Íslenski boltinn

Nýtt ár, nýtt lið en sami gamli Óskar Örn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Óskar Örn ræddi við Stöð 2 Sport og Vísi að leik loknum. Hann hefði viljað þrjú stig frekar en glæsimark.
Óskar Örn ræddi við Stöð 2 Sport og Vísi að leik loknum. Hann hefði viljað þrjú stig frekar en glæsimark. Stöð 2 Sport

Óskar Örn Hauksson hóf lífið eftir KR á sama hátt og undanfarin ár. Með þrumufleyg fyrir utan teig er Stjarnan gerði 2-2 jafntefli við ÍA í fyrstu umferð Bestu deildar karla.

Ein af stærstu félagaskiptum vetrarins í fótboltanum hér heima voru þegar Óskar Örn, einn albesti leikmaður efstu deildar karla í fótbolta á þessari öld, ákvað að færa sig um set og yfirgefa KR. 

Það var svo gott sem gefið að þessi stórskemmtilegi leikmaður myndi enda ferilinn í vesturbæ Reykjavíkur en Óskar Örn var ekki á þeim buxunum. Orðinn 37 ára gamall ákvað hann að prófa eitthvað nýtt, hann samdi í kjölfarið við Stjörnuna og mun leika með liðinu í sumar sem og á næsta ári.

Það virðist ekki skipta máli hvaða ár er, hversu gamall Óskar Örn er eða hvaða stöðu á vellinum hann spilar - hann skorar alltaf.

Ótrúleg tölfræði.Stöð 2 Sport

Óskar Örn skoraði annað mark Stjörnunnar og virtist það lengi vel ætla að verða sigurmark leiksins. Því miður jöfnuðu ÍA undir lokin en það tekur ekkert frá mögnuðu afreki Óskars Arnar sem var þarna að skora í efstu deild karla 19. tímabilið í röð.

Markið má sjá í spilaranum hér að neðan en það er einkar glæsilegt. Hann fær sendingu fyrir miðju vallarins, tekur góða snertingu og lætur vaða. Boltinn syngur skömmu síðar í netinu, óverjandi fyrir Árna Snæ Ólafsson í marki ÍA.

Það sem gerði markið enn fegurra var hvernig boltinn beygði framhjá varnarmanni ÍA sem kom í pressu. 

„Ég náði að skrúfa boltann framhjá varnarmanninum og ég sá eiginlega ekkert fyrr en að menn fóru bara að fagna. Þá vissi ég að boltinn hefði endað í markinu.“
Klippa: Mark Óskars Arnar

Stjarnan mætir Leiknir Reykjavík í 2. umferð Bestu deildarinnar á sunnudaginn kemur, 24. apríl. 


Besta deildin er á Stöð 2 Sport en nýtt keppnistímabil hefst 18. apríl. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×