rætast“ Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, var svekktur eftir tap á móti Svíþjóð í undankeppni EM í handbolta í kvöld. Íslenska liðið lenti undir strax í byrjun leiks og náði aldrei að koma sér almennilega inn í leikinn, lokatölur 23-29. 20.4.2022 22:15
Richarlison tryggði Everton mikilvægt stig | Þriðji sigur Newcastle í röð Everton er nú fjórum stigum frá fallsvæðinu eftir jöfnunarmark Richarlison á síðustu andartökum leiksins í 1-1 jafntefli gegn Leicester. Almirón tryggði Newcastle stigin þrjú með stórkostlegri afgreiðslu. 20.4.2022 21:30
Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Svíþjóð 23-29| Svíþjóð vann með sex mörkum Ísland mætti ógnarsterku liði Svíþjóðar í næstsíðasta leik sínum í undankeppni EM 2022 í handbolta kvenna á Ásvöllum í kvöld. Með sigrinum tryggði Svíþjóð sér farseðil á EM í handbolta. Svíþjóð náði strax forystu á fyrstu mínútum leiksins og hélt henni út til leiksloka. Lokatölur 23-29. 20.4.2022 21:05
Manchester City endurheimtir toppsætið Englandsmeistarar Manchester City átti ekki í vandræðum með Brighton & Hove Albion á Etihad vellinum í Manchester. City vann leikinn 3-0 og tyllir sér aftur í toppsæti deildarinnar. 20.4.2022 20:54
Arsenal tók Lundúnaslaginn Arsenal sótti stigin þrjú eftir 2-4 sigur á Chelsea á Brúnni í kvöld en Chelsea hefur ekki unnið Arsenal á heimavelli síðan 2019. 20.4.2022 20:40
Umfjöllun og viðtöl: KA 1–0 Leiknir R. | Akureyringar unnu á Dalvík KA mætti Leikni frá Reykjavík í fyrstu umferð Bestu deildar karla á Dalvíkurvelli í kvöld. Aðstöðuleysi norðanmanna hefur vart farið fram hjá mörgum og mun KA því þurfa að spila nokkra leiki á Dalvík í byrjun móts. KA hafði að lokum 1-0 sigur eftir leik sem var ekki mikið fyrir augað. 20.4.2022 20:30
PSG með níu og hálfan fingur á meistaratitlinum Paris Saint-Germain er svo gott sem búið að tryggja sér sinn 10. franska meistaratitill eftir 0-3 sigur á Angers í frönsku deildinni í kvöld. PSG þarf bara eitt stig úr síðustu fimm leikjum sínum. 20.4.2022 20:15
Arnar: Mér fannst frammistaðan alveg verðskulda þrjú stig KA vann 1-0 sigur á Leikni Reykjavík á Dalvíkurvelli nú í kvöld. Ásgeir Sigurgeirsson skoraði sigurmark leiksins á 53. mínútu. Arnar Grétarsson, þjálfari KA, var nokkuð sáttur með spilamennsku síns liðs í leiknum og fyrst og fremst að fá stigin þrjú. 20.4.2022 19:45
Hlín hafði betur gegn Hallberu Fimm leikjum er nú nýlokið í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Allar íslensku stelpurnar voru í byrjunarliði sinna liða og Hlín Eiríksdóttir skoraði sigurmarkið í uppgjöri Íslendingaliðanna. 20.4.2022 19:15
Jafntefli í uppgjöri Íslendingaliðanna Það voru fimm leikir á dagskrá í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Í fjórum viðureignum voru Íslendingar í leikmannahópunum. 20.4.2022 18:55
Ætlar í hungurverkfall fyrir mikilvægasta leik tímabilsins Mark McGhee, knattspyrnustjóri Dundee FC, hefur gripið flestar fyrirsagnir bresku blaðanna síðasta sólarhring vegna afar óhefðbundins undirbúnings síns fyrir næsta leik liðsins. McGhee ætlar bæði að ofkæla og svelta sig fram til laugardags. 20.4.2022 18:01
Afturelding með nýjan markvörð til næstu þriggja ára Markvörðurinn Jovan Kukobat hefur skrifað undir samning til næstu þriggja ára við handknattleiksdeild Aftureldingar. 20.4.2022 17:01
Hreinsanir hafnar á starfsliði Man Utd og búist við allt að tíu nýjum leikmönnum í sumar Tveir helstu njósnarar Manchester United hafa yfirgefið félagið. Virðist þetta vera upphafið að einni allsherjar hreinsun á bæði leikmannahóp og starfsliði félagsins. Ralf Rangnick, tímabundinn þjálfari liðsins, býst við sex til tíu leikmönnum í sumar. 20.4.2022 16:15
Nýtt ár, nýtt lið en sami gamli Óskar Örn Óskar Örn Hauksson hóf lífið eftir KR á sama hátt og undanfarin ár. Með þrumufleyg fyrir utan teig er Stjarnan gerði 2-2 jafntefli við ÍA í fyrstu umferð Bestu deildar karla. 20.4.2022 15:30
Kyrie heldur áfram að sanka að sér sektum Kyrie Irving, leikmanni Brooklyn Nets í NBA-deildinni, tókst enn á ný að koma sér í vandræði er Nets tapaði með eins stigs mun gegn Boston Celtics í úrslitakeppninni. 20.4.2022 14:47
Rúnar Þór spilaði kviðslitinn Bakvörðurinn Rúnar Þór Sigurgeirsson var nokkuð óvænt í byrjunarliði Keflavíkur er liðið hóf leik í Bestu deild karla. Rúnar Þór hefur verið að glíma við meiðsli á leiktíðinni og er kviðslitinn en spilaði samt sem áður 75 mínútur í 4-1 tapi á Kópavogsvelli í gær. 20.4.2022 14:01
Strákarnir í Seinni bylgjunni hita upp fyrir úrslitakeppnina og gera upp tímabilið Úrslitakeppni Olís-deildar karla hefst á morgun og að því tilefni verður Seinni bylgjan með veglegan upphitunarþátt í dag. 20.4.2022 13:16
Systir Ronaldos: „Munum aldrei gleyma því sem Liverpool gerði“ Elma Aveiro, systir Cristianos Ronaldo, segir að fjölskyldan verði ævinlega þakklát stuðningsmönnum Liverpool hvernig þeir heiðruðu minningu sonar Ronaldos sem lést við fæðingu. 20.4.2022 13:00
Fyrirliði Svía tekur undir gagnrýni Söru Caroline Seger, fyrirliði sænska landsliðsins og leikjahæsti leikmaður í sögu þess, tekur undir gagnrýni Söru Bjarkar Gunnarsdóttur val mótshaldara á EM 2022 á keppnisvöllum á mótinu. 20.4.2022 12:31
Kynningarfundur Bestu deildar kvenna: Val spáð Íslandsmeistaratitlinum Kynningarfundur fyrir Bestu deild kvenna í fótbolta fór fram í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal í dag. Er því spáð að Íslandsmeistarar Vals muni verja titil sinn. Fundinn má sjá í heild sinni neðst í fréttinni. 20.4.2022 11:31
Markadrottningin utan hóps í kvöld Landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson hefur tilkynnt hvaða sextán leikmenn mæta Svíum í kvöld í næstsíðasta leik Íslands í undankeppni EM kvenna í handbolta. 20.4.2022 11:24
Sjáðu mörkin: Arnór Smára hetja Vals, Breiðablik fór á kostum og ÍA bjargaði stigi í lokin Öll mörkin úr leikjum gærdagsins úr Bestu deild karla eru komin inn á Vísi. Þau má sjá hér að neðan. 20.4.2022 11:00
Gagnrýni Söru á mótshaldara EM vekur heimsathygli Gagnrýni Söru Bjarkar Gunnarsdóttur á mótshaldara EM 2022 hefur vakið heimsathygli. Hún er afar ósátt við að tveir leikir Íslands á mótinu fari fram á akademíuleikvangi Manchester City. 20.4.2022 10:00
Þögn ríkir hjá FH um málefni Eggerts Fundað var um stöðu knattspyrnumannsins Eggerts Gunnþórs Jónssonar hjá FH í Kaplakrika í gær vegna gagnrýni á veru hans í liði FH á sama tíma og embætti héraðssaksóknara er með mál hans til skoðunar. 20.4.2022 09:32
Fyrstur til að skora fimm deildarmörk mörk á sama tímabilinu gegn Man Utd Það verður seint sagt að Manchester United hafi riðið feitum hesti gegn Liverpool í viðureignum liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Man Utd var kjöldregið í báðum leikjum liðanna, markatalan 9-0 og þá skoraði Mohamed Salah samtals fimm mörk í leikjunum tveimur. 20.4.2022 09:01
Síungur Birkir Már kominn með fjögur hundruð deildarleiki á ferlinum Birkir Már Sævarsson náði mögnuðum áfanga er Valur vann ÍBV 2-1 í fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Hinn síungi Birkir Már var nefnilega að hefja sitt 20. tímabil í meistaraflokki og spilaði þarna sinn 400. deildarleik á ferlinum. 20.4.2022 08:30
„Ætlum að treysta á það að við munum eiga okkar besta dag“ Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tekur á móti því sænska á Ásvöllum í dag í seinasta heimaleik liðsins í undankeppni EM 2022. Arnar Pétursson, þjálfari liðsins, segir að íslensku stelpurnar eigi erfitt verkefni fyrir höndum. 20.4.2022 08:01
Miami í toppmálum | Ingram og Morant öflugir er Pelicans og Grizzlies jöfnuðu metin Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Miami Heat er komið 2-0 yfir gegn Atlanta Hawks, New Orleans Pelicans jöfnuðu metin gegn toppliði Phoenix Suns og Memphis Grizzlies jöfnuðu einnig metin gegn Minnesota Timberwolves. 20.4.2022 07:30
Keane lætur leikmenn United heyra það enn eina ferðina: „Spilaði eins og barn“ Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Manchester United og núverandi sparkspekingur, hefur verið duglegur við að gagnrýna liðið fyrir frammistöðu sína á tímabilinu. Á því varð engin breyting eftir 4-0 tap liðsins gegn Liverpool í gær. 20.4.2022 07:01
Slegið í gegn: Lagaðu „slæsið“ og Ploder pakkað saman í „drævkeppni“ Vísir frumsýnir í dag þriðja þátt af golfþættinum Slegið í gegn. 20.4.2022 06:15
Rangnick: Þeir eru sex árum á undan okkur Ralf Rangnick, bráðabirgðarstjóri Manchester United, var niðurlútur eftir 4-0 tap sinna manna gegn Liverpool í stórleik ensku urvalsdeildarinnar í kvöld. Hann segir að sínir menn hafi einfaldelga ekki verið nógu góðir. 19.4.2022 23:01
Óskar Örn: Eigum að klára svona leik með sigri Óskar Örn Hauksson er kominn á blað með Stjörnumönnnum í Bestu-deildinnni í fótbolta karla en hann skoraði seinna mark liðsins þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Skagamönnum í fyrstu umferð deildarinnar í kvöld. 19.4.2022 22:44
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik – Keflavík 4-1 | Blikar náðu fljúgandi starti gegn slökum Keflvíkingum Breiðablik vann öruggan 4-1 sigur er liðið tók á móti Keflavík í fyrstu umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. 19.4.2022 22:34
Umfjöllun og viðtöl: Haukar – Njarðvík 59-70 | Njarðvíkingar tóku forystu á útivelli Njarðvíkingar eru komnir með forystu í úrslitaeinvígi Subway-deildar kvenna eftir góðan 11 stiga útisigur gegn Haukum í kvöld, 59-70. 19.4.2022 22:20
Óskar Hrafn: „Leikmenn voru rétt stilltir í dag“ „Þetta var virkilega góður leikur hjá okkur að stærstum hluta. Fyrstu 65 mínúturnar fannst mér virkilega góðar, mikil orka og mikill kraftur en síðan gáfum við eftir og hleyptum þeim fullmikið inn í leikinn fyrir minn smekk,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks eftir 4-1 sigur á Keflavík í Bestu deildinni í kvöld. 19.4.2022 22:05
Höttur einum sigri frá sæti í Subway-deildinni Höttur frá Egilsstöðum er nú aðeins einum sigri frá sæti í Subway-deild karla í körfubolta eftir góðan níu stiga útisigur gegn Álftanesi í kvöld, 94-85. 19.4.2022 21:57
Umfjöllun og viðtöl: Valur – ÍBV 2-1 | Verðskuldaður sigur Valsmanna Valsmenn tóku á móti nýliðum ÍBV í blíðskaparveðri á Hlíðarenda í dag í afar fjörugum leik sem endaði 2-1, Valsmönnum í vil. 19.4.2022 21:48
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Garðabæinn Stjarnan og ÍA skiptu stigunum á milli sín þegar liðin mættust í fyrstu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld. Lokatökur í skemmtilegum og fjörugum leik urðu 2-2. 19.4.2022 21:12
Liverpool á toppinn eftir stórsigur í stórleiknum Liverpool vann öruggan 4-0 sigur gegn Manchester United í stórleik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Með sigrinum lyfti Liverpool sér í það minnsta tímabundið á toppinn. 19.4.2022 20:55
Fulham tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni Fulham mun leika í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á næsta tímabili, en liðið tryggði sæti sitt með öruggum 3-0 sigri á Preston North End í kvöld. 19.4.2022 20:38
Orri með slitið krossband og spilar ekki á tímabilinu Valsarinn Orri Sigurður Ómarsson mun ekki leika með liðinu á tímabilinu eftir að leikmaðurinn sleit krossband. 19.4.2022 19:01
Sara Rún stigahæst í tapi Landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæsti leikmaður Phoenix Constanta er liðið mátti þola 13 stiga tap gegn Satu Mare í úrslitakeppni rúmensku deildarinnar í körfubolta, 65-52. Þetta var fyrsti leikur liðanna í einvíginu um þriðja sæti rúmensku deildarinnar. 19.4.2022 17:41
Valskonur sóttu tvo leikmenn yfir hátíðarnar Valskonur eru þegar farnar að styrkja sig fyrir átök næsta tímabils í Olís-deild kvenna í handbolta. Yfir páskahelgina var staðfest að þær Sara Dögg Hjaltadóttir og Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir væru gengnar í raðir Vals. 19.4.2022 16:30
Fram fær varnarmann sem hefur spilað í Danmörku og Færeyjum Nýliðar Fram halda áfram að sækja leikmenn korter í að Íslandsmótið í fótbolta hefst. Í dag tilkynnti félagið að Delphin Tshiembe hefði samið og myndi spila með liðinu í Bestu deildinni í sumar. 19.4.2022 15:46
Þiggur laun fyrir að tala vel um HM í Katar Danska landsliðskonan Nadia Nadim hefur verið gagnrýnd heima fyrir vegna starfa sinna sem sendiherra fyrir HM karla í fótbolta sem fram fer í Katar í lok þessa árs. Hún fær greitt fyrir að auglýsa mótið. 19.4.2022 15:01