Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Svíþjóð 23-29| Svíþjóð vann með sex mörkum

Kristín Björk Ingimarsdóttir skrifar
676F2DB89C6F464250FB9C173B86F54B80E51199D9773B8F90AFC60F4C8DA088_713x0
HULDA MARGRÉT

Ísland mætti ógnarsterku liði Svíþjóðar í næstsíðasta leik sínum í undankeppni EM 2022 í handbolta kvenna á Ásvöllum í kvöld. Með sigrinum tryggði Svíþjóð sér farseðil á EM í handbolta. Svíþjóð náði strax forystu á fyrstu mínútum leiksins og hélt henni út til leiksloka. Lokatölur 23-29.

Svíþjóð byrjaði leikinn betur og skoruði til að mynda fyrstu tvö mörk leiksins. Svíþjóð hélt tveggja til þriggja marka forystu fyrstu mínúturnar en þegar að stundarfjórðungur var liðinn af leiknum voru þær fjórum mörkum yfir, 6-10. 

Íslenska liðið í baráttunni í kvöldVísir: Hulda Margrét

Ísland gerði áhlaup stuttu seinna og minnkaði muninn niður í tvö mörk en klaufagangur í sóknarleiknum gerði það að verkum að þær komu boltanum ekki í netið og Svíar juku muninn enn á ný. Hálfleikstölur 12-17 fyrir Svíþjóð. 

Svíþjóð hélt uppteknum hætti í seinni hálfleik á meðan íslenska liðið átti heldur slaka byrjun. Líkt og í fyrri hálfleiknum skoraði Svíþjóð fyrstu tvö mörkin. Ísland átti erfitt með að koma sér aftur inn í leikinn í seinni hálfleiknum og endaði leikurinn með sex marka sigri Svíþjóðar, 23-29. 

Afhverju vann Svíþjóð?

Þær byrjuðu leikinn betur og komu sér strax í forystu. Þær voru að fá góða markvörslu og var Evelina Eriksson, markmaður þeirra með 40% markvörslu. Það var nánast allt inni hjá þeim sóknarlega og náðu þær að opna hornin vel ásamt því að skytturnar þeirra voru að blómstra. 

Hverjar voru bestar?

Hjá Íslandi var Rut Jónsdóttir markahæst með fimm mörk. Þórey Rósa Stefánsdóttir og Unnur Ómarsdóttir voru með þrjú mörk. Vörnin með Sunnu Jónsdóttur í farabroddi stóð vel og var með nokkra stolna bolta. Thea Imani Sturludóttir var með góða innkomu og náði að stela boltanum í nokkrum hraðaupphlaupum hjá Svíþjóð. 

Hvað gekk illa?

Markvarslan hjá Íslandi náði sér ekki á strik og opnaðist íslenska vörnin á köflum þar sem Svíþjóð komst beint í gegn og skoraði. Þegar það var möguleiki að koma sér almennilega inn í leikinn var boltanum kastað út af eða dæmdur ruðningur sem var ansi dýrt. 

Hvað gerist næst?

Ísland heldur til Serbíu í nótt og á leik við Serbíu á laugardaginn klukkan 16:00.

Rut Jónsdóttir: „Það hefði margt þurft að ganga mun betur“

Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir stóðu vörnina í kvöldVísir: Hulda Margrét

Rut Jónsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, var nokkuð sátt með frammistöðu liðsins er þær mættu Svíþjóð í næstsíðasta leik sínum í undankeppni EM 2022 í handbolta kvenna á Ásvöllum í kvöld. 

„Mér líður bara nokkuð vel. Ég er sátt með þennan leik sem við spiluðum. Auðvitað er svekkjandi að tapa en margt mjög gott í þessum leik sem við getum tekið með okkur.“

„Sóknarleikurinn var nokkuð góður og við erum að skila boltanum betur frá okkur en við höfum verið vanar, þannig að þær ná ekki að keyra á okkur. Þegar að við komum okkur í vörn vorum við að spila mjög góða vörn líka og markmennirnir góðir fyrir aftan.“

Rut segir það hefði margt þurft að ganga betur í kvöld en að það hafi verið hægt að taka margt jákvætt úr frammistöðu liðsins. 

„Það hefði margt þurft að ganga mun betur. Við erum að spila á móti hörkuliði og það sem ég er rosalega sátt með er að við erum komnar aðeins nær þeim en við höfum verið að gera. Við erum að skora miklu fleiri mörk þannig að það er margt mjög jákvætt en margt sem hefði þurft að ganga mun betur hefðum við ætlað að sigra hér í kvöld.“

Næsti leikur er á móti Serbíu á laugardaginn. Fyrir leikinn ætlar íslenska liðið að fara vel yfir hvað var gott og hvað hefði mátt betur fara. 

„Við ætlum að kíkja á það góða og það sem við hefðum getað gert betur. Svo förum við yfir leik þeirra líka og vonandi eigum við eftir að spila okkar besta leik og ná góðum úrslitum.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira